Suðri - 31.03.1883, Blaðsíða 3

Suðri - 31.03.1883, Blaðsíða 3
27 og finnst Austurríkismönnum stundum nóg um hve þeirra gætir lftið. 1 Berditsjev, sunnan og vestan á Eósslandi, brann leikhós um um miðj- an janóarmánuð, þarbrann 300 manns inni. Eigi fara rósturnar á Irlandi minnkandi. í höfuðborginni, Dyfiinni, gengur eigi á öðru en stórróstum og samsærum ; menn eru handsamaðir tugum saman og kastað í fangelsi, en svo lítur ót, sem byltingamönnum fjölgi en fækki eigi við það. Fyrir skömmu eru nó morðingjar þeir uppvísir, er drápu Cavendish lávarð og Burke land- ritara í maímán. í fyrra vor. í fyrra vetur höfðu írar stofnað morðfélag til að ráða ina æðstu ensku embættismenn á írlandi af dögum ; þá var Forster Irlandsráðgjafi og var honum ætlaður bani fyrstum manna ; hvað eptir annað var honum gerð fyrirsát, en alltaf varð eitthvað honum til lífs. Cavendish lávarður var drepinn af því að hann fylgdist með Burke; annars var hon- um ekki bani ællaður. Um 20 af morðfélaginu hafaverið teknir höndum og bíða þeir nó dóms. Gladstone hefur verið fremur las- inn í vetur; fór hann suður til Mið- jarðarhafs sér til heilsubótar, og dvaldi þar um hríð, en var á heimleið aptur, er síðast fréttist, því að þing Breta var sett í miðjum f. m, Skiptjón varð fyrir Hollandsströud- um í vetur; gufuskip tvö, þýzkt vestur- faraskip, Cimbria, og enskt kolaskip frá Hull, Sultan, rákust á í þoku og náttmyrkri eg laskaðist Cimbria svo, að hún sökk þegar; var hún á leiðinni til Nýju Jórvíkur með 402 vesturfara; af farþegjum og skipverjum varð að eins 56 bjargað. Stórflóð hefir orðið í flestum ám í Miðevrópu og valdið miklu tjóni; mest brögð hafa orðið að því í Rín, Neckar, Main og fleiri elfum á p>jóð- verjalandi; urðu menn þúsundum sam- an húsvilltir og atvinnulausir. Donau óx líka svo að tjón varð að í Austur- ríki, en einkum á Ungaralandi. Safn- að hefir verið stórfé, svo mörgum mil- jónum skiptir, handa þeim, er tjónið biðu. Eichard Wagner, inn heims- frægi kompónisti, andaðist í Feneyjum 13. f. m., sjötugur að aldri. Auk annars var hann einkennilegur að því, að hann orti sjálfur undir öllum söngleikjum (óperum) þeim, er hann kompóneraði. Yaldi hann sér einkum yrkisefni úr edduöld og fornöld inna germönsku þjóða. Nordenskjöld, inn frægi, sænski norðurfari,_ætlarenn í langferð norður á bóginn. Tilgangurinn er sá að leita inn- ar fornu austurbyggðar á Grænlandi og gera ýmsar aðrar vísindalegar rann- sóknir þar í landi. Hans skoðun er, að Austurbyggðar sé að leita austan á Grænlandi, en eigi að sunnan og vestan, sem Danir ætla. Oscar Dick- son, stórkaupmaður í Gautaborg, kost- ar förina. Á leið sinni til Grænlands mun hann koma við í Eeykjavík í sumar. I Norður-Ameríku hafa fjarska- legir vatnavextir verið í flestum stór- ám í vetur, einkum Ohio. Manntjón varð nokkuð, en fjártjón allt að 30 miljónum króna. I Milwaukee, hðfuðstaðnum í Wis- consin, brann hótel 9. janúarmán. Hótelið var sjöloptað, nýlegt og ram- byggt. Voru þar um 400 manna að- komandi og 100 vinnufólks. Svo var eldurinn skjótur, að eplir fjórðung stundar stóð allt hótelið frá kjallara til mænis í björtu báli. Allir stigar tepptust þegar af eldi og reyk. J>eir er efst bjuggu fleygðu sér upp á líf og dauða ót um gluggana og týndu þannig 60 manns lífi. Meiri hluti manna brann þar inni en nokkurum varð þó bjargað, flestum meira eða minna limlestum. Eigandi hótelsins, Hold, varð vitstola af skelfingum þess- um. Úr bréfi frá Kanpmannnahöfn 3. marz þ. á.; pað er einkum tvennt sem einna mest hefir verið ritað og rætt um hér í Höfn, af þeim mönn- um, sem tala um annað en leikhús og söngkonur: Stúdentasamkundan (Studentersamfundet) og Dr. Georg Brandes. pað mun vera kunnugt heima, að stúdenlasamkundan var stofnuð í fyrra vor, af ýmsum framfara- mönnum, sem höfðu sagt sig úr stú- ueníalelaguiu, og siðan hcfir fjcldi manna, sem áður