Fjallkonan - 31.03.1884, Síða 4

Fjallkonan - 31.03.1884, Síða 4
12 FJALLKONAN. frá því, að kryddhlaupið, sem þeir voru að borða, befði verið búið til úr öðru stígvelinu. Eigi er annars getið enn að samsætismönnum þætti matrinn góðr. Enn þeir áttu að læra af þessu, að vanhirða eigi gamlan skófatnað sinn, heldr fá hann í hendr efnafræðingunum, er gæti hreytt honum í ýmsa ina fjölhreyttustu hluti. Þannig nota menn nú á dögum als konar rusl, er áðr var talið engu nýtt. „Efnafræðin er sem hirðusöm húsmóðir, er lætr ekkert fara til spillis11, segir Lyon Playfair. Niðrlagstreyja ins snauðasta fátæklings getr orðið mesta skrauts-yfirhöfn hefðarfrúarinnar. Aðalefnið í blekinu, sem eg er að skrifa úr, hefir ef til vill eitt sinn verið gjörð á gömlu ölker- aldi. Dreggjar portvinsins, er vinsvelgrinn vill eigi drekka að kveldi, tekr hann oft inn daginn eftir í magastyrkjandi púlveri. Steinkolareykr er þefillr, enn úr kolunum fæst og efni það, er haft er í ilmflöskum og kryddmeti. In íþróttlega efnabreyting er eigi annað enn eftirherma efnabreytinganna í náttúrunni. Þar er alt á sífeldri hringrás; uppleystir hlutir af dauðum dýrum ganga veg jurtalífsins og síðan inn í dýralifið aftr. Daglega fleygjum vér frá oss ógrynni af ýmsum hlut- um, er vér teljum ónýta, enn sem hirða mætti og verða að notum. Yér nefnum t. d. pappír. Hvað gera menn við sendibréf, smárit og prentaða seðla? Mest af því er brent eða kastað í sorpið. Hvað er gert við umslögin af öllum þeim hréfum, er ganga manna í milli? Vættina af þeim má selja á 3 krónur. I öðrum löndum er farið að hirða alla þess konar smámuni, enn þó er talið, að meir enn helmingr fari til ónýtis. Fyrir fám árum lét forstöðunefnd fátækraskólanna í London skólasveina ganga út og safha alskonar rusli. Árangrinn varð eigi smár. Þeir söfnuðu saman pappír, rýjum, beinum, málm- rusli, spottum, gömlum höttum o. s. frv., og urðu flestir fegnir að losast við þetta. Á níu mánuðum söfnuðu þeir 82 tunnum af rusli þessu. Þar í var meðal annars 1 milíón af gömlum frimerkjum, er einn maðr hafði safnað. Gamalt leðr má nota á ýmsan hátt; gagnlegast er að gera úr þvi nýtt leðr, og má fara að þvi með ýmsu móti. í skósmiðjum í Massachusetts er notað ógrynni af þess konar leðri. Það má gera þykt og þunt eftir vild og algerlega vatnshelt. Margir hafa fengið sér einkaleyfi til slíkrar leðrgerðar. Bein má nota með mörgu móti, hvort sem þau eru gömul eða ný. Úr nýjum beinum eru t. d. smíðuð sköft á hnífa, gaffla, o. s. frv. Svo má og fá lím úr þeim. Gömul bein eru möluð og heinmjölið haft til áburðar. Ógrynni af beinmjöli er flutt til Englands frá ýmsum löndum. Hermannabein eru grafin upp úr vígvöllunum og möluð til áburðar. Fregnriti „Times“ ritaði eigi als fyrir löngu frá Egiptalandi á þessa leið: „Þá er eg var í Sahara, sá eg úlfaldalest hlaðna smyrðlingabeinum. Mér var sagt, að beinin ætti að flytjast til Englands. Beinmjöl væri hezti áburðr, einkum fyrir rófur. Þessi heinaverzlun fer alt af vaxandi. Það er nógu skrítið, að gömlu Egiptar eftir þrjú þúsund ára eru hafðir til á- hurðar í Englandi11. Ekkert er svo nýtt til þrautar sem gamall fatnaðr. Verzlun með slitin ullarföt er víða i góðu gengi. Venju- lega eru fötin endmýjuð með litun og fergingu o. s. frv. Líta