Fjallkonan


Fjallkonan - 19.08.1899, Page 5

Fjallkonan - 19.08.1899, Page 5
19. ágúst 1899. FJALLKONAN. . 145 • sem einstök félög veita þeim stórfé, sem nemur miklu meira. Bríet Bjarnhéðinsdóttir. Bankamálið. Það er ekki l8ngi að breytast veður í lofti. Framau af þinginu hafði frumvarpið um hluta- félagabankann lítinn byr, og það mætti allhörðum mótmælum bæði á þingmálafundi Keykvíkinga og í blöðunum, og flestir þingmenn vóru á móti því, enn síðan hinir dönsku forgöngumenn málsins komu hing&ð er alt annað uppi á teningnum. Meiri hluti þingsins er uú með málinu. Það er þó ekki svo að akilja, að þingið muni samþykkja frumvarpið óbreytt. Það hefir gert tals- verðar breytingar við það, eins og skýrt er frá i þessu biaði. Mestu breytingarnar eru þær, að landssjóður verði hluthafi í bankauum og leggi til a/B hlutanna, að varasjóður bankans skuli falla i landssjóð þegar hann er orðinn 1 miljón króna, að hlutaféð sé á- kveðið 5 milj. og enn fremur ákvæði sem tryggja það, að meiri hluti bankaráðsins sé innlendur. — Að öðru leyti má sjá tillögur nefndarinnar í þessu máli hér í blaðinu. Hinir dönsku forgöngumenn fyrirtækisins, Arnt- zen og Warburg, tjá sig fúsa til að ganga að breyt- ingum nefndarinnar að mestu eða öllu, og eru því líkindi til að saman dragi með þeim og þinginu, enn nú er svo áliðið þingsins, að ekki er sýnilegt, að frumvarpið komist gegnum báðar deildir* Umræður á þinginu. Yið framh. 1. umr. og 3. umr. málsins i n. d. var alimikið rætt. Pórður Thoroddsen var framsögmaður málsins og kvað nefndina hafa lagað mjög frumvarpið, og mið- uðu breytingar hennar allar í þá átt, að gera bank- ann sem inulendastan. Hann taldi það mjög mikils *) Hér um daginn komu út hér í bænum tvö nafnlaus flug- rit um bankamálið, enn ekki munu þau hafa átt þátt í að koma málinu í betra horf á þinginu. Annað ritið, „Er rétt að þegja um hið sanna ástand bankans og iandssjððs?11 var tekið npp í síðara ritið, sem nefndist „Tiðindi um bankamál“. Yiðvíkjandi athugasemd til „Fjallk.“ í síðara flugritinu skal ég geta þess, að ég hafði lofað manni, sem eitthvað var riðinn við útgáíu hins fyrra flugrits, að senda út með „Fjallk." rit um banka- málið, tf það vœri svo úr garði gert, að mér líkaðiþað. Þegar ritið var prentað, var sett á kápuna á því „fylgirit með Fjallk.“, án þess ég hefði leyft það eða vissi um það. Ég lánaði útg. dreng til að bera þennan pésa út um bæinn, eftir er ég hafði skorið af honum fremsta blaðið, þar sem nafn „Fjallk.“ hafði verið sett í heimildarleysi, sjálfsagt til þess að koma á mig lagalegri og siðferðilegri ábyrgð þessa flugrits, Bem ég átti eugan þátt i. Siðan skrifaði ég þeim, sem hlut átti að máli, aðák á punni mætti standa : „fyigir. með Fjallk." ef okkur semdi 8vo um, á því, sem færi út um landið, og ég bjðst við að þegar væri prentað. Enn um það heflr okkur ekki samið, né heldur útsendingu ritsina. Því „Fjallk.“ þðtti sér ekki sæma, að hafa í för með sér jafnilla saminn ritling, þar sem engin rök eru færð fyrir einu einasta atriði málsins, enn hver vitleysan rekur aðra, t. d. verðhrun ísl. fasteigna erlendis(U) o. fl. Nú er að sögn komið út 3. flugritið úr sömu át.t, enn það nefi ég ekki lesið. vert fyrir landið, að slíkur bauki kæmist á fót, enn það yrði ekki gert með innleudu fé. Sighvatur Árnason var á móti því, að útkljá þetta mál á þessu þingi. Kvað sig sundla, er hann iiti á hlutahæðina; þótti hún óþarflega há. Yildi ekki að ráðgjafinn væri formaður bankaráðsins og vildi að bankaráðið heldi fundi sína í Reykjavík. Guðlaugur Guðmundsssn var nú með málinu, og kvað bankann hafa mikla þýðiugu til að beina verzl- uniani inn í landið og losa okkur við danska um- umboðsmenn. Nefndiu hefði stórum bætt frumvarp- ið. Gat þess, að einkaleyfi þjóðb&nkans danska til að gefa út seðla væri útrunnið 1908; það væri mik- ils vert, því þá hefðum við ef til vill ekki nema einn banka við hliðina á os3, sem þetta leyfi hefði. Hann áleit máiið glæsilegt bæði fyrir hluthafa og landið. Dr. Valtyr Guðmundsson sagði, að bankinnmundi styðja mjög að óháðri veszlun í landinu. Kaupmenn mundu fá lán í honum til &ð kaupa fyrir vörur sínar erlendis, og við það yrðu þær ódýrari eun ef þeir lánuðu hjá erlendum kaupmönnum. Sömuleiðis mundu menn fá peningaián til að hætta við skulda- veizlunina og vöruskiftaveizlunina. Bankinn mundi auk þess styðja að öllum fram- farafyrirtækjum í landinu. Menn færu að geta not- að fossana til iðnaðar o. fl., og sömuleiðis mundi bankinn styrkja landbúnaðinn og fiskiveiðarnar. Landshöfðingi kvaðst ekki vera neinn bankfræð- ingur og því færi sig að sundla, þegar talað væri um miljónirnar, eins og þm. Rangæínga (S. Á.), enn það kvaðst hann þó sjá, að mikið gagn gæti orðið að þannig löguðum banka; hann gæti gert verzlun- arstéttinni mikið gagn, greitt fyrir öllum viðskiftum, og hann gæti líka, ef til vill, stutt sjávarútveginn og hjálpað ýmsum gagnlegum íyrirtækjum áfram, enn hann áleit ekki, að slíkur banki yrði til mikils gagns fyrir landbúnaðinn; hann yrði til þess, að bændur tæki meira !án og veðsettu enn meira af eignum sínum enn áður. Hann kvað æskilegt, að þingið ræddi málið sem bezt, þótt það yrði ekki útkljáð á þessu þingi, því þá væri hægra fyrir stjórnina að átta sig á því og húa mundi bera það undir bankfróða menn. Enn ef álitið væri, að mál þetta væri svo áríðandi, að ekki mætti fresta því um 2 ár, þá gæti stjórnin kallað saman aulcaþing til að ráða því til lykta. ALÞINGI. Nefndarálitið í hlutafélagsbankamálinu. Það er nú loks komið frá nefndinni, eftir er hún hefir haft marga málfundi með þeim Ludvig Artzea, hæsta- léttarmálaflutningsmanni og stórkaupmanni Alexand- er Warburg. Hafa þessir íörgöngumenn bankastofn- unarinnar tjáð sig fúsa til að nota leyfið til að koma bankanum á fót, þótt ákvæði sé sett i frumvarpið, sem fari í þessa átt: 1. að þegar parasjóður íslandsbanka sé orðinn 1 miljón króna, þá skuli sú upphæð, er samkvæmt

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.