Fjallkonan - 23.11.1898, Page 4
184
FJALLKONAN.
46.
Ferðamenn leggjast á afréttarfé. Ekki er það
furða, þótt haustheimtur gerist illar hjá bændum, ef
það fer að tíðkast, að ferðamenn leggist á afrétt-
arfé.
Svo segir i ferðasögu kapt. Dauiel Bruuns:
„Gjennem afíolkede Bygder,“ Kh. 1898, sem er gefin
út sem fylgirit við Árbók fornleifafélagsins þ. á., þeg-
höf. er að segja frá ferðiuni yfir Kjalveg, bls. 20:
„Af því að fylgdarmenn vora vautaði nesti, fóru þeir
að veiða sér einn sauð. Það tókst á eudanum að ná
vænum og feitum eauð, sem undir eins var skorinn
og fleginn. Skrokkurinn var fluttur á hesti upp í
dalinn, og þar var hann látinn i poka og soðinn í
einum hvernum. Síðan var kjötið þvegið í ánui og
skorti þá ekki vistir fyrst um sinn“.
Franskt tímarit „Cosmosu, eitt af merkustu vís-
indalegum tímaritum Frakka (kostar 32 fr. árg.),
flytur 27. ágúst i sumar ritgerð um skemdar-aðfarir
botnverpinganna hér á landi með fyrirsögn: „Kánið
á Í8l«udi“ („Le pillage de 1’ Islande“). Er þar greini-
lega skýrt frá yfirgsngi botnverpinga hér við land,
og kveðst höí. taka frássgnir sínar úr Fjallkonunni,
sem eé alþýðlegasta blaðið á íslandi (le journal le
plus populaire do 1’ Islande). Að lokum bendir höf. á
hve alvariegar afleiðingar geti orðið af bornvörpu-rán-
fiskinu. Hann getr þess og, að fiskveiði Frakkavið
ísland sé alt af að fara aftur.
irbék fornleifafélagsins fyrir þ. á. er nýkom-
in út. Þar er á: 1. Skrá yfir eyðibýli í Landsveit,
Rangárvallasveit og Holtasveit eftir Brynjólf Jónsson,
mjög fróðleg. Þar eru talin 19 býli í Landsveit, 45
býli i Rangárvallasveit, og 3 býli í Holtasveit, sem
lagst hafa í eyði með öilu, flest á þessari öid af sand-
foki. einkum 1882. — 2. Hofalýsingar í fornsögum
og goðalíkneski, eftir dr. Finn Jónsson. — Leiði Guð-
rúnar Ósvífrsdóttur eftir dr. Jón Stefánsson. Leiði
Guðrúnar er enn sýnt í kirkjugarðinum á Helgafelli.
Dr. J. S. gróf það upp 1897 ásamt hinum enska málara
W. G. Collingwood. Gröfin,ier öll veglega hlaðin upp og
fanet í heani mikið af viðarkolum, og í nyrðri end-
anum voru smáar tennur (kvenmanns) og leifar af
hauskúpuhimnu. Á grafarbotninum við nyrðri endann
var járnryð, hlutur úr járni, liklega tygilknifur, og
lítill fjörusteinn. í miðri gröfinni var lítill steinn
með mörgum fægðum flötum (af talnabandi nuunu?).
Virtist sem rótað hefði verið í gröfinni, og getur stað-
ið svo á því, að ekki fanst meira af talnabandinu
og af gripum. Eftir þessari rannsókn eru fylztu Iík-
ur til, að þetta sé gröf Guðrúnar. — Síðast er í Ár-
bókinni skrá yfir muni, sem bætst hafa Forngripasafn-
inu 1898, og svo ársskýrsla félagsins.
Árbókinni fylgir þetta ár: „Gjennem aftolkede
Bygder paa Islands indre Höjland af D. Bruun“
Khavn 1898, og: „Nokkurar eyðibygðir í Árnessýslu,
Skagafjarðardölum og Bárðardal, ransakaðar af Daniel
Bruun“,meðfjöldauppdrátta, fróðlegtog skemtilegtrit.
Nú er tími fyrir bókvini að ganga í Fornleifa-
félagið. Tillag er að eins 2 krónur, og fyrir það fá
þeir tvær fróðlegar bækur með myndum og uppdrátt-
um (fallegar landlagsmyndir af einkennilegum stöðum
og uppdrættir af ýmsum fornum mannvirkjum o.fl.)
Forvitnisbálkur.
19. Er styrkveiting til sveitakennara (nmgangskennara) nokk-
uð miðuð við nemendafjölda?
Svar: Nei; sá, styrkur er veittur eingöngu eftir tillögum
sýslunefnda.
20. Hvað selat smjör, tólg og kæfa í Reykjavik?
Svar: Smjör frá 55—65 au. í verzlanir, en til prívatmanna
60—70 au. eftir gæðum; tólg út úr verzlunum 35 au.; kæfa
venjulega 30 au.
21. Hjá kverjum eru ódýrust ritföng í Reykjavík?
Svar: í verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
22. Hvaða frímerki eru dýrust?
Svar: Ef spyrjandinn á við brúkuð útlend frímerki, þá eru
það frímerki frá Cabul, Mauritiua (1847), Sandvikureyjum
(1852), British Guiana (1856 og 1850),'Natal (1. útg.), Góðrar-
vonarhöfða (1860), Kan&da (1856) o. s. frv.
23. Hvaða ráð eru bezt við sjósótt?
Svar: Það er varla nokkurt vamarmeðal til við henni, sem
dugi, svo kunnugt sé. Sumir brúka kakaó-inntökur;
sumir taka inn 1 matspón af brómkalíum þrisvar á dag í 3 daga
áður enn farið er á sjóinn. Það má kaupa fyrir 10 au. á apótek-
tekinu. Sumir drekka rauðvín á sjónum. — Gott er að hafa feng-
ið sér góðan og mikinn snæðing áður enn á sjó er farið og leggj-
ast fyrir undir eins og vart verður við ógleði.
OTTO MÖNSTEDS Margarine
ráðleggjum vér öllum að nota. Það er hið bezta og Ijúffengasta
smjörlíki, sem œögulegt er að búa til
BiöjlS þvi œtið um
OTTO M0NSTEDS Margarine,
sem fæst keypt hjá kaupmönnunum.
Gísla saga Súrssonar hefir
glata8t eða verið tekiu í misgrip-
um. Skila skal í Þingholtsstr. 18.
Gamall rauðstjörnóttur hest«r hvarf af
Seltjarnarnesi með hvíta leista á aftur-
fótum, marklaus, en með síðutak á
annari siðu, aljárnaður. Hver sem fyndi
er beðinn að gera svo vel og koma hon-
um að Gröf í Mosfellssveit eða gera mré
aðvart, hvar hann er niðurkominn.
Reykjavík, 21. nóv. 1898.
Jón Bjarnason.
Nýir kaupendur „Fjallk.“ 1899
geta fengið „FJALLKONUNÁ“
senda sér ÓKEYPIS frá byrj-
un októberraánaðar þ. á.
Brúkað eintak af Pio: Fransk
Læsebog verður keypt*
Norðlenzkt vaðmál, vandað
peisufataefni, er til sölu i Þing-
holtsstr. 18.
Dökkmórautt uilarband og
ljósgrátt, þrinnað og úr þeli, er tii
sölu í Þingholtsstr. 18.
Mttúrusafnið
er lokað í skammdeginu, frá 27.
þessa mánaðar.
Ben. Gröndal.
Útgeíandi: Vald. Ásmundarson.
Félagsprentsmiðjan.