Fréttablaðið - 14.03.2002, Side 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
14. mars 2002 FIMMTUDAGUR
HRÓSIÐ
Hrósíð fær Davíð Oddsson fyrir að horfa
alltaf á björtu hliðarnar, líka þegar vísitala
neysluverðs rýkur upp úr öllu valdi og
kjarasamningar virðast í uppnámi eftir
nokkrar vikur.
TÍMAMÓT
JARÐARFARIR_______________________
13.30 Jónas Sigurðsson, fyrrum skóla-
stjóri Stýrimannaskólans i Reykja-
vík, verður jarðsunginn i dag frá
Hallgrímskirkju.
AFMÆLI____________________________
Gunnar Felixson, forstjóri, er 62 ára f
dag.
Helga Vala Helgadóttir, leikkona, er 30
ára í dag.
STÖÐUVEITINGAR____________________
Þorkell Ágústsson hefur verið skipaður
aðstoðarrannsóknarstjóri Rannsóknar-
nefndar flugslysa.
Sigurjón G. Geirsson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri upplýsingasviðs
Landsbankans.
Einar Kr. Guðfinnsson alþingismaður
hefur verið skipaður formaður Ferða-
málaráðs íslands.
POKTOR____________________________
Brynhildur Davíðsdóttir varði á dögun-
um doktorsritgerð í umhverfisfræðum
við Boston-háskóla.
ANPLÁT____________________________
Kristján Þórhallsson frá Björk í Mý-
vatnssveit lést 12. mars.
Sigfús G. Þorgrímsson, fyrrverandi aðal-
varðstjóri lögreglu, Garðatorgi 7, Garða-
bæ, lést 11. mars.
Unnur Lúthersdóttir, Fannborg 1, Kópa-
vogi, lést 23. febrúar.
Jón Valgeir Guðmundsson frá Múla,
Sigtúni 45, lést 8. mars.
Guðsteinn Kristinsson lést 26. febrúar.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Sæmundur Bjömsson, Hrútatungu,
Hrútafirði, lést 11. mars.
Albert Einstein hefði orðið 123 ára í dag:
Maður aldarinnar
stórmenni í dag eru liðin 123 ár
frá fteöingu Alberts Einsteins,
þekktasfa vísindamanns síðustu
aldar. Einstein bréyttí', heims-
myndinni og var valinn maður 20.
aldarinnar af tímaritinu Time.
Án afstæðiskenningar hans er
hæpið að kennirigin um Mikla-
hvell, skammtafræði eða raf-
eindatækni hefði nokkru sínni lit-
ið dagsins ljós, og auðvífað ekki
heldur kjarnorkusprengjan.
Einstein fæddist 1879 í Ulm í
Þýskalandi og var frumburður
millistéttarhjóna af gyðingaætt-
um. Mamma lét strákinn læra á
fiðlu og fyrir áhrif frá henni fékk
hann dálæti á klassískum meist-
urum eins og Bach, Mozart og
Schubert. í upphafi unglingsára
hallaðist Albert að gyðinglegum
rétttrúnaði og skammaði foreldra
sína fyrir að eta svínakjöt en and-
lega rumskið náði ekki lengra og
hann sneri sér að vísindabókum
sem hann nálgaðist, eins og allt
sem hann tók sér síðar fyrir hend-
ur, með mikilli efahyggju í garð
viðurkenndra sanninda og tor-
tryggni gagnvart kennivaldi.
Þeir skapgerðareiginleikar
áttu áreiðanlega þátt í að sértæka
afstæðiskenningin varð til árið
1905 og sú almenna árið 1915.
Hann var orðinn heimsfrægur
1920 og hlaut nóbelsverðlaun árið
eftir, að vísu ekki fyrir afstæðis-
kenninguna. Hann flúði undan
nasistum til Bandaríkjanna árið
1935 og starfaði sem prófessor við
Princeton-háskóla til dauðadags.
Hann lést úr hjartaslagi 18. apríl
1995,76 ára að aldri. ■
ALBERT EINSTEIN
Hann var kenjóttur unglingur en það rætt-
ist heldur betur úr stráknum.
