Fjallkonan


Fjallkonan - 19.01.1901, Page 4

Fjallkonan - 19.01.1901, Page 4
4 FJALLKONAN Öldin obb yekur ei til værðarfriðar. Ung er hún sjftlf, og heimtar starf án biðar. Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið, boðorðið, hvar sem þér í fylking standið, hvernig Bem atríðið þft og þá er blandið, það er: að elska og byggja og treysta á landið. Þá mun sá gnð, er veitti frægð til forna, fðsturjörð vora reisa endurborna, þft munu bætaet harmasár þess horfna, hugsjðnir rætast. Þá mun aftur morgna. H. H. Druknun. Á gamlársdag fanst örendur við bryggj'una á Akureyri Grísli Benediktsson ljósmyndasmiður. „Hann hafði horfið að heiman um nóttina og stytt sér stundir af ásettu ráði, leiður á lifinu og saddur lífdaga, þótt ungur væri. Hann var ekki alls fyrir löngu orðinn holdsveikur. — Var efnismaður mesti og hvers manns hugljúfi“. Hettusótt hefir gengið á Vesturlandi í vetur, í ísafjarðarsýslu og líklega víðar, á börnum og unglingum, en verið fremur væg; hefir batnað eftir 3—4 daga. Hannalát. 24. des. lézt úr lungnabólgu Jónatan bóndi Stetánsson á Miðvöllum í Skaga- firði, efnilegur bóndi. — 25. des. lézt Jón bóndi Jónsson á Stóruseilu í Skagafirði. Skagafjarðarsýslu, 31. des. Hér hefir verið bezta tíð síðan í nóvember og snjólaust. — Fiskafli hefir verið fram að jólum og mun vera enn ef reynt væri. — Mjólkursamlagsbú eru nokkrir bændur að hugsa um að stofna hér á næsta vori. Hér utan til í sýslunni hagar mjög vel til að geta komið því á, ef ekki vant- aði félagsskap og íé, og landssjóður á þar marg- ar jarðir, sem hentugar eru til þess og ætti því að styrkja fyrirtækið. — Vegi hér í sýslu halda menn að Skagfirðingum verði um megn að gera færa og halda þeim við án styrks af landssjóði, því nú eru stórir kaflar á vegunum alveg eyðilagðir eftir haustrigningar. — Nýtt timburhús hefir nú Sveinn bóndi Árnason á Felli bygt sér í stað þess er brann í haust. — Til Ameríku er sagt að ætli sér á næsta vori Þor- steinn bóndi Hannesson á Hjaltastöðum og ein- hverir fleiri. Húnavatnssýslu (norðanv.), 3. jan.: Árið sem leið hefir verið mjög gott til lands og sjávar. — Fiskafli hefir verið stöðugt, og nú skömmu fyr- ir jól fengu Nesjamenn 16 í hlut af vænum fiski. — Skepnuhöld hafa verið góð. — Verzl- unin amar helzt að. Húu virðist lítið batna; þó má geta þess, að fjártaka hefir veríð góð og blautfisksverð ágætt, en aftur hækkuðu margar útlendar vörur að mun, svo alt er í sama far- inu. Nokkur bót var þó að vörusendingum frá Thomsens verzlun í Keykjavík fyrir þá sem skiftu beint við Ó. Hjaltesteð, en varla reynist eins vel að skifta við Þorstein Bjarnason, sem byrjaði að verzla hér síðastliðið sumar. — Kaup- félag Húnvetninga hjarir enn. Strandasýslu, 4. jan. Veturinn hefir verið ágætur, það sem af er. Eina stórhríð gerði 18. nóv., og er sá bylur merkilegur að því leyti, hve mörgum hestum hann varð að bana; fórust 20 hér í sýslunni, og eru ekki dæmi til þess hér, að svo margir gripir hafi farist á einum degi. Sjógangur var óvenjumikill þá, og hefir svo verið oftar í vetur, og er það álitið merki þess, að hafís sé eigi í nánd. Isafjarðarsýslu, 1. janúar. Tíðin hefir verið óstöðug síðan í haust, einkum til sjávarins, og því hefir verið sjaldgjöfult. Snjólítið er og befir verið; jörð að öðru hvoru fyrir sauð- fé, en hestar hafa gefið sér úti, og lítur því vel út með heybirgðir manna. — Fiskfátt var fremur við út-Djúpið, en fór að lifna með jólaföstunni, og hefir verið góðafli síðan, svo að stöku menn hafa fengið undir hundrað króna hlut, sem hafa látið blautfisk, en þeir eru þó örfáir. Er því gott útlit fyrir afla, ef veðrátta ekki hamlar, og menn hafa beztu vonir um að guðsmaðurinn í Þjbðviljanum þurfi ekki að hælast um og gera gaman að fiskleysinu við út-Djúpið; nóg hefir hann að hugsa samt. Monn vona eftir umboðsmanni Wards smáfiskskaupmanns (Jóhannesi Péturs- syni) með miðsvetrarferðinni, og uppbót þeirri, sem lofað var á fiskinum í vor. Akureyri, 2. jan. Sjónleikar. Hér vóru leiknir tveir gamanleikar fyrir jðlin; ieikhús er hér allstórt, en ekki þægiiegt, hvorki leikendum né áhorfendum. Allir léku leikendurnir vel og sumir mjög vel, t. d. Gísli BenediktBSon (dáinn) og frk. Sigríður Thorlacius. SíðaBta kveld