Fjallkonan - 07.04.1891, Blaðsíða 4
56
FJALLKONAN.
vm, 14.
Veðrblíða hefir verið þessa viku.
Afialaust eun við Faxaflóa. Varð að eins vart á
Sviði í gær. Þilskipið „Engeyin“ kom í gær og hafði
aflað lítið (um 2000). — Aflalítið er við ísafjarðar-
djúp, enn hlaðafli undir Jökli.
Druknanir. Á Stokkseyri, á Músarsundi, sem
kallað er, varð skiptapi 25. f. m. Fórust 9 menn,
alt efnismenn á bezta aldri. Formaðr Sigurðr G-ríms-
son bóndi á Borg í Stokkseyrarhrepp. Þann dag var
bæði brim. fjúk og stormr; var þó róið á Stokkseyri
og Loftsstöðum, enn ekki á Eyrarbakka. Þeir, sem
drukknuðu, vóru, auk formannsins, tveir vinnumenn
hans: Jóhannes Guðmundsson og Jónas Jónasson,
Sveinbjörn Filippusson bóndi í Stekkunum í Sand-
víkrhrepp, Þorsteinn Þorsteinsson frá Keykjum á Skeið-
um, Kristján Gíslason vinnumaðr frá Vatnsleysu í
Biskupstungum, Guðmundr vinnumaðr frá Stórahofi í
Eystrihrepp, Jón Hannesson frá Haukadal á Rang-
árvöllum, elzti sonr ekkju þar, og Erlendr Einarsson
vinnumaðr frá Arnarbæli í Grímsnesi.
4. marz fórst bátr á Jökulfjörðum með 2 mönnum.
Benjamín bónda Einarssyni á Marðareyri og Sigurði
barnakennara Stefánssyni.
Fjárskaði varð 25. f. m. að Öndverðunesi í Gríms-
nesi; hraktist yfir 30 sauðfjár í Hvítá.
Bráðkvaddr varð þann (25. eða) 26. mars Jón
bóndi Einarsson á Laugum í Hraungerðishrepp. Var
að koma heim frá gegningum og var vinnukona hans
með honum. Þá er þau áttu fáa faðma að bænum,
hneig hann alt í einu niðr, án þess að áðr sæist eða
heyrðist að hann kendi sér nokkurs jjmeins. Hann
var þegar borinn inn og læknir sóttr; enn þá fanst
ekkert lífsmark með honum. Hann var á sjötugsaldri.
Samsöngr var haldinn 30. mars í kirkjunni á
Eyrarbakka til ágóða fyrir hana. Var hann fremr
vel sóttr og þótti góð skemtun.
Bæjarbruni. í páskaviku brann bærinn í Rauðs-
eyjum á Breiðafirði hjá Jóni bónda Jónssyni, er þar
býr. Það var um nótt, og var haldið, að eldrinn
hefði kviknað i eldiviðarkassa, sem stóð nærri elda-
vél. Mállaus maðr varð fyrst var við eldinn, enn
þegar aðrir vöknuðu hafði eldrinn læst sig um öll
hús. Gömul kona brann þar inni og fóstrbarn hjón-
anna. Engu varð að sögn bjargað nema tvennum
rúmfötum. . Þetta er efnaheimili, og hefir því fjár-
tjónið eflaust verið mikið.
Hafísliroði var kominn inn á ísafjarðardjúp (hjá
Bolungarvík), er síðast fréttist, og vóru kuldar mikl-
ir vestanlands. fshroði Líka sagðr á Húnaflóa.
Vestmannaeyjum, 27. mars: Aflabrögð lítil hér, enda gæftir
J stopular; einu sinni róið þessa viku og fiskaðist litið. Hæstr
j hlutr er 180, minstr 30, jafnast um 100. — Verðhœlchin á út-
I lendum vörum varð hér í vetr, auk þess sem áðr er getið, að
mjöl hækkaði um 2 kr. og kol um 50 au. — Úr kíghóstanum,
eða hans afleiðingum, dóu hér 4 börn.