Stefán Jón Hafstein, sem vildi
ekki mæta Guðrúnu Ebbu
Ólafsdóttur, sjálfstæðiskonu, í
Ríkisútvarpinu á mánudaginn,
segir af og frá að glímuskjálfti
hafi valdið því að hann afþakkaði
gott boð eins og lesa mátti út úr
mola sem birtist hér í gær. Stefán
Jón hafði samband og sagðist
hafa hlustað á Gísla Martein
Baldursson lýsa því yfir að verið
væri að vinna að stefnu Sjálf-
stæðisflokksins í menntamálum.
Stefán Jón segist tilbúinn að
ræða menntamál við Guðrúnu
Ebbu hvar og hvenær sem er
þegar undirbúningi Sjálfstæðis-
flokksins fyrir kosningarnar sé
lokið og stefnan í menntamálum
liggur fyrir.
Hallgrímur Helgason, þjóð-
skáldið góða, flutti rímu um
Símamálið á Skjá einum á dögun-
um. Þar er þessi erindi að finna:
Davíð Oddsson dregur seiminn
og dœsir að málinu lokið sé.
Þjóðin er bœði þrjósk og gleymin.
En Þórarinn Viðar að sérfé.
Landssímamaðurinn litli góði
í laumiflettir símaskrám.
Forstjórinn þegir þunnu hljóði
en Þórarinn Viðar að sér trjám.
Óhreinn Loftsson utan gáttar
úr ólgusjónum náði að sleppa.
Nú efst á Baugi við þybbinn þráttar
en Þórarinn Viðar að sérjeppa.
í fréttatíma Sturla stendur
og stamar grár af Símaraunum.
Af þrautagöngu þvcer sínar hendur
en Þórarinn Viðar að sér launum.
| AFMÆLI I
Hlýðir á píanóleik barnabarnanna
Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, er 62 ára í dag.
GUNNAR FELIXSON
Gunnar hefur verið dyggur stuðningsmaður KR-liðsins frá blautu barnsbeini og lék með
öllum flokkum félagsins. Hann sat í stjórn knattspyrnudeildar KR í rúm tuttugu ár og
einnig í aðalstjórn félagsins.
afmæli „Ég held upp á afmælis-
daginn með því að hlýða á barna-
börnin leika á píanó á nemenda-
tónleikum," segir Gunnar Felix-
son, forstjóri Tryggingamiðstöðv-
arinnar, sem fagnar 62 ára afmæli
sínu í dag. Hann segist ekki ætla
að gera mikið úr deginum, það sé
frekar að hann haldi upp á stóraf-
mælin. Gunnar er kvæntur Hildi
Guðmundsdóttur og eiga þau tvo
syni, þá Guðmund og Ágúst, og
dótturina Hörpu Lydiu. Barna-
börnin eru orðin fimm talsins og 1
segist Gunnar hafa afskaplega §
gaman af því að umgangast þau. |
Foreldrar Gunnars, sem nú eru
bæði látin, hétu Felix Pétursson
frá Vatnsleysuströnd og Ágústa
Bjarnadóttir ættuð úr Árnessýslu.
Gunnar er yngstur þriggja
bræðra. Eldri bræðurnir eru
Hörður og hinn kunni íþrótta-
fréttamaður Bjarni Fel.
Bræðurnir ólust upp á Bræðra-
borgarstíg í Vesturbæ Reykjavík-
ur og fóru ungir að árum að halda
með KR-liðinu í knattspyrnu.
Gunnar lék með meistaraflokki
KR í knattspyrnu á árunum 1959-
70 og varð margfaldur fslands- og
bikarmeistari. Þess má geta að
bræðurnir þrír léku allir samtímis
með íslenska landsliðinu. Að-
spurður hvort honum finnist
knattspyrnan hafa mikið breyst í
gegnum tíðina segir hann svo
vera. „Knattspyrnan í dag er orðin
miklu skipulagðari heldur en þeg-
ar ég var að spila og er orðin
meira í líkingu við atvinnuknatt-
spyrnu. Það er mun meiri festa og
fleiri æfingar að baki. Knatt-
spyrnumenn í dag eru orðnir öfl-
ugri í alla staði.“
Gunnar segist eiga önnur
áhugamál fyrir utan knattspyrn-
una. Hann hafi gaman af því að
fara á skíði og veiðar. Ekki vildi
hann gera upp á milli veiðiáa og
aftók með öllu að hann væri hald-
inn ofuráhuga á veiðum, heldur liti
hann á þær sem tækifæri til að
hitta góða félaga og njóta útiver-
unnar. „Við hjónin höfum mikla
ánægju af því að ferðast um land-
ið og reynum að gera mikið af því.
