Fréttablaðið - 23.05.2002, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
23. maí 2002 FIMMTUDAGUR
rRETTABI AÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Simbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: fP-prentþjónustan ehf.
Prentun: (sáfoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið á
pdf-formi á vísir.is. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLAÐSINS \
Undarleg
viðbrögð
Framsóknarmaður skrifar
g er afar hissa á því hvernig
forystumenn samstarfsflokks
okkar haga sér
gagnvart Jóni
Kristjánssyni,
heilbrigðisráðh-
erra. Jón er ein-
hver vandaðasti
og farsælasti
___ stjórnmálamaður
okkar íslendinga. Það er fráleitt
að láta eins og hann sé eitthvert
viljalaust verkfæri sem hægt sé
að egna til að hlaupa upp fyrir
kosningar. Hann sýndi það í starfi
sínu sem formaður fjárlaganefnd-
ar hversu staðfastur hann er og að
hann lætur ekki teyma sig eitt né
neitt.
Ég efast ekki eitt augnablik um
að vilji fylgir verki hjá Jóni varð-
andi þessa yfirlýsingu sem hann
undirritaði með borgarstjóra. Það
er öllum ljóst að menn eiga að
fagna slíku frumkvæði ráðherra.
Því eru viðbrögð framámanna í
Sjálfstæðisflokknum óskiljanleg.
Við framsóknarmenn höfum oft
þurft að þreyja þorrann og góuna
í þessu ríkisstjórnarsamstarfi.
Haldi samstarfsflokkurinn upp-
teknum hætti er eins líklegt að við
látum þetta samstarf lönd og leið.
Heimurinn stendur hvort eð er
ekki og fellur með þessari ríkis-
stjórn. Ég ráðlegg sjálfstæðis-
mönnum að hugsa sinn gang, ef
ekki á illa að fara. ■
Alið á grunsemdum og ótta
eíjc JícUr Jjork Siincö
Thomas L. Friedman, dálkahöf-
undur hjá New York Times, spyr
hvað Bandaríkjamenn eigi að
gera í framhaldi af almennum við-
vörunum síðustu daga. Eiga menn
að hætta að fara út fyrir hússins
dyr, hætta að koma nálægt minn-
ismerkjum, og gæta þess að
klappa á maga allra óléttra
kvenna til að ganga úr skugga um
að þær séu ekki í sjálfsmorðsárás-
arhug? „Við skulum gera samn-
ing: Við hættum að gagnrýna
stjórnina fyrir að sjá ekki 11.
september fyrir, ef hún hættir að
skelfa landsmenn með því að spá
öllum hugsanlegum martröðum,
en engum ákveðnum, eftir 11.
september."
washinqfonpost
George F. Will, dálkahöfundur hjá
Washington Post, segir klípuna,
sem stjórnin er komin í, vera að
hluta til sjálfskaparvíti. Eina leið-
in út úr henni sé að stjórnin gangi
í gegnum rannsókn, sem óháð
nefnd verði látin gera á starfsemi
leyniþjónustunnar og viðbrögðum
stjórnvalda. Will segist reyndar
sannfærður um að sú rannsókn
myndi hreinsa Bush Bandaríkja-
forseta og þingið af grun um að
hafa gert óafsakanleg mistök.
„Leynimakk gerir það að verkum
að faraldur grunsemda getur
Úr leiðurum heimsblaða
Bandarískir ráðamenn hafa verið gagnrýndir:
• fyrir að bregðast ekki við viðvörunum um
yfirvofandi hryðjuverk fyrir 11. september.;
Óljósar viðvaranir þeirra nú um yfirvofandi
hættu hafa einnig sætt gagnrýni.
brotist út í samfélaginu,“ segir
hann. „Rannsóknarnefnd yrði
bólusetning gegn slíkum faraldri
og forvarnarmeðal gegn frekari
mistökum í framtíðinni."
Leiðarhöfundur dagblaðsins Hou-
ston Chronicle segir vissulega
rétt, að hættan sé ekki liðin hjá.
