Fréttablaðið - 14.03.2002, Page 12

Fréttablaðið - 14.03.2002, Page 12
FRÉTTABLAÐIÐ ÓLYMPÍULEIKAR 14. mars 2002 FIMMTUDACUR Meistaradeild Evrópu: Mikil spenna í B-riðli FYRSTA LYFJAHNEYKSLIÐ Nú standa yfir vetrarólympíuleikar fatlaðra í Salt Lake City. Þeir eru, líkt og nýafstaðnir leikar, ekki lausir við hneykslis- mál. Þjóðverjinn Thomas Oelsner missti tvenn gullverðlaun ( skíðagöngu og var settur í tveggja ára keppnisbann vegna ólöglegra stera. Þetta er fyrsta lyfjamis- notkun sem kemst upp um á vetrarólymp- íuleikum fatlaðra. fótbolti Manchester United og Bayern Munchen eru örugg áfram í Meistarakeppni Evrópu. Liðin, sem eru bæði í A-riðli, mættust í gær og skildu jöfn, 0-0. Nantes og Boavista gerðu einnig jafntefli í hinni viðureign riðils- ins,_ bæði lið skoruðu eitt mark. í B-riðli er staðan heldur jafn- ari. Barcelona og Liverpool mætt- ust í gær í hörku viðureign. Þeir ensku voru mun sterkari til að byrja og áttu tvö góð færi fyrir hlé. Spánverjarnir bitu frá sér í seinni hálfleik en hvorugu liði tókst að skora og niðurstaðan því 0-0. Roma og Galatasary mættust í hinum leiknum og skildu liðin jöfn, 1-1. Liverpool er neðst í B- riðli með 4 stig en á enn mögu- leika á að komast áfram. Róðurinn verður þó erfiður þar sem Roma er í efsta sæti með 7 stig. Barcelona er með 6 stig og Galatasary 5. ■ Lið A-riðiil leikir stig Man.Utd. 5 9 Bayern M. 5 9 Boavista 5 5 Nantes 5 2 Roma B-riðilI 5 7 Barcelona 5 6 Galatasar. 5 5 Liverpool 5 4 JAFNTEFLI Allir leikir Meistaradeildar Evrópu f gær enduðu með jafntefli. Hér kljást Vincent Wlontella leikmaður Roma og Akman leik- maður Calatasary. Shaquille undir hnífinn: Lidagigt í stóru tá KÖRFUBOLTI Shaquille O’Neal hjá L.A. Lakers segir 80 prósent líkur á að hann fari í skurðaðgerð á stóru tá hægri fótar í vor. Hann er með liðagigt í tánni og þjáist. Hann var m.a. settur á sjúkra- lista hjá Lakers í byrjun febrúar. Að aðgerðinni lokinni mun það taka Shaq þrjá eða fjóra mánuði að jafna sig í tánni. Því mun hann líklega missa af byrjun tímabilsins næsta haust. Það er eðlilegt að hann þurfi langan tíma til að jafna sig. Hann notar skónúmer 55 og er því ekki um neina smátá að ræða. ■ „Keppnin milli annarra liða var síðan óvenju jöfn og spennandi. Það voru allir að reyta stig af öll- um. Deildin hefur staðnað örlítið undanfarin ár. En margir strákar eru að koma upp. Þeir hafa burði til að faera keppnina upp á hærra plan.“ í fyrstu umferð úrslita- keppninnar kemst það lið áfram sem fyrr vinnur tvo leiki. Þau lið sem eiga heimarétt, spila fyrsta leik á heimavelli, standa því bet- ur að vígi. í næstu umferð þarf að vinna þrjá leiki. „Úrslitakeppnin er krydd í tímabilið, það skemmtilegasta á árinu,“ segir Jón. Keflvíkingar eiga heimarétt- inn á móti Haukum. „Keflavík tekur þetta í tveimur leikjum. Þetta verður ekki auðvelt en liðið er sterkara en Haukar. Þeir eru brokkgengir." Njarðvík á heima- réttinn á móti Breiðablik. „Þetta fer 2-1 fyrir Njarðvík. Blikarnir komu á óvart í vetur, spila góðan körfubolta og verða sífellt betri. Þeir gætu strítt Njarðvík en tapa oddaleik á útivelli." Þó KR eigi heimaréttinn á móti Hamar spáir Jón Hamar sigri. „Þetta er ekki eftir bókinni. KR-ingar eru taldir sterkari. Hamar hefur hinsvegar tak á KR. Ég hef það á tilfinning- unni að Hamar slái KR út í þriðja leik í Vesturbæ." Fjórða viður- eignin er milli Tindastóls og Grindavíkur. Tindastóll á heima- réttinn. Jón segir það skipta sköp- um. „Heimavöllur þeirra er sterkur og skiptir sköpum. Tinda- stóll vinnur 2-1. Grindavík hefur þó verið að eflast síðustu vikur og var að fá inn nýjan leikmann, Tyson Patterson.