Fjallkonan


Fjallkonan - 20.08.1887, Blaðsíða 2

Fjallkonan - 20.08.1887, Blaðsíða 2
98 F JALLKON AN. 3. gr. Heimild sú, sem veit.t er til sölu þessarar, gildir að eins til 81. des. 1892. 13. Lög um að skifta Barðastrandarsýslu í tvö sýslufélög. 14. Lög um vegi. 15. Lög um linun á ábúðar- og lausa-fjárskatti (árin 1888— 89 greiðist að eins y6 al. af jarðarhundraði og Vs al. af lausa- fjárhundraði). 16. Lög um breyting á 15. gr. stjðrnarskrárinnar (um að þjððkjörnum þingmönnum verði skift þannig milli deiidanna, að 9 verði í efri deild. Móti þessu frumv. greiddu atkv. í n. d.: sira Þðrarinn, Jðn Þórarinsson og dr. Jónassen). 17. Lög um stolnun lagaskðla. 18. Lög um brúargerð á Ölfusá. (Till. 40,000 úr landssjóði enn 20,000 úr sýslusjóðum Bángárvalla og Árnes sýslu ogjafn- aðarsjóði). Bænarskrár til alþingis. Af 72 bænarskrám, er sendar vóru þinginu, tók neðri deild 24 að einhverju leyti til greina, enn synjaði 48, og vóru það þær sem hér segir: 1. Frá Stór-Stúku íslands, um 600 kr. styrk til að útbreiða regluna. 2. Frá þingmanni Barðstrendinga, um aukalækni i Flatey. 3. Frá Bergsveini Ólafssyni, um 400 kr. styrk til að koma upp smíðahúsi. 4. Frá stúdent Sigurði Magnússyni, um nægilegan styrk um næstu 4 ár, til að ganga á vegfræðisskóla. 5. Frá Akrnesingum, um að gjöra 5 syðstu hr. Borgarfj.s. að „föstu embætti11. 6. Frá Jónasi organista Helgasyni, um 150 kr. styrk til að gefa út viðbæti við kirkjusöngsbók. 7. Frá Sigfúsi Eymundssyni, um styrk til sama, 20—25 kr. fyrir örk. 8. Frá Vestr-Eyjafjallahreppi, um 2000 kr. styrk til að girða fyrir Holtsá. 9. Frá síra Páli Pálssyni, um 400 kr. árleg laun fyrir dauf- dumbrakenslu. 10. Frá síra Jóni Jónssyni á Stað, um lausn frá 400 kr. ár- gjaldi. 11. Frá Æðarræktarfélaginu um 1000 kr. styrk til að semja æðarvarps-sögu. 12. Frá Benedikt Þórarinssyni, um 600 kr. styrk hvort árið til laxaklaks. 13. Frá Bergsteini Jónssyni, um 400 kr. styrk hvort árið til sama. 14. Frá dyraverði lærða skólans, um 200 kr. launaviðbót. 15. Frá Þorbjörgu Sveinsdóttur, um 1000 kr. styrk. 16. Frá tannlækni Páli Þorkelssyni, um styrk til að gefa út orðabók, 40 kr. fyrir örk. 17. Frá Geiradalshreppi, um 3000 kr. hallærisgjöf. 18. Frá Zeuthen lækni um spítalastofnun á Eskifirði. 19. Frá sira Kjartani Einarssyni, um að gjöra „Mýrdal og Eyja- fjöll“ að einu læknishéraði með 1500 kr. launum. 20. Frá Tryggva Gunnarssyni, um 300 kr. styrk til Þjóðvina- félagsins. 21. Frá síra Guttormi Vigfússyni, um 300 kr. upphót úrlands- sjóði til Svalbarðsprestakalls. 22. Frá síra Pétri Jónssyni, um 200 kr. uppbót til Hálspresta- kalls. 23. Frá síra Jóni Þorlákssyni, um 300 kr. uppbót til Tjarnar- prestakalls. 24. Frá söfnuðum í Gufudalsprestakalli, um 200 kr. upphót. 25. Frá síra Þorvaldi Ásgeirssyni, um uppgjöf á 200 kr. árgj. á Þingeyrarklaustrsbrauði fyrir næstliðið fardagaár. 26. Frá Birni Kristjánssyni, um 800 kr. styrk til að fullkomn- ast í sönglist erlendis. 27. Frá Sveini búfræðingi, um 7000—10,000 kr. lán til að koma upp búnaðarskóla á Hvanneyri. 28. Frá Steinþóri Magnússyni, um styrk til að læra siglinga- fræði og vélafræði í Kaupmannahöfn. 29. Frá Dr. J. Jónassen, um að 500 kr. ferðastyrkr til að kynna sér sullaveiki megi haldast í fjárlögunum. 30. Frá sóknarnefnd Lundarbrekkusóknar, um uppgjöf á hálfri skuld kirkjunnar. 