Fréttablaðið - 02.05.2002, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 02.05.2002, Blaðsíða 7
jjurvaa! r • r; i. \ m Samningur við Reykvíkinga SÍ '7 ■ ” || j -J ‘ tSSS,V ' r ,-'- ' 'v ' ÍVVV; '«■* 4 wStWSl . - , W *" $*' > 1. Lækkun skatta. Við ætlum að lækka fasteignagjöld um allt að 20% bæði á fólk og fyrirtæki með þvf að afnema holræsaskattinn. 2. Bættur hagur eldri borgara og öryrkja. Við ætium að stðrlækka og leggja af fasteignaskatta og holræsagjöld á eigið húsnæöi langflestra borgarbúa 67 ára og eldri. Við ætlum að gera það sama fyrir örorkulífeyrtsþega. Við ætlum að eyða biðlistum eftir hjúkrunarrýmum fyrir eldri borgara. Við ætlum að efna til sérstaks átaks i þessum málaflokki á kjörtimabilinu og verja milljarði til að mæta brýnni þörf þessa hóps. 3. Betri menntun, Við ætlum að efla innra starf grunnskólanna. Við ætlum að skapa ný tengsl milli skólastjðra, kennara, nemenda og foreldra með því að minnka miðstýringu og skipta borginni í skólahverfi. Við ættum að gefa foreldrum tækifæri til að velja grunnskóla fyrir börnin sin. Við ætlum að gera tilraun þar sem foreldrar fá val um að setja börn sin í grunnskóla 5 éra. Við ætlum að gefa öllum grunnskólabörnum kost á heitum máltfðum í hádeginu. 4. Réttur barna til leikskólavistar tryggöur. Við ætlum að eyða bíðlistum á leikskólum og veita öllum börnum 18 mánaða og eldri rétt á leikskðlaplássi. Við ætlum að tryggja ðllum reykvískum leikskólabörnum sama styrk frá borginni og efla dagforeldrakerfið fyrir yngstu börnin tneð auknum sveigjanleika og skilvirkara eftirliti. 5. Skuldasöfnun stöðvuð. Við ætlum að stöðva skuldasöfnun og hagræða með sparnaði í rekstri. Við ætlum að flytja verkefni tii einkaaðila og félagasamtaka þar sem við á. Við ætlum að fækka milliliðum og draga úr skrifræði í borgarkerfinu. Hlutur Reykjavíkurborgar í Linu.net verður seldur. Við ætlum að auka eftirlit með fjárreiðum og stjórnsýslu borgarsjóðs, borgarstofnana og fyrirtækja með eignaraðild Reykjavíkurborgar. 6. Uppbygging i miðborginni. Við ætlum að hreinsa til í miðborginni. Við ætlum að tryggja næg bílastæði og afnema stöðumælagjöld þegar bilum er logt i skemmri tima. Við ætlum að fjölga ibúum í míðborginni og gera hana fjölskylduvæna og tryggja öryggi borgaranna þar allan sólarhringinn meðal annars með þvi að koma á míðborgardeild í samvinnu við lögregluyfirvöld, íbúa og aðra hagsmunaaðila. Við ætlum að vinna að framgangi þekkingarþorps og ráðstefnu- og tðnlistarhúss. 7. Lóðaframboö tryggt og húsnæðisvandi leystur. Við ætlum aö laða ibúa og fyrirtæki til borgarinnar og auka þar með tekjur hennar. Við ætlum að fjölga lóðum fyrir íbúðabyggð og tryggja lóðaframboð með aukinni byggð meðfram ströndinni, Við ætium að leysa húsnæðisvanda þeirra sem búa við óviðunandi aðstæður og eru á biðlistum eftir félagslegu húsnæði. 8. Aukið öryggi og velferð borgaranna. Við ætlum að tryggja öryggi i öllum hverfum borgarinnar með þjónustusamningi við lögregluyfirvöld og i samvinnu við ibúa og aðra hagsmunaaðila. Við ætlum að efla umferðaröryggí með markvissum aðgerðum. Við ætlum að berjast gegn fíkniefnavandanum með öllum tiltækum úrræðum. 9. Geldinganes fyrir fólk. Við ætlum að stööva umhverfisslysið í Geldinganesi og skipuleggja þar íbúðabyggð. Viö ætlum að beita okkur fyrir þvi að lagning Sundabrautar hefjist sem fyrst. 10. Fjölbreytt borgarlff. Við ætlum að skípa Reykjavik í fremstu röð við nýtingu upplýsingatækni og leggjum áherslu á ferðaþjónustu og fjölbreytt menningarlíf, Vió ætlum að efla frjáls félagasamtök fyrir ungt fólk og styrkja félagsmiðstöðvar, Við ætlum að efla íþróttastarf i Reykjavik og virkja sem flesta til þátttöku, m.a. meö Reykjavikurleikum íþrótta- og áhugafólks á hverju sumri. Víð ætlum að byggja 50 metra innisundlaug og knattspyrnuaðstöðu í laugardal sem stenst alþjóðlegar kröfur. Samningur um betri kjör í tilefni af 1. maí er viðeigandi að lesa aftur yfir samninginn sem sjálfstæðismenn vilja gera við Reykvíkinga Með samningnum ætla sjálfstæðismenn að stórbæta kjör allra Reykvíkinga. Einkum þó þeirra sem þarfnast þess mest: Tekjulágra Reykvíkinga, barnafólks, aldraðra og öryrkja. Þetta verður gert: ■■■ Með lækkun fasteignagjalda um allt að 20 %. Stórlækkun og afnámi fasteignaskatta á eigin húsnæði eldri borgara og öryrkja. ■■■ Með þvi að eyða biðlistum í borginni og stórbæta skólakerfið. ■■■ Með því að tryggja nægilegt lóðaframboð til þess að laða fólk og fyrirtæki til borgarinnar. ■■■ Meö því að stöðva skuldasöfnun borgarinnar. Kostnaður við þennan samning er 670 milljónir króna á ári. Þennan kostnað ætla sjálfstæðismenn aö brúa með því að fjölga fólki og fyrirtækjum í borginni, hagræðingu í rekstri og betri meðferð fjármuna borgarinnar og þar með aö hætta að kasta skattfé á glæ með óarðbærum gæluverkefnum eins og Línu.neti. ' i ' *D Reukjavík í fyrsta sæti r

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.