Fréttablaðið - 29.07.2002, Side 8

Fréttablaðið - 29.07.2002, Side 8
FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Er það svo mikils virði? að munar feikn hversu land- búnaðarafurðir eru dýrari hér á landi en víðast annars staðar. Bankakerfið er dýrara hér en í mörgum öðrum löndum. Svona er eflaust hægt að telja iengi áfram. Við verðum að spyrja okkur hvort það sé þess virði að borga meira til bankanna, sem allir reyndar hagnast vel ár eftir ár, og hvort við séum tilbúin að borga meira til að halda uppi landbúnaði og hvort fámenni hér kosti meira í bankakerfinu svo tryggt verði að einhver sam- keppni verði viðhöfð. Reyndar er ekki að sjá að nokkur samkeppni sé á milli olíu- félaganna. Það heyrir til algjörra undantekninga ef munar eyri á bensínlítra. Þess vegna er ekki að sjá að neytendur hagnist nokkuð þó hér séu þrjú olíufélög. Trúlega breyttist fátt þó þau sameinuðust tvö eða öll. Ætli þjónustugjöld banka og vextir séu ekki með ámóta hætti að litlu muni í verð- lagningu. Þrátt fyrir það er varla þorandi að draga meira úr sam- keppni peningastofnana. Bankar eru með það viðkvæma þjónustu að það hlýtur að vera álitamál hvort þorandi sé að á þeim mark- aði verði ekki tryggð samkeppni. Skiljanlega er ótti meðal fólks á landsbyggðinni ef sparisjóðirn- ir verða seldir. Útibúum banka hefur fækkað og víða á lands- byggðinni er ótti um enn frekari samdrátt. Kaupi stóru bankarnir MáJ...manm Sigurjón M. Egilsson skrifar um matarverð sparisjóði hér og þar er ekki úti- lokað að þjónusta verði enn skert. Allt þetta kostar peninga. Þess vegna verðum við að gera upp við okkur hvort það sé pening- anna virði að halda þeirri þjón- ustu sem við búum við, framleiða áfram mest af þeirri landbúnað- arvöru sem við neytum og hvort við viljum tryggja einhverja samkeppni sem viðast í okkar fá- menna samfélagi. Það er augljóst að sökum fámennis kostar okkur hlutfallslega meira að gera eitt og annað. Til að mynda er líklegt 29. júlí 2002 MÁNUDAGUR að við náum ekki sömu forsend- um í rekstri og milljónaþjóðir. Fámennið kostar sitt. ■ Sumarleyfl þingmanna Rannveig hringdi: Mikið er ég sammála Hafsteini sem vakti athygli á í Frétta- blaðinu að sumarleyfi þingmanna er enn í gangi og sér ekki fyrir endann á. Sér í lagi var eftirtektar- vert að einn þingmaður er á háum launum frá Alþingi við að ganga erinda Búnaðarbankans við að komast yfir sparisjóð okkar Reyk- víkinga. Hér á ég við Pétur Blön- dal. Hann lætur greinilega ekki stjórnast af öðru en þrá sinni eftir peningum. Ekki er ég viss um að allir umbjóðendur hans, það eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, séu mjög hrifnir af því með hvaða hætti hann hefur kosið að verja löngu sumarfríi sínu. Það færi kannski betur að Pétur hagaði sér eins og flestir starfsfé- lagar hans. Það er að vera ekki sýnilegir í sumarfríinu og skipta sér ekki af verkum sem engan veginn geta talist til starfa þing- manna. í endurtekinni umræðu um sparnað hér og þar verða þing- menn að svara hvort þeir geti ekki komist yfir þau verk sem Alþingi afrekar á ári hverju þó þeim fækki. Það má lengja starfstíma Alþingis talsvert. Það er búið að lengja vetrarsetu yngstu grunn- skólabarna. Það er ekki til mikils ætlast að þingmenn sitji jafn lengi að störfum og yngstu börn þjóðar- innar. ■ LESENDABRÉF Lesendur geta skrifað bréf í blaðið. Æskilegt er að hvert bréf sé ekki lengra en sem nemur hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að senda bréfin í tölvupósti, rit- stjorn@frettabladid.is, hringja í síma 515 7500, faxa í síma 515 7506 eða senda bréf á Fréttablaðið, Þverholti 9,105 Reykjavík. Segja nautgriparækt leggjast af hækki verðið ekki Kúabændur á Suðurlandi eru óánægðir með þau verð sem sláturleyfishafar greiða þeim fyrir nautakjöt. Offramboð af ungnautum á undanförnum árum hefur leitt til verulegrar verðlækkunar segir forstjóri Sláturfélags Suðurlands. „Við verðum að sjá töluverða hækkun á þessum betri flokkum." LflNDBÚNflÐUR Mikil óánægja er meðal sunnlenskra bænda með það verð sem sláturleyfishafar greiða fyrir nautgripakjöt. Stjórn félags kúabænda á Suðurlandi hafa kallað eftir verðhækkunum og lýsir furðu sinni á því að verð fyrir bestu flokka kýrkjöts og ......