Fjallkonan - 16.09.1903, Side 2
146
FJALLKONAN.
Vér stöndum nú á hættulegum
tímamótum. Eyðileggingin voflr yfir
sveitunum, og þar af leiðandi yflr
þjóðerni voru. Ilelzta ráðið til að
afstýra þessu er, að þjóðin sé vakin
til að rækta og elska landið, til að
treysta sjálfri sér og landinu sínu;
vakin til þess að læra að bera virð-
ing fyrir sjálfri sér, tungu sinni og
þjóðerni; vakin til brennandi áhuga
á því að skila landinu betur ræktuðu
til eftirkomendanna en hún tók við
því. Til þessa verður að knýjafram
alla góða krafta, og nota öll rétt
ineðöl. Takist það, þá er það engum
vafa bundið, að á síðara hluta þess-
arar aldar og á næstu öld blasa fyrir
þjóð vorri bjartari og betri kjör, en
fyrir flestum öðrum þjóðum.
En þetta fæst einungis með því,
að menn vilji vinna fyrir landið og
eftirkomendurna, og til þess er þegn-
skylduvinnan góður spori.
Máls þessa mun betur minst síðar
hér í blaðinu.
Úr Skagafirði er skrifað 15. ág.
Tíðin góð framan af slættinum; svo
gerðinorðan kulda-storma og þurklítið.
Nú eru komnir óþurkar.
Grasspretta í meðaliagi víðasthvar;
en fólksfæðin heftir heyskapinn ásamt
óþurkunum.
Síldar- og fiskafli hefir verið góður
hér á firðinum, þegar geíið hefir á
t sjó; en nú um tíma gæfta lítið vegna
ýnorðan stormanna, en afli helzt
norður hjá eyjum.
Kaupmenn taka hér fiskinn blaut*
an upp úr sjónum og gefa 8 aura
fyrir pundið í ísunni, 4 aura í und-
irmálsfiski og 5 aura í þorski. Hvít
ull er hér borguð með 55 aurum
pundið; sagt, að hún sé 65 á Akur-
ureyri. Pöntun var hér með meira
móti og er útlit fyrir, að margir
bændur viiji fara að brjótast undan
kaupmanna-farginu. Fyrir nokkrum
tíma kom skip með timburfarm til
pöntunaríélagsins; var viður sá all-
góður og er að mestu uppgenginn.
Búist er við, að haustverzlun verði
ekki góð hér i kaupstöðum, því lítii
eftirspurn kvað vera eftir keti; enda
gefa kaupmenn ekki góðar vonir um
ketverð í haust.
Heilsufar manna má heita gott;
læknir okkar fór norður á Akureyri
til að fá bót á meini sínu.
Árnessj'slu (ofanv.) 3. sept. 1903.
Tíðarfar. Veturinn var með harð-
ari vetrum, frá jólum. Þó afklædd-
ust skepnur vel, þrátt fyrir það þó
margur sparaði hey við skepnur sín-
ar; nú sást, að betri eru 2 hestar af
grænu og þuru heyi en 3 af illa
hirtu. Vorið var fremur kalt og
vætusamt, grasvöxtur með betra
móti, sérstaklega á útengi. Síðan
sláttur byrjaði, hefirmátt segja stöð-
ug þerritíð (norðanátt), en köld hefir
tíðin verið, frost á nóttu, kafaldsbyl-
ur á fjöllum. Útlit er fyrir, að hey-
afli manna verði með betra móti,
sérstaklega niður í sveitum.
Framíarir. Með- framförum «má það
kallast, að einstöku bændur eru að
girða engjar sínar með vírgirðingum,
grjótgörðum og skurðum.
Framfarahugur. Komið hefir mönn-
um til hugar, að setja girðingu milli
Flóamanna-afréttar og bygðar-landa
Gnúpverjahrepps, inilh' Þjórsár og
Laxár. En hér þarf meira en lítið
fé til. En hversu afarnauðsynlegur
sá garður væri, geta menn ekki gert
sér í hugarlund fyr en reynzlan sýnir
það, bæði fyrir Hreppamenn og Flóa.
