Fréttablaðið - 23.05.2002, Side 14

Fréttablaðið - 23.05.2002, Side 14
14 FRETTABLAÐIÐ 23. maí 2002 FIMMTUDAGUR HASKOLABIO HACtTOROI • SÍMI S30 1919 • STÆRSTA $♦ NINOARTJAID LAHOSIHS smúnn^ bíó ^H^HUSSAOU STÓHT AlfAÖAKK rxwmxixmmmrm porír [)ij? Resioew xevn. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 vrr 377 Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10 vrr seo Sýnd kl. 3.15, 6.15 og 10 vrr 380 \ I [SHOWTIME kl. 6 og 8 [ jjlMMY NEUTRON m/isl tali M.4HS3 [bUBBLE BOY kl. 4, 6, 8~og löl RS ÍPÍTURPAN m/ísl. tali kl. 4 ) ITHE SCORPION KING 4, 6,8 og 10113 [mONSTER m/ísi. tali.kl. 4 FRÉTTIR AF FÓLKI undirfataverslun Síðumúla 3-5 Sími 553 7355 Opið mán.-föst. kl. 11-18 laugard. kl. 11-15 Sala útgáfurisans EMI fór nið- ur um 40% á síðasta ári, þrátt fyrir vaxandi vinsældir Kylie Minogue og Robbie Willi- ams. Ólöglegri dreifingu á Net- inu hefur verið kennt um. Einnig hlýtur að hafa áhrif að fyrir- tækið borgaði Mariuh Carey 38 milljónir punda til undan samningi. Gítarleikarinn Brian May ætl- ar að leika á þaki Bucking- hamhallar á 50 ára krýningaraf- mæli Bretlands- drottningar. Hann mun byrja hátíð- arhöldin með því að spila þjóðsöng Breta ofan á þak- inu. Hljómsveit hans, Queen, mun svo leika ásamt sinfóníusveit síð- ar um daginn. Það verður enginn annar en söngvarinn Phil Collins sem fer í hlutverk hins látna Freddie Mercury. Heimsending og sótt Áiltof spennandi tilbod! Frábœr hóptilbod fyrir afmœlisveislur! Nú hefur verið staðfest að væntanleg plata Eminem, „The Eminem Show“, kemur út viku fyrr en til stóð. Þið megið því búast við henni í búðir á þriðjudag, 28. maí. Þetta var ákveðið eftir að hægt var að nálgast alla plöt- una á Netinu. Eminem ætlar að taka lagið á MTV verðlaunhátíðinni í Los Angeles, 1. júní. Hljómsveitin White Stripes kemur einnig þar fram. i-. , s Síðasti nektardansinn Allt verdur að taka enda og í kvöld fer fram síðasti nektardansinn. Hljómsveitin Stripshow heldur lokatónleika sína á Gauki á Stöng. Vonandi endar þetta ekki subbulega. tónlist Hljómsveitin Stripshow gaf einungis út eina plötu á ferli sínum, „Late Nite Cult Show“, sem kom út 1996. Hljómsveitin var þá þegar orðin vel þekkt á meðal íslenskra rokkáhuga- manna enda voru tónleikar þeirra fullir af sprengjum, sápu- kúlum og skrautlegum sviðsbún- ingum. „Við stofnuðum hljómsveitina fyrir 11 árum, 23.maí 1991,“ seg- ir Ingólfur Geirdal gítarleikari. „Það var mjög mikið að gerast hjá okkur fyrstu fimm árin. Þá hættum við að spila og ég og Silli bróður minn erum búnir að vera úti um allar trissur að spila með upprunalegu meðlimum Alice Cooper hljómsveitarinnar. Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir því að eins og Marilyn Manson var Alice Cooper einu sinni hljómsveit. Þeir sömdu alla mestu slagaranna með honum." Eina plata Stripshow seldist kannski ekki eins og heitar lummur hér á landi. Hún fékk þó siðanefnd ríkisins í Suður-Kóreu til þess að roðna og var upphaf- lega bönnuð. „Það var eitthvað í textunum sem þeir vildu að við breyttum. í einu textabroti koma Lenín og Jesús Kristur fyrir í sömu setningunni. Þeir sáu okkur sem kommúnista, nasista, dópista og perverta. Við máttum ekki gefa út plötuna nema að syngja nokkra texta aftur og breyta nafninu á hljómsveitinni. Við vildum það ekki út af því að okk- ur líkaði ekki við að einhver nefnd með gömlum köllum í Suð- ur-Kóreu gæti ákveðið hvað við ættum og hvað við ættum ekki að gera.