Máni - 05.03.1881, Blaðsíða 1
22. (io.)
1881.
M Á N I.
Reykjavík, 5. mars.
Eptir að síðasta blað kom út 5. f. mánaðar
fréttist hið voðalega slys, er vildi til með
póstskipið «PHÖNIX», á leiðinni hingað upp,
að það strandaðí á skeri fram undan Syðra-
Skógarnesi í Miklholtsbreppi í aflíðandi norð-
anveðrinu 31. janúar síðast. Náðu skip-
verjar allir iandi með illum leik, hafði nokkra
þeirra kalið meira og minna, en annar mat-
reiðslumaðurinn deyði af því; eru allir hásetar
komnir suður að 5 undanteknum, er eigi
hafa verið ferðafærir; formaður skipsins dvel-
ur þar enn vestra sökum þess. Af skipinu
náðist ekkert er teljandi sé, afpóstinum náðist
eigi annað en poki með enska póstinum í, og
lausi bréfakassinn frá Kaupmh. sem bréf
eru þar seinast látin í, og komu nokkurbréf
í honum. J>á seinast fréttist af skipinu,
var það með öllu sokkið, og er þar með öll
von úti að nokkuð náist úr því; er það til-
finnanlegur skaði fyrir kaupmenn og aðraer
áttu von á ýmsu öðru með skipinu; eru nú
flestar nauðsynjavörur á förum hjá kaup-
mönnum hér, en vonandi er að úr því bæt-
ist með marz-ferðinni, því skrifað var frá
Kaupmannah. að hún ætti að byrja 1. þ. m.
— Úr bréfi á Kyndilmessu úr Húnaþingi:
«Nú eru að jafnaði um 20°kuldi ogstundum
yfir 30°ogsamfara hríðar ogharðindi mikil».
— Úr bréfi af Suðurnesjum 6. febr.: «Mik-
ið var sjávarflóðið hér á sunnudagsnóttina
30. f. m.; þá gekk sjór hér upp um tún og
sumstaðar upp að bæjum, og kastaði upp
upsa og karfa svo þúsundura skipti, og gátu
menn týnt hann rétt við bæjardyrnar, er
næstir bjuggu sjónum; varð af þessu björg
mikil. Fuglar hafa líka í þessu kasti fundist
dauðir og frosnir,niður með sjónum og á ísnum».
— Úr bréfi af Rangárvöllum 8.febr. 1881:
«Fréttir eru litlar héðan, þó vil eg geta eins
73
atburðar, það var loptsjón — vígahnöttur —
sem nokkrir menn sáu hér að kvöldi hins
15. des. f. á. Hnöttur þessi kom upp úr
suðaustri og rann til norðvesturs og hvarf
með nokkurskonar titrandi hljóði, líkt reið-
arþrumu í fjarlægð; sýndist mönnum hann
stærri en tungl í fyllingu og tunglið naut
ekki birtu sinnar um tíma. Tíðarfarið hefir
verið hart og allur fénaður á gjöf síðan með
jólaföstu, frosthörkurnar fjarskalegar frá 16
til 21° R.
— Sjálfsmorð. í síðastl. janúar og fe-
brúarm., förguðu sér 2 stúlkur önnur í Garði
en hin í Leiru syðra.
þó að c</ ta/aði laeði ent/la or/ manna.
tunr/um, cn hefði ekki kœr/eikann,
pá væri <></ eins <></ hljómandi ma/in-
ur cða hvcllandi b/a/la.
1. Páls p. til Kor. 13. k. l.v.
Jafnvel þó það sé stefna vor í blaðinu,
að vera svo umburðarlyndir við aðra, sem
oss er unnt, og sem ætti að vera mark og
mið sérhvers blaðs, er vill nytsamt heita,
þá getum vér ekki látið hjálíða, að minnast
þess, að dómkirkjupresturinn séra Hallgrímur
Sveinsson, lét stefna hér nokkrum bændum,
fyrir þá sök, að þeir á sunnudagsmorgni hefðu
sent skip sín suður á nes til fiskjar, og leit
svo út sem hann vildi fá þá sektaða fyrir
helgidagsbrot. f>egar þeir mættu hjá bæjar-
fógetanum, munu þau úrslit hafa orðið á
því máli, að þeir alls ekki voru sekir í neinum
helgidagsbrotum samkvæmt helgidagatilskip-
uninni, svo það féll þannig niður. þ>að finnst
eins og eðlilegt, þó menn í þessum harðindum
hafi frelsi til þess óáreittir að leita sér
bjargar, einkum þegar hér var ekki um
annað að tala en að þeir fóru sem aðrir
74