Fjallkonan - 06.07.1898, Page 1
Kemr út um miðja yiku.
Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.)
Auglýsingar ódýrar.
Gialddagi 15. Júli. U yp
sögn skrifleg fyrir 1. okt.
Afgr.: Þingkoltsstræti 18
FJALLKONAN.
XV, 26. Reykjavík, 6. júlí. 1898.
Útlendar fróttir.
Khöfn, 24. júni.
Ófriðurinn milli Spánverja og
Bandamanna
gengur hægt og tregt, og rná búast við að hann verði
langvinnur. En frá bænum Santjagó á Kúbu má vænta
höfuðviðburðanna. Sá bær liggur við sjó, og er þar
ágæt höfn, en afarþröng innsigling og vígi öflug
beggja megin. Má nú telja það sannleika, að Cervera
aðmíráll liggi þar í höfn með allan spánska flotann.
En fyrir utan hafnarminnið hafa Bandamennn safn-
að flota sínum, og mun hann nær hálfu stærri enn
floti Spánverja; er það nú ráð þeirra, að svelta Spán-
verja og neyða þá þannig til uppgjafar. Uppreistar-
menn á Kúbu eru í samtökum við Bandamenn og
safna sem mestum herafla við Santjagó til þess að
varna öllum aðflutningi að borginni. Þá er flotafor-
ingi Bandamanna, Sampson aðmíráli, þóttist þess
fullviss orðinn, að hinn spánski floti lægi í Santjegó,
sendi hann svo látandi hraðskeyti til Washington:
„Ég hefi ráð þeirra í hendi mér; héðan skulu Spán-
verjar ekki sieppa“. Til þess að táima þvi, að Spán-
verjar leituðu á brott frá Santjagó, söktu Bandamenn
eimskipinu „Merrimac“ í hafnarminninu. Á skipinu
voru að eins 7 manns undir fórustu Hobsons lautenants,
og er þeir höfðu kveykt í hrökkálunum, stukku þeir
fyrir borð og var bjarg&ð af Spánverjum; komust
þeir allir af þrátt fyrir kúlnaregnið. Er þetta
hreystiverk þeirra mjög rómað. En nú hefir Spán-
verjum tekist að ryðja skipsskrokknum úr vegi. —
Bandamenn hafa fengið fjanda, er reynist þeim
skæðari enn kúiur Spánverja; það er gula sýkin,
einhver hin hræðilegasta drepsótt, er geysar nú á
flota Sampsons. Er jafnvel talað um, að hætt verði
öllum vopnaviðskiptum um stundarsakir, ef drepsótt-
inni heldur fram. — Undarleg er hræðsia sú, er
annað veifið grípur Bandamenn. Við og við kemur
sá kvittur upp, að herskíp hafl sést þar og þar við
strönd Ameríku; halda Bandsmenn þá, að þetta séu
spönsk herskip, er annaðhvort hafl sloppið frá Sant-
jagó eða komin sé heiman frá Spáni. Bandamenn hafa
þann'g frestað að fiyija herlið sitt frá Floridasksgayfir
til Kúbu, því að stundum hefir sá kvittur gosið upp,
að herskip hafi sést á sveimi í sundinu þar á milii.
í annan stað eru Spánverj&r einnig hræddir um, að
Bandamenn geri út flota til Evrópu og ráðist á hafnar-
bæi þeirra; reyna þeir því að víggirða þá seni bezt
og sömuleiðis eyjar sínar við Evrópu og Afriku.
Eftir síðustu freguum hefir nú Bandámönnum
tekist að koma herliði frá flotanum á iand á Kúbu,
eigi alllangt frá Santjagó. Á sá her að samtengjast
liði uppreistarmanna og setjast um Kúbu.
Á Filippseyjunum litur afarilla út fyrir Spán-
verjum. Eyjarskeggjar hafa gert uppreist og sezt
um höfnðborgina þar, Maníla, og lítur út fyrir, að
hún muni innan skamms falla í hendur þeirra, því að
herlið Spánverja þar er að þrotum komið að vistum
og skotfóngum. — Spánverjar hafa nú sent 22 her-
skip frá Cadiz, undir forustu Camaras aðmíráls, og
hafa þau skip kol og vistföng til langs tíma, en hvert
sá floti eigi að halda er mönnum ókunnugt; ef til vill
til Kúbu, ef til vill til Filippseyja. En mörg af
þessum skipum eru gömul og léleg.
Frakkland. Nú er Méline og ráðaneyti hans
loks oltið úr sessi. Það var nú orðið rúmra 2 ára,
og er það hár aldur á frönsku ráðaneyti. Þegar hið
nývalda þjóðþing kom saman, og tekið var að ræða
um pólitík Mélines, reyndist meiri hluti þingsins hon-
um mótfallinn. Yarð hann því að fara frá. Hver
muni mynda hið nýja ráðaneyti er óvíst. Forsetinn
Faure hefir nefnt það við marga, en enginn viljað
taka það að sér. Þó eru mestar líkur til, að myndað
verði ráðaneyti af mönnum af ýmsum stjórnmála-
flokkum, en hver verði forseti er enn eigi afgert.
Þýzkaland. Þar hafa farið fram kosningar,
og er hið nýja rikisþing líkt skipað og áður; þó hefir
sósialistum fjölgað nokkuð, enda höfðu þeir „agitérað“
mjög; þannig buðu sig fram menn af þeirra flokki í
öllum 397 kjördæmum Þýzkalands.
Hreiti og kornvörur að lækka í verði.
Hin gleðilegasta frétt frá útlöudum í þetta skifti
er sú, að hveiti og fl. kornvörur eru aftur að faila
í verði. Orsökin til hinnar skjótu verðhækkunar á
hveiti, sem áður hefir verið getið í blaði þessu, var
einkum sú, að einn amerískur miljónaeigandi í Chicagó,
Jósef Leiter að nafni, keypti allan hveitiforða Banda-
ríkjanna og ætlaði sér svo að halda honum i geipi-
verði. En þetta tókst honum eigi sakir þess, að
hann skorti fé. Meira og meira hveiti kom á mark-
aðinn, en hann gat eigi keypt það alt, og svo féll
verðið og hann tapaði mörgum miljónum dollara.
— Eitthvert „frótt“ Eeykjavíkur biað gat þess
um daginn, að þessi maður hefði „grætt á braskiuu
4V2 miij. dolIara“ en það er efl&ust misheimt.
Eni bættispróf 1 málfrædi hefir tekið við háskól-
ann: Sigfús Bíöndal með 1. einkunn og í lögfrœði
Guðm. Sveinbjörnsson með 2 einkunn.
Ileimspekispróf hafa þessir tekið við háskólann:
MeÖ ágætiseinkunn: Eggert Claessen, Eiríkur Kjerúlf,
Jón Þorláksson. Dávél: Árni Pálsson, Ásgeir Torfa-
son, Q-Isli Skúlason, Halídór Gunnlaugsson, Bernhard
Laxdal, Jóhannes Jóhannesson, Ólaí'ur Dan Daníels-
son, Elinborg Jacobsen. Laklega: Sigfús Sveinsson.
Grula pestin, sem geisar nú í her Spánverja,
hefir líka komist í land í suðurhlut Bandaríkjanna,
af því ekki hafa verið hsfðar nægar gætur á s&m-
göngum, eins og vant er, vegna stríðsins. En ströng-