31. Frá þingmanni Dalamanna, um sérstakan lækni iDalasýslu. 32. Frá 4 yfirsetukonum í Árnessýslu, um að laun yfirsetukv enna greiðist úr landssjóði. 33. Frá Zeuthen lækni, um launabót. 34. Frá Dalamönnum, um að mega verja vöxtum og afborgun hallærislána til vegagerða í sýslunni. 35. Frá síra Tómasi Hallgrímssyni, um uppgjöf á árgjaldi af Valla-prestakalli. 36. Frá alþingismanni Jóni Ólafssyni, um 3000 kr. styrk á fjár- hagstímabilinu til bókmentalegra fyrirtækja. 37. Frá landshöfðingjanum, um alt að 2000 kr. til þess að ís- land geti tekið þátt í sýningunni í Kaupmannahöfn 1888. | 38. Frá þingmanni Snæfellinga, um 1200 kr. styrk til viðgerð- ar á Bifsós. 39. Frá Vindhælishreppi, um uppgjöf á 559 kr. hallærisláni. 40. Frá Enghliðarhr., um uppgjöf á 408 kr. hallærisláni. 41. Frá bæjarfóg. í Bvík, um 300 kr. til að semja ný registr yfir afsals- og veðmálabækr Bvíkrkaupstaðar. 42. —48. Bænarskrár úr ýmsum héruðum um aukapósta. Mannalát. 1 f. m. andaðist Skafti Jónsson prestr aðHvann- I eyri í Siglufirði, 32 ára að aldri. 8. f. m. andaðist Einar bóndi Qíslason á Höskuldsstöðum í Breiðdal, úr lungnabólga, 49 ára að aldri. Hann var alþingis- maðr árin 1875—1876, og einn af merkustu bændum á austr- landi. Sigurðr Jónasson, stúdent frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, fór héðan með Bomny síðast og ætlaði til Kaupmannahafnar til að halda þar áfram námi sinu. Hann hafði lesið heima í vetr. Enn á leiðinni milli Vestmannaeyja og Færeyja vildi það slys til, að hann féll útbyrðis og druknaði. Hann var efnismaðr mikill og vel látinn. Hann stundaði málfræði og sérstaklega þýzku, sem aðalnámsgrein. Tíðarfar er nú hið æskilegasta hvervetna sem til spyrzt, og heyskapr gengr í betra lagi. Biblíufélagið hélt fund sinn 10. þ. m. Eftir reikningi fé- lagsins átti félagið 1. júlí þ. á. í sjóði í skuldabréfum .... kr. 13540,00 í sparisjóði hankans . . — 3060,00 í skuldum....................— 544,61 hjá gjaldkera................— 163,85 kr. 17318,46 Kosnir endrskoðunarmenn reikningsins Eiríkr Briem og Þór- ] hallr Bjarnarson. Samþykt, að stjórnin (biskup, forstöðumaðr prestaskólans og Jón Pétrsson háyfirdómari) fengi þar til hæfa menn til að byrja á endrskoðaðri þýðingu af biblíunni, fyrst og fremst af bókum gamla testamentisins, og skyldi þeir fá hæfi- lega þóknun fyrir starta sinn, er stjórnin, og dómnefnd, er hún kysi, hefði tekið verk þeirra gott og gilt. Verð á íslenzkum vörum erlendis. í byrjun þ. m. var ull frá árinu i fyrra seld á 56 au. í Liverpool. — Sunnlenzkr j saltfiskr hefir verið boðinn fyrir 38 kr. 25 au., enn eigi gengið j út; vestfirzkr fiskr stór, hnakkakýldr, sem kom með „Lauru" | seldist fyrir 54—48 kr. og ólmakkakýldr 44—42 kr.; 150 skpd. eru enn óseld; smáfiskr frá vestrlandi seldist 32—33 kr.; ýsa 28—29 kr.; saltfiskr stór frá norðrlandi 36 kr.; smár 26 kr. — Lýsi, tært pottbrætt hákarlslýsi 30 kr. 75 au.; gufubrætt 32 —30 kr., dökt hákarlslýsi gufubrætt 28 kr.; pottbrætt 25 kr.; þorskalýsi tært 27—28 kr., dökt 24—26 kr. — Sundmagar 55 au. — Æðardúnn haldið að verði um 15 kr. — Fiðr hvitt 11 kr lísipd., mislitt 7—8 kr. — Lambskinn 30 kr. hundraðið. — Tólg 22—25 au. pd. — Sauðskinn 4—4 kr. 25 au. vöndullinn (2 gærur). — Sauðakjöt 36—38'/2 kr. tunnan.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.