Fréttablaðið - 06.05.2002, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 06.05.2002, Qupperneq 1
6. til 12. maí 2002 Vikulegt sérblað um heimili, hús og fasteignamarkaðinn FRÉTTABLAÐIÐ FASTEIGNIR mI iSaSSÍ FASTtlGNALEIT A NCTIWU HÚSIN f TÚNUNUM Sum húsanna eru með inndreginni sjöundu hæð, þar sem er þakíbúð. Framkvæmdir í höfuðborginni: 2% íbúðir í Sóltúni og Mánatúni Níu hús með alls 272 íbúðír hafa verið reist í Sóltúni og Mána- túni síðan framkvæmdir þar hófust árið 1996. íslenskir að- alverktakar hafa byggt húsin sem teiknuð voru af Ingimundi Sveinssyni arkitekt, sem einnig á heiðurinn af deiliskipulagi svæðisins. Að sögn Gunnlaugs Kristjánssonar, framkvæmda- stjóra þróunarsviðs íslenskra aðalverktaka, eru framkvæmdir nú hafnar við tíunda húsið, sem standa mun við Borgartún 30a og 30b. Það verður sex hæða, eins og hin húsin, með 24 íbúðum. Alis eru því 296 íbúðir á þessum reit, þar sem áður var geymslusvæði Eimskipa. Gunnlaugur segir íbúðirnar hafa selst vel og nú séu aðeins nokkrar óseldar. Nýjasta húsið er þó ekki farið í sölu enn. „Kaupendur eru mikið til eldra fólk sem er að minnka við sig, segir Gunnlaugur." Hann segir fólk yfirleitt mjög ánægt með íbúðirnar. „Þetta hefur komið í Ijós í viðhorfskönnunum sem við gerum, nokkrum mánuðum eftir að það er flutt inn.“ íbúðirnar eru tveggja til f jögurra herbergja og þeim er skil- að fullbúnum án gólfefna. Verðið á þeim er á bilinu 12 til 25 miiljónir og eru þakíbúðirnar dýrastar. í húsinu sem nú er verið að reisa verða 145-170 fermetra íbúðir. Gunnlaugur segir þar vera skemmtilega nýjung sem er að Iyftan opnast beint inn í íbúðirnar, þannig að íbúar þurfa ekki að fara í gegnum sameign til að komast inn til sín. Þess má geta að byggingarnar í túnunum voru tilnefndar til verðlauna Byggingar- og skipulagsnefndar Reykjavíkur árið 2001. ■ Skrifborðstóll frá sjöunda áratugnum _______Uppáhalds wmrnmMXmwm s Eg á gamlan skrifborðstól sem ég gerði upp og mér þykir mjög vænt um,“ segir Ásta Kristjánsdóttir lögfræðingur og deildarstjóri hjá ríkisskattstjóra. Hún segir að afi hennar hafi verið smiður og unnið lengi hjá Háskóla íslands við við- hald. „Hann er dáinn fyrir nokkrum árum en á meðan hann starfaði þar enn var verið að skipta út skrifborð- stólum þar. Afi var mjög nýtinn og átti erfitt með að sjá hlutum fleygt ef hægt var að nota þá. Hann tók þennan stól til handagagns og ég sá hann hjá honum og falaðist eftir hon- um.“ Ásta segir ekki ólíklegt að ein- hver prófessorinn hafi lengi setið í stólnum. „Nú sit ég hins vegar í hon- um við vinnu mína heima. Sonur minn og lítil frændsystkin eru líka dugleg við að snúa honum í hringi. Ásta segir stólinn vera sérlega þægi- legan og gott að sitja í honum við vinnu. „Þetta er viðarstóll eins og tíðkaðist á sjöunda áratugnum og ég gerði hann allan upp með hjálp mömmu. Síðan keyptum við á hann nýtt áklæði og yfirdekktum. Hann er því mikið stofuprýði og eftir honum er tekið þar sem hann stendur." ■ Ásta Kristjánsdóttir lögfræðingur á skrif- borðstól sem afi hennar tók til handagagns. Yaranlegt saimband JJ'Ð GJAmJOORTJN Chiwpractk' Sú besta samkvKmt stærstu kíröpr»ktor»-samtökum i hcimi • www.svefnogheilsa.is Listhúsínu Laugardal, sími 581 2233 Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.