Árnessýslu, 31. mars: Oftast hefir verið norðanátt síðan um
jafndægr. Hörðust núna fyrir bænadagana. Þá var líka hvass-
viðri, einkum neðan til í sýslunni. — AJli allgóðr þegar gefr,
enn gæftir stirðar. Mest aflast ýsa, þorskr í minsta lagi.
i -------------------------——--——.— _____________________
Á Reykjavíkr Apóteki fæst:
Sherry fl. 1,50 Öll þessi vín eru
Portvin hvítt fl. 2,00 aðflutt beina leið
do. rautt fl. 1,65 frá hinu nafn-
Rauðvín fl. 1,25 fræga verslunar-
Malaga fl. 2,00 félagi Compania
Madeira fl. 2,00 Holandesa áSpáni
Cognac fl. 1,25. Rínarvín 2,00. Vindlar: Brasil.
Flower 100 st. 7,40. Donna Maria 6,50 Havanna
Uitschot 7,50. Nordenskiöld 5,50. Renommé 4,00.
Hollenskt reyktobak, ýmsar sortir, í st. frá 0,12 —
2,25.
Hús til leigu. Hálft húsið (niðri) nr. 4 í Thor-
valdsensstræti, fyrir miðjum Austrvelli, 4 stofur á-
samt eldhúsi, geymsluhúsi, kjallara og hálfum garði,
fæst til leigu frá 1 okt. næstk. Menn snúi sér til
eigandans, adjunkt Stgr. Thorsteinsson.
A'firlýsing. Eftir beiðni skal þess getið, að séra
Jóhann Þorsteinsson í Staíholti er ekki höf. að rit-
gerðunum um „Framfarir, vestrfarir og aftrfarir",
sem eru í 3—5 tbl. Fjallk. þ. á.
Bækr þessar fást enn hjá Sigurði Kristjánssyni:
Þýsk lestrarbók eftir Stgr. Thorsteinson, bundin kr. 3,75.
Róbínson Krusóe bund. 1,00 kr. í skrautb. 1,25 ób. 0,75.
Söngvar og kvœði (útg. Jónas Helgason) 5—6 h. hv. 1,00.
Svanhvít 0,75.
Lear konungr, Sakúntala og Savitri (í einu lagi) 0,50.
Útgefandi: Valdimar Asmundarson.
Félagsprentsmiðj an.
Daginn eftir komu í blaðinu „Vegvísi" ýmsar ritgerðir, og
skulum vér að eins nefna fyrirsagnir sumra þeirra:
* * *
„Hinn nýi sporvegr. Fjölsóttr fundr af málsmetandi mönn-
um í borginni ákveðr að koma þessu málefni í kring. Gagn-
semi vegarins fyrir borgina. Borgarstjórnin er siðferðislega
skyld til að fallast á tillögurnar“.
* * *
„Snildarsöngr Miss Carrs í söngfélaginu. Áheyrendrnir, sem
voru menn, sem best eru færir að dæma um söng, luku allir upp
einum munni og klöppuðu lof í lófa, svo að dundi í salnum.
Hin unga listakona hefir afbragðs söngrödd; framburðrinn er
undr-þýðr og öll framkoma hennar laðandi, og má þvi telja víst,
að hún á mikla frægð fyrir höndum“.
* * *
„Vor háttvirti félagsbróðir, Stallman bankari, var jarðsettr í
gær; óvanalega fjölmenn likfylgd. Ágrip af hinni áhrifamiklu
likræðu séra Snaps. Mörg félög hafa látið söknuð sinn í ljós.
Örlæti og ráðvendni hins framliðna“.
Mánuði síðar kvæntist Wilson ritstjðri Miss Weatherstone.
Séra Snap gaf þau saman og Miss Carr stýrði söngnum í kirkj-
unni. Við þetta tækifæri gerði eigandi blaðsins, Mr. Carr, rit-
í stjórann að meðeiganda þess. Ekkja Stallmans sendi í brúðgjöf
dýrindis hálsband af demöntum. Enn fremr fengu brúðhjónin
silfrbikar að gjöf, fullan af gullpeningum, og var þetta letr
grafið á: „Til hins ótrauða og óeigingjarna forvigismanns sann-
leika og réttlætis frá aðdáurum hans í borginni". Þenna bikar
gaf sporvegarfélagið, því að bæjarstjórnin hafði nú samþykt
vegarlagninguna.
Endir.