Fjallkonan


Fjallkonan - 09.03.1900, Blaðsíða 1

Fjallkonan - 09.03.1900, Blaðsíða 1
Kemur út einu sinni i viku. Verð árg. 4 kr. (erlendis 5 kr. eða V/t doll.) borgist fyrir 1. júlí (erlendis fyrir- fram). ITppgögn (skrifleg)bund- in við áramðt, ógild nema komin sé til út- gefanda fyrir 1. októ- ber, enda hafi hann þá borgað blaðið. Afgreiðeia: Þing- holtsstrœli 18. XYII. árg. Reykjavík, 9. marz 1900. Xr. 9. Landsbanlcinn eropinn hvernvirkandagkl.il—2.Banka- stjðrnin við kl. 12—1. Landsbókasafnið er opið hvern virkan dag kl. 12—2 og einni etundulengur til kl. 3 md., mvd. og Id. til útlána. Forngripasafnið er nú flutt i Landsbankahúsið og verð- ur ekki opið fyrst um sinn. Náttúrugripasafnið er í Doktorshúsinu, opið á Bunnu- dögum kl. 2—3 e. m. Ókegpis lækning á Bpítalanum fyrsta og priðja þriðjudag hvers mánaðar, kl. 11—1. Ókeypis tannlœkning í Hafnarstræti 16, 1. og 3. mánu- dag livers mán., kl. 11—1. Verð á verzliinarvörum, Með því að Fjallkonan er bænda- blað og verzlunarblað, og flytur fremur öðrum blöðum greinir um verzlun og verzlunarfréttir, er mjög áríðandi, að hún fái sem víðast af landinu dreiðan/egar fréttir um verð- lag á helztu innlendum og útlend- um vörum í verzlunarstöðunum. Því mælisthún til, að góðirmenn víðsvegar um landið sendi henni þess konar skýrslur, og sé þájafn- framt tekið fram, efnokkur mun- ur er á peningaverði og „reiknings- verði“, sem kallaðer, og sömuleið- is, hvort og hve miklar proeentur eru gefnar af skuldlausri verzlun. Þ>eir sem senda skýrslurnar verða að senda mér nafn sitt, en því verður leynt ef þeir vilja. Utgef. Fjallkonunnar. Versta plágan. i. Versta plágan, sem dunið liefir yfir land þetta á síðusta öldum, eru útflutningarnir til Ameríku síðustu þrjátíu árin. Jarðskjálftar, eldgos og Bkæðar sóttir eru ekkert í samanburði við Ameriku sýkina. Það er ekki nóg með það» að hún hefir svift oss meira en */# af allri fólkstölunni í landinu, og að þessi hluti hefir dregið með sér alla þá peninga, sem hægt var að klófesta, út úr iandinu, og flæmt margt af duglegu fólki burtu, heldur hefir þessi sýki gerspilt svo öllum hugsunarhætti þjóðarinnar, að margir þeir sem enn þá hanga hér heima, af því þeir hafa ekki haft ástæður til að kom- ast í burtu, mega heita að standa með annan fótinn hinummegin Atlantshafsins, alveg skeyt- ingarlausir um sitt eigið land og trúlausir á alla framtíð þjóðarinnar, viljalausir og fram- kvæmdarlausir til að sýna nokkra viðleitni sér eða öðrum til gagns, og reiðubúnir að skríða að fótum hvers fyrirlitlegs Ameríku agents við fyrsta tækifæri, gleypandi við fagnaðarboðskapn- um um jarðneska paradís hinummegin hafsins, sem allir geti komiat í og lifað þar um aldur og æfi uudir íífsins tré — ef þeir að eins hafa aura í fargjaldið og óbilandi trú á postulunum. Það hefir nú verið hlé á þessum ófagnaði um nokkur undanfarin ár, vegna vaxandi at- vinnuleysis í Ameríku og sérstaklega eymdar íslendinga þar. Árferðið hefir verið allgott hér á landi þar til nú síðustu árin, og því hafa menn haldið hér kyrru fyrir fremur en áður Ea þegar jarðskjálftar, eldgos, hafís, fiski- leysi og veizinnarbágindi þjaka íslendingum, þá glaðnar yfir íslenzku stjórnarsendlanum í Amerfku. Þá árar vel fyrir þá. Því vóru þeir séra Jón Bjarnason og séra Friðrik Berg- mann ekki lengi á sér að kypja sig á stað, þegar þeir fréttu um óáran hér heima í fyrra. Þá þótti þessum vest-íslenzku postulum timi til kominn, að leggja af stað á mannaveiðar til gamla föðurlandsins, sem þeir elska svo mikið, að þeir gera alt sem þeir geta til að færa það úr fötunum. Þegar þessir blessaðir guðsmenn komu hing- að í surnar sem leið, þá var svo sem uppi fót- ur og fit. „íslenzki biskupinn frá Ameríku er kominn“, sagði fólkið, og surn blöðin kvökuðu alt af „dýrðin", „dýrðin“ meðan þessir guðs- menn létu svo lítið, að vappa um þetta synd- uga land. Fólkið trúði — ekki vóru þeir agentar, ekki styrktir af stjórninni, járnbrauta- félögum eða' „línum“; þeir vóru einungis á skemtiferð til að heimsækja sína elskuðu gömlu ættjörð; það var óhætt að trúa öllu sem þeir sögðu. Og sælir þóttust þeir, sem gátu öðlast þá hamingju, að fela þeim á hendur sod eða dóttur eða eitthvert skyldmenni, til þess að þeir gætu leitt þá á líknarörmunum til fyrirheitna landsins. En þó ólíklegt sé, hefir þó frétst síðan, að ekki hafi rokið neitt sérlega af sælu þessara unglinga í Abrahams skauti í Winni- peg- Eftir það að prestarnir höfðu lagt undir sig