“ Jón segir Njarðvík líklegasta liðið til að hampa íslandsmeist- aratitlinum. Úrslitakeppnin sé samt löng og ströng og aldrei að vita hvað kemur upp á. halldor@frettabladid.is Óheppinn Akureyringur: f ■ i •• rin* •• lonn Ijorva föst í nefi hanpbolti Jónatan Magnússon hjá KA hefur vakið athygli í vetur vegna ófrýnilegs nefs, jafnvel verið líkt við nashyrning. Af- skræmingin átti sér stað þegar hann lenti í samstuði við Þorvald Tjörva Ólafsson hjá Haukum í úr- slitaleiknum í fyrra. Hann nef- brotnaði. Framtönn Tjörva brotn- aði. Jónatan átti að fara í aðgerð í vor. Eftir leik KA og Afturelding- ar á dögunum verkjaði hann mik- ið og lét mynda nefið. Kom í ljós að brotið úr framtönn Tjörva sat þar enn. Það hreyfðist í leiknum og sýking kom í sárið. Tönnin var fjarlægð í gær. ■ Hamar neglir KR í kvöld hefst úrslitakeppni Epson-deildarinnar í körfubolta með þremur leikjum. Jón Orn Guðmundsson, fráfarandi þjálfari IR, spáir í spilin. körfubolti í síðustu viku lauk deildarkeppni í Epson-deildinni. Keflavík vann Breiðablik í spenn- andi leik og tryggði sér deildar- meistaratitilinn. KR var skammt á eftir í öðru sæti. Átta efstu liðin í deildinni komust áfram í úrslita- keppni, sem sker út um íslands- meistaratitilinn. Skallagrímur og Stjarnan, sem tapaði öllum leikj- um í vetur, féllu niður í fyrstu deild. Þór, Akureyri og ÍR lentu í níunda og tíunda sæti. Jón Orn Guðmundsson til- Heimilisdagar Kastari Verð áöur 1,790 kr, Verð 795 kr. Heimilisdúkar glæsilegt úrval 20-40% afsláttur 10-40% afsláttur gólfefni málning hreinlætistæki ALLOC Smellt ALLOC parket ekkert lím, bara að leggja Verð J .690 kr. m2 Baðkarshurð Verð áður 26.664 kr. Verð 15.990 kr. Sturtuhaus 5 stillingar Verð 1.359 kr HUSASMIÐJAN Slmi 6?6 3000 • www.huM.is kynnti í síðustu viku að hann ætl- aði að hætta að þjálfa lið ÍR. Jón á 25 ára feril að baki í körfubolta. Hann er búinn að þjálfa úrvals- deildarlið í sex ár, fyrst Þór á Þor- lákshöfn í tvö ár og síðan ÍR í fjögur. „Það var komið nóg,“ seg- ir Jón. „Ég ætlaði að hætta fyrr þannig að þetta var ekki erfið ákvörðun. Þjálfarastarfið er tímafrekt. Oft er erfitt að sam- ræma það með vinnu og öðru.“ Jón segist svekktur yfir því að ÍR komst ekki í úrslitakeppnina. Lið- ið hafi hinsvegar ekki spilað nógu vel í vetur. í vetur hafa, að mati Jóns, þrjú lið borið af í Epson-deildinni, Keflavík, Njarðvík og KR. ÚRSLITAKEPPNi EP5QN-DEILDARINNAR Keflavik-Haukar Keflavik Föstudaginn 15. mars kl. 19 Ásvellír Sunnudaginn 17. mars kl. 20 Keflavík Þriðjudaginn 19. mars kl. 20 KR-Hamar KR húsið Fimmtudaginn 14. mars kl. 20 Hveragerði Sunnudaginn 17. mars kl. 20 KR húsið Þriðjudaginn 19. mars kl. 20 Njarðvik-Breiðablik Njarðvík Fimmtudaginn 14. mars kl. 20 Smárinn Sunnudaginn 17. mars kl. 20.30 Njarðvík Þriðjudaginn 19. mars kl. 20 Tindastóll-Grindavík Sauðárkrókur Fimmtudaginn 14. mars kl. 20 Grindavík Sunnudaginn 17. mars kl. 20 Sauðárkrókur Þriðjudaginn 19. mars kl. 20 jÍPRÓTTIR í DAG| 16.45 RÚV Handboltakvöldið endursýnt. 18.00 Sýn Heklusportið endursýnt. 18.50 Sýn NBA-tilþrif. 19.00 Sýn Heimsfótbolti með West Union. 19.30 Sýn Sýnt frá Genuity Championship golfmótinu f Bandarikjunum. 20.00 Körfubolti Þrír leikir i úrslitakeppni Epson-deildar karla í körfubolta. KR tekur á móti Hamar í KR-húsinu. Breiðablik fer til Njarðvikur. Tindastóil tekur á móti Grindavík á Sauðárkróki. 20.50 Sýn Leiðin á HM. 22.30 Sýn Heklusport

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.