Fjallkonan - 05.04.1893, Qupperneq 2
B4
FJALLKONAN.
X 14
færslu mína, enn hann ætli sér þó ekki að sýna
mönnum veilurnar, enn ég vil minna hann á að hann
hefir skyldur við málefnið, þó hann þykist eigi hafa
þær við’.manninn; ég skora því á hann að gera skyldu
sína; hann heldr þó eigi, að staðleysu þvaðr megi
meira enn ástæður til sigrs málstað hans.
Vanhermi hans er í því falin, að hann getr þess
alls eigi, og reynir jafnvel til að dylja það, að nokk-
urt frumv. hafi komið fram á þingi síðast um atnám
vistarbandsins; marka eg þetta af því, að hann segir
að menn, ekki sízt hér í sýslu, álíti frv. þeirra Páls
og Þorl. „alla þjóðheill drepandi", enn þetta eru ó-
sannindi ein, og villir almenningi sjónir; hitt hefðu
aftr verið sannindi, að menn áliti frv. nefndarinnar
óhafandi, enn af því að orðahnippingar og orðaelt-
ingar miða heldr til að færa menn írá málefuinu enn
að því, þá ælta eg að láta þingtiðindin tala sjálf, og
til þess að komast hjá óþarfa orðalengingum, hefi eg
að eins tekið 1. gr. frumvarpanna; í þeim er líka
lagðr grundvöllr laga þessara, og svo hefir Jón verið
að hræsnast við að fara eylítið út í innihald hinna
greinanna, náttúrlega af því, að þar í var ekki mergr-
inn málsins. Eg byrja þá á lausamanna frumvörp-
unum:
Frumvarp tii laga um lausamenn: Flutningsmenn: Þorl.
Guðmundsson og Páll Briem: — 1. gr. Hverjum manni, sem er
21 árs að aldri, er heimilt að leysa sig undan vistarskyldunni
með því að fá lausamennskuleyfl hjá hreppsnefnd eða bæjarstjðrn
þar sem lögheimili hans er, enda heflr hann rétt til að fá lausa-
menskuleyfið, ef hann sannar fyrir hreppsnefnd eða bæjarstjórn,
að hann eigi víst heimili hjá einhverjum húsráðanda í hreppnum
eða bænum, sem eigi er á sveit. Lausamenskuleyflð skal veitt
bréflega, og ritar oddviti undir og innBÍglar fyrir hönd hrepps-
nefndarinnar eða bæjarstjórnarinnar, og skal i ómakslaun greidd
fyrir bréfið 1 króna af karlmanni og 50 au. af kvenmanni. Lausa-
menskuleyfið gildir meðan hlutaðeigandi hefir sama heimili, enn
breyti hann um heimili og vilji halda áfram lausamensku, verðr
hann að fá lausamenskuleyfi af nýju. — 7. gr. Tilskipun 26.
mai 1863 er hér með úr lögum numin að þvi er snertir lausa-
menn.
Næst er frv. til laga um breyting á tilsk. um lausa-
menn og hmmenn á Islandi. Flutningsmenn Jón
Jónsson þm. N. Þ. og Þorv. Kjerulf.
1. gr. Hverjum þeim manni, sem er 25 ára og eldri, er
heimilt að leysa sig undan vistarskyldunni, með þvi að fá sér
leyfisbréf hjá lögreglustjóranum. Fyrir leyfisbréfið borgar karl-
maðr 10 kr. og kvenmaðr 5 kr. — 2. gr. Hér með er úr lög-
um numin 2 gr. nefndar tilskipunar.
Nefndin, sem kosin var til að íhuga bæði þessi frv.,
enn í henni fengu aðeins að vera flutningsmenn fyrra
frv., Páll og Þorlákr, og svo að auki Skúli Thorodd-
sen, Jens Pálsson og Gunnar Halldórsson, húu réð
neðri deild til að fella bæði frv., og samþykkja „nýtt
frv., þar sem farið er fram á, að afnema vistarskyld-
una alveg, af því að hún samsvari eigi lengr kröfum
tímans“. Hvað finnst nú Jóni? Gat nefndin verið
öllu ráðnari í tillögu sinni? Flutningsmenn síðara
frv. tóku nú sitt frv. aftr áðr enn það yrði felt, sem
þeim þótti vísa von. í frv. nefndarinnar, sem er í
5 gr. og heitir:
Frv. til laga um afnám vistarskyldunnar og um heimilisfang
verkmanna er 1. gr. svo orðuð: Það er úr lögum numið, að
nokkur maðr sé skyldr að vera í vist, og er hverjum manni heim-
ilt að ráða sig til vinnu um svo stuttan tíma sem vera skal. —
Við 3. umræðu var skotið inn í á eftir orðunum „í vist“ þess-
um orðum „eftir að hann er 20 ára“.