Fyrir Hreppamenn, að veija málnytu-
peningþeim usla, sem géldfé gerir«á
sumrin, og fyrir Flóamenn, að verja
geldfé sitt hundrekstri. Því þótt
Flómanna-afréttur sé fremur lélegur,
þá er hann þó betri skepnum þeirra
en búfjárlönd Hreppamanna.
Heilsufar. Heilbrigði manna yfir
höfuð, hefir verið með lakara móti.
Kíghósti hefir verið hér bæði í börn-
um og fullorðnum.
Slys. Kvenmaður druknaði í bæj-
arlæknum í Tungufelli i Ytri-hrepp.
Hún hét Guðlaug Eiríksdóttir frá
Fellskoti í Biskupstungum. Hún var
kaupakona hjá bóndanum í Tungu-
felli, en til heimilis í Bræðraborg á
Stokkseyri; hafði hún ætlað að fara að
þvo sokka, en var að sögn slagaveik;
hefir liún að líkindum fengið slag og
dottið í lækinn, og verið önduð áður
en slagið var runnið af henni.
Nýlátinn er Magnús bóndi Einars-
son frá Miðf eili í Hrunamannahreppi;
dó úr innanveiki. Hann lætnr eftir
sig ekkju og 4 börn í ómegð.
Itangárv.sýslu (ofan til) 8. sept. ’03.
.... Ekkert merkilegt að frétta.
Tíðin alt af þur og köld og rykugt
loft og láð; aíar-harðslægt og hey-
skapur okkar, harðlendismannanna,
með stirðara og minna móti. Vegna
hinnar afar-þuiu veðráttu sumarið
yfir hefir málnyta verið með minna
móti og borið á slæmsku í kvíaám
að mun, svo að sumstaðar hefir jafn-
vel drepist. Kenna menn um óholl-
ustu á grasi og setja í samband við
gosið í Vatnajökli.
Heilsufar yfirleitt gott.
Yanalegan ársfund héldu prest-
arnir í Árnesþingi að Þingvöllum
priðjudaginn 1. þ. m. Komu á fund-
inn allir prestar prófastsdæmisins
nema 2. Þar að auki komu áfund-
inn: Uppgjafaprestur Ingvar Niku-
lásson, fyr á Gaulverjabæ, cand. theol.
Ástvaldur Gíslason og séra Ólafur Ól-
afsson, ritstj. Fjallkonunnar.
Helztu málin, sem kom til umræðu
á fundinum, voru þessi:
1. Kristindömsfrœðsla ungmenna.
Vald. próf. Briem las upp kristilegan
barnalærdóm í ljóðum, sem hann
hafði ort. Urðu um hann 1 sambandi
við kristindómsfræðsluna allmiklar
umræður. Fundarmenn luku lofsorði
á ritsmíð þessa og óskuðu, að hún
kæmi á prent.
2. Heimatrúboð. Candidat Ást-
valdur Gísiason flutti mál þetta inn
á fundinn. Urðu um þaðlangar umræð-
ur, sem þar að auki hnigu að allri
starfsemi presta og andJegu lífi safnað-
anna hér á landi með göilum þeim,
er á því þóttu vera.
3. Húsvitjanir^ Prestarnir bund-
ust samtökum um, að leitast við að
gera þær ávaxtasamari og uppbyggi-
legri en verið hafði.
4. Heiðingjatrúboð. Fundarmenn
lýstu yfir skoðun sinni, að þeim þætti
oss íslendingum ekki fært að sinni,
að styrkja heiðingjatrúboð með fjár-
framlögum. Ótal margt hjá oss sjálf-
um stæði nær að styrkja, ef vér
værum einhvers megnugir. Hinsveg-
ar vildu þeir, að almenningur fengi
meiri og skýrari þekking á því má.U,
en hann hefði nú.
