Máni - 18.09.1880, Side 6

Máni - 18.09.1880, Side 6
11 M Á N I. 12 sama verð á þeim; hjá Jóhannessen vega þeir 180 pd. og kosta 22 kr. f 25. dag ágústmán. þessa árs andist þórður háyfirdómari Jónasson, 80 ára að aldri. Jarðarfðr hans framfór 3. þ. m., og var henni vel fyrirkomið af ættingjum hins látna því fyrirkomulagið í kirkjunni var með meiri snilld en hér hefir verið venja; á alt- arinu og víðar var hún bjðrt og skínandi, en aptur á móti sorgarklædd á öðrum stöð- um er vel átti við, svo að birta og skuggi skiptust svo fagurlega á, að slíkt gat valla annað en vakið eptirtekt þeirra, sem við voru staddir. 3. ræður voru haldnar, 2 af Hallgrími dómkirkjupresti Sveinssyni og 1 af prestaskólakennara H. Hálfdánarsyni, og grafskript eptir sira M. Jochumsson. f>órður háyfirdómari var fæddur 26. d. febr. 1800 að Nesi í Aðalreykjadal; 16 vetra fór hann í Bessastaðaskóla, og útskrifaðist þaðan 1820; sigldi hann fáum árurn síðar til Kaupmannahafnar; embætti sitt í lög- vísi tók hann þar 1830, og hlaut hann besta vitnisburð. 1835 var hann skipaður sýslumaður i Eyjafjarðarsýslu; 1836varhann skipaður meðdómari við landsyfirréttinn og giptist sama ár nú eptirlifandi ekkju sinni Soffíu Dórótheu; 1849—1850 var hann settur amtmaður í Norðuramtinu; 1856 varð hann háyfirdómari, og hélt hann því em- bætti til 24. maí 1877; 6 ár gegndi hann stiptamtmannsembættinu, er þá var hið æðsta embætti hér á landi, sömu ár var hann kon- ungsfulltrúi á alþingi og konungkjörinn frá 1845 til 1875; hann var sæmdur ýmsum heiðursmerkjum af stjórninni. fessi hans langa og háa embættisstaða sýndi það, að hann var í afhaldi hjá stjórninni; hann var einnig að sögn í afhaldi hjá hæstarétti. Oss furðar ekki á því, þótt f>órður sál. Jónas- son væri í afhaldi, því um hann mátti með sanni segja, að hann var lipurmenni bæði gáfaður og vel lærður. |>að, sem einkenndi hann frá sumurn háum embættismönnum, var sér í lagi það, að hann var mjög alúð- legur við alþýðumenn, og lagði mönnum úr þeim flokki opt holl ráð, og hann kannaðist við það, að hann væri íslendingur, og sér bæri að heiðra þá eins og fóstbræður sína því þeir væru af sömu rótum runnír og hann sjálfur. þ>að, sem eptir hann liggur af rit- störfum, var menntandi og fræðandi fyrir al- þýðu, t. a. m. rít um sáttamál og ýmsar ritgjörðir í Reykjavíkurpóstinum, og fleira. Ekki var að búast við því, að þórður sál. slippi við allar aðfinningar landsmanna, þar sem hann hafði svo vandasama stöðuáhendi, en hann vann dyggilega, því hann beiddist ekki lausnar frá embætti sínu, fyr en krapt- ar hans voru þrotnir, og sýndi með því, að það var ekki hans mark og mið, að njóta sem lengst eptirlauna, eins og virðist eiga sér stað hjá sumum uppgjafa embættis- mönnum vorum. Eptirlifandi börn þ>órðar sál. eru: J>órð- ur prófastur í Reykholti, Theódór bæjarfó- geti, Jónas læknir, Sigurður kand. phil., frú María kona Ó. Finsens póstmeistara, og fröken Sigríður. E. Kosningar til alþingis. fingmannskosning í Reykjavíkurbæ fór fram 1. þ. m. og var endurkjörinn yfir- kennari H. Kr. Friðriksson. Herra prent- stofueigandi E. J>órðarson gaf einnig kost á sér til þingsetu, en hlaut að eins fá at- kvæði, því embættismenn, kaupmenn og nokkrar höfðingjasinnar munu áður hafa verið ráðnir í því að velja Halldór, og dregið nokkra bændur og iðnaðarmenn i lið með sér, er ella mundu eigi hafa kosið hann, ef samtök hefðu verið og völ á öðrum manni er þeir hefðu borið traust til. En svo mun hafa verið, að hvorugum þeirra manna, er í kjöri voru, munu bændur og hinir frjáls- lyndari borgarar bæjarins hafa viljað greiða atkvæði sín, og munu fyrir því alimargir kjósendur eigi hafa mætt á fundinum. Vér þykjumst fullvissir um, að fleiri munu þeir bændur hafa verið hér í umdæminu, er eigi hefðu óskað að yfirkennari H. Kr. Priðriks- son sæti framvegis þjóðkjörinn á þingi, og margir munu hafa látið svo sem þeir mundu kjósa E. |>órðarson heldur; en eins og vór

x

Máni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Máni
https://timarit.is/publication/111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.