Mér flnst annars hér bera vel í veiði, og þing-
maðrinn, þessi síviðbúna siagkempa frelsisins, ætti
nú að slá sér saman við einhverja stórherra frelsis-
ins á þingi næst og færa aldrstakmark þetta enn
niðr um nokkur ár, því að ekki una unglingarnir
sízt frjálsræðinu, eða er það ekki fullgild ástæða og
samsvarandi kröfum tímans?
í efri deild komst málið ekki nema til 2. umræðu;
var það því að efni til komið að mestu í sama horf
og lausamensku frv. neðri deilpar. Það heitir þá:
Frv. til laga um afnám vistarskyldunnar og um lausamenn
og er í 7 greinum. — 1. gr. Hverjum þeim manni, konu sem
karli, sem eigi er tvítugr að aldri og eigi er sveitþurfi né
ómagi annars, skal heimilt að leysa sig undan vistarskyldunni
með því að taka leyfisbréf til lausamensku hjá bæjarstjórn eða
hreppsnefnd þar sem hann á lögheimili; fyrir leyfisbréf skal
karlmaðr gjalda 5 kr. og kvennmaðr 2 kr. er renna í bæjar-
sjóð eða sveitarsjóð. Leyfisbréf þetta gildir meðan hlutaðeigandi
frá þvi er hann tók leyfisbréfið dvelr samfleytt í sama sveitar-
félagi; flytji lauBamaðr heimilisfang sitt úr því sveitarfélagi í
annað, fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum þeim fyrir lausa-
mensku er sett eru hér að framan, ber honum að leysa leyfis-
bréf til lausamensku. (Framhald.)
Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd.
Ef byggir þú vinur, og vogar þér hátt
og vilt að það skuli ekki hrapa:
þá legðu þar dýrustu eign sem þú átt
og alt sem þú hefir að tapa.
Og fýsi þig yfir til framtíðarlands
og finnist þú vel getir staðið,
þá láttu ekki skelfa þig leiðsögu hans
sem leggur á tæpasta vaðið.
Og þó það sé bezt hann sé þrekinn og stór
sem þjóðleið um urðir vill brjóta,
þá hræðstu það ei að þinn armur er mjór,
því oft verður lítið til bóta.
Við þjóðbrautir alda um aljarðar skeið
að iðju þó margir sé knáir,
þá velta þó fleiri þar völum úr leið
sem veikburða eru og smáir.
Og stanzaðu aldrei þó stefnan sé vönd
og stórmenni heimskan þig segi;
ef æskan vill rétta þér örvandi hönd,
þá ertu á framtíðar vegi.
Þó ellin þér vilji þar vikja um reit
það verður þér síður til tafar;
enn fylgi þér einhuga in aldraða sveit
þá ertu á vegi til grafar.
’93. Þ. E. [Sf.]
Danskr prestr hefir gefið út rit um drykkjuskap,
og skorar þar á alla presta að ganga í bindindi,
enn einkanlega ritar hann móti brennivíni og öli.
Honum þykir varhugavert, að mæla algerlega móti
því, að menn drekki vín, þ. e. hin suðrænu vín,
af því, að Salómon segi, að „vínið gleðji mannsins
hjarta“, enn öðru máli só að gegna um öl og
brennivín. I þessu atriði styðzt höf. líka við krafta-
I verkið í Kana, sem frá er skýrt í Jóhannesar guð-
í spjalli, og þótt hin guðspjöllin segi, að Kristr hafi
á þeim tíma, sem þetta kraftaverk á að hafa farið
fram, verið í eyðimörk Júdeu, virðist prestrinn sem
sanntrúaðr maðr trúa því, að hann hafi verið á
báðum stöðunum í einu. Hann heldr því þó líka
fram, að kraftaverkið i Kana hafi miðað til þess
að gera menn fráhverfa víndrykkju, og að til þess
[ hafi nægt einn munnsopi af kraftaverksvíninu.