Fjallkonan - 23.11.1901, Side 2
2
FJALLKONAN.
íslands ráðgjafinn, Alberti, er eigandi
danska blaðsins „Dannebrog". Ritstjóri þess
blaðs, Secher, er nú líka gerður að riddara af
dannebrog.
Stýrilegt loftfar. Santos Dumont, verk-
fræðingur írá Brasilíu, i París, hefir nú buið
til loftfar og getur stýrr því. Þó eru enn
einhverir gallar á stjórninni. Hann hefir samt
fengið verðlaun þau, sem heitin voru þeim,
sem fyrst gerði stýrilegt loftfar, 100 þúsund
franka.
Dáinn er Oarl Friðrik Tietgen, einn af
merkustu mönnum Dana, fæddur 1829 i Óðins-
vóum. Langmestur framkvæmdamaður Dana
á næstliðinni öld; stofnaði prívatbankann 1857,
hið sameinaða gufuskipafólag 1866, hið stóra
norræna telegraffólag 1868, reisti Marmara-
kirkjuna í Kaupmannahöfn úr rústum o. s.
frv.
Jarðarför hans fór fram með mikilli við-
höfn frá Marmarakirkjunni. Fylgdi honum
konungur til grafar og margt stórmenni.
Játvarður Bretakonungur ætlar að láta
krýna sig að vori með mikilli dýrð og við-
höfn Er konungurinn nú að senda út boðs-
bréf til allra þeirra þjóðhöfðingja, sem boðn-
ir eru til krýningar-hátíðarinnar.
Morðingi Mac Kinleys, Czolgoss, var tekinn
af lífi með rafmagni, eins og siður er til i Banda-
ríkjunum. Hann varð vel við dauða sínum,
en sýndi engin iðrunarmerki. Hann kvaðst
hafa drepið Mac Kinley af því hann hefði
verið óvinveittur verkmönnum.
Færeyingar kvarta mjög yfir því, hversu ó-
fullkomnar samgöngur þeirra séu við önnur
lönd, og hafa þeir þó miklu tíðari samgöngur
en íslendingar, þar sem Færeyingar senda iðu-
lega sín eigin skip til Skotlands. — Nú ætlar
hvalveiðamaður að koma á stöðugum gufuskipa-
ferðum milli Þórshafnar og Kaupmannahafaar,
og teija Færeyingar það bót á „mjögóregluleg-
um samgöngum“, sem þeir hafi nú.
En íslendiigar gera sig harðánægða með að
vera alveg útilokaðir úr heiminum tvo mánuði
af árinu.
Hverju mun stjórnin svara?
Nú má vænta þess, að með uæstu póstskips-
komu í lok þessa mánaðar fái þjóðin svar stjórn-
arinnar í stjórnarskrármálinu.
En hverju mun hún svara?
Á því getur lítiil efi leikið.
Hún mun gefa íslendingum kost á þeirri
stjórnarbót, sem felst í frumvarpinu, sem sam-
þykt var í sumar. Þó flokkur sá sem reisupp
móti því á þinginu, teldi það i þinglokin óhaf-
andi, og kallaði þá aila landráðamenn, sem því
fylgdu, höfðu ýmsir menn úr þeim fiokki áður
viljað sætta sig við þá stjórnarbót og væri hægt
að benda á nöfn þeirra. Það má því telja víst,
að gefi stjórnin ekki kost á meiri umbótum að
sinni, þá muni allir skynsamir menn verða á
eitt sáttir, að láta sér þetta nægja í bráðina, og
reyna þá síðar til að fá fullkomnari stjórnar-
skipun, þannig að sérmáiastjórn vor sé alinn-
lend og hluttöku vorri í stjórn hinna sameigin-
legu mála betur fyrir komið en nú.
