Fróði - 27.09.1880, Blaðsíða 1

Fróði - 27.09.1880, Blaðsíða 1
F R Ó Ð I. I. AR. 22. blað. Akureyri, mánndaginn 27. september 1880. 253 254 255 Á s k o r u n, Til þess að komast, ef verða mætti, betur í skilning um eðli norður- Ijósanna, sem að nokkru leyti er enn þá ráðgáta, hefir undirskifaður reynt að koma því til leiðar tvö síðustu árin, að þessar loptsjónir væru athug- aðar í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Mjer hefir heppnazt að fá í þessum lönduin menn svo hundruðum skiptir, er hafa verið fúsir til að styðja þetta mál, og er þegar komið frá þeitn ekki svo lítið safn af skýrslum. Vaeri mikið undir því komið, að athuganir þessar yrðu einnig gerðar á íslandi, er liggur j svo norðarlega og gæti því greitt ríf- legt tillag f þessu efni. Jeg leyfi mjer þvf að skora á vini náttúrunnar að athuga norðurljósin, og get þess um leið að talsvert af eyðublöðum til að rita á skýrslur um athuganir með nauðsyn- legum leiðarvísi er nú sent ymsum af prestunum, og að aðrir þeir, er vilja taka þátt í þessu, geta látið herra k a u p m a n n J. G. M ö 11 e r á B 1 ö n d u ó s i vita það ; rnunu þeim þá verða sendar á sumrinu þær leið- beiningar er þörf er á. Björgvin í Noregi í júnímánuði 1880. Sophus Tromholt (gagnfræðakennari). * * * Vjer YÍljum mæla hið bezta fram með því. að sem flestir góðir menn verði við áskorun hins norska vísindamanns, peirri sem prentuð er hjer fyrir ofan. Hvergi á Norðurlöndum eru norðurljós- in svo algeng sem hjer á landi, og vjer höfum því hið bezta tækifæri til að at- huga þau. J>að eru og öll líkindi til þess, að vor á meðal sjeu eptir tiltölu allt eins margir vinir náttúrunnar og vis- indanna eins og annarsstaðar á Norð- urlöndum, en það mundi þó líta svo út, sem þetta væri ekki, ef fáir eða engir vildu verða til að taka þátt í þessari samvinnu annara Norðurlandabúa, að athuga norðurljósin. Askorun herra Tromholts, sem skrif- uð er í júnímánuði, hefir eigi borizt oss fyrri enn nú í september, og af því leiðir, að þeir, sem vilja verða við til- mælum þessa vísindamanns, geta ef til vill eigi fengið í tækan tíma eyðublöð þau, er hann vísar á, til að rita á at- huganir sínar. En til bráðabyrgða gætu menn þá skrifað þær á annan pappír og fært síðan inn í eyðublöðin þegar þau fást. |>essi eyðublöð eru strykuð þannig, að fremst er dálkur fyrir mán- aðarnafnið, þá annar fyrir daginn, hinn þriðji til að skrifa í hvað klukkan er þegar athuganin byrjar, og hinn fjórði að skiifa í tímann, þegar hún endar. Svo er eyða þar fyrir aptan til að rita í lýsing á noi'ðurljósinu í það skipti, lög- un þess og litum, hi'eyfingum þess og hvar það er á himninum. Hvað tímann snertir, er þess óskað, að dagurinn eða sólai'hringurinn sje tal- inn frá miðdegi til miðdegis, en ekki frá miðnætti til miðnættis eins og venju- legt er í daglegu lífi, og að klukkustund- irnar í sólarhi'ingnum sjeu taldar áfram allt að 24, en ekki tvennar 12. |>annig t. a. m. skal skrifa 2. okt. kl. 14, það sem algengt er að kalla 3. okt. kl. 2 f. m. og svo frv. |>að segir sig sjálft, að því betra er því betur sem norðurljósunum er lýst. Yenjulegast sýna noi'ðurljósin sig með þrennum hætti: 1. sem jafnt ljós um norðurloptið; 2. sem ljósbogi (einn eða fleiri), er hvelfist yfir dimmum og dökk- leitum fláka á himninum í lögun sem sneið utan af kringlu; 3. sem geisla- straumar, er opt hafa ymsa liti og hreyf- ast alla vega. |>egar mikið er um