Fróði - 06.06.1882, Side 4
76. bl.
F E Ó Ð 1.
1882.
190
hlýt jeg aö harina nú ;
bjóst jeg eigi við
að í blóma lífs
hans þarfa dagsverk þryti.
Fáir munn Birni
íremri reynast
að mannkostum mætum:
góðvilja, gætni,
göfuglyndi,
mannást og mannþekkingu.
Skörp var skynsemd hans,
skáldgáfa fjörg,
frábær fegurðar-smekkur,
hreint var kugarfar,
háfleyg var sál,
grandvör samvizkusemi
Æfi sinnar
ljet hann aðalmark
að reynast hinn rjettimaður:
anda sinn að mennta,
en orku neyta
til þess að gera gagn.
Vott um kunnáttu
báru verk hans öll,
og íþrótt hagvirkra handa,
en vandvirkni
vegligrar sálar
sýndu þau samt hvað bezt.
Kunni hann að meta
köllun sína,
sem Guðs tilskipun góða;
heimilis og fjelags
var heill og prýði;
ástsældar alinennt naut.
Sje jeg nú í anda
bve sárt hann trega
vandamenn og vinir:
ekkja, ungbörn
og aldinn faðir,
systkyn og sveitarfjelag.
Samhryggist jeg þeim,
og sjálfur hlýt
tryggða vin minn að trega.
En hinn góði Guð,
sem gaf og tók,
huggun í hörmum sendir.
Ilafinn er til hans
háfleygur andi
leystur úr líkamsfjötrum.
Horfum til himins
eptir horfnum vin
í von um samfundi síðar.
Br. J.
Innlleiidar frjettír.
Akureyri 5. júní.
Veðurátta befir verið hörð og
óbagstæð yfir allt land á pessu vori, og
úr öllum bjeruðum er að frjetta fóður-
skort og par af leiðandi vandræði. |>ó
er vonanda að fjenaður falli ekki viða
stórkostlega, ef ekki gerir áfelli bjer á
eptir, en almennt mun hann ganga
illa undan fyrir fóðurleysið og verða
191
gagnslítill og kvillahætt. |>essi vand-
ræði eru afleiðingarnar af hörðum vetri
í fyrra og graslitlu sumri, og pví, að
fæstir munu hafa búizt við jafn miklum
vorharðindum og nú hafa verið. Hjer
um sveitir, og sjálfsagt víðar, hefir
skepnum verið gefið mjög mikið af korn-
vöru, bæði maís og rúgi, og hefði á-
standið án efa orðið miklu verra, ef
kaupmenn hefðu eigi verið ágætlega
byrgir af pessari vöru. Vjer ætlum að
lesendur „Fróða“ muni eigi kæra sig
um, að vjer förurn að segja hjer harð-
indasögu úr hverju einstöku hjeraði,
endayrðupær sögur allar nokkuð svipaðar.
Hafísinn rak hjer að Norðurlandi
í áliðnum aprílmánuði, og fyllti pá hvern
fjörð og hefir enn eigi rekið út aptur.
Hann dreif pá einnig suður með öllu
Austurlandi, allt suður að Breiðamerk-
ursandi, en íslaust hefir verið fyrir
Vesturlandi, og hann aldrei farið suður
fyrir ísafjarðardjúp. Aður enn pessi
íshella pakti hafið fyrir öllu Norður-
landi, voru kaupskip komin á Húsavik,
á Eyjafjörð, á Sauðárkrók og á Blöndu-
ós, eitt á hvern stað, en síðan kefir
engu skipi verið fært norðan um land,
og öll kaupskipin, sem væntanleg voru
á pessar stöðvar munu pví vera að hrekj-
astfyrir sunnan eða vestan land; „B.ósa“,
Gránufjelags skip til Oddeyrar, kom
t. a. m. inn á Isafjörð eigi alls fyrir
löngu- Um gufuskip er eigi að tala
meðan svona stendur.