En gera má líka ráð fyrir því að stjórnin
segi:
„Efri deild alþingis hefir getið þess i ávarpi
sínu til konungsíns, að hin íslenzka þjóð hafi
aldrei verið fyllilega ánægð með það fyrirkomu-
lag sem bygt er á þeim skilningi á sambandi
Danmerkur og ísiands, sem hingað tilhefirver-
ið haldið fram af stjórninni. — Nú heldur
stjórnin ekki lengur fram þeim skilningi, og
vill því veita íslendingum frekari réttindi en í
frumvarpinu eru fólgin, ef þeir æskja þess.
En með því að íslendingar hafa ekki ákveðið,
uverjar umbætur þeir vilji fá fram yfir þær
sem frumvarpið felur í sér, getur stjórnin að
svo stöddu ekkert sagt um það mál“.
Stjórnin mun auðvitað ekki taka til neinna
greina óskir þær sem komu fram í 10 manna
frumvarpinu, um að ráðgjafarnir væru tveir,
enda er svo að sjá á blöðum þess flokks, sem
hann sé fyrir löngu hættur að halda fram þeirri
stjórn. Og munu þeir játa, að alt þeirra strit
með þetta frumvarp á þÍDginu hafi verið van-
hugsað. En hvert er prógram þeirra nú? [Það
er almenningi ekki kunnugt fremur en vant
er.— Þeir eru alt af prógrams-lausir. — Nú
eru þeir að tala um einn ráðgjafa, eem sé bú-
settur í Reykjavík; það fyrirkomulsg er auð-
vitað einfaldast og fyrirhafnarmínst, þvi það
er ekki annað en landshöfðinginn ,breyti um
nafn og nefnist ráðgjafi. En með því fyrir-
komulagi væri stjórn vor komin í enn meira
óefni, en hún nú er í, þar sem auðsjáanlega
vantaði þann millilið, sem ekki verður hjá
komist við hlið konungs, svo að ríkisráðið hlyti
aðtaka sérjafnvel frekari völd í málum vorum
en það hefir nú.
Báðar þessar tillögur minni-hluta manna eru
óhæfar, og auðsjáanlega gerðar til þess að spilla
fyrir framgangi málsins, spilla fyrir því að
vér fáum fullkomna innlenda stjórn. Yér vit-
um ekki nema stjórnin kynni að vera fús á að
veita okkur samskonar stjórn og lýðlendur
Breta hafa; það væri alinnlend stjórn, fullkom-
in þingræðisstjórn. Það væri eitthvað annað
en þau stjórnskipulegu afskræmi, sem aftur-
haldsiiðið hefir verið að ota fram á þessum
síðustu og verstu tímum.
Þess má geta, að i fólksþinginu danska hefir
komið fram fyrirspurn (frá Krdblé) til íslands
ráðgjafans, Alberti, um það, hver svör stjórnin
mundi veita ísiendingum um stjórnarskrár-
málið. Hafði ráðgjafinn svarað á þá leið, að
stjórnin mundi verða við óskum íslendinga, að
svo miklu leyti sem þær kæmu ekki í bága
við sambandið milli íslands og Danmerkur.
Meira er enn ekki kunnugt, og er líklegt að
stjómin gefi ekki neitt annað svar að svo
stöddu.
ISLENZKUR SÖGUBÁLKUR.
Æfisaga Jóns Steingrímssonar,
prófasts og prests að Prestsbakka.
[Kftir eiginhandr., Landsbókas. 189, 4to.]
Hann (Magnús^ Ólafsson) átti hjá mér 4rd.; pá gaf
hann mér npp og þar til 4 fjórð. smjörs, og hefir þar
fyrir öngan betaling þegið. Hann hefir og langt nm
fleiri þénnstnr síðan gert mér í verki, viðurgerningnm,
ráðum og útréttingum, sem hann hefir að öngn reiknað
né viljað betaling fyrir, þó eg hafi hann framboðið.
