Fjallkonan


Fjallkonan - 23.06.1900, Qupperneq 4

Fjallkonan - 23.06.1900, Qupperneq 4
4 FJALLKONAN. Hjartarson með 9000.— „Valdemar“, eig. Bryn- jólfur í Engey, skipstj. Magnús Brynjólfsson með 22000. Fjársala í lxanst. Omboðsmeun kanpfélag- anna, þeir Zöllner & Vídalín, hafa þegar selt það fé, sem kaupfélögin, sem við þau skifta, munu væntanlega senda þeim í haust, fyrir hæna verð en verið hefir á fé síðan fjársölubannið hófst.— Útlit með fjárverðið munþví vera gott Ferðamenn ýmsir úr fjarlægum héruðum hafa verið hér á ferð að undauförnu, svo sem Júlíus Halldórsson iæknir í Klömbrum, Þorvald- ur prófastur Jónsson af ísafirði með frú og dóttur sinni, séra Hálfdan Guðjónsson á Breiðabólstað í Vesturhópi, er kom hingað með konu sína til lækninga, séra Magnús Helgason á Torfastöðum séra Stefán Stephensen í Austurey, Þorvaldur bóndi Björnsson af Þorvaldseyri, Árni bóndi Sveinbjarnarson frá Oddsstöðum, Ágúst bóndi Heigason í Birtingaholti og fl. Nál. 180 vesturfarar sigldu nú með póst- skipinu, að börnum meðtöldum. Eru þó nokkr- ir eftir hér enn ófarnir og verða að bíða þang- að til Csres kemur. Mannalát. Hinn 9. þ. m. andaðist Þórunn Jónsdöttir (frá Mýrarhúsum Sigurðssonar) kona Þórðar bónda Jónssonar í Ráðagerði á Seltjarn- arnesi, 49 ára gömul, gáfuð kona og gerfileg. Hinn 15. þ. m. andaðist í Engey merkiskonan Ouðrún Pétursdóttir (óðalsbónda í Engey Guð- mundssonar) ekkja Kristins Magnússonar, er Iengi bjó sæmdarbúi í Engey, 82 ára gömul. Bausnarleg gjöf. Einhver góður náungi hefir að sögn sent að gjöf dr. Jóni Þorkels- syni yngra elztu bók íslenzka, Odds Nýjatesta- menti, prentað í Hróarskeldu 1540. Ritstjóri þessa blaðs seldi bók þessa í fyrra útlendu bókasafni fyrir 65 pd. sterling (=1170 kr.), og hefir engin íslenzk bók verið seld fyrir helming þess verðs, auk heldur meira. Aflabrögð í Noregi hafa verið með minna móti á vetrarvertíðinni, t. d. ekki fullar 9 miljónir í Lófót. Cecil Rodes, „Afríku kóngur“, sem kallaður hefur verið, var á ferð í Lundúnum í vor. Hann kom eins og fjandinn úr sauðarleggn- um til Lundúna og jafn-sviplega hvarf hann brott þaðan. Hann varð veikur áður en hann fór að heiman og fekk hann þá orðsending frá Salisbury og Chamberlain um það að hætta sér ekki í svo langa sjóferð, en hannfórsamt og fann ekki til neins lasleika á leiðinni. Þegar hann kom til Lundúna lagðist hann undir eins í influenzu, varð að halda kyrru fyrir og gat við engan mann talað. Hann fekk ekki að tala við nýlendu ráðaneytið eða utanríkisráða- neytið og loks var hann í kyrþ6y látinn vita að honum væri ráðlegast að hypja sig aftur til Afríku og hugsa um sig. Enska stjórnin vildi ein ráða öllu um Búastríðið og honum kæmi það ekki við. Hann fekk ekki einu sinni að tala við Chamberlain, sem er gamall vinur hans. Sá eini maður, sem nokkurs var um vert, sem við hann talaði, var Rosebery lávarður. Það er sagt að hann hafi farið heimímjög illu skapi og muni vilja hefna sín þó síðar verði. Aldur dýra yirðist fara eftir Btærð þeirra. Hvalir og fílar verða allra dýra elztir. Á Indlandi eru fílar, sem hafa gengið að erfðum í 400 ár, og eru einB og nngir enn. Alexander mikli veiddí fíl í austurför sinni og lét marka hann