“ Platan fékk loks undanþágu fyrir tveimur árum og var gefin út í Suður-Kóreu með því skilyrði að ekkert lag sveitarinnar fengi nokkurn tímann spilun í útvarpi eða sjónvarpi. Japanarnir voru þó afslappaðri og kom platan út þar árið eftir útgáfuna hér. Allt þetta útgáfumála vesen hélt lífi í sveitinni þrátt fyrir að hún væri lítið starfandi. Samkvæmt Ingólfi hefði sveitin í raun átt að leggja árar 1 bát árið 1996. En af hverju eru þeir þá að halda tónleika í kvöld? „Við gátum ekkert farið á fyllirí án þess að einhver væri að spyrja hvenær við ætluðum að spila aftur. Þetta var orðið það óþolandi að við ákváðum að gera eitthvað," útskýrir Ingólfur og lofar að hvergi verði sparað á sýningu kvöldsins. Tónleikarnir verða á Gauki á Stöng og hefjast kl. 23. Aðgangseyrir er 800 kr. biggi@frettabladid.is v,. braQð~ bu?ð’ Æ rri ■ 1 HÚSIÐ Grensásvegl 12 < Siml: l Kennarar og foreldrar aðstoð sem hentar öllum börnum. Mikilvæg m.a. við athyglisbresti, misþroska, ofvirkni, tourette og sértækum námsörðugleikum. um- sagnir og netverð á ofvirkni- bókin.is Pöntunarsími: 895-0300 TÓNLIST Urr-a-bíta Breiðskífan „Blood Money“ er önnur tveggja sem Tom Waits gaf út í síðustu viku. Á hinni plöt- unni, „Alice", er maðurinn með sandpappírsröddina í heildina frekar rólegur. Þar kynnti hann okkur fyrir ýmsum skemmtileg- um persónum og virtist hinn hressasti. Þessu er eiginlega öf- ugt farið á „Blood Money“. Hér virðist Waits fullur af efasemd- um um ágæti mannkynsins, sbr. opnunarlagið „Misery is the river of the world“ þar sem hann syng- ur línuna; „If there is one thing you can say about mankind, there’s nothing kind about man“. Textarnir eru bölsýnir og um leið fullir kaldhæðni. Á þessari plötu leyfir Waits sér líka að ferðast dýpra í skuggahlið sína. Lögin eru tilraunaglaðari, frjálsari og háværari. Þau ná þó aldrei ofsa plötunnar „Black Rider“, en sum komast nálægt TOMWAUS:____________BLOOP MONEY því. Ástæðan fyrir líkri áferð þessara platna gæti verið sú að tónlist þeirra beggja var upphaf- lega gerð fyrir leiksýningar. Það er erfitt að segja hvor platan er betri. Djassáhrifin eru ríkari en oft áður á báðum plöt- um. Waits virðist skipta lögunum á milli platna eftir textainnihaldi og áferð laganna. Þessi urrar meira en hin og á því eftir að lenda oftar í geislaspilaranum mínum. Birgir örn Steinarsson KVIKMYNDIR Vel að lofinu komin Iupphafi mexíkósku myndar- innar Amores Perros, sem væri hægt að þýða Hundaást, er áhorfendum tilkynnt að engin dýr hafi meiðst við gerð mynd- arinnar. Það er ekki skrýtið af aðstandendum myndarinnar að taka þetta fram þar sem mikið er um hundaöt og slys á hund- um. Snyrtilega er farið fram hjá of miklu blóðsulli en mörgum hundaeigendum reynist eflaust erfitt að horfa á verstu atriðin. Myndin byrjar á æsilegum elt- ingaleik um Mexíkóborg, sem endar með árekstrinum sem tengir myndina saman. Hún skiptist í þrjár sögur. Allar fjalla þær um ást milli manns og konu og mannlegan breyskleika og í öllum eru hundar, sem verða jafn mikilvægir og aðrar per- sónur. Amores Perros er 154 AMORES PERROS: mínútur að lengd, sem er full- mikið. Sagan er umfangsmikil, persónur áhugaverðar og mynd- in kemur sífellt á óvart. Alej- andro González Inárritu leik- stjóri skiptir haganlega milli þriggja þjóðfélagsstétta aðal- persónanna, ríka og fræga fólks- ins, verkamannastéttar og heim- ilislausra. Þetta er fyrsta mynd Inárritu í fullri lengd. Hún hlaut BAFTA verðlaunin, tilnefningu til Óskarsverðlauna og vann fjölda kvikmyndahátíða. Þetta er mynd sem er vel að lofinu komin. Halldór V. Sveinsson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.