Hins vegar sé engin þörf að fyll-
ast skelfingu. „Óljósar ógnir erú
hluti af vopnabúri hryðjuverka-
mannsins." Þótt nauðsynlegt sé að
minna Bandaríkjamenn á hætt-
una, þá sé erfitt að finna rétta
jafnvægið á milli þess að gera
fólk „næmt fyrir hættu án þess að
gera það ónæmt“. En þegar
stjórnvöld eru í vafa um hvað
gera skuli, þá „bæði geta þau og
eiga þau að treysta Bandaríkja-
mönnum fyrir upplýsingum." ■
KVIÐDÓMUR
Viljayfirlýsing heilbrigðisráðherra
Viljayfirlýsing Jóns Kristjánssonar, heilbrigðisráðherra, og borgaryfirvalda um átak í bygg-
ingu hjúkrunarheimila olli fjaðrafoki. Fjármálaráðherra gagnrýndi yfirlýsinguna. Viðbrögð
hafa markast af því að stutt er til kosninga.
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
Hrukku í
skotgrafirnar
„Þessi viljayfirlýsing Jóns
kom eftir langt vinnuferli
og er í samræmi við
stefnuyfirlýs-
ingu Alþingis.
Ég tel að hann
hafi gert þetta
í fyllstu ein-
lægni, vegna
þess að hann telji að þessi
málaflokkur þurfi á stór-
átaki. Það var hins vegar
athyglisvert að sjá að 2.
þingmaður Reykvíkinga,
fjármálaráðherra, og
þriðji þingmaður þeirra,
Björn Bjarnason, réðu
ekki við pólitíska eðlis-
hvöt sína. í stað þess að
fagna þessu fyrir hönd
aldraðra og rísa upp sem
forystumenn, hrukku þeir
ofan í gömlu skotgrafirnar
sínar. Þeir sýndu sitt rétta
andlit og ég held að fólki
hafi blöskrað mjög. Þessi
viðbrögð minntu óþægi-
lega á viðbrögð við ör-
yrkjadómnum og öðrum
slíkum málum.“ ■
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
Gagnrýnum
vinnubrögðin
„Við fögnum að sjálfsögðu
því að aukin áhersla sé
lögð á þennan málaflokk.
Maður áttar
sig hins vegar
ekki á ný-
kviknuðum
áhuga R-list-
ans á þessum
málum. Við höfum lagt
áherslu á málaflokkinn
alla kosningabaráttuna og
í borgarstjórn. Borgar-
stjóri hefur ekkert viljað
gera með þetta. Lítið ber á
málaflokknum í stefnus-
krá R-listans. Þar á bæ
gerðu menn lítið úr þessu
þegar við lögðum áherslu
á þessi mál. Síðan allt í
einu fá menn mikinn
áhuga og skrifa upp á
viljayfirlýsingu við Frum-
afl. Henni er hins vegar
kastað fyrir róða vegna
innri ágreinings. Nú er
allt í einu komin ný vilja-
yfirlýsing. Þetta er vilja-
yfirlýsing, en ekki sam-
komulag. Við fögnum
henni, en okkar gagnrýni
beinist að vinnubrögðun-
um. ■
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
Yfirlýsingin
ekki marklaus
„Nú er það þannig að fjár-
lagagerðin fer þannig
fram að ráðherrarnir hafa
töluvert svig-
rúm hvernig
þeir forgangs-
raða innan
síns mála-
flokks í
stefnumótunarvinnu ríkis-
stjórnarinnar. Ríkisstjórn-
in þarf að samþykkja
þennan ramma og síðan
Alþingi einnig. Ég býst því
við að athugasemdir sjálf-
stæðismanna séu að form-
inu til réttar. Það breytir
ekki því að viljayfirlýsing
ráðherrans er ekki mark-
laust plagg. Hún er vilja-
yfirlýsing. Hann hefur
töluvert svigrúm til að
koma sínum málum fram
eins og verklagið er. Þetta
er mál sem ég geri ráð
fyrir að hefði ekki orðið að
stórmáli í annars konar að-
stæðum. Ég geri ekki ráð
fyrir að menn hefðu sagt
mikið við þessu ef ekki
væru kosningar í nánd.“ ■
PÉTUR BLÖNDAL
Alþingi eitt
skuldbindur
„Menn geta náttúrlega
haft vilja til ýmissa hluta.
Á endanum er það Alþingi
íslendinga
eitt sem hef-
ur fjárveit-
, , ,í mp ingarvald og
I getur skuld-
k__ bundið ríkis-
sjóð samkvæmt stjórnar-
skrá. Þannig að viljayfir-
lýsing er ekkert annað en
viljayfirlýsing, þangað til
búið er að samþykkja
f járlög fyrir viðkomandi
fjárveitingu. Það er ljóst
að það eru mörg brýn
verkefni í þjóðfélaginu og
menn þurfa að vega og
meta. Það er hlutverk Al-
þingis að setja ramma um
það. Menn þurfa að skilja
slíkar yfirlýsingar rétt.