aldarinnar og hið fyrsta þeirrar nýju var leikinn nýr leikur og fagur eftir skáldið Matthíaa Jochumsson. Leikur þessi er í einum þætti og heitir „Aldamótin". Það er að mestu ljóðleikur með einsöng- nm og samsöngum, og eru þar Býndar i kyngervi (per- soniíication) nýja óg gamla öldin, trúin, vonin og kær- leikurinn o. fl. Leikurinn er fagur og áhrifamikill, ekki sizt á leiksviði, enda var hann snildarlega leikinn og búningar á sviði og leikendum hinir beztu. Frú Hall- dóra Yigfúsdóttir lék gömlu öldina, og tókst mæta vel. Bezt léku auk hennar frk. Blín, dóttir höfundarins, og frk. Svafa Jónsdóttir. Á eftir leik séra Matthíasar las frú Anna Stephensen upp „Nýársósk Fjallkonunnar“ eftir Matth. Jochumsson, og á eftir var snngið „Ó, guð vors lands“. Kórsöngurinn var ágætnr, og lék frk. Sigríður Sigurðardóttur undir á harmoníum af mikilli list. Þetta var helzta hátíðahaldið, en auk þess má telja mesBugerðirnar og brennu, sem höfð var úti á Oddeyri, stór og voldug; auk þess var farið með fjölda skraut- legra flugelda og skotið af fallbyssum. G. G. 14 Bankastræti 14, Hér með tilkynnist heiðruðum almenningi og viðskiftavinum, að saumastofan mín hefir mikið af fataefuum og öllu, er til fata heyrir. þannig manu menn fljótt sannfærast um, ef þeir verzia við ham, að engin vinnustofa hér á landi býður betri kjör á NÝJU ÖLDINNI. Jafhframt skal það tekið fram, að eg geri alt, sem í mínu valdi stendar tíl þess að vinnan sé vel og vandlega af hendi leyst, og svo fljótt sem framast er unt. Yinnan verður rekin með hliðsjón af fyrsta flokks sniði og tizku erlendis, af vel æfðu fólki. — Alt til að fullnægja sem bezt viðskifta- vinum. Pantanir afgreiddar á styztum tíma, 12—24 kl.stundum. Guðm. Sigurðsson, klæðskeri. förnu, og kosta frá 40—80 aura. Bríet Bjarnhéðinsdóttir. O fyrstu árgangana af Kvenna- blaði kaupi eg fyrir upphaf- legt verð, ef þeir eru í góðu útliti. Bríet Bjarnhðinsdáttir. Til auglýsenda. Þeir sem aug- lýsa í „Fjallk.“ verða að tiitaka það um leið og þeir auglýsa, hve of auglýsingin á að standa í blaðiau. G-eri þeir það ekki, verður hún látin standa á þeirra kostnað þar til þerx segja til, Ný sniö af allskonar kvenfatnaöi og barnafatnaði eftir allra nýj- ustu tízku fást nú hjá mér, eins og stööugt að undan- Þiiskipa sjómenn geta ætíð fengið koffort leigð hjá Samúel Ólafssyni, Laugaveg, 63. Vottorð. Þegar eg var 15 ára að aldri fékk eg óþolandi tannpínu, sem sem eg þjáðist af meira og minna í 17 ár; eg hafði ieitað þeirra lækna, allopathiskra og homöop&thiskra, sem eg gat náð í, og að lokum leitaði eg til tveggja tannlækna, en það var alt jafn-árangurslaust. Eg fór þá að brúka Kína-lífs-elixír, sem búinn er til af ValdimarPeter- sen í Friðrikshöfn, og eftir er eg hafði neytt úr þremur flösk- um varð eg þjáningarlaus og heíi nú í nær tvö ár ekki fuDdið til tannpínu. Eg get af fullri sannfæringu mælt með ofan- nefndum Kína-lífs-elixír herra Valdimars Petersens við alla, sem þjást af tannpínu. Hafnarfiiði. Margrét Guðmundsdóttir, ljósmóðir. Kína-lífs-elixírinn fæst hjá ílestum kaupmönnum á íslandi án nokkurar tollhækkunar, svo að verðið er ekki nema eins og áður 1 kr. 50 au. flaskan. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-Iífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta veleftir því, að Y' standi á flöskunum í grænu lakki, ogeins eftir hinu skrásetta vörumerki á flösku- miðanum: Kínverji með glas í hendi, og firmanafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, KjöbenhavD. Gamlar bækur. Ég kaupi: Allar gamlar bækur, bæði inn- leudar og útlendar, sem eru prent- aðar fyrir 1601 (að undanskildri öuð- brands biblíu) fyrir afarhátt verð. Allar íslenzkar bækur frá tíma- qilinu 1601—1700 fyrir hátt verð. Ailflestar bækur frá tímabilinu 1700—1800. Þó kaupi ég ekki sum- ar „guðsorðabækur“ írá Hólum frá síðari hlut 18. aldar. Allflestar bækur frá Hrappsey. Nálega allar prentaðar rímur (og rimur frá Hrappsey fyrir hátt verð). Allflestar bækur sem Páll Sveins- son gaf út í Kapmannahöfn. Fíestar bækur veraldlegs efnis sem prentaðar eru á Akureyri fram að 1862. Valdimar Ásmundsson. Útgefandi: Yald. Ásmnndsson. Félagsprentsmiðjan. \ 1

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.