Suðri - 17.03.1883, Qupperneq 4

Suðri - 17.03.1883, Qupperneq 4
24 legasta, að stjórnin gengist fyrir því, að nýtt og betra skipulag kæmist smátt og smátt á háttu og lög þjóðar- innar, svo allt ið forna og úrelta, allt það, sem stæði lífi og gæfu einstakra manna og allrar þjóðarinnar fyrir þrif- um, hyrfi svo að segja af sjálfu sér. J>eir vildu fara byltingaleiðina, en hann stjórnarleiðina. f>eir vildu rífa niður, en hann vildi byggja upp. J>egar Thiers missti við, varð hann í raun og veru oddviti þjóðar sinnar og var það til dauðadags, þó aðrir hefðu in æðstu völd að nafninu til. Hann fór gæti- lega að öllum breytingum, en þö með mesta kappi og fylgi. f>egar það var orðin sannfæring hans, að heill Frakk- lands lægi við, að eitthvert nýmæli fengi framgang, þá hætti hann ekki fyr en svo fór, sem hann vildi. |>ann- ig sá hann, að versta mein Frakklands var það, að uppfræðing öll var í hönd- um fáfróðra og konunghollra klerka, er unnu þjóðveldinu allt það ógagn, er þeir kunnu. Hann hætti eigi fyr en hann fékk því uppfræðingarskipulagi breytt með lögum, enda lögðu klerkar slíkt hatur á hann, að þeir lustu upp fagnaðarópi og kölluðu guðs dóm fall- inn á hann, er hann lézt. Dauðinn sætti alla andvígismenn hans og öf- undarmenn við hann nema klerkana. |>eirra hatur fylgdi honum bœði í lífi og dauða. Margt hafði Gambetta í hyggju, er honum entist eigi aldur til að koma áleiðis. Hafa menn fyrir satt, að honum hafi þótt mestu skipta, að lög væru gefin ið bráðasta til að bæta kjör verkmannanna í borgunum og fá- tæklinga í sveitunum. pótti honum hvorirtveggju hafa rétt til að fá hlut- deild í ágóðanum af vinnu sinni, þar sem hann nú allur rynni í sjóð verk- smiðjueigendanna og jarðeigendanna. þjóðveldið var það stjórnarskipunarlag, sera hann taldi að gæti verið fremst og fullkomnast allra, ef vel væri á haldið. Hann elskaði þjóðveldið meir en allt annað. Hann var ungur í lund, ofsamaður í skapi, en allur ofsi hans átti rót sína að rekja til einnar ástríðu — ástarinnar til þjóðveldisins. þjóðveldið gaf honum þann guðmóð, er lagði honum í inunn ina brennandi mælsku, er gagntók alla, þann kjark, er aldrei lét bifast og ekkert þótti sér ófært og þjóðveldið var honum ástmey sú, er bætti honum að fullu allar raunir og þrautir. |>jóðveldið átti hvern lífsneista í honum. Enn verður eigi sagt hvert tjón Frakkland hefir beðið í láti Gambetta; framtíðin ein fær leyst úr því. Marg- ir hafa líkt andláti hans við dauða Mirabeaus; það var margt líkt með þeim; báðir voru frábærlega mælskir, báðir voru manna frjálslyndastir, en unnu þó stjórnsemi og föstu skipulagi, og báðir dóu þá, er svo leit út, sem Frakkland mætti sízt missa þeirra við. Með Mirabeau gekk konungdæmið til grafar á Frakklandi og allir eru á sama máli um það, að hefði hans notið við, mundi byltingin mikla aldrei hafa orðið. Nú spá sumir því, að með Gambetta leggist þjóðveldið í gröfina og byltingin og stjórnleysið taki við, og sé öllu ma*nnkyninu búið böl af þeim skelfingum. Eg skal engar getur leiða að því, sem framtíðin hylur, en einungis geta þess, að þeir munu fáir nú á dögum, er óska þess, að Mira- beauhefðilifaðlengur og byltingin mikla aldrei orðið. Byltingarnar leiða böl og ógæfu yfir lönd og þjóðir, meðan á þeim stendur, en þegar birtir yfir mannkyninu eptir slíkar voðahríðir, sjá menn, að þjóðunum hefir fleygt meira fram á þeim tíma en á mörgum öld- um. Saga heimsins sýnir, að nýjar og stórar hugmyndir, er umsteypa