5. Lestrarfélag presta í Árnes■
þingi. Gamlar bækur voru seldar,
nýjum úthlutað til lesturs og umburð*
ar og ráðstafanir gerðar til nýrra
bókakaupa.
Fundurinn hófst aflíðandi hádegi
á þriðjudaginn, en lokið var honum
einni stundu eftir dagmál daginn eftir.
— Vér færum prestunum í Árnes-
þingi kveðju vora með þökkum fyrir
ánægju þá, er vér nutum í hóp þeirra
á fundinum.
GuðsþjénusSu undir berum himní
héldu Vestmanneyingar nýl, og er
Fjallkonunni ritað um það á þessa
leið: Sunnudaginn 23. ág. varhaldin
guðsþjónusta undir berum himni í
Herjóifsdal samkvæmt beiðni safnað
aðarins. Síðan öndverðl. í júnímán-
uði hefir engin messugerð fram farið
í prestakallinu, af því að verið er að
endurbæta kirkjuna; eyjarbúar eru
yfir höfuð kirkjukærir og una því illa
við messuleysi; en af því að engin
stórhýsi eru hér til, er rúmi mikinn
mannfjölda, varð guðsþjónustan fram
að fara undir berum himni. Athöfnin
var fólgin í sálmasöng ogræðuhaldi;
ræðutexti Lúk. 10, 38-42. Mikill
mannfjöldi var þar saman kominn,
og eigi færra fólk en á þjóðminning-
ardeginum. Sýnilegur friðarblær hvíldi
yfir mannfjöldanum, meðan ræðan
var flutt og þögðu allir „þunnu hljóði."
Mundi guðrækni vor bíðanokkurn
hnekki við það, að prestar landsins
tækju það fyrir endrum og sinnum,
þar sem því verður viðkomið, að
prédika undir berum himni á fögr-
um stöðum og í fögru veðri? Það
guðshúsið er þó veglegast og hátign-
ariegast, sem ekki er með manna-
höndum gert. —
Utflutningui* á sméri
verður mun meiri nú en í fyrra. —
Nú (13. sept.) er komið til geymslu
hér í íshúsið:
Frá Arnarbælisrjómabúi 48 kvartél.
— Yxnalækjar — 40 —
— Hjalla — 34 —
— Torfastaða — 68
— Birtingarholts — 78 -
— Áslækjar — 100 -
— Framness — 60 -
— Kálfár - 40 -
— Rauðalækjar — 162 -
— Bakkakots — 33 —
— Deildarár — 44 —
— Brautarholts — 21 -
= 728 kvartél.
Úr Árness- og Bangárvallasýslum
er suður komin 630 kvartél. Valla
verður með sannindum sagt, að fé
því sé á glæ kastað, sem varið er
til samgöngubóta í þessum héruðum.
fíý trúlofuð
eru verzlunarm. Egill Jakobsen og
ungfrú Sigríður Zoéga (Einarsdóttir,
veitingamanns).
Þjóðhútíð
héldu Suðurnesjamenn sunnudaginn
6. þ. m. í Keflavík. Varð þó minna
af en til stóð; olli óveðrið á laugar-
daginn og rokið á sunnudaginn.
Hátíðina setti Þórður læknir Thor-.
oddsen með góðri ræðu. Hann mælti
og fyrir minni ísiands og sagðist á-
gætlega.
Fyrir konungs minni mælti séra
Árni Þorsteinsson á Kálfatjörn, fyrir
minni Keflavíkur Ágúst Jónsson í
Höskuldarkoti og fyrir minni sýslunn-
ar einnig séra Árni.
Til skemtunar höfðu menn dans,
glímur, kapphlaup, kappreiðar og leik-
fimi. Söngur var fremur lítill. Kvæð^
var sungið eftir Guðm. skáld Guð-
mundsson.