Fnndið hefi eg og einstökn mann af fátæku bændafólki,
sem*ei hafa slitið sína trygð við mig. Við sjó. átti eg,
þá eldurinn kom yfir, rúman hundraðs hlut, so nú varð
eg alt að kaupa, sem eg með 14 mönnum áttom af að
lifa ogjjótal er að kom til og frá, hvað mig víst kostaði
140 rd., sem eghefði ei fyrr né annars kunnað að trúa,
nema reynt hefði. Um hanstið sendi eg tvo vinnumenn
mina út á Eyrarbakka með sjö hesta undir mat, er eg
þar tók og lagði þar í hendur þeirra. Þeir vórn
9 viknr á þeirri leið. Enginn kom hesturinn lif-
andi aftur af þeim er þeir með fórn, heldur aðrir til
láns eður kaups, hverir 9'hestar, allir aftur drápust um
vetnrinn. Miklu höfðu strákar: þeir eytt af matnum og
það heim komst skemt og fordjarfað. So varð þá alt að
óhamingju, og heimamenn þeir verstu. Eg tók þræla
þessa aftur í sátt, þó þannig léki mig út, hvað aldrei
skyldi þó verið hafa.g Qerði þá til sjós, en sagði þeim
að vista sig eftirleiðis annarsstaðar, hvað þeir gerðn, þó
ei til langgæðrar lukku, sem ei var von. Þoir dóu i
hungri og vesöld síðast.
MadameMálmfríðurBrynjólfsdóttir, ekkjaprófastsSra Jóns
Brynjólfssonar, míns forna vinar, kom upp á mig þetta
haust og sálaðist bjá mér um Jónsmessn Ieytið árið eftir.
Rægðu öfundsjúkir mig og bræður hennar saman um
eigur þær og fatnað, sem hún hafði til mín flutt. En
nrðu að renna niður þeirri lygi, þá skilagrein á öllu
var með órækum vitnum og bevísingum sýnd. Umferð
fólksins var svo mikil, að aldrei kom sú nótt, að ei
væru að komandi 7 menn og þar yfir. Það var stór
kraftnr guðs, að eg skildi við hús og búskap haldast.
So var matvælum niður raðað, að 1 mörk smjörs skyldi
vera handa hverjum manni í viku, sem nægði þá af
öðru var nóg. Ef við fengum að mjólk, þá létum við
fjögur, kona mín, Málmfríður, Helga dóttir mín og ég
okkur mörkina nægja í fjögur mál saman við tevatnið,
er við hlutum að drekka. So komst vani á að drekka
vatnið, að það fanst sem sætur drykkur, en það leiddi
þó meiri ólyfjan eftir sig en eg frá megi segja. Eg
heyjaði um sumarið hér af túninu hér nm 30 hesta, sem
eg ætlaði einni kú, en hún drapst út frá því, en einum
hesti, er ég að keypti um hanstið, hélt ég við á því; var
hey þetta so vont, að væri því kastað á eld, var líkur
reykur og logi af því so sem af sjálfnm brennisteininnm.
Þó lifði þessi hestur á þvi, því hann var sá eini hestur,
sem hér á Síðunni var lifandi eftir og í bnrðum að bera
lík til kirkjunnar. Níels Hjaltalín og Þórunn Jónsdóttir
kona hans buðu mér að taka af mér Katrínu dóttur
mína, hvað eg þáði. Velnefnd Þórunn hafði verið hjá
mér til lækninga áður. — So fór að Jórunn dóttir min
varð og á þeim bæ, hvar þau bjuggu, sem var í Hlíðar-
húsum á Seltjarnarnesi. Hafði þar hvor skemtun af
annari á þeirri sorglegn tíð.