Það er úr mörgum fallegum stöð-
um að velja.“
Gunnar hefur starfað óslitið
hjá Tryggingarmiðstöðinni í 42 ár.
Hann hóf þar störf árið 1960, þá
nýútskrifaður úr Verzlunarskólan-
um. Hægt og bítandi vann hann
sig upp í fyrirtækinu og var orðinn
aðstoðarforstjóri þess árið 1976.
Það var síðan árið 1991 að Gunnar
var gerður að forstjóra fyrirtæk-
isins og gegnir því starfi í dag.
kolbrun@frettabladid.is
Ylirhalnir í miklu úrvali
lyrir ungu stúlkuna
mömmuna ömmuna
og langömmuna
2 fyrir I af eldri vörum
(borgar fyrir dýrari flíkina)
hr 11*900
Nýjar vörur
mokkajakkar
stuttir og síðir
með og án hettu
\oAFM5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518
SAGA PAGSINS
6. MARS
Vísindamaðurinn Albert Ein-
stein fæddist í Þýskalandi 14.
mars 1879. Einstein er best
þekktur fyrir afstæðiskenningu
sína sem breytti hugmyndum
manna um alheiminn. Þessi mikli
hugsuður lést í Princeton í
Bandaríkjunum árið 1955.
Mikhail Gorbachev var kjör-
inn forseti Sovétríkjanna 14.
mars 1990. Þrátt fyrir sigur í
kosningunum
var Gorba-chev
mjög umdeild-
ur, ekki síst
vegna bágs
efnahags lands-
ins sem leiddi
til afsagnar
hans í desem-
ber 1991.
Fiðlarinn á þakinu var frum-
sýndur í Þjóðleikhúsinu 14.
mars 1969. Fleiri sóttu sýningar á
þessu verki en nokkru öðru í hús-
inu til þess tíma.
fyrstu sem send voru út í beinni
sjónvarpsútsendingu.
Eftir að hafa setið saklausir í
fangelsi í sextán var mönnun-
um sex sem kenndir voru við
Birmingham sleppt lausum 14.
mars árið 1991. Mennirnir höfðu
verið dæmdir af breskum dóm-
stólum fyrir að sprengja upp
tvær krár í Birmingham á
Englandi árið 1974 í nafni IRA-
hryðjuverkasamtakanna. Vinsæl
kvikmynd hefur verið gerð um
sögu þessara manna með Daniel
Day Lewis í aðalhlutverki.
Þeir eiga af-
mæli í dag:
Michael Caine,
leikari, fæddur
árið 1933, laga-
höfundurinn
Quincy Jones,
fæddur árið
1933, og Billy
Crystal, leikari,
fæddur árið 1947.
Jack Ruby sem kom Lee Harvey
Oswald, meintum morðingja
John F, Kennedy, fyrir kattarnef,
var dæmdur til
dauða 14. mars
1964. Ruby
þessi rak næt-
urklúbb í Dallas
og sagðist sjálf-
ur hafa verið
frávita af sorg
yfir morði
Kennedys. Rétt-
arhöldin yfir honum voru þau
Kvikmynd Magnúsar Guð-
mundssonar, Lífsbjörg í
Norðurhöfum, var frumsýnd í
Sjónvarpinu 14. mars 1989. Kröfu
Grænfriðunga um lögbann á sýn-
inguna hafði þá verið hafnað.
Arið 1965 áttu Bítlarnir topp-
lagið sem var „Eight Days a
Week. Angurværa lagið „Seasons
in the Sun“ í flutningi Terry Jacks
var vinsælast árið 1974 og árið
1983 var það Michael Jackson
sem átti topplagið, Billie Jean.