Fjallkonan


Fjallkonan - 18.01.1888, Side 2

Fjallkonan - 18.01.1888, Side 2
6 FJALLKONaN. 18. jan. 1888. líka helmingi meira gagn, og jarðrækt hefði farið fram að því skapi. Sviar hefðu ræktað upp og gjört að túni, ökrum og engjum á tíu árum 80 □ mílur Danir á sama tímahili 40 □ mílur. Við íslendingar stæðum á sömu takmörkum og aðrar þjóðir fyrir 100 árum; þess vegna gætum við ekki gert okkr hugmynd um það hvaða framfarir gætu orðið hér, frekar enn kynslóðir þær, er hafa lif- að í öðrum löndum, alt fram á siðustu aldamót, gátu haft hugmynd um hvað þeirra löndum gæti farið fram. Þessar framfarir útlendra þjóða hefðu verið gerðar með eðlilegum meðölum, enn ekki með tömim : með betri ræktun jarðarinnar, lokræsagerð, brúkun jarðyrkjuvorkfæra, betri hirðingu á áburði, kynbótum á kvikfé o. s. frv. Þetta hirtum við lítt um eða bærum okkr öfugt að. Hvernig gætum vér þá vonað eftir framförum? Landsmenn kynnu ekki að brúka krafta sína og hæfilegleika réttilega, enn þetta myndi lagast með timanum. Vér hefðum óþrjótandi víðáttur aflandi, ervérgætum ræktað npp og gert að túnum; nú væru túnin einungis 70,000 dagsláttur á stærð. Með góðri rækt gæti dagsláttan gefið þrefalt meira að meðtali enn nú allvíða, eða 20 hesta af töðu. — Okkar búnaðr hvíldi á mjög óviss- um grundvelli meðan hann styddist mest við sauð- fjárrækt; menn ættu að grundvalla búnaðinn langtum meira á kúabúum eins í fornöld og eins og nú tíðk- aðist alstaðar erlendis. Kvikfjártegundir okkar væru ágætar í sjálfu sér, svo ekki þyrfti mikla fyrirhöfn til að endrbæta þær. Hnignun íslensks skáldskapar nú á tímum lýsti kand. jur. Hannes Hafstein með þessum ástæðum í niðrl. tyrirlest., sem getið erhér aðframan: . . . „Hvorugt af þessu, sem ég hefi talið, hvorki undirtektir fólks né samheldisleysi skáldanna, getr þó skýrt ástand skáldskaparins, eins og það nú er, því þetta hefir hvorttveggja verið eins og það er frá aldaöðli. Jafnvel á hinni svo kölluðu gullöld orktu íslensk skáld meir í útlöndum, heldr enn liér heima, af því að það borgaði sig betr, og það sannar því ekkert um þessa gersamlegu stönsun, sem nú er, þó að vér sjáum, að vorir núlifandi höfundar liafi af öðrum — ekki alveg óskildum — ástæðum orkt meira þegar þeir ekki voru heima. Ekki tjáir heldr að skírskota til þess, að ekkert komist út á prent, af því að bókaútgefendrnir séu tregir að „forleggja", því að ég veit eigi til, að meiri brögð séu að því nú enn fyrr. Ég skal þó leyfa mér að skjóta því hér inn í, að það er sorglegt, að hið eina bókmentafélag, sem við eigum, skuli ekki gera mcira cnn það gerir til þess að hlúa að lifandi skáldskap. Dað mun naum- ast liafa verið tilgangr stofnanda þess, að það yrði að eins „Selskab for nordisk 01dkyndighed“, oghugs- andi menn í félaginu muuu þann dag í dag viðr- kenna, að íslensk tunga og bókmentir lifa ekki ein- göngu á jórtri þess, sem étið var áðr; íslenskan er lifandi tunga, enu ekki dautt mál, og má ekki sækja alla sína uæringu og alla sína tilveru til dauðs ment- unarstigs. Enn það er því miðr sorglega satt, að sumir af vorum helstu fræðimönnum vilja fara með mál vort, þetta mál sem vér tölum, eins og lat- ! ínu og grísku og aðrar dauðar