Mesti sægur af fólki ætlaði héðan
úr Rvík sjóleiðis suður í Keflavík á
sunnudaginn til að taka þátt í hátíð-
inni. Eu byr hlýtur að ráða, jafnvel
þó kóngar ætli að sigla.
Reykvíkingar sátu heima veður-
teftir. Kári lagði blátt bann fyrir
förina.
Jónas Helgason,
oi ganisti, var jarðaður á laugar-
daginn var 12. þ. m. Var líkfylgd
sú, er honum fylgdi til grafar, ein
hin ailra stærsta, sem menn hafa
séð hér í Rvík.
í kjðri
um Gaul v erj abæjarprestakall eru
séra Benedikt Eyjólfsson í Berufirði,
séra Einar Pálsson á Hálsi og sérá
Pétur Jónsson á Kálfafellsstað.
Innbrofsþjófnaður
var framinn aðfaranótt föstudags
ins 11. þ. m. í verzlunarbúð G. Zoéga
hér í Rvík. Þjófurinn hafði reist upp
stiga við norðurhiið verzlunarhússins
og náð riiðu úr skrifstofuglugganum
og skriðið þar inn. í skrifstofunni
var púlt með peningum i; tálgaði
þjófurinn sundur lokið, svo að læs*
ingarjárnið lá eftir í skránni, en púlt-
ið opnaðist. Úr púltinu tók hann
svo yfir 690 kr., er voru þar geymd-
ar í kassa. Skildi hann kassann eftir
á gólfinu, en hnífinn á púltinu.
Sama daginn féll grunur á fær-
eyskan sjómann, Tomas J. Thomsen,
sem í sumar var háseti á einu af
þilskipum G. Zoega. Kvisaðist, að
hann hefði verzlað í ýmsum búðum
daginn eftir meira en líkindi þóttu
til, að hann gæti með frjálsumhætti.
Fór þá lögreglan á stúfana, og
handsamaði Þorvaldur Björnsson lög
regluþjónn kumpán þenna inni í Laug-
um, var hann í þann veginn að fara
með skipi, sem ferðbúið iá inni hjá
Kleppi. Óeyddar hafði hann á sér
500 kr. Fyrir hitt hafði hann keypt
ýmislegt, svo sem nýjan fatnað, yfir-
frakka, ferðatösku, skambyssu, vindla-
kassa, vínflöskur o. fl.
Fógeti yfirheyrði sökudóiginn sam-
dægurs og staðfestist þá grunur sá,
er á honum hvíldi. Sat hann svo í
fangelsi fram yfir helgina. í gær
meðgekk hann þjófnaðinn. Framdi
hann aleinn húsbrotið og enginn var
í vitorði með honum.
Hvalveiðistöð í smiðum
á Suðurlandi. Á. G. Ásgeirsson
kaupmaður, einn af stjórnendum
hvalveíðaféíags þess hins danska, sem
hefir bækistöðu sína á Uppsalaeyri
við ísafjarðardjúp, hefir lagt fölur á
land í svonefndri Straumsvík suður í
Hraunum, skamt fyrir utan Hafnar-
fjarðarkaupstað. Er í ráði, að setja
þar hvalveiðistöð á laggirnar,
Tiðarfar*
hið versta í Eyjafirði, segir „Nld."
22. ág. Einn fremur kaldur sólskins-
dagur í þeirri viku, Annars stöðug*
ar norðanþokur, með rigningu stund*
um í bygð og hríðaréljum á fjöllum.
Á þriðjudagsnóttina, 18. ág., alhvítt
ofan að sjó. Töður, sem úti eru,
mjög farnar að skemmast og ógrynni
áf heyi úti hjá bændum.
Hafnleysið
hefir í sumar verið Húnvetningum
meira en lítið bagalegt, Vatnsdælir