Skuld - 31.10.1882, Blaðsíða 4

Skuld - 31.10.1882, Blaðsíða 4
100 Og er vjer höfum dskað að fá tækifæri til að satina orð vor, þá hefir bæjarfógetinn álilið það óvið- komandi málinu [að svo miklu leyti vjer get- um skilið hans djúpsæju orð. En til þess að gjöra honura ekki rangt til af misskilningi, skul- um vjer prenta í næsta blaði kröfu vora og úr- skurð hans um hana, sem vjerskiljum á þenn_ an veg]. Oss ber ekki að efa að þetta sje lög- legt. Hversu rjettlátt það sje, er annað mál. Meðan svona er varið meiðyrðalöggjöf vorri, þá verða þeir háttvirtu herrar að fyrirgefa þótt vjer tökum hattinn af og færurost undan að nafngreina slarkarana. peim stendur og nær að gjöra það sjálf- um. En hvernig prestar er von að þeir verði, sem liggja fyrir hunda og manna fótum hjer á götunum meðan þeir eru á prestaskólanum ? Slíkt hefir presturinn okkar horft upp á, á leið sinni í kyrkjuna á sunnudegi. J>ar erum vjer sjónarvottur að. Vjer nefnum engin nöfn, fað ætlum vjer að yfirláta Jionum. Ritstj. — Til þess að bera til baka ýmsar ósannar sögur hefir herra kaupmaður Eggert Gunnars- son beðið að auglýsa það er hjer fylgir: »Reykjavík, 17. októb. 1882. Eftir beiðni herra Eggerts Gunnarssonar votta jeg það, að hann hefir sýnt mjer brjef og málþráðarboð (ntelegrams») stýluð til hans frá „The Icelandic Trading Company“ [inu ísl. verzlunarfjelagi í Skotlandi], sem bera þess vott, að hann hafði umboð frá tjeðu fjelagi til að semja í Liverpool um fjárkaup á íslandi; að hann hafði umboð frá tjeðu fjelagi til að kaupa vörur hvar sem hann helzt vildi fyrir þess reíkning; og að tjeð fjelag hefir til þessa eigi getað komið til hans vörum þeim, sem honum voru ætlaðar, sakir þess að ekkert skip var fá- anlegt til þeirrar farar, og að fjelagið hefir tekizt á hendur að senda tjeðar vörur við fyrsta færi þetta haust. W. G. Spence Patterson. konsúll hennar brezku hátignar fyrir ísland“. Að framan ritað sje rjett þýðing á vott- orði herra Pattersons, vitnar Ritstj. „Skuldar“. — Eftir áskorun hr. Eggerts kaupmanns Gunnarssonar er mjer ánægja að votta það, að hann hefir sýnt mjer þau brjef og skilríki, sem að framan eru nefnd, og get jeg að öllu leyti borið ið sama, sem herra konsúll Palter- son hefir vitnað, um efni þeirra. pess skal getið, að síðustu brjefin og hraðfrjettirnar eru frá allra síðustu dögunum, sem hr. E. G. var í Englandi (í Liverpool) áður en hann lagði af stað hingað til lands síðast. 20/io—82. Jón Ólafsson. ritstj. „Skuldar“. — PRÓFÍÍSLENZKU. 30. þ. m. lauk cand. Schierbeck prófi í íslenzJm á lestrarsaln- um í alþingishúsinu. íslenzkukennari Latínu- skólans, hr. yfirk. Halldór Friðriksson prófaði, en þeir rektor Jón porkelsson, Dr. phil., og síra Hallgrímur dómkyrkjuprestur Sveinsson voru prófdómendur. Aheyrendur skiftu hundruðum. — Próf í læknisfræöi í f. m. tóku við læknaskólann : Asgeir Blöndal með 1. einkunn. Bjarni Jensson með 2. eink. — Burtfararpróf frá lærðaskólanum tóku í þessum mánuði tveir piltar, er eigi gátu gengið upp í sumar sakir afleiðinga af mislingasýkinni. [>eir voru þessir: Bogi Th. J. Melsteð ... 