Fréttablaðið - 24.06.2002, Blaðsíða 1
AFMÆLI
Hleypur
áfjöll ekki
á sig
bls 22
IÆK
Höfum tínt
gullmolana út
bls 16
EKjUWHpi
Stjórnar-
formaður á
brúðkaupsdaginn
bls 22
MÚRBÚÐIN
Flotefni* Málning f
Múrviðgerðarefni
Verkfæri og fl.
FRETTABLAÐ
120. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 24. júní 2002
MÁNUDAGUR
Þúsund
manna æíing
æfinc Samvörður 2002 hefst í dag.
Alls munu um þúsund manns taka
þátt í æfingunni. Að þessu sinni er
þemað björgun á eyju þar sem eld-
gos geysar. Risavaxnar Chinook
þyrlur verða einnig notaðar til
margvíslegra verkefna.
A söguslóðum
íViðey
CflNCfl Klukkan 19.30 hefst ganga
um söguslóðir í Viðey. Þar verður
meðal annars boðið upp á fróðleik
um framgang Skúla Magnússonar
og Jóns Arasonar.
| VEÐRÍp-j-DAC j
REYKJAVÍK Norðlæg átt,
3-8 m/s og minnkandi
skúraleiðingar.
Hiti 8 til 14 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Isafjörður <3 8-13 Skýjað o1 3
Akureyri © 3-8 Skýjað o 12
Egilsstaðir © 3-8 Skýjað ©14
Vestmannaeyjar Q 4 Úrkoma ©10
Frelsi í alþjóða-
viðskiptum
RÁÐSTEFNfl Verslunarráð íslands
stendur fyrir ráðstefnu um frelsi í
alþjóðaviðskiptum í dag. Ráðstefn-
an hefst kl. 15.30 og er haldin í
Húsi verslunarinnar.
IAsækir
Fram heim
fótbolti íslandsmeistarar ÍA sækja
Frammara heim á Laugardalsvelli
kl. 19.15. Bæði lið eru í neðri hluta
deildarinnar en ætla sér stærri
hluti.
IIcvöIIdTðTkvöldI
Tónlist 16 Bíó 16
Leikhús 16 íþróttir 15
Myndlist 16 Sjónvarp 20
Skemmtanir 16 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa
25 til 49 ára 63,0%
íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu
á mánudögum?
Meðallestur 25 til 49 ára á
mánudögum samkvæmt
fjölmiðlakönnun Gallup frá
mars 2002
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA
A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002.
io
JH 29,1%
-□
fa
Verkfcdl unglækna
dæmt ólögmætt
Unglæknar töpuðu fyrir Félagsdómi og eru dæmdir til að bíða eftir að samningar renni út.
Skoða með lögmanni sínum næsta skref í málinu. Formaður samninganefndar ríkisins segir nið-
urstöðuna ekki koma á óvart enda í samræmi við lögin.
félagsdómur Félagsdómur úr-
skurðaði í gær að fyrirhugað verk-
fall unglækna á sjúkrahúsum væri
ólöglegt. „Úrskurðurinn olli okkur
miklum vonbrigðum því við höfð-
um vonast til að hann færi á annan
veg,“ segir Jóhann Elí Guðjónsson
einn forsvarsmanna unglækna.
„Mér skilst að þrátt fyrir að við
höfum ekki verið í Læknafélaginu
þegar samningurinn var gerður þá
gildi þeir samningar sem þeir
gerðu fyrir okkar hönd. Við erum
dæmdir til að bíða og munum
hugsanlega kanna hvort um er að
ræða brot á mannréttindum. í raun
er verið að neyða okkur inn í samn-
ing sem við getum alls ekki sætt
okkur við.“
Jóhann segir stöðu unglækna
vera í hróplegu ósamræmi við það
sem er að gerast á vinnumarkaði.
Á meðan allir séu að færast nær
EES-reglum um vinnuvernd séu
unglæknar að missa rétt sem þeir
áður höfðu. „Við munum skoða það
með lögfræðingi okkar hver næstu
skref okkar verða. Það er ljóst að
við munum una þessari niðurstöðu
og blása af boðað verkfall," segir
Jóhann Elí.
