Fjallkonan - 09.07.1895, Qupperneq 4
n u*
FJALLKONAN.
xn 28
frægstu’ og bcztu raeðal manna
minnzt þín skal æ fjær og nær.
— Þér skal aidrei, aldrei gleyma
öld þótt hverfi’ og komi ný;
þína skal sem gimstein geyma
góða miuning brjóstum í.
Heilagt bergmál Hellas-fjalla,
hörpuljóð frá Tempe-dal
oft þinn heyrði andi gjalla
undir norðurs stjörnu-sal.
Andi þinn nam ólymps día
orðin vitru’, og bjartan sá
blika’ og leika’ of bólstrum skýja
bjarmann þeirra sölum frá.
Præðin grisku, Hómers harpa
hrifu þig um æfistund;
Bá þin anda-sjónin skarpa
sólblik skært frá Hellas-grund.
Tungan (frikkja göfga, snjalla
guðmóð’ fylti þína sál, —
kærst þó var þér æft alla
eigin þjóðar snildar-mál.
Rómu-sveitír sástu í anda,
Sesars, Regúls frægðarbrant,
sást við himin blika branda,
blóði roðið foldarskaut.
Ljóðin Hóraz’, ljúfu, þýðn
lyftu þinni sál á flug;
oft þau vöktu ást og blíðu
öldungsins í göfgum hug.
Vængir norðurs Valkyrjanna
vaggað hafa löngum þér;
ym af geirleik Einherjanna
oft að þinum hlustum ber.
Björt þó sýnist sáln þinni
suðræn dýrð cg Hellas-fold,
kærst er þér í andans inni
eigin þjóð og fósturmold.
íslands harpa, Grikklands gigja
glymji lof þitt samstiltar;
þökk þér saman senda hlýja
sælu menta-gyðjurnar.
Bergmál Hekiu’ og Ossu óma
einum hljómi lofstír þinn;
nafn þitt Saga’ í sigurljðma
setti á gullna skjöldinn sinn.
Lærisveinar kveðju kærri
kveðja þig með virðing nú;
þess vér minnast munum fjærri,
mentir vel hve kendir þú,
bentir á hið bezta, sanna,
bentir feðra verkin á,
vegabrjótur vísindanna
varstu traustur æ oss hjá.
Þú ert hlynur, — þaki undir
þinna greina sátum vér;
margar liðnar lífsins Btundir
ljúfar runnu fyrir hér;
ávöxt fagran ætíð barstu,
— aldrei skyldum gleyma því, —
íslands helzti hlynur varstu,
hvild þar skugga fundum í.
Þú ert orðinn aldinn hlynur,
æfi þinni halla fer;
þú ert samt vor sami vinur,
sama skjól og fyr hjá þér;
beygist stofninn, bogna greinar,
bregður fölva laufskrúð á,
enn þó kyljur aldrei neinar
ávöxtunum grandað fá.
Verk þín fjölgi, vaxi hróður,
vinn til sóma landi’ og þjóð!
Styð og auðga málið móður
meðan streymir hjartablóð!
— Þér skal aldrei, aldrei gleyma,
öld þótt hverfi’ og komi ný,
þína skal sem gimstein geyma
góða minning brjóstum í.
Guðm. Guðmundsson.
Leiðréttíng.
Hér með bið ég yðr hr. ritstjóri, að ljá eptirfylgjandi lin-
um rúm i blaði yðar.
Eins og meðfylgjandi vottorð sýna, eru það hrein og bein
ósannindi, sem ritstj. Þjóðv. unga Begir í 28. tbl. sama blaðs,
n. 1., að ég hafi á nokkurn hátt reynt að koma í veg fyrir, að
kosnir væru 2 menn í Mosvallahreppi til að mæta á þingmála-
fundinum á ísafirði 4. þ. m. Einnig sitr það mjög illa á 2.
þm. ísfirðinga, að álasa mönnum fyrir að sækja ekki þingmála-
fundi úr allri sýslunni á ísafjörð, því ekki hefir hann sýnt þá
röggsemi at sér ennþá, að hann hafi farið oft, eða langt til að
halda þá.
Að endingu vona ég, að ritstj. Þjóðv. unga finni eitthvert
heppilegra verkefni fyrir blað sitt, enn að gerast upp á menn
með óhróðrsdylgjum, sem ekki er minsti fótr fyrir, eins og hann
hefir gert í ofannefndu tölubl. um mig, og í þeirri von, að hann
láti mig framvegis í friði, tilfæri ég ekki fleira máli mínu til
sönnunar.
Þorfinnsstöðum, 21. júní 1895.
Guðm. A. Eiríksson.
▼ V ▼
Vér undirskrifaðir vottum hér með, eftir beiðni Guðm. A.
Eiríkssonar, að engin tilhæfa er í því, að hann — Guðm. A. Ei-
ríksson — hafi á nokkurn hátt reynt til að koma í veg fyrir,
j að kosnir væru 2 menn til að mæta á þingmálafundinum á ísa-
firði 4. þ. m., að því vér frekast tilvitum.
Á hreppskilaþingi Mosvallahrepps, 22. júní 1895.
Guðm. Pálsson. Sumarliði Jónsson. Guðmundr Jóhannesson.
Kjartan Jónsson. Vigfús Eiriksson. T. Halldórsson.
Brynjólfr Daviðsson. Arngrímr V. Jónsson. Sveinn Jónsson.
Guðmundr Einarsson. Sigurðr Jónsson. Eyjólfr Jónsson.
Jónatan Jensson. Sigurðr Ólafsson. Pinnr Eiríksson.
Steinþór Jónsson. Páll Guðlaugsson. Jón Guðmundsson.
Kristján Bjarnason.
Hvanneyrarskólinn.
Að búnaðarskólarum á Hvanneyri verðr alls fjór-
um námspiltum veittr aðgangr á komandi hausti, og
verða bænarskrár hér að lútandi að vera komnar til
undirskrifaðs amtmanns fyrir 15. ágúst næstkomandi.
Námspiltum á skólanum veitist 10 kr. styrkr til bóka-
kaupa.
Skrifstofu Suðramtsins, 6. júlí 1895.
J. Havsteen.
10 Kirkjustræti 10.
Maskinuolía 2 pottr á 1,25. Fæst einnig í smærri
skömtum.
H. J. Bartels.
Tvær kýr óskast tii kaups, önnur geld, vel mjólk-
andi, önnur síðbær, einnig góð mjólkrkýr. Upplýsing-
ar á itfgreiðslust. þessa blaðs.
Leiðarvísir til iífsábyrgðar fæst
ókeypis hjá ritstjórunum og hjá Dr.
J. Jónassen, sem einnig gefr allar
nauðsynlegár upplýsingar um lífs
ábyrgð.
íverzlun Magnúsar Einarssonar
úrsmiðs á Vestdalseyri við Seyðisfjörð fást
ágæt vasaúr og margs konar vandaðar
vörur með mjög gððu verði_________
Norðlenzkt ullarband, ágætt
j hvítt þelband, er til sölu á 2 kr.
25. au. í Þingholtsstræti 18.
Útgefandi: Vald. Ásmundarson.
Félagsprentsmihjan