Fjallkonan - 19.04.1898, Side 1
'Kemr út um miSja viku.
Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.)
Auglýsingar ódýrar.
FJÁLLKONAN.
XV, 16.
Reykjavík, 19. apríl.
Gjalddagi 15. júli. Upp-
sögn skrifleg fyrir 1. okt'
AfgT.: ÞingholtsBtræti 18
1898.
Stj órnmálahorfur.
Tala má í tíma og ótíma.
Sannarlega hafa þeir Framfaragellir og Skrá-
veifa, eða hvað þeir heita aliir þessir hrossabresta-
þeytarar, gert lítið gagn með stjórnarskrárskröltinu
í blöðunum síðan þingi var slitið í sumar. Blöðin
hafa verið sitt á hvoru máli, og sumir ritstjórarnir
hafa verið þeir skynskiftingar, að þeir hafa haldið
fram sinni skoðun í hvort skifti. Þannig hefir eitt
blaðið árið sem leið haldið fram „aðskiinaði1*, bene-
dikzku“, „valtýsku" og „miðluninni frá 1889“. Alt
þetta hefir spásérað í mesta meinleysi innan í rit-
stjórans rúmgóðu höfuðskel.
Fjallkonan hefir lagt einna minzt til málsins af
öllum blöðunum. Henni hefir virzt réttast, að af-
ráða ekkert í málinu að sinni, áðr enn stjórnin léti
til sín heyra. Fjallk.
hefir viljað reyna sam-
komulag á sama grund-
velli og meiri hluti
þings í sumar, án þess
að binda sig við stjórn-
arfrumvarpið. „Miðl-
unina frá 1889“ og
benedikzkuna gömlu
telr hún báðar jafnó-
vænlegar til sigrs.
Nú eru einmitt tíma-
mót í stjórnmálum vor-
um.
Stjórniu mun ætla að
leggja fyrir næsta
alþingi frumvarp til
breytingar á stjórnarskránni, sem vér vitum ekki
hvernig verðr orðað.
í annan stað er nú útlit fyrir, að ráðaneytis-
skifti verði í Danmörku og viustrimannaráðaneyti
komist að völdum. Þetta getr baft talsverða þýðingu
fyrir ísienzka stjórnarmálið. Enn engar getur er hægt
að leiða um það, hvernig vinstrimanna-ráðaneyti
mundi taka á þessu máli.
Loks er þess að geta, að landshöfðingi mun uú
vera boðaðr á fund stjórnarinnar til skrafs og ráða-
gerða í þessu máli, og ætlar að sögn að fara í næsta
mánuði.
Að öllu þessu athuguðu mun vera ráðlegast, að
taka enga ákveðna stefnu í máliuu að sinni, enn
bíða átekta.
Holdsveikisspítalinn.
Grunarinn undir holdsveikisspítalann í Laugar-
nesi er fyrir löngu gerðr og akvegr til spítalans,
sem liggr af þjóðveginum fyrir innan Rauðará (Reyð-
ará). í þessum mánuði er von á skipinu, sem færir
hingað efnið í spítalabygginguna. Enn skip það sem
átti að flytja byggingarefnið hefir farizt, og seinkar
það flutningnum hingað.
Holdsveikisspítaiinn á að samsvara að öllu leyti
fylztu kröfum tímans og verðr ágætlega útbúinn. Hús-
ið verðr stokkahús, bygt úr bjálkum, svo að kalla
má að gagnþéttr viðr verði í veggjunum. Það verðr
stærsta hús á landinu, 87 álna langt og 27 álna breitt.
Meðfram norðrhlið hússins verðr gangr eftir endi-
löngu húsinu og úr honum er gengið inn í hinar
ýmsu sjúklingastofur, sem allar eru meðfiram suðr-
hlið uppi og niðri. Meðfram suðrhlið hússins uppi
eiga og að vera skrifstofur ráðsmanns og læknis,
lyfjabúð o. s. frv. — Út úr norðrhlið hússins gengr
álma, 40 álna löng og 18 álna breið, og verðr það
afarmikill salr; þar verðr vinnustofa og borðstofa
sjúklinganna, og guðs-
þjónusta verðr þar
haldin.
Uppi á efra lofti
verðr íbúð fyrir ráðs-
mann og heimilisfólk.
Kjallari verðr að
eins undir norðrálmu
hússins, og þar á eld-
húsið að vera.
Spítalinn á að vera
fyrir 60 sjúklinga, og
verðr alger í sumar.
Það er dr. Ehlers
manna mest að þakka,
að þessi spítali er
settr á stofn. Hann
fékk Oddfélagana dönsku til að taka málið að sér
og skjóta saman fénu til spítalabyggingarinnar. Fyr-
ir samskotunum genguat þeir Petrus Beyer (sem
hingað kom í fyrra til að ákveða hússtæðið), dr.
Ehlers og dr. jur. Goos, geheimeetazráð. — Kostnaðr-
inn verðr alls um 100,000 kr.
Sýslanirnar við holdsveikisspítalann eru nú allar
auglýstar til umsókna: ráðsmanns, ráðskonu og gjald-
keya (laun ráðsm. 1500 kr., ráðskonu 300 kr., gjald-
kera 500 kr.). Yfirhjúkrunarkonuna ráða Oddfélagar
sjálfir. Læknisembættinu mun nú einnig vera „sleg-
ið upp“.
Búnaðarbálkr.
Skilvinda og strokbr.
Þess var getið í Fjallk. einu sinni, að ný-
fundin væri vél til að búa til smjör, sem bæði væri
skilvél og strokkr. Lofaði blaðið að gera betr grein
fyrir henni síðar. Eftir það skrifaði kand. mag.
Holdsveikisspítalinn í Laugarnesi með útsjón til Yiðeyjar.