höfðu ekki verið í neinu stúdentalélagi, gengið inn í hana, t. d. flestallir íslenzkir stú- dentar. Ágreiningurinn í stúdenta- félaginu gamla kom af því, að þeir sem þar höfðu völdin, viluu með öllu bægja frá félaginu öllum þeim straum- um, sem nú fyrir nokkurum árum hafa tekið að streyma gegnum þjóðlíf Dana bæði í pólitík, bókmenntum og listum, og slðan bafa vaxið með hverju ári. Svo var stúdentasamkundan stofnuð og síðau hafa þar jafnan að öðru hverju verið fyrirlestrar og umræður um ýms efrii, sem við koma menntun og póli- tík. Engin skoðun er útilokuð, ef hún kemur fram í hæfilegum búningi. Til þessara umræðna hefir utanfélagsmönn- um verið boðið, eptir því sem rúm hefir leyft, og án þess að farið hafi verið eptir skoðunum þeirra, eins hægri mönnum, vinstri mönnum og sósíalistum (jafnaðarmönnum). En það langmerkilegasta, sem félagið hefir gert, er það, að það hefir efnt til kauplausrar kennslu fyiir erfiðismenn. Fjölda manna er farið að veita tilsögn í þýzku, ensku, reikningi, réttritun, eðlisfræði, aflfræði, sagnafræði og fl. námsgreinum. Og þó hafa yfirvöldin gert þeim svo erfiitt fyrir, sem þau hafa getað. Forstöðumenn kennsl- unnar sóttu um að mega nota hús- næði í nokkurum af inum opinberu skólum til að kenna þar, en því var tafarlaust neitað, og það án þess að nokkur grein væri gerð fyrir ástæðun- um. Má af því marka, hvejfrjálslynd- ir og þjóðhollir hægrimenn eru, enda hafa flest hægri blöðin hér í Höfn lagt illt til fyrirtækisins. f>að þykir mjög biksvartur blettur á framkomu hægri manna gagnvart framfaratil- raunum inna frjálslyndari, þó ekki væri reyndar hvítt að velkja. Hér um daginn kvaddi Dr. Pingel, formaður stúdentasamkundunnar, til almenns stúdentafundar. Hann lét þá í ljós í ágætri ræðu, þá skoðun sína, að stúdentar ættu svo mjðg að gefa sig við pólitík, sem á nokkurn hátt gæti samrýmzt við námsstarf þeirra, og þeirra aðalhlutverk í póli- tíkinni ætti að vera það, að brjóta uiður þann garð haturs og hleypidóma, sem lægi milli Dana og pjóðverja, enda væri ekki pjóðverjum einum um að kenna. Allmiklar umræður spunn- ust út úr því, og sá sem einkum studdi mál Dr. Pingels var Dr. G. Brandes. En harðar deilur hafa orðið út úr því i blöðunum, og hægri blöð- in vildu helzt gjöra Dr. Pingel ódreng og landráðamann. Dr. Brandes er nú kominn hitigað til Kaupmannahafnar og háskólans eptir 5 ára útivist. Nokkrir prívat- menn skjóta saman handa honum 4000 kr. á ári til þess að halda fyrirlestra hér við háskólann. Áður en hann fór frá Berlín var honum haldin skilnað- arveizla af inum helztu blaðamönnum, skáldum og vísindamönnum Berlínar og konum þeirra. pjóðskáldið Paul Heyse orti fagurt kvæði til hans og honum var að öllu leyti sýndur inn mesti sómi. Fyrirlestra sína hér við háskólann um pýzkaland frá júlíbylt- ingunni 1830 verður hann að tvítaka og þó hverfa menn hundruðum saman frá í hvert skipti og fólki liggur við meiðingum af troðningi, því að nægi- lega stórt húsnæði er ekki til. pann af inum „dönsku dvergum11 koma sér að minnsta kosti ekki allir saman um að líta smáum augum á. Innlendar fréttir. II. Að norðan og vestan. Með norðan- og vestanpóstinum höfum vér fengið þessar fréttir og bréf: Múlasýslum, 21. jan. þ. á.: Síðan um nýjár hafa gengið hér stöðugar þíður, en verið heldur votviðrasamt og ónotatíð á skepnum; þó ganga hestar flestir enn úti. Fullorðið fé er vel fært enn og hefir því þó aldrei eða mjög sjaldan verið gefið. Allt útlit er því fyrir, að menn kunni að halda skepnum sínum í vor, þótt illa horfð- ist á í haust, er leið. Á efra Jökul- dal og Hrafnkelsdal hefir viðrað verst og jarðbannir verið síðan um eða fyrir jólaföstukomu. — pað er sagður mok- afli í Vopnafirði. pingeyjarsýslu, pistilfirði 24. jan. þ. á.: Hér hafa opt verið austan og landsunnan bleytur og rigningar allt

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.