Fjallkonan - 06.08.1897, Síða 4
124
FJALLKONAN.
XIV 31.
Fyrri þm. Ísíirð. (Sig. St.) um 800 kr. ársstyrk
handa Hólmgeiri Jenssyni til að stunda dýralækn-
ingar í norðrhluta Vesturamtsins. Sigurðr Jónsson
í Lambhaga um 500 kr. ársstyrk til þess að geta
h&ldið áfram lækniugum.
Sira Þorsteinn Benediktsson í Bjarnarnesi um 900
kr. uppbót af landssjóði fyrir tekjumissi. Prestrinn
í Vestmannaeyjam um 300 kr. árl. uppbót ábrauðið.
Sami um 600 kr. til að kaupa orgel í kirkjnna.
Prestrinn í Gaulverjabæ um 1600 kr. uppgjöf á láni
á prestakaliinu. PrestrinD á Staðarhrauni um Iinun
á árgjaldi. Prestrinn á Eyvindarhólum um styrk til
að byggja upp staðinn.
Jón Jónsson söðlasm. frá Hlíðarendakoti um 600
—800 kr. styrk til að leita að Stórasjó.
Stjórnarskrármálið er afgreitt til efri deildar,
enn þar heflr verið kosin flmm manna nefnd í það:
Kristján Jónsson, Jón A. Hjaltalín, Hailgr. Sveinsson
Sigurðr Stefánsson og Guttormr Vigfússon.
Fjárlögin. 2. umræðu lokið í gær, enn eftir að
ræða um samgöngurnar o. fl., sem kemr inn i frv.
til 3. umræðu.
Strandferðaskipið „Thyra“ kom hingað með
margt af farþegum, flesta af Vestriandi (eink-
um sjómenn).
Afl ilaust á Vestfjörðum og eru því hingað komn-
ir margir sjómenn, er þar vóru ráðnir til fiskiveiða
í sumar. — Þar á móti er nægr afli norðr í Húna-
flóa og víðar þar norðr um, enda kom eitt af þil-
skipum G. Zoega þaðan með yfir 20 þúsund af
fiski.
Heiðrssamsæti. Fyrir forgöngu alþingisforsetanna
héldu flestir þingmenn og um 30 Reykvíkingar, embættismenn
ritstjórar og kaupmenn, erindrekum Odd-Fellow- reglunnar dr.
Petrus Beyer og Thuren húsagerðafræðingi heiðrBsamsæti í Iðn-
aðarmannahúsinu. Forseti sameinaðs þings mælti fyrir minni
heiðrsgestanna og þakkaði spítalagjöflna. — Dr. P. Beyer mælti
fyrir minni íslands og fór fögrum orðum um hve erindið hefði
gengið greiðlega og um viðtökur þær, sem hann hefði fengið
hér, — bæjarstjðrn Reykjavíkr bauð þeim að vera gestir sínir
meðan þeir væri hér og kostaði ferð þeirra til Geysis. Hann
mælti einnig fyrir minni kvenna.
ísienzk Odd-Fellow-stúka er stofnuð hér í bænum;
stofnaði dr. P. Beyer hana. Félagið er góðgerðafélag, enn
heldr leyndum reglum sinum eins og t. d. frímúrarar.
Landsyflpréttardómr. 2. þ. m. var kveðinn upp
dómr í landsyfirréttinum í máli þvi, sem höfðað var af hálfu
réttvísinnar gegn prófasti Halldóri Bjarnarsyni í Presthólum.
Áleit héraðsdómarinn (Ben. Sv.), að prófastrinn hefði gert sig
sekan í gripdeiid og dæmdi hann í 5 daga hegningu við vatn
og brauð og að greiða Bkaðabætr 24+16 kr. til Guðm. bónda
Guðmundssonar og Dórarins bónda Benjamínssonar og 5 kr. sekt
fyrir ósæmilegan rithátt og ennfremr allan málskostnað.