Hvalir 4 hafa nýlega náðst hjer
á firðinum, voru prír peirra um 30 al.
en einn 46. 1. fannst í hafísnum fram
undan Skjaldarvík, varð eigi færður í
land, en skorinn upp á ísinn; 2. rak á
tírenivík; 3. á Hjalteyri og 4. var færð-
ur á land í G-æsaeyri; í honum fannst
hvalaskeyti verzlunarstjóra J. V. Hav-
steens, og átti hann pví pann hval að
priðjungi J>rír smærri hvalir (háhyrn-
ingar) 10—15 al. hafa náðst, og æði-
margir höfrungar. A Hraunum í Fljót-
um voru 3 hvalir reknir á land eigi
alls fyrir löngu. 1 náðist í Sljettuhlíð
í Skagafirði, 1 á Oddstöðum á Sljettu
og tveir á Austfjörðum. I Húnavatns-,
sýslu voru fádæma miklir hvalrekar ný-
lega. 28 hafði rekið á Anastöðum
á Yatnsnesi og annarsstaðar 10
eða 12.
Fiskur hefir verið á Eyjafirði í
vor og nokkuð aflast á haldfæri upp um
ísinn, og á lóðir pegar hægt hefir verið
að leggja pær. Fiskafli hefir verið á
Austfjörðum, og mekfiski á Berufirði
um tíma. Fiskur á Faxaflóa. en gæftir
illar. Góðfiski við Isafjarðardjúp í nmí-
mánuði.
Kaupmaður Jónassen kom
hingað 3. p. m. Lagði hann frá Kaup-
mannahöfn 3. f. m. með strandferða-
skipinu. |>að hafði eigi komizt inn á
Austfjörðu, en norður á Isafjörð komst
pað að vestan og norður fyrir Horn, en
par varð pað að snúa aptur fyrir haf-
I 192
ísnum. Jónassen fór úr skipinu á
Stykkishólmi, pegar pað var á suðurleið,
og kom paðan landveg. — Yeðurátta
í Danmörku hafði verið hin blíðasta allt
fram í maímánuð.
■þ 6. maí andaðist á Möðruvöllum
í Hörgárdal skólapiltur Pjetur Jakobs-
son frá Sauðafelli, 25 ára gamall.
Auglýsingar.
Lars Brekke & Co.
5 Minerva Terrace.
IIuI 1 (England).
Commissionsforretning i Fisk, Tran,
Uld, Skind, Dun og alle islandske Pro-
ducter.
Referenter:
Hcrr. Tr. Gunnarsson, Oddeyri
— J. V. Havsteen,-------
— S. Pálsson, Siglefjord.
f 5. tölublaði (Stjórnartíðindanna
deildinni B mun verða birt, að sýsl-
unin sem umboðsmaður Möðruvalla-
klausturs sje laus frá I. sept. þ. á. og
að bónarbrjef um sýslun þessa beri að
stíla til landshöfðiugja. en senda þau
amtmanninum yíir Norður- og Austur-
aintinu fyrir 10. júlí þ. á.
Skrifstofu Norður- og Austuramtsins,
26. maí 1882.
J. II a v st e e n,
settur.
Undirskrifaður selur hjer eptir
drátt í kláf yfir Jökulsá á Brú hjer
undan bænum þannig: Fyrir fullorðinn
mann 10 aura hverja ferð, og fyrir
hver 100 pd. af burði eða fje eins,
það er 1 eyrir fyrir hvern fjórðung,
sem borgist til undirskrifaðs í hvert
sinn, sem drátturiun er notaður. Þó
vil jeg geta þess, að jeg tek ekki
borgun hjá vinum eða vandamönnum
mínum
Yaðbrekku 8. maí 1882.
Baldvin Benediktsson.
— Mark verzlunarstjóra J. V.
Havsteens á Oddeyri á hvalaskeytum,
járnskutlum og kúlum: II
Fjármark Arna Helgasonar í Gríms-
gerði í Hálshrepp : Hvatt fjöður fram-
an hægra — Sneitt aptan. fjöður
framan vinstra.
— Fjármark Bjarnar Bjarnarson-
ar á Yztuvík f Grýtubakkahrepp:
Stýlt og gagnbitað hægra, heilhamrað
vir.stra. Brennimark: Bjössi.
— Brennimark Ólafs Ólafssonar í
Hrappstaðaseli í Bárðardal: 0 V 0
Útgefaadi og prentari: Björn Jónssou.