vilja fornu og rótgrónu 'skipulagi, fá opt fyrst vöxt og viðgang, er þjóðirnar hafa vökvað þær með blóði sínu, stund- um mann fram af manni. Svo var um siðabótina og þrjátigi ára stríðið. Svo var um byltinguna miklu á Frakklandi. Engum dettur í hug að neita því, að hver oinstakur maður hlýtur því meiri þroska, fær því fastari lífsskoðun, sem hann bugar fleiri þrautir og raunir. Hví skyldi eigi líf þjóðanna hlýða sama lögmáli? Byltingar hafa ætíð leitt ó- gæfu og sorg yfir samtíðina, ætíð verið til gæfu fyrir mannkynið í heild sinni. Hver fær sagt hve mörg tár, hve mikið blóð hvert fet kostar af vegi þeim, sem mannkynið leggur sér til full- komnunarinnar? M a n n a 1 á t. Frézt hefir að norðan, að Snorri Pálsson, verzlunarstjóri í Siglufirði, fyr alþingismaður Eyfirðinga, sé dáinn. Snorri var dugnaðar- og atorkumaður inn mesti, gáfumaður góður, frjálslyndur og ástsæll. Olafur Olafsson, uppgjafaprestur frá Fagranesi er og sagður dáinn. Hann var alkunnur um allt land, þótti maður greindur og allgott skáld. I>ó mun hann eigi hafa fengizt við sálmakveðskap. porfinnur Jönatliansson, stúdent, fyr verzlunarstjóri í Hafnarfirði, dó hér í bænum 14. þ. m. Hann var vandaður maður og gáfaður vel. Óveitt prestak.ail. Hruni í Árnessýslu (Hruna- og Tungufellssóknir), metinn 1183 kr. 16 aur. Auglýst 9. marz. Veitist frá fardögum 1883. Hjálp til inna kágstöddu í Skaptafellssýslnm. pegar inum setta landshöfðingja bárust sannar fréttir með austanpóst- inum um ástandið í Skaptafellssýslun- um, sendi hann mann beint austur þangað inn 14. þ. m., með bréf þess efn- is, að hverjum hrepp í Vestur-Skapta- fellssýslu veittust 1250 kr. og Austur- Skaptafellssýslu allri 1300 kr. (300 kr. 2 hreppum, en 350 kr. hinum tveim) af gjafafé til matvörukaupa. Sendi- maður átti og að flytja tilhoð það frá útvegsbændum á Vatnsleysuströnd, að skiprúm skyldu þeir Ijá 150 manns þaðan að austan, þó þeir kæmu alls- lausir í verið. ffg* Póstskipið «Georg» kom í gær. Embættispróf við háskólann tóku í janarmán.: pórhallur Bjarnarson (frá Laufási) i guðfræði með 1. einkunn. Halldór Daníelsson (frá Hólmum) í lögfræði með 1. einkunn. Finnur Jónsson (úr Keykjavík) ímál- fræði með 2. einkunn. Landritari er settur Jón Jensson (rektors Sig- urðssonar) cand. jur. Hann kom nú með póstskipi. a£j|r' Útlendar fréttir koma í næsta bl. .ALULglýsiiigaD?. Áx 1883, þriðjudaginn 17. apríl næstkomandi, kl. 11. f. m. verður í Keykjavík haldinu aðalfundur í inu sunnlenzka síldveiðafélagi. Auglýst mun verða á fullnægjandi hátt, í hvaða húsi funduriun verður haldinn. Uppá- stungur til breytingar á lögunum, munu, ef til vill, verða bornar upp af félagsstjórninni eða einhverjum hennar. Keykjavík, 9. marz 1883. Félagsscjórnin. Bæjargjaldkerastörí'um gegni eg á skrifstofu minni hvern virkan dag ]d. 11—1 en ekki á öðrum tímum að nauðsynjalausu. Keykjavík, 12. marz 1883. Kr. 0. porgrímsson bæjargjaldkeri. Úær konur, sem vilja læra yfir- setukvenncfrœði hjá mjer, eru beðnar að sækja um það til yfirvaldanna svo snemma, að kennslan geti byrjað fyrst í októbermánuði hvert ár; en á öðr- um tímum ársins verðnr þeim eptir- leiðis eigi veitt kennsla. Keykjavík 14. marz 1883. SfíhierbecJc. Kitstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Pálsson. Reykjavík. Prentari: Einab Póeðaeson.

x

Suðri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðri
https://timarit.is/publication/118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.