landið fór að bera á einhverri óeiru í fóiki einkum um þær slóðir, sem þeir höfðu farið. Ráðnir og rosknir bændur fara að hætta að búa hver um annan þveran; og jarðirnar eru ó- bygðar; sumir óðaisbændur ætla að hlaupa frá jörðum sínum óseldum. Jafnvel einstaka prest- ar fara að prédika um dýrðina og fuilsæluna — í Ameríku. Mest er bröltið í Mýrasýslu, og er nú sagt að þar sé hlaupið frá 10—20 jösðum, og um 20 jarðir eru sagðar lausar í Húnavatnssýslu. Mikið vestanveður er í Hrepp- unum í Árnessýslu, og líkt er sagt ástatt víðar á landinu. Þetta er árangurinn af yfirreið vest-heimsku prestanna, sem fóru með fríðu föruneyti yfir landið og var allstaðar tekið með kostum og kynjum. Hófsemi og bindindi. í norska tímaritinu „For Kirke og Ku3tur“ hefir Kristbfer Bruun, einn af helztu og góð- kunnustu prestum Norðmanna, ritað hvað eftir annað um hófsemi og bindindi, og heldur hann fram þeirri skoðun gegn kinum ströngu bind- indismönnum, að hófsemin sé hin sanna fyrir- mynd. í síðustu grein sinni um þetta efni hefur hann fyrst máls á kenningum biblíunnar um vínnautnina. Hann getur þess, að sumir haldi því fram, að Kristur hafi ekki verið bindind- ismaður eða hvatt til bindindis fyrir þá sök að ofdrykkja hafi ekki átt sér stað á Gyðinga- landi um þær mundir. „Það er víst, að þar hefir verið drukkið hóflegar á þeim tímum en nú gerist á Norðurlöndum. Eu Páll varar oft við ofáti og ofdrykkju, og Kristur áminnir líka lærisveina sína að láta ekki hjörtu sín ofþyng- jast af ofáti og ofdrykkju og áhyggjum fyrir lífinu. Auk þess má víðar finna nægar sannan- ir fyrir því, að ofdrykkja var þar almeimur löstur á þeim tímum. En samt fer svo fjarri því, að Kristur haldi fram algerðu bindindi, að hann þvert á móti tekur það fram sem eftirtakanlegan mismun á sér og fyrirrennara sínum (Jóhannesi skírara), að hann sé sjálfur í þessu sem aðrir menn (Matth. 11, 18. o. s. frv.) Því sætir það furðu, að bindindismennirnir skuli standa á því fastara en fótumim, að hefði Kristurorðið var við drykkjuskap, mundi hann sjálfur bæði hafa orðið bindindismaður og hvatt aðra til að vera það. En það er deginum ljós- ara, að honum var fullkunnugt um víndrykk- juna og að hann var samt ekki bindindismaður. Og þegar Páll segir, að gott sé að forðast að éta kjöt og drekka vín fyrir sakir breyskra bræðra, á hann ekki við þá menn, sem á þann hátt leiðast til ofáts eða ofdrykkju, heldur mein- lætamenn, sem héldu að það væri synd, að eta kjöt eða bragða vín. Hanu varar söfnuðinn við ofdrykkju, en ekki því að bragða vín. Báðir þeir Kristnr og Páll vóru upp aldir við þá skoðun, sem kemur fram í gamla testa- mentinu, að vínið gæti verið vanbrúkað, en að það væri í sjálfu sér góð og dýrmæt guðs gjöf, sem „gleddi hjörtu mannanna“. Þetta geta bindindismenn ekki skilið, og þeim liggur meira að segja við, að véfengja að það sé satt. Og þö að það hafi verið satt í fornöld á Gyðingaíandi, halda þeir því fram, að það sé ekki satt hjá oss og á þessum tím- um. Vínið og áfengir diykkir séu ekki lengur uppspretta ánægjunnar, andagiftarinuar og skáld- skaparins, heldur einungis undirrót þess sem er ilt eða Ijótt. Á fyrri öldum gat vínið verið líka undirrót hins illa. Það má t. d. sjá á spámannabókun- um. Það eru að eins hinir góðu eiginleikar, sem vínið hefir mist á þessum síðustu og verstu tímum. Schiller var ekki neitt sóða-skáld; þó eru til eftir hann drykkjukvæði (,,Punschlied“) fleiri en eitt. Og annað þeirra er að minsta kosti mjög fallegt. G-öthe vegsamar líka vínið. Og ekki var honum alveg varnað að bera skyn á gleði, skáldskap og audagift. Þessir menn vóru uppi á öldinni sem Ieið og í byrjun þessarar aldar. Mun nú þetta alt vera breytt? Ég hefi verið í nokkrum brúðkaupsveizlum hér í Kristjaníu, síðan ég varð prestur, og hefir vín verið haft um hönd í þeim öilum, nægtir af víni. í engri þeirra hefi ég séð drukkinn raann. Þar hefir legið vel á fólkinu; þar hefir verið gleðskapur, fjör, brosandi augu, vingjarn- leg orð. Og ég get ekki borið á móti því, að þessi áhrif og gleði hafa að miklu leyti verið víninu að þakka. Ég hefi líka talað um þetta mál við konur, sem hafa verið í samsætunum. Þær hafa líka ailar verið á því máli, að mikið mundi hafa skort á gleðina, ef vinið hefði ekki verið. Það get ég fullyrt, að það hafa ekki verið konur af lakara taginu, heldur mentaðar og góðar konur. Ég hefi verið einstök sunnudagakveld á sam-

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.