- nautakjöts skuli ekki hækka þegar framboð sé lítið eins og nú sé. Lágt verð sem fæst fyrir bestu flokka nautakjöts- og dýrkjöts getur leitt til þess að verulega dregur úr framleiðslu og hún jafnvel lagst af að stórum hluta segir Sigurður Loftsson, for- maður Félags kúabænda á Suður- landi. Hann segir að verðlagning sláturleyfishafa leiði til þess að bændur leggi áherslu á mjólkur- kýr í stað þess að rækta upp holdanaut. Þetta leiði m.a. til þess að þeir gripir sem fæðist séu slak- ari framleiðslugripir fyrir nauta- kjöt. Afleiðingin verði sú að lakari flokkar kjöts verði stærri hluti framleiðslunnar. „Við verðum að sjá töluverða hækkun á þessum betri flokkum." „Ef það á að vera einhver raun- hæf framleiðsla á nautakjöti hlýt- ur hún að vera af einhverjum aðil- um sem ekki eru í mjólkurfram- leiðslu. Það er þar sem menn eru með virkilega slæma afkomu. Menn hafa ekkert til að hjálpa undir fastakostnað við framleiðsl- UNCNAUT Sunnlenskir bændur óttast að nautgriparækt leggist af að stórum hluta hækki ekki þau verð sem bændur fá fyrir bestu flokka nautakjöts. una,“ segir Sigurður. „Það er úr svo litlu að spila þegar búið er að greiða fastakostnaðinn að við spá- um því að þetta muni leggjast af að stórum hluta.“ Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands segir að komið hafi verið til móts við kúa- bændur með staðgreiðslu kúa sem koma til slátrunar. „Áður var ver- ið að borga kýrnar 25. dag annars mánaðar eftir slátrun. Það má segja að það að staðgreiða sé ígildi verulegrar verðhækkunar þar sem við fáum vörurnar ekki staðgreiddar. „Það gengur ekki upp rekstrar- lega að ala upp ungnaut til slátr- unar og sölu,“ segir Steindór. Verð á markaði ráðist að stórum hluta af framboði og eftirspurn. Síðustu þrjú til fjögur ár hafi verið mikið offramboð af ungnautum sem hafi leitt við verulegrar verðlækkun- ar. „Það er spurning hvenær að- stæður skapast til að verðið fari að stíga aftur. Það ræðst af verð- þróun annarra kjöttegunda og því framboði sem er á nautakjöti." brynjolfur@frettabladid.is Við bjóðum ótrúlegan afslátt af 4,0 - 6,0 hö B&S sláttuvélum með drifi og án drifs sem og hinum ómissandi bensínhekk-klippum, keðjusögum og orfum. af Flymo rafmagnssláttuvélum, hekkklippum og orfum ____________Aðeins þekkt vbrumcrki sem tryggja endingulli!! R sL U nS —■ ©Husqvama Dalvegur16a 201 Kópavogur Sími 544 4656 Fax 544 4657 mhg@mhg.is LEIKSKÓLAKENNARAR Okkur á Undralandi vantar leikskólakennara í 100% starf frá 13 ágúst. Undraland er 15 ára lítill notaleg- ur einkarekin 30 barna leikskóli í nýju húsnæöi í Kópavogi. Fáist ekki leikskóla kennari, verður ráðin leiðbeinandi Allar nánari uppl í s. 899 8654 Sonja eða 862 3029 Bryndís. KEA - samvinnufélag tilbúið í fjárfestingu: Nýr íjölmiðill á Akureyri byggðafesta Starfsmenn Atvinnu- þróunarfélags Eyjafjarðar vinna nú að útreikningum á hagkvæmni og rekstrarmöguleikum nýs fjöl- miðils á Akureyri sem gæfi út dagblað og ynni og seldi ritstjórn- arefni til annarra fjölmiðla. Helstu ráðgjafar í undirbúnings- vinnunni eru tveir fyrrum rit- stjórar dagblaðsins Dags, Birgir Guðmundsson og Jóhann Ólafur Halldórsson. Dagur var lengi gef- inn út á Akureyri við góðar undir- tektir heimamanna. í undirbúningsstarfinu er gert ráð fyrir að KEA - samvinnufélag verði fjárhagslegur bakhjarl nýrrar ritstjórnar á Akureyri enda yfirlýst stefna samvinnufé- lagsins að stuðla að byggðafestu á svæðinu. Ef af verður má gera ráð fyrir að 10 nýr störf verði til á rit- stjórn hins nýja blaðs og jafnvel fleiri ef vel gengur að framleiða og selja ritstjórnarefni til fleirri aðila. Horfa menn ekki síst til ak- ureysku sjónvarpsstöðvarinnar Aksjón í þeim efnum: „Menn sjá að það vantar ein- hvern vettvang sem þennan hér fyrir norðan en umræðan fór fyrst af alvöru af stað þegar DV lagði niður ritstjórn sína hér. I raun er þetta spurning um lífs- gæði hér fyrir norðan. íbúarnir verða að hafa einhvern vettvang fyrir sjálfa sig,“ segir Birgir Guð- mundsson sem starfar sem ráð- gjafi við stofnun ritstjórnarinnar sem enn hefur ekki hlotið nafn. Að mati Birgis er allt útlit fyrir að af stofnun blaðsins verði. KEA sé til- búið með fjármagnið og aðeins eigi eftir að reikna út hvernig best verði að þessu staðið. Grundvöll- urinn sé vissulega fyrir hendi. ■ BIRGIR GUÐMUNDSSON Nýr fjölmiðill í fæðingu nyrðra.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.