2. eink. 73 tr. Friðrik Jónsson (utanskólasveinn) 2. — 67 — — Próf í forspjallsvísindnm tóku 6. þ. m.: Arnór porláksson fjekk dável. Jóhannes Sigfússon — dável. + Jónas Jónasson — dável. porvaldur Jakobsson — dável. Tveir af stúdentum, er það bar, tóku eigi prófið að sinni. — Embættaskipun. Hr. læknir Schierbeck er í dag af landshöfðingjanum settur landlæknir á íslandi frá 1. nóv. þ. á. — Konsúll. Herra verzlanstjóri JakoJ) Hav- steen er skipaður norskur og sænskur vara- konsúll á Akureyri. — Lærði skólinn var settur 2. dag þ. mán. og var síðan haldið inntökupróf; tóku það 14 piltar, 3 til annars bekkjar og 11 til fyrsta bekkjar. Ársprófi því, er frestað var í vor til hausts, var slept, því að það þótti óhægt að koma því við, þar eð piltar komu seint, og voru þá margir hverjir eigi undirbúnir til að taka próf, því að þeir höfðu eigi getað fengið bækur sínar í sumar þar eð gufuskipsferðirnar brugðust. í>ót,ti því helzta og einasta úrræðið að víkja frá lagabókstafnum og flytja pilta upp próflaust. I skólanum eru nú rúralega 120 piltar. — Með póstskipinu 26. þ. m. sigldi hjeðan Guðni læknir Gn.ðmundsson, sern hafði verið settur kennari hjer við læknaskólann veturinn, sem leið. Hans sakna margir hjeðan, því að hann þótti heppinn og ólatur læknir. _A. ii g 1 ý s i n g a x* T H E BRANDFORSIKRINGSSELSKAB I LONDON. KAPITAL * 2,000,000 = KR. 86,000,000. Forsikring overtages mod ILDSVAADE, saa- vel paa INDBO, VARELAGERE, BYGNIN- GER, SKIBE i Havn og paa Beding etc, etc. som paa INDUSTRIELLE ETABLISSEMEN- TER og FABRIKER, lil FASTE, BILLIGE Præmier, ved Selskabets GENERAL-AGENTUR FOR DANMARK Joh. L. Madsen. Kontor: Ved Stranden 2, St. Reprœsenteret. ved F. A. LOVE, Reykjavík. N S K A. Tilsögn fæst hjá mjer með sömu kjörum, sem að undanförnu. Jón Olafsson. I? N S K A. Tvær dömur, sera ætla aðlesaensku, óska að fá aðrar tvær með sjer, svo að þær verði 4 als, helzt byrjandi eða skamt komn- ar. — Snúi sjer til Ritstjóra „Skuldar“, Englisli made easy. EN S K U N ÁMSYÓ K HANDA BYRJÖNDUM Eftir Jón Ólafsson. Kemur út um mánaðamótin og kostar i bandi 1 kr. 50 a. Betri framburðarreglur eru í þessari bók, en í nokkurri annari íslenzkri eða danskri kenslubók. Bók, til að læra mikið af á litlum tíma. <f3r EPILEPSIE. Grundig Helbredelse af Nervesygdomme ved Auxilium orientis af Dr. Boas, Avenue de la grande armóe, Paris Dr. Boas Brochure gratis og franco paa For- Iangende Consultationer daglig fra 12 til 2 i alle Sprog Med Ulandet pr. Correspondance Kurhonorar betales efter Helbredelse. fET Góður bær fæst nú til leigu hjer við Reykjavík; þeir, sem vilja leigja hann, geta hald- ið sjer til Einars prentara pórðarsonar. r % reiðanlegt verzlunarhús jí Leith á Skotlandi leyfir ‘ ®sjcr að tilkynna íslendingum, að peir eru viljugir að selja bæði fisk, ull og lýsi eður aðrar íslenzkar vörur við pví hæzta verði, sem fæst á inum enzka markaði, fyrir venjuleg ómakslaun (Commission). Andvirðið sendist aftur í peningum eður víxlbrjefum, sem horgast á Skotlandi eður í Kaupmannahöfn eftir pvf, sem við- skiftamenn ÓBka, eður vörum, sem Jieir geta tiltekið. Adressa. Messrs Gillespie & Catcart, Bernard Street, LeitTi. Kaupmaður porlákur 0. Johnson hefir viðskifti við pessa kaupmenn, og gefur hverjum, sem óska nákvæmari upplýsingar. Ennfremur geta menn fengið upplýsingar viðvíkj- andi pessu húsi hjá: Herra C. K. Hansen i K.höfn og Herra Harry Levin sst. Clydesdale Bankanum, Leith og Loudou. — Tapast hefir laugardaginn 28. þ. m. hvít- hornótt ær hjer um bil 3 vetur, stór, óglögt hornmark, mun vera sýlt hægra biti cða lögg aptan, blaðstýft aptan vinstra; blákrítuð fyrir neðan ennisbrúsk; eyrnamark veit jeg ekki hvað er. — Hvern sem hitta kynni bið jeg að gjöra mjer aðvart eða koma til mín nefndri á. Reykjavík, 31. október 1882. porbjörg Sveinsdóttir yfirsetukona. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Ólafsson, alþingismaður. Prentuð hjá Einari pórðarsyni á hans kostnað.

x

Skuld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.