Suðri - 31.03.1883, Qupperneq 4

Suðri - 31.03.1883, Qupperneq 4
28 frá veturnóttum. í jólavikunni kom ákaflega mikið snjóáfelli, en síðan um nýjárið hefir verið ágæt tíð, svo að fé er nú ekkert gefið. Nýdáinn er hér unglingsdrengur úr svefni; haun var fyrst dálítið lasinn, sofnaði, svaf í 3 sólarhringa, en vaknaði rétt áður en hann dó. Eyjafjarðarsýslu, Akureyri 4. marz þ. á.: Siðan eptir nýjár hefir verið mjög frostalítið, en óstillt veðurátt, einatt skipzt á stórrigningar og hríðar. Síðan með góubyrjun hafa verið storm- ar miklir á sunnan og suðvestan, fylgdu þeim hríðar fyrstu góuvikuna, en nú rétt fyrir miðgóuna gjörði af- bragðs-hláku, svo að nú er orðið blóð- rautt hér um sveitir. Nú sem stend- ur er því útlit eigi rojög ískyggilegt með heybirgðir manna; en eigi mun- um vér þó hart vor staðizt geta svo að eigi leiði vandræði af. Hér í sveit hefir verið kvillasamt í vetur; tauga- veiki stungið sér niður og ýmsir aðrir sjúkdómar. Barnadauði hefir verið all- mikill. Hér á Akureyri hafa þeir amt- maðurinn, læknirinn, presturinn o. fl. tekið sig saman og kenna ókeypis tvisvar í viku, dönsku, skript, réttrit- un, reikning o. fl. Skagafjarðarsýslu, 3. marz þ. á.: Veðrátta hefir verið góð allt fram að þessum tíma. Inn 1. þ. ra. var hald- inn fundur í Syðra-Vallholti og skrif- aði sig þar yfir 100 manns til Ame- ríkufarar. Sagt er, að þeir muni þó miklu fleiri, er enn ætla að skrifa sig, ef þeir geta selt. Húnvatnssýslu, 7. marz þessa árs: Síðan um þrettanda hefir veðrátta verið in bezta yfir höfuð, og opt hlák- ur og blíðviðri. 29. og 30. janúar var hríðarveður á norðan, og stórhrið á norðan inn 31. og 1. fébr. Eptir það batnaði og var hláka góð inn 7. og 8. febr. Síðan optast nær gott veður til ins 20. f>á stórhríð á suð- vestan, og einnig 21. og 22. Inn 23. þiðnaði aptur; hefir veðrátta síðan og til þessa tíma verið óstöðug og vinda- söm og 1. þ. m. ofviðri á sunnan. 1 dag og 2 næstl. daga hefir verið stillt og gott veður. Kvefsýki gekk nokk- uð þung eptir nýár og fram á þorra, en er nú aflétt. Nokkurir menn hafa látizt síðan í byrjun þessa árs, þar á meðal Björn Guðmundsson á Valdar- ási í Víðidal og kona hans Gróa Snæ- bjarnardóttir; varð einn dagur á milli þeirra; þau voru bæði hnigin á efra aldur. Björn sál. var merkur maður og í betra lagi mentaður, vel að sér i sagnafræði og ættfræði. Um mán- aðarmót jan. og febr. andaðist Tóm- as Jónsson bóndi á Brekkukoti, ágæt- ur járnsmiður. Skepnuhöld hafa verið góð það sem af er vetri þessum, og er það efalaust mikið að þakka inni góðu veðráttu, því heyin reynast víðast hvar mjög illa, bæði sakir alls konar óverkunar, og líka eru þau afarlétt og áburðar- frek, er því lítt hugsanlegt að skepn- ur hefðu lifað á þeim, ef þær hefðu staðið í húsi til lengdar. > Mælt er að alimargt fólk úr þess- ari sýslu ætli vestur um haf til Ame- ríku á næsta vori, t. d. af Vatusnesi um 60 manna, og þar á meðal Ey- jólfur Guðmundsson sem alkunnur er fyrir lægni sína og dugnað við æðar- varp, með flesta vandamenn sína. En svo margt sem ætlar úr þessari sýslu er mælt að miklu fleira muni fara úr Skagaíirði. Margt af því fólki sem ætlar að fara í vor, er efnilegt fólk vel að efnum búið, enda komazt ekki inir fátækari, af því að fargjaldið er svo geysihátt. Ef nokkur jöfnuður væri á efnum þeirra manna er fara vestur, og hinna er eptir sitja, væri eg ekkert á móti Ameríkuferðum; en hitt lízt mér ekki eins vel á, ef efnamenn fara og einhleypir menn, en eptir verða fátækir fjölskyldumenn og em- bættismenn; þá má til bæði að fækka embættismönoum, og lækka laun þeirra. Mjög er líklegt að liart verði um bjargræði manna á milli í vor, því kýr hafa alveg brugðist með gagns- muni í vetur, og málnyta var víðast lítil í sumar og alivíða því nær engin. Kaupstaðir munu nú að mestu korn- lausir. Strandasýslu, frá Steingrímsfirði 4. marz þ. á.: Hér eru mestu harð- indi og jarðleysur hafa verið í allan vetur, en flestir eru búnir að reka hross og fé suður yfir, bæði í Gilsfjörö og Saurbæ og Skarðsströnd, því þar eru allir nokkurn veginn birgir með hey. Taugaveiki er víða íarin aö ganga og þung kvefveiki gengur sum- staðar. Isafjarðarsýslu, ísafirði 4. marz þ. á : Tíðin mild, en óvenju storma- söm, heizt af vestanátt