Prófastrinn var kærðr fyrir þrent: 1. að hann hefði notað
sér fáeinar spýtur af trjávið, sem lá á Presthólareka og hafði
verið skilinn þar eftir af Guðm. bónda Guðmundssyni í Nýjabæ
án vitundar prófasts. Vóru þessar spýtur hafðar í fjárkofa, sem
bygðr var þar við sjóinn, er prófastr var fjarverandi, enn bygg-
ingarmenn álitu þær eign prófasts; 2. að prófastr hefði hirt eitt-
hvað af molviðarreka i Magnavík, eftir að yfirréttardómr var
fallinn, sem ákvað að reki þessi heyrði undir Einarsstaði (og
Valþjófsstaði), enn það gerði hann að dæmum forvera sinna og
með þeirri Banufæringu, að Presthólar ættu rekann, enda hafði
hann eigi heyrt dóminn; 3. að hann hafl hagnýtt sér meira enn
vera bar af skipsböndum af strandskipi, sem hann átti í félagi
með nokkrum öðrum mönnum, enn engar sannanir hafa komið
fram fyrir þvi aðrar enn þær, að allir sameigendrnir haii reynt
að ná svo miklu af viðnum, sem þeir frekast gátu.
Dómr yfirréttarins í máli þessu hljóðar svo, að prófastr
Halldór Bjarnarson er algerlega sýknaðr af kæru réttvísinnar í
þessu máli og málskostnaðr greiðist úr landssjóði.
Mál þetta gæti verið efni í litla athugasemd, sem ekki verðr
komið í þetta blað fyrir rúmleysi.
Skagafjarðarsýsln, 21. júlí: „Yeðrið hefir verið
kalt tii skamms tíma, enn nú eru komnir hitar. Um
og fyrir miðjan þenna mánuð vóru ákafir vatnavext-
ir, svo að flæddi víða yfir láglendi, og barst þá leir
og sandr upp á engi manna. Það er farið að slá;
túnin eru illa sprottin, enn votengi líta allvei út og
spretta enn. — Verzlun stendr nú sem hæst, kaup-
menn borga hvíta ull 60 au., mislita 35 au. Rúgr
7 au., bankabygg 12 au. rísgrjón 15 au, Það er ný-
farið gufuskip af Sauðárkrók með um 300 hross frá
pöntunarfélagi Skagfirðinga og Húnvetuinga. Stór-
kaupmaðr Jón Vídalín lét halda hér hrossamarkað
og vóru hestar borgaðir bezt um 70 kr. — Fiskafli
hefir verið aligóðr hér á firðinum þegar beita hefir
verið. Þeir sem stunda sjó hér með sjávarsíðunni
eru mjög að fjölga. — Almenn heilbrigði. Hinn nýi
iæknir okkar, Sæmundr Bjarnhéðinsson, er nýkominn
hingað“.
Á Hússtjórnarsls.01-
a.n lim í Iðnaðarmannahúsinu fæst keypt
fæði um lengri og skemri tíma; sömuleiðis getr fólk
fengið keyptar máltíðir á hverjum tíma dags sem er.
Inngangr á norðrhlið.
íslenzk uniboðsverzlun
selr allskonar islenzkar verzlunarvörur á mörkuðum
erlendis og kaupir inn útlendar vörur fyrir kaup-
menn og sendir um ait land. Umboðssala á vörum
fyrir enskar, þýskar, sænskar og danskar verksmiðjur
og verzlunarhús. Glöggir reikningar, lítil ómaks-
laun.
Jakob Gunnlögsson.
Cort Adelersgade 4,
Kjöbenhavn K.
verzlun Magnúsar Elnarssonar á Seyðis-
firðl fást ágæt vasaúr og margskonar smekkleg-
JL ar, fásénar og vandaðar vörur
með mjög sanngjnrnu verði.
Útgefandi Kvennablaðsins kaupir
þessar bækr:
Matreiðslukver Mörtu Stephensen,
Lltunarbók Ólafs Ólafssonar.
Útgefandi: Tald. Ásmundarson.
Félagsprentsmiðjan.