þau þá nálega út sem ný. Pöt, sem búið er að nota að fullu í Englandi, Frakklandi og Þýzkalandi era endrnýjuð og send til sölu til Hollands og Irlands og viðar. Gamall einkennisbúnaðr er keyptr dýru verði á vestr- strönd Afríku. Þvi skrautlegri sem hann er, þvi hetr gengr hann í augu blámanna. Blámanna-konungar verða hreyknir ef þeir fá niðrlagsföt enskra hermanna. Þótt gömul ullarföt megi lengi gera álitleg, og geti þannig gengið kaupum og sölum, fer þó svo um síðir, að þau verða óhæfileg til þess, og þá eru þau algerlega endmýjuð. Til þess eru hafðar vélar, sem tæta fataefnið í sundr. Síðan er það blandið nýrri ullu, og spunnið og ofið af nýju. Slík föt lita út sem þau væri alveg ný, enn þau verða eigi oftar endrnýjuð á sama hátt. Þá er þau eru orðin slitin, verða þau einungis notuð til áburðar. Þvottalög og sápuvatn hirða fæstir, enn eigi að síðr getr það komið að gagni. Það er ágætr áburðr. Félag eitt í París tókst fyrir skömmu á hendr, að ná úr Signu þeim þvottalegi, er rennr i hana úr borginni, og fékk með þvi móti um árið fóðr handa 3000 svínum og */2 mil. punda af sápu. „FJALLKONAN” fræðiblað og skemliblað handa alþýðu, ódýrasta blað á jslandi, kerar út 2—3 sinnum á mániiJi (24 arkir um árið), og kostar 4 kr. 50 aura ef borgað er fyrir apríl-lok.—Fyrir fréttabréf og goðar greinir um alinenn mál kann blaðið þakkir, enn í almennum kviðlingum og þakkarávörpum er því engin þága. Qauglýsingar. TTELGIDAGAPBÉDIKANIE Dr. P. PÉTURSSONAR (ný útgáfa) verða alprentaðar í sumar.—Þeir, sem panta bókina fyrir júnílok í sumar, fá hana hefta fyrir 3 kr. 50 a., en bundna fyrir 5 kr. 50 a.—Sigurðr prent- ari Kristjánsson í Reykjavík tekr á móti öllum áskrif- endum að bókinni.—Boðshréfin óskast sem fyrst endrsend. NDIRSKRIFAÐR KAUPIR (HANDA GR.TPASAFN- inu í Björgvin) þar til í júnímánaðarlok hverskonar merkilega foma hluti, útskoma hluti úr tré, o. s. frv. Sömuleiðis hami fágætra fugla og annara dýra, svo og fágætar steintegundir. Landakoti, Reykjavík í marz 1884 Sophus Tromholt. ÓTNAP APPÍRSBÆKR, TEIKNIP APPÍRSBÆKR, -L ’ margskonar skrifbækr, minnisbækr, póstpappir, um- slög o. fl., ennfremr nýi Spámaðrinn fæst hjá prentara Sigurði Kristjánssyni. {tANCHOR”-LÍNAN (eigendr: HENDERSON BR0THERS í filasgow). pi UFUSKIPAFÉLAG ÞETTA TEKR NÚ AÐ SÉR flutning á vestrförum frá íslandi til Ameríku.— Vestrfarar verða fluttir með póstskipunum frá íslandi til Skotlands.—Farið, frá hverri höfn sem er, á íslandi, kostar 120 kr. til New-York, en sjálfir kosti útfarar fæði til Skotlands; þegar þar kemr erfæði frítttil New-York. —Farbréf til Dakota og annara staða i Bandaríkjunum fyrir sama verð og hjá öðrum „línum“.—Jámbrautir frá New-York vestr um Ameriku eru—eins og flestir vita— miklu betri en þær, er liggjafrá nyrðri strandborgunum, einkum Quebec, hvaðan þær eru verstar, og einkum ætlað- ar til skepnu- og vömflutninga. Þeir, sem vilja fá hréflegar nánari upplýsingar frá mér, verða að senda frímerki á svarið, en slúðrsfyrir- spumir í blöðum verða ekki virtar svars. Reykjavlk, 31. marz 1884. Sigm. Ouðmundsson, aðal-umboðsmaðr Anchor-linunnar á íslandi. Ritstjóri: Vaidimar Asmundarson. Reykjavlk: prentuð hjá Sigm. Guðmundssyni, 1884.

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.