Gunnar Björnsson formaður
samninganefndar ríkisins segir
niðurstöðuna vera í samræmi við
það sem hann átti von á. „Það er
ósköp einfalt að menn geta ekki
bara stokkið af vagninum ef þeim
líkar ekki það sem meirihlutinn
semur um. Unglæknar voru í
Læknafélagi íslands þegar skrifað
var undir samninga." Gunnar segir
að ekki hafi verið farið fram með
svona mál áður því allir hafi virt
félagaréttinn fram að þessu. „Þessi
hópur telur sig ekki þurfa að una
lýðræðislegum vinnubrögðum og
fara að þeim samningum sem þeir-
ra félag átti aðild að.“ Hann segir
STEYPT í MÓT Talsverð aðsókn var á handverksdaga í Árbæjarsafni um helgina. Meðal þess sem var sýnt er gamalt handverk,
spónskurður og eldsmíði auk gamalla saumgerða, knipls og útsaums.
Tík með afkvæmi gengur laus í Höfnum:
Hvolpum fyrir milljón
lógað ef þeir sleppa
HUNPAR Sex hundar af tegundinni
Stóri Dan hafa undanfarna daga
gengið lausagöngu í Höfnum. Um
er að ræða tík með fimm hvolpa
fjögurra til fimm mánaða gamla
að sögn lögreglunnar í Reykjanes-
bæ.
Bæði börn og fullorðnir hafa
verið logandi hrædd því þarna er
um að ræða eina stærstu hunda-
tegund í heimi. Meðalhundur mun
vera allt 75 sentimetrar á hæð og
um 50 kíló. Lögreglan hefur í tví-
gang haft afskipti af hundunum.
Að þeirra sögn er stúlka úr
Reykjavík sem heldur
hundana á gömlu eyði-
býli utan við Hafnir. „Við
vitum að þessi hundateg-
und er mjög eftirsótt og
hver hvolpur mun kosta
um 190.000. Síðast hand-
sömuðum við hundana í
gærmorgun og afhentum
eigandanum þá aftur
gegn greiðslu. Hann á
von á að heilbrigðiseftirlitið láti
lóga þeim öllum ef þeir sleppa eina
ferðina enn,“ segir varðstjóri á lög-
reglustöðinni í Reykjanesbæ. Ekki
er hægt að segja að mjög
vel fari um hundana á
eyðibýlinu en þeir eru þó
vel haldnir líkamlega að
sögn lögreglunnar.
Stóri Dan er ekki al-
gengur á Islandi og sam-
kvæmt upplýsingum frá
I-Iundaræktunarfélaginu
er enginn hundur af teg-
undinni skráður þar. „Við
höfum hins vegar frétt af þessu til-
tekna goti en vitum ekkert um það,
„ sagði Hanna Björk Kristinsdóttir
hjá HRFÍ. ■
STÓRI DAN
Fjörugur og tignarlegur
en getur valdið ótta.
það alveg ótvírætt að ríkið hafi
bindandi samninga um þessi störf
við Læknafélag íslands. „Við erum
ekki að leika okkur að semja við
einhver og einhver félög bara
vegna þess að þeir hafa gaman af
því.“
Unglæknar hafa talað um að á
þeim séu brotin mannréttindi og
segist Gunnar ekki skilja hvað þeir
eigi við með því. „Til eru lög í land-
inu sem segja nákvæmlega hvern-
ig menn skuli bera sig að við samn-
inga. Félagsdómur hefur úrskurð-
að að þeir hafi ekki farið rétt að.
bergljot@frettabladid.is
I ÞETTA HELST I
Eigandi Guðrúnar Gísladóttur
segir skipið ónýtt og óraun-
hæft að ætla sér að lyfta því af
hafsbotni.
bls. 2
—4-----
Ekki er vitað hvaðan salmon-
ellusýking barst í sauðfé á
bænum Ríp í Skagafirði. 500 fjár
hefur verið slátrað.
bls. 2
' ' ■ ;--♦-----
Grjóthreinsun Hrafns Gunn-
laugssonar í fjörunni fyrir
framan heimili hans vekur litla
hrifningu borgaryfirvalda.
bls. 4
Hlutur íslands í mansali er
stórlega ýktur segir eigandi
Maxíms sem vill hert eftirlit
með nektarstöðum.
bls. 6
—t—-
Fyrrum stjórnarformaður
Byggðastofnunar vill sam-
eina Byggðastofnun og Nýsköp-
unarsjóð atvinnulífsins.
bls. 8.
| ÍÞRÓTTIR |
Fylkir á toppinn