tungur, sem að { eins þekkjast af gömlum höfundum, og því bannfæra | hvert orð eða orðalag, sem ekki finst í eldgömlum skræðum, án þess þeir færi minstu sönnur á, að þeir menn. sem lifðu þegar þær bækr voru samdar, hafi haft nokkuru meiri rétt til að tala mál sitt eins og { þeim þótti best, lieldr enn vér, eða verið þess betr | um komnir. að forma hugsanir sínar. Að visu hefir deild- in hér á íslandi sýnt,, að hún vill bæta ofrlítið úr fornfræðisfióðinu með því að gefa út tímarit, sem á að vera opið fyrir alt gott. Enn líka þar hefir fornfræðin borað sér inn upp fyrir mitti. Ef bókuicntafélagið vildi vinna að því, að efla lifandi skáldskap í landinu, gæti það gert margt, meðal annars sett út verðlaun eins og önnur bókleg félög láta sér enga lægingu þykja, í stað þess að auka „sfamrfaMiteraturinn" með bók eins og hinu nýútkomna gátnasafni, sem að mestul leyti er þýðingarlaust fyrir allar greinir menta, og sýnir að eins spiltan smekk. Ég veit fullvel, að hinn þjóðkunni mentamaðr, sem á naínið íraman á bók- inni, ber ekki sök fyrir þá galla, sein á henni eru, og hann ætlaðist ekki til að hún yrði eins og hún varð. Það er ef til vill ekki einu sinni félagstjórninni að kenna, að bókin er svona hneykslanleg. Enn bókmenta- félagið í heild sinni liefir þá opinberlega lineysu af henni. Eftir þetta innskot skal ég leyfa mér að halda á- fram að leita að ástæðunni fyrir liinu núverandi ástandi skáldskaparins. Ef vér getum fundið undir hverj- um kringumstæðum skáldskaprinn blómgvast best, þá sjáum vér e contrario hvað það er, sem lilýtr að vanta, þegar hann stendr verst. Vér verðum þá varir við, að skáldskaprinn liér á landi hressist upp og verðr meiri og betri í hvert, skifti, sem sannarleg pólitísk hreyfing er í þjóðinni., Fyrir og um 1840, þegar þráin eftir að fá alþing endrreist var mest, orktu vor bestu skáld, Jónas og Bjarni, og margt fleira sýnir, að um það leyti var vakandi áhugi fyrir skáldskap hér á landi. Fyrir og um 1870, þegar áhuginn var mestr að fá stjórnar- skrá, var íslenskr skáldskapr einnig mjög auðugrj Þá var það sem Jón Óíafsson vaknaði og stökk al- [ búinn fram úr tíðarandanum, og þá stóðu öll „þjóð- skáldin11 í sem mestuin blóma. Ég efast ekki um, að Jón Ólafssou hafl fundið ofsa og æsingu alt í kring- um sig þegar hann sló til hljóðs með sínu: „Vakið, vakið, verka til kveður váleg yður nú skelfingatíð,11 og eins lítið efast ég um, að Steingríinr Thorsteins- son liati lieyrt vængjaslögin af verulegum þjóðaranda, þegar hann orkti „Vorlivötina“ 1871 og söng: „Og jat'nvel úr hlekkjunuin sjóða má sverð í sannleiks og frelsisins þjónustugerð". Á þjóðhátíðinni, þegar öll þjóðin var verulega grip- inafeinum anda, skorti eigi ljóð. Matthías Jochums- sou var þá svo frjósamr, að hann orkti 8 kvœði, sem öll eru kunn, á einutn degi. Enn nú kveða skáldin tóma grafsöugva. Menn freistast því til þeirrar getgátu: Kaunske hið núverandi ástand í íslenskum skáldskap komi til af því, að það sé engin hreyfing í þjóðinni sem stendr, enginn lifvænn þjóðvilji, engiiin sterkr, póli- tískr undirstraumr. Kannske það sé hugarburðr um það alt saman. Eða öllu lieldr:

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.