nafni sínu. Hann fanst 350 árum síðar með markinu. — Aldur hvala má ráða af tálknun- um, sem stækka tiltölulega með hverju ári. Hafa verið veiddir hvalir 400 ára gamlir, og vísindamenn hafajafn- vel sagt, að þeir væru ekki fullþroska. Getur vel verið að hvalurinn, sem gleypti Jðnas spámann sé enn á lífi og mætti spyrja Östlund um það. Skjaldbökur verða mjög gamlar. ÍKalkútta er Bkjald- baka, sem er 969 ára, en hún er líka orðin sjðndöpurog minnÍBlaus. Fé á mararbotni. Þegar Bretar og Frakkar börðust við Rússa á Krím, fðrst stórt enskt herskip i Svartahafinu, sem var hlaðið vistum til hersins þar með og ein miljðn krðna í gullpeningum, sem áttu að fara i hernað- arsjóðinn. Skipshöfninni varð bjargað, en engu öðru af því, sem í skipinu var. Nú hefir félag eitt í Genúa af- ráðið, að sækja fé þetta á mararbotn, og hefir það tekið á leigu franskan neðansjávarbát og köfunarmenn til þess að ná peningunum. Vöruskortur hjá kaupmönnum. Eg hefi lengi dregið að svara grein Ólafs verzlunarstjóra Davíðssonar í „ísaf.“, þar sem hann ber á móti því sem eg sagði í fyrra í „Fjallkonunni“ um skort á nauðsynjavörum hjá kaupmönnum. Hann vill sjálfsagt neita því, að nokkur skortur hafi verið á kolum eða steinolíu í Eeykjavik eða á Eyrarbakka í vet- ur eða í fyrra? Hann vill bera á móti því, að tilfinnanlegur skortur á nauðsynjavörum hafi hvað eftir annað átt sór stað í Keflavík Hafnarfirði og Borgarnesi? Hann hefir aldrei heyrt getið um skort á nauðsynjavörum í hinum ýmsu smákauptúnum út um land? Ef hann þekkir ekki til nema á þessum fjórum verzlunarstöðum, sem hann nefnir, þá ferst honum ekki að bregða mór um vanþekkingu. Eg gæti safnað mór hundruðum vottorða úr öllum áttum því til sönnunar, að skortur á nauðsynjavörum hafi oft og víða átt sór stað hja kaupmönnum, einkum hinum útlendu. Eg skal játa það, að eg hefði ekki átt að láta allar útlendar verzlanir eiga óskilið mál, því auðvitað má þar taka ýmsar undan, og eins að eg hefði átt að geta þess, aðinnlend- ir kaupmenn sumir eru heldur ekki áreiðan- legir í þvi, að hafa jafnan birgðir af nauð- synjavöru, en þetta hvorttveggja er öllum kunnugt. Yerzlunarstjórinn nefnir flokk manna, sem níði i ritum og ræðum embættismenn og kaup- menn. Eg þekki ekki þá menn; þeir eru þá liklega í nágrenni við hann. Eða er verzl- unarstjórinn með þessu að láta almenning vita, að kaupmenn (og faktorar?) séu í „ítang“ með embættismönnum? Meiðyrðum Ólafs verzlunarstjóra ætla eg ekki að svara; það ætti betur við fyrir dóm- stólunum, en af því eg er ekki vanur mála- þrasi, mun eg sleppa því,þótt mór finnist rithátt- ur hans miður sæmilegur. Jón Jónsson. mr Fyrir slys hefir „Makt myrkranna“ ekki getað komið út í síðustu bíöðum og getur framhaldið ekki komið fyrri en í næsta mánuði. — í næsta blaði verður framhald af sögu Jóns Steingrímssonar, sem hvergí nærri er lokiðeun. Misprentað í gr. „Fátækramálið“ í síðasta bl., 2. máls- gr.: „yrði milli hreppa“, f. sýslna, og í niðurl.: „en kem- ur fram“, f. en þar k. fr. Vottorð. Eftir að ég hefi brúkað nokkrar flöskur af Kína-Iífs-EIixír frá Valde- mar Petersen, Frederikshavn, finn ég mig knúðan til að gera almenn- ingi kunnugt, að mér hefir talsvert batnað brjóstveiki og svefnleysi og hefi ég þó áður verið þjáður mjög af þeim veikindum. Holmdrup pr. Svendborg. Basmussen, garðeigandi. Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest- um kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixir, eru kaup- endur beðnir að líta vel eftir því, að standi á flöskunum í grænu lakki, og eins eftir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kin- verji með glas í hendi, og firmanafnið Waidemar Petersen, Nyvej 16, Kjö- benhavn. % 1 Tækifæri. Hvergi fá menn eins ódýrt og vand- að saumuð fót sín eins og í Saujnastofunni í liankastræti Þar fást lika alls konar fataefni pantað með innkaupsverði og sent kostnaðarlaust. 5—600 ljðmandi sýnishorn. Giiðin. Sipurðssoii. V, Christensens verzlun hefir Yín Yiudla og Tóbak, beztu tegundir. Ódýr húsgögn (Möbler). Ben. S. Þórarinsson kaupm., Rvík hefir til einkasölu fyrir ágæta, sænska húsgaguaverksmiðju vönduð, afar- sterk húsgögn, svo sem borð, stóla o. s. frv. bæði samsett og ósamsett. Af því vsrðið er svo lágt, eru þau ódýrari samsett en aðrir selja ósam- sett húsgögn. Saltfiskur vel verkaður, stór og smár, og ýsa, verður keyptur í sumar fyrir pen- inga við verzl. „EDINBORG" í Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík. £lí>yei/í Siyuzðsson. Samúel Ólafsson, Reykjavík, pantar nafnstimpla af allskonargerð. Þeir sem vilja gjörast útsölumenn skrifi mér. Yerða þeim þá send sýn- ishorn af stimplnm. í verzlun llafns Sigurðssonar komu nú með „Lau?a“ nýjar birgðir og ný tegund af TÚRISTASKÓM ódýrari en áður. Sömuleiðis nýkomin í sömu verzlun ágæt geitaskiunssverta. V. Christensens verzlun hefir allar nauðsynjavörur og alls konar niðursoðið, bæði Ávexti og Matvæli. Osta og Pylsur, Flesk, reykt og saltað. Snijör og Margarine. íslenzk umboðsverzlun einungis fyrir kaupmenn. Beztu innkaup á öllum útlendum vörum og sala á öllum íslenzkum vörum. Glöggir reikningar, fljót af- greiðsla. Jakob (xunnlögsson, Kjöbenhavn K. Niels Juelsgade 14. Sundmagar vel verkaðir verða keyptir fyrirpen- inga við verzl. „EDINBORG“ í Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík. Ásgeir Sigurðsson. Sundmaga kaupir hæstu verði sem að undanförnu fyrir peninga V. Christensens verzlun, Smiilit kœkur. Eg kaupi: Allar gamlar bækur,sem eru prent- aðar fyrir 1601 (að undanskildri Guð- brauds biblíu) fyrir afarhátt verð. Allar íslenzkar bækur frá tíma- bilinu 1601—1700 fyrir hátt verð. Allflestar bækur frá tímabilinu 1700—1800. Þó kaupi ég ekki sum- ar „guðsorðabækur“ frá Hólum frá síðari hlut 18. aldar. Allflestar bækur frá Hrappsey. Flestar prentaðar rímur (og rímur frá Hrappsey fyrir hátt verð.) Allflestar bækur sem prentaðar eru í Reykjavík fram að 1874. AUar bækur sem Páll Sveinson gaf út í Kaupmannahöfn. Flestar bækur sem prentaðar eru á Akureyri fram að 1862.' Valdimar Ásmundss\>n. Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum ogt hjá dr. med. J. Jónassen, sem einnijg gefur þeim, sem vilja tryggja líf si^.t, allar nauðsynlegar upplýsingar. „F j ö 1 n i r“. 6. árgang af „Fjölni kaupi (|g háu verði. Vald. Ásmundsson\ Útgefandi: Vald. Ásmnndarsqn. Félagsprentsmiðjan.

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.