Áður/áminst snmar, hanst og vetnr, sem eldsins ógn
mest yfir geisaði, gekk hér soddan umbreyting á í öllu,
að eg get þar ei orðum að komið. Hér var flótti fólks
til og frá. Þar einn þorði ei vera óhultur vegna elds
yfirgangsins, þangað flýði hinn annar, og so burt hingað
og þangað, alt vestur nm Gullbringnsýslu. Mátti eg vak-
inn og sofinn vera að hjálpa þeim með ýmislegt, gefa
þeim, geyma fyrir þá ete. En allra helzt telja þeim trú
og hughreysta þá, og þá aðrir prestarnir flýðn, beiddn
margir mig í guðs nafni að skilja ei við sig, því þeir
höfðu þá trú, að ef eg væri hér kyr, biðjandi guð fyrir
þeim, þá mundi hér eldurinn öngum bæ né manni granda,
og það skeði so. Eg fór svipsinnis vestur í Mýrdal;
á meðan tók eldnrinn einn bæ af sókn minni og fordjarf-
aði mikið hinn annan, en helzta orsök mun þó hafa ver-
ið sundurlyndiseldur, er framar var áðnr og undir það
á þeim bænm en öðrum í minni sókn. Þá tók eldurinn
að færa sig fram eftir árfarveginum, að ei sá annað fyr-
ir, en hann ætlaði kirkjnna og so að eyðileggja. En
þar hann var á fullri framrás í afhallandi farveg stefndi
(hann)á klaustrið og kirkjuna sérdeilislega. Einn sunnudag,
o: þann 4ða eftir Tr., embættaði eg í kirkjnnni, sem öll
var í hristingu og skjálfta af ógnum þeim er að ofan
komu, en so var eg óskelfdur, og eg ætla allir þeir er í
kirkjunni vóru, að vér vórum ljúfir eg reiðubúnir að taka
á móti því sem guð vildi. Var þá guð heitt og í al-
vöru ákallaður. Enda hagaði hans ráð því so til, að
eldurinn komst ei þverfótar lengra en hann var fyrir
embættið, heldur hrúgaðist hvað ofan á annað í einum
bunka. Þar með komu ofan á hann öll bygðarvötn eður
ár, sem kæfðu hann i mestn ákefð. Einum guði sé æra!
Og enn fleiri dásemdarveik veitti guð sínum börnum
fyrir andaktuga bæn. Eg hlaut öllum mínum bænnm
og prédikunum so að haga, sem tíminn nú útheimti;
helzt hlaut eg að kenna, að guð gerði alla hluti vel og
ei óréttvíslega, að mönnum byrjaði að ákalla hann og
líða þolinmóðlega það hann álegði; hann vissi betur en
menn, hvað þeim væri gagnlegt; að hann gæfi þeim eilíft
líf, er hann vissi tilreiddir væru etc. So hversu (sem)
sumir vóru gramir og illa, já, óguðlega talandi fyrst (er)
þeir rnku, æddu og létu verst, so auðmjúkir og þolgóðir
urðu flestallir síðast. Ágirnd og þjófnaður rýmdist
næsta torveldlega í burt frá fleirum en menn áður þektu.
Var það ein ólukka í landinu, að þjófar vóru frómir
sagðir! Eftir því sem kom að jólum og á veturinn leið
tók fólk að deyja í pest og hungri, so það ár dóu í
sókn minni hér 76 manneskjur af hungri og eldsins verk-
unum, blóðsótt og þess kyns. Hlaut eg nú alla tíðina
að ganga og ljá (þann) eina hest minn að bera líkin til
kirkjunnar, því akfæri gafst ei. Þá varð að safna líkum
saman þar til á sunnudaga, og grafa þá 8 og 10, stund-
um fleiri, í einu. Því mannfólk var ei fleira en því
varð öllu að safna til í hvert sinn, að taka grafir
og berja klaka, og varð því af máttleysi þess að láta
marga i eina gröf og út undir jarðveginn á báðar síðnr.
Á útmánuðum voru dagstæðar sex vikur, sem eg stóð
ei við, né fór úr íötunum, nær helzt að segja nótt og