og útsuðri; flskiafii í minna meðallagi þá sjaldan róið er, en það er opt ekki nema einusinni í viku. Hér gengur kvef og landfarssótt, en einkum á börnum. Seint í f. m. fórst bátur með 4 mönn- um úr fiskiróðri af Snæfjallaströnd. Formaður var Veturliói Vagnsson frá Dynjanda, ungur maður og efnilegur. Héðan vantar nú skip úr hákallalegu með 6 mönnum, formaður Jóhannes Guðmundsson borgari hér úr bænum. Er haldið, að þeir kunniaðhafa hleypt norður fyrir Eitinn inn á Strandirnar fyrir vestan Horn. Hér hefir hvorki orðið vart harðinda né hallæris í vet- ur; þar á móti hafa margir dansleikir verið haldnir og sjónleikir frá því fyr- ir jól og fram undir föstu, optast einu sinni eða tvisvar í viku. Leikjð hefir verið «Arabiska duptið•> eptir Holberg og «Hinrik og Pernilla» ept- ir sama, «Útilegumennirnir» og «Hús- bændur og hjú» þýtt úr frakknesku. pótti öllum þetta in bezta skemmtun og luku einum munni upp um það, að prýðilega væri leikið. Dýrafirði 21. febr. þ. á : Um þess- ar mundir er versta umhleypingatíð og með öllu jarðlaust, en eg ýmynda mér, að allir bændur hér þoli skorpuna til páska, og surnir ef til vill lengur. Dauf hafa verið aflabrögð við ísafjarð- ardjúp í vetur, hæstur afli í Hnífs- dal, er saltað úr 14 tunnum. Barðastrandarsýslu, Reykhólasveit 5. marz þ. á.: Veðrátta hefir verið in æskilegasta frá því i haust snemma til góu, þá heldur vindasöm, hagbeit nóg, en með góu gekk veðrið til út- synnings-kafalda, þó gerði hláku fyrstu dagana af marz og gjörleysti þá alla útsyyningsfönn hér, sem var mikil. En allt kemur nú upp á vorið hvernig afklæðist fyrir mönnum. Dalasýslu, Skarðsströnd 8. marz þ. á.: Tiðin hefir verið lengst af góð í vetur, svo að hestar, sem úti hafa gengið eru í haustholdum. Samt eru bændur ekki betur staddir en svo með hey, að þegar gerð var skoðun hér í hreppnum á heyi og matvælum, var engin hreppsmanna, sem ætt.i lengur hey fyrir fé en til sumarmála, ef þurft hefði að gefa, og fyrir kýr þangað til viku af sumri. En flestir áttu ekki meiri matvæli, eu fram í miðjan ein- mánuð, að 6 bændum undanskildum. Laxárdal, 8. matz þ. árs. Hér hefir verið ágæt tíð í vetur og er óskandi að hún haldist eptir því sem vora tekur. Um 100 manna eru stað- ráðnir í að fara til Ameríku í sumar héðan úr Dölunum og daglega bætast nýir við. Suæfellsnessýslu, undan jökli 15. marz þ. á.í Mjög erfið er líðun manna á nesi þessu og eru margar orsakir til þess; fyrst sú, að nú í rúm 20 ár hefir sjávarafli minnkað ár frá ári svo hlutir þeirra sem hafa sótt sjó hafa að eins getað metizt 100—200 kr. virði og verður ekki slíkur afli til viðurværis fyrir heil heimili. Nú í 30 ár hafa líka lagst í eyði 50 tómt- hús utan Ennis og fólk fækkað á ann- að hundrað. Fyrir 25 árum gengu að vetrinum um 15 skip í Rifi; nú í vetur gengur þar 1 bátur, en enginn á Gufuskálum og er þetta eins dæmi síðan nes þetta byggðist. Seinast liðíð ár var eitthyert hið mesta aflaleysis ár, nema í Ólafsvík í sumar. Svo var aflaleysið mikið núna frá nýjári til miðföstu að surnir sem róið höfðu 14 róðra fengu að eins 30—60 fiska hlut; síðan hefir verið aligóður afli, svo vetrarhlutir eru nú orðnir frá 100— 200 og lítur nú betur út með afla og tíð en vant er. Nú er hr. Thorgrím- sen, faktor í Ólafsvík, enn á ný að safna til barnaskóla og er það in mesta þörf, því að mennntuninní er mjög ábótavant og stendur fyrir öll- um þrifum. Gufnbátur. Oss er þannig skrifað af ísafirði: Hér er mjög mikið áhugamál að fá gufubát til flutninga um djúpið og enda víðar, eru þau samtök orðin svo öflug að til þess fyrirtækis er þegar safnað 14000 kr. og væntanlegar 6000 kr. í viðbót innan skamms. Vonandi er að bátur þessi verði svo stór, að þið fengjuð að sjá hann við og við I Keykjavík. Híifís fyrir Ilúnaflóa. Frézt hefir að uorðan, að sézt hafi borgarís fyrir utan Húnaflóa, enda bendir veðráttin hér á, að hafís sé nyrðra. Auglýsing. í miðjum bænum fæst til leigu her- bergi fyrir skósmið eða bókbindara. Ritstjórinn vísar á heibergið. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Pálsson. Reykjavík. Prentari: Einak Pókðarson.

x

Suðri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðri
https://timarit.is/publication/118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.