Suðri - 31.03.1883, Page 2

Suðri - 31.03.1883, Page 2
26 Ef kæti mér í hjarta hló, J)á hlóst pú með svo ástúðlig. pú varst mér allt, sem eg hef þráð, mín ástmey, systir, vinan mín, Þú vissir æ hin vænstu ráð og vafðir J)au í gæðin þín. Ei furða það var pó að mér æ þætti vænna og vænna’ um pig, og pekkust minning j)að mér er, að p ú hefur getað elskað mig. Svo tíðum j)ú mér barst á brýn, við brúðir margar ætti tal; pú skildir ekki að ástin mín sig einmitt tíðum pannig fal. pví hún var feimin fyrri ei hún fanga hafði látið sig, og karlmannstolt hún kveið pví, mey, pað kæmist upp, eg elskaði pig. [ Og svo leið ár — eg þakka J)ér, að þú svo lengi unnir mér, já, |)að leið vel, en J>ví fór ver, með J)ví hvarf ást úr hjarta þér. Eg finn |)ú tekur að kyssa kalt, |)ín kærleikshót eru þreytuleg, já, já, eg þekki pvílíkt allt, eg parf ei mcira, fcr minn veg. Mér undrunar pað engrar fær pótt úti sé um blíðuhót, eg geng ei eptir, góða mær, eg gustuks-eyri tek ei mót. Eg pakka og geng minn gamla veg, og gleymi bæði von og trú, og komandi engu kvíði eg, pað kætir ei né hryggir nú. Eg pakka allt sem áður varst og aldrei framar verður pú, eg pakka tryggð sem til mín barst, eg tef ei lengur, kveð pig nú. Bertel E. Ó. porleifsson. Útlendar fréttir. Á FrakMandi þykir það mestum tíðindum sæta, að um miðjan janúar- mánuð lét Napóleon keisarafrændi (bróð- ursonur Napóleons mikla og bræðr- ungur Napóleons III.) festa skjal mikið upp á gatnamótum í París. Var það ávarp til lýðsins; þjóðveldisstjórninni voru valin ill orð og henni brugðið um dugleysi og skammsýni og taldi Napóleon að þjóðinni væri sá einn kost- ur nauðugur, ef vel ætti að fara, að fá sér í hendur «forræði framkvæmd- arvaldsins». Keisarafrændi var tekinn höndum og á þingi risu allmiklar um- ræður um mál hans. Sunnan og vest- an úr landi bárust og ýmsar fréttir um, að einvaldssinnar létu þar miklu meira til sín taka en áður; ýmsir af af ættum einvalda þeirra, er að völd- um hafa setið á Frakklandi hafa og foringjavöld í liði Frakka og fór nú að kvisast að margir þeirra neyttu hervaldanna til að ná vináttu annara liðsforingja og hylli hjá hernum. pótti nú mörgum sem einvaldssinnum hefði vaxið svo hugur* við dauða Gambetta, að þeir hefðu nú í hug stórræði nokkuð. Frumvarp var borið upp í fulltrúadeild- inni um að vísa öllum einvaldaættingj- um úr landi. Öldungadeildin felldi frumvarpið; var nú aptur frestað að fá frumvarp í þessa stefnu gert að lög- um, en þingdeildirnar gátu eigi orðið á eitt sáttar. Urðu nú tíð ráðgjafa- skipti; Duclerc og þeir er með honum stýrðu, urðu að fara frá, en við stjórn- arforsæti tók sá, er Falliéres heitir. Eigi sat hann langa hríð að völdum, því að hann fekk engan veg ráðið máli þessu til lykta, er þingdeildirnar stóðu andvígar hvor annari. Átti nú Grévy úr vöndu að ráða, því flestum þótti helzt til mikill vandi fylgja þeirri virð- ingu, að vera sjórnarforseti. Um 20. f. m. tókst Ferry að fá menn með sér í nýtt ráðaneyti. Ferry hafði þau ráð, er honum þótti örvænt um, að deildirnar yrðu á eitt sáttar, að hann neytti einhverra eldri laga til að taka hervöld af konungsættingjum. par við lætur stjórnin lenda um sinn. Napó- leoni var sléppt úr varðhaldi eptir 3 vikur og fór hann úr landi til Eng- lands. Sumum þykir þetta allt vottur þess, að þjóðveldið standi nú ejgi leng- ur á svo föstum fótum sem meðan Gambetta naut við. Hvað sem því líður, þá er auðsætt af þessum atburð- um hvílíkan missi Frakkland hefur beðið við lát Gambetta; fjandmönnum hans,einvaldssinnum, þykir færið kom- ið til að búa þjóðvaldsstjórninni fjör- ráð, og vinum hans þykir slík hætta á ferðum, að þeir reka einvaldaætt- ingja úr landi og taka hervöld af þeim, þar sem þeir in síðari árin, er vegur Gambetta var sera mestur, gerðu ein- ungis gis að rétti þeirra til ríkisstjórn- ar á Frakklandi og kölluðu það fíflsku eina og flónsku, að byggja, að kögur- sveinar þeir fengju nokkurusinni skotið þjóðvaldsstjórninni [skelk í bringu. I útlendu fréttunum í 3. blaði voru gátum vér þess, að Krapotkin, rúss- neskur fursti, hefði verið tekinn fastur í Lyon í desembermán. I janúarmán- uði var mál hans dæmt. Varnarræðu flutti hann skörulega og sagði hreint og beint, að það hefði verið mark sitt og mið að koma föstu skipulagi á bylt- ingamenn og breiða svo út kenningar þeirra, sem unnt væri. Hann var dæmdur í 5 ára fangelsi og inir helztu af félögum hans. Gustave Doré lézt 23. jan. í vet- ur; hann var einhver frægastur málari Frakka, þeirra er nú eru uppi. Hann hefur auk annars málað myndir með ritningunni og þykir það prýðisverk. Keisari Bússa lét í janúarmánuði auglýsing út ganga til allra þegna sinna, þess efnis, að í maímán. í vor skuli þau keisarahjónin krýnd í Mosk- ófu, inni fornu ramrússnesku höfuð- borg ríkisins. Sagði hann meðal ann- ars í auglýsingunni, að nú væri slík kyrð og spekt komin á í ríki sínu, að in helga athöfr. œundi ná fram að ganga og verða til sannrar trúarstyrk- ingar öllum landslýð. Skömmu síðar fann hann á náttborðinu í svefnher- bergi sínu ávarp frá byltingamönnum. Skoruðu þeir á hann að gefa nú þjóð- inni frjálslega stjórnarskrá fyrir krýn- ingu sína; ella kváðust þeir eigi mundu hætta fyr, en honum væri í hei komið. Giers, utanríkisráðgjafi flússakeisara ferðaðist í vetur til Ítalíu. Á heim- leiðinni kom hann við í Vínarborg og var tekið þar með inum mestu virtum. Hafa menn fyrir satt, að enginn maður nema konungborinn væri, hafi fengið slíkar alúðarviðlökur hjá Austurríkis- keisara og frændum hans. Blöðum þjóðverja þótti nóg um dálætið og hræddust, að hér mundi eitthvað búa undir, og að Austurríkismenn mundu fúsir á að gera samninga og bandalag við Rússa um skipulag allt á Balk- anskaga að pjóðverjum fornspurðum, en þjóðverjar og Austurríkismenn eru, eins og kunnugt er svarnir bandamenn og Jbandalag það sáttmálum bundið; mjög þykja pjóðverjar fyrir þeim í öllu

x

Suðri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Suðri
https://timarit.is/publication/118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.