norð- uxijós, sýnist á stundum sem lýsandi gufumekkir gjósi upp á loptið með mikl- um hraða, eður að geislastraumarnir renni upp að sjerstökum punkti sunnan við kvirfilpunktinn og geislar breiðist svo þaðan í allar áttir. þetta kalla menn norðurljósakrónu. Skyldi eitthvert hljóð eða þytur heyrast í loptinu, þegar norðurljósin eru á ferð, þá er mjög æski- legt að þess sje getið, og hljóðinu sem nákvæmlegast lýst. Herra Sophus Tromholt hefir gefið út nokkur stjörnukort til að draga upp á þau myndir af norðui'ljósum. |>essi kort geta þeir fengið ókeypis hjá hon- um, sem annt er um þetta mál og vilja verja talsverðum tíma til athugana á norðurljósunum. Með kortunum fylgir leiðarvísir til að þekkja stjörnur. Eyðublöð, sem athuganir hafa verið i’itaður á, er beðið að senda fyrir lok maímánaðar til „det meteorologiske Institut i Kjöbenhavn, K“. Kaupstaðarskuldirnar og kaflið. (Framhald.) Þá eru munaðarvörukanpin. Þau eru nú víst ekki alstaðar jafn- mikil, en svo er og um hvað eina. Tóbakskaup hafa hlotið að aukast þeg- ar farið var að hafa rullu fyrir þrifa- meðal handa sauðfje. Að öðru leyti mun tóbakseyðsla ekki meiri nje al- mennari enn fyr var, hjer um sveitir. En vínfangakaup hafa minnkað hjer svo mikið, að þau er varla að telja. Svo er þá kaífið og það semþvf ti 1 h e y r i r. Er ekki til neins að dylja þess, að með því Ixöggva menn stærstu skörðin í verzlunarreikninga sína jafnaðarlega, fram yfir það sem fyr var, og mætti því einna mest draga úr skuldunum með því að draga úr þeirri tegund eyðslunnar. Og með því kaffi heyrir undir munaðarvörur, þá þykir því síður áhorfsmál að ráð- ast á það. En nú er þess að gæta, að kaffið er hinn eini almenni sæl- gætis og hressingardrykkur sem alþýða hefir. Og að alþýðan, — sem vinn- ur baki brotnu, og verður að neita sjer um mörgþægindi, sem hinir „heldri“, er lifa af aflafje hennar, fá að njóta, skuli líka neita sjer algjörlega um nautn þessa drykkjar, er í sannleika of hart að ætlast til. Ef menn eiga að komast a f án þess eða hins, sem gott er og þægilegt, þá raega menn aldrei komast á að hafa það. Þetta er samkvæmt náttúrlegu eðli. En allt er bezt í hófi. Og er uú kaffmautn vorhóíleg? Hr. A- Brynjólfsson, sem ritar um munaðarvörukaup í 107. tlbl. „Skuldar“, reiknar það út, að til þess hver lullorðinn maður á landinu geti drukkið kaffi 2 á dag, þurfi hvert kaffipund, scm flyzt til landsins, að endust í 107 bolla. En nú er það alkunnugt, að úr 1 kafíipundi fást f mesta Iagi 30 bollar, og sje malkaffi eða þess konar haft að þriðjungi — sem þó er ofmikið — þá fást hjer um bil 45 bollar. Eptir þessu vant- ar töluvcrt til þess að liver fullorðinn maður á landinu drekki kaffi 1 á dag. Mjög víða er það samt drakkið 2 á dag, en því fleiri hljóta þá hinir að vera, sem drekka það aldrei, sje reikn- ingur A. B. rjettur. Margir hafa kafíi fremur til gestveitinga enn heimilis- nautnar; þykir það hentugt til þess. f*eir eru nú til, sem álfta nauðsynlegt fyrir landsmenn að leggja gestrisnina niður; en það sýnir sig svo, bjer á Suður- Iandi, að í þeim sveitum, sem gestrisni er minnst, þar er líka minnst fjör og fjelagsandi. Pað raá því hvorki kalla kaffinautnina ó h ó f I e g a nje allskost- ar ónauðsynlega; en hún er ofvaxin efnahag manna fyrir því. Menn þurfa að spara kaffi, en menn þurfa þá eitthvað í staðinn. Sje bannað að flytja inn malkaffi,

x

Fróði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.