Ráðherra er að segja að
hann langi til að gera það
sem segir í yfirlýsing-
unni, en í henni felst eng-
in skuldbinding." ■
JÓNÍNA BJARTMARZ
Samkvæmt
vilja Alþingis
Viljayfirlýsing ráðherrans
lýsir áhuga hans á að ráðast
í ákveðnar framkvæmdir.
Frá sjónarhóli
R-listans má
hins vegar seg-
ja að þeir hafi
skuldbundið
sig til að legg-
ja fram fjármuni í þessi
verkefni. Frá því
sjónarhorni er um sam-
komulag að ræða. Borgar-
yfirvöld heita að leggja
meira fé í þessi verkefni en
þau þurfa samkvæmt lög-
um. Þeir heita að leggja
30% í málið, en sveitar-
stjórnarlög kveða á um
15% framlag. Jón er að lýsa
pólitískum vilja sínum til
að ríkið leggi fram fjár-
muni á móti. Ég styð þessar
áherslur Jóns heils hugar,
vegna þeirrar brýnu þarfar
sem er á að taka á þessum
málum. Þessi yfirlýsing er í
fullu samræmi við mark-
mið sem sett voru fram í
heilbrigðisáætlun Alþingis.
Hún var samþykkt og það
mátti öllum vera ljóst að
þeirri samþykkt fylgdu
aukin útgjöld. ■
Húsgögn eftir þínum þörfum
ORÐRÉTT
hornsófar
' stakir sófar
! stólar
: hvíldarstólar
Isvefnsófar
I veggeiningar
i borðstofuhúsgögn og fl.
húsgðgn
Höfðatúni 12 105 Reykjavík Sími 552 5757
www.serhusgögn.is
Sumarskólinn ehf.
starfar í Háskóla íslands
www.sumarskolinn.is
Stærstir (70 áfangar) og reynslumestir!
Nám fyrir framhaldsskóla- og grunnskólanemendur.
Kennsla hefst 27. maí.
Skráning í símum 565-6429 og 565-9500
VANHÆFUR VEGNA ÁSTAR
Guðni Ágústsson lá heldur ekki
á því að hann tæki ákvörðun
sína ekki síður af tilfinninga-
semi og notaði tækifærið á áður-
nefndum blaðamannafundi til að
ítreka ást sína á íslensku kúnni,
þótt ekki væri stórgripur innan
seilingar svo smellt yrði kossi á
granir.
Rúnar Ármann Arthúrsson.
Morgunblaðið, 22. maí.
ÞAÐ DATT HELDUR ENGUM í
HUG
Það er ekki neinn dans á rósum
að vera unglingur í Árborg eins
og staðan er í dag. ,
Már Ingólfur Másson.
Morgunblaðið, 22. maí.
KOSNINGARNAR BÚNAR
FYRIR NORÐAN?
Allir sem einn hafa unnið vel
þannig að það er fyrst og fremst
barátta fólksins sem er að skila
þessu
Oddur Helgi Halldórsson, oddviti lista
fólksins á Akureyri, um skoðanakönnun.
DV, 22. maí.
ÞANNIG LÆRIR
MAÐUR
Sumt af því sem ég
lærði þarna hafði ég
ekki hugmynd um
áður.
Guðni Ágústsson. Fréttablaðið, 22.
maí.
ERU AÐ KOMA
KOSNINGAR?
Geir H. Haarde er
ekki að níðast á veik-
um og gömlum, en
það hefur Ingibjörg
Sólrún gert og hagar______
sér raunar eins og hreppstjóri
við niðursetninga hér áður fyrr
á öldum.
Andrés Magnússon. Frelsi.is, 22. maí.
ÉG ER SUMIR
Sumir vilja túlka
þróun síðustu daga á
þann veg að herferð
Sjálfstæðismanna
hefði toppað of
snemma ög er það
trúlega hárrétt
greining.
Ásgeir Friðgeirsson um stöðuna í
skoðanakönnunum. Strik.is, 22. maí.
NY FISKVEIÐI-
STJÓRNUN
Að fiska á línu og
veiða í net á sama
tíma er kannski held-
ur mikið af því góða.
Baldvin Jónsson leggur út af ummæl-
um Alfreðs Þorsteinssonar: „Þeir fiska
sem róa". DV, 22. maí.
ENDA KOMIÐ VOR
Með þeim í för var stúlka, topp-
laus, en hún var ekki handtekin.
Lögreglan tók slagsmálahunda.
DV, 22. maí.