Fjallkonan - 22.02.1910, Side 4
24
FJALLKONAtf
fara að læra almenna mannasiði, hann er
kominn á Jtau ár, líklega miðaldra, bto hann
ætti að geta lært þá úr þes»u. Og ókurt-
eysi þessa hefnr hann ekki lært í Kaupmanna-
höfn, þvi að Danir ern yfirleitt kurteysir
menn; ókurteysi þessa manns er því náttúru-
hvöt, sem hefir eflaust brotiet meira og meira
út eftir því sem hann sá, að almenningur
varð íslandsbanka meira og meira báður.
Illa trúi ég þvi, að ef íslendingar taka
höndum saman, þó fátækir séu og skuldugir
í íslandsbanka, að þeim ekki takist að hjálpa
dyraverðinum til að losa Big við þennan við-
bjóðslega galla; þeir hafa einhverntima velt
stærra hlassi.
Reykjavík 15. febr. 1910.
Jón Björns8on.
Sýniskorn.
„Vér viljum ekkert niðra
nefndarmönnum — fjarri
sé því.“
Kristján Jónsson, Eiríkur
Briem, Tryggvi Gunnars-
son.
Eg hefi leaið athagasemdir og and-
•vör gömlu bankastjórnarinnar. Þar
kennir ýmsra graaa En mest ber
þó á einu, þ. e. stóryrðum og akömm-
um í garð nefndarmannanna.
Bankastjórnin gamla aegir reyndar
á 4. bls. aíðu: „Vér viljnm ekkert
niðra nefndarmönnunum — fjarri ié
þvi.“
Nokkrum línum neðar stendur:
„■kýrslan er æsingarit, rituð eftir
boði ráðherrans til þesa ... að iverta
oss og ófrægja á allar lundir."
Litlu síðar itendur: „En þá tókit
•vo slyaalega til að það var ómögu-
legt að fá nefndina til að bóka rétt
það iem á milli vor fór. Svörin eru
meira eða minna skæld og skakt bók-
að.“ — Nokkru síðar er það fylli-
lega látið í ljós, að nefndarmennirnir
•é ósannindamenn að því, að þeir
hafi verið 1 nokkurri samvinnu við
dönsku bankamennina. Ennfremur
er talað um „innræti skýrsluhöfund-
anna,“ sem »é ekki „mjög göfugt“.
„Nefndin sýnir hér enn fullkomna
fáfræði sína, en jafnframt ótvlrœða
tilhneigingu til að fara með rangt
mál.“ — „Skeytin eru eingöngu sam-
anhrúguð ósannindi um starfsemi
bankans.“ Bankastjórnin segir enn
fremur til að benda á „innræti nefnd-
armanna“ um eina bókun nefndar-
innar, að „þessi spurning og þetta svar
sé tilbúið á eftir“ — „Skýrslan er
öll sundurlaus og í molum, og enginn
réttur hugsunarþráður í henni ....
Eini þráðurinn, sem heldur henni
saman er stöðug tilraun nefndarinn
ar til að níða oss og sverta.“
Gömlu bankaitjórninni finst það til
„atblægia eins,“ að stjórnin skuli hafa
tekið nokkurt mark á munnlegum
upplýsingum nefndarmannanna „þess-
ara merku manna“ o. s. frv.
Það úir og grúir af orðum svo
sem: „staðlaus þvættingur“, „hrein
og bein ósannindi“, „tómur skáld-
skapur.“ „Heilir kaflarfullir af aðdrótt-
unum, allar teknar úr lausu lofti til
þess að villa hugsunarlausum mönn-
um sjónir“, o. s frv. „Það er eitt
sem annað, er nefndin hefir rangt
bókað, svo að ekki sé annað sterk-
ara orð um bókun hennar haft“.
Ennfremur gefur bankaitjórnin í
skyn, að rannsóknarnefndarmennirnir
sé svo ómerkir, að „dómur þeirra og
álit sé „þýðingarlaus“ fyrir réttlát
úrslit bankamáliina “
Þessi fáu dæmi úr varnarriti dóm-
stjórans virðast benda á, að hann
mundi verða i meira lagi kjarnyrtur,
ef hann ætlaði sér að fara „niðrandi“
orðum um einhvern mótstöðumann
sinn!
Til þess að taka það enn þá betur
fram, að bankastjórnin sé ekki að
„niðra“ nefndarmönnum, lætur hún
þess getið síðla í ritinu, að hún hafi
ritað það til þess að leiða sannleik-
ann í ljós, en ekki til að skattyrðast
við nefndina!! K.
Á sjó og landi.
Botnia fór til útlanda á sunnu-
daginn. Farþegar: Úlafur Árnason
Stokkseyri, Jón Jónsson frá Múla,
ungfrú Kristín Péturs o 11. Til Vest-
manneyja fór Árni Sigfússon.
Trúlofað eru ungfrú Heðvig B»rt-
els og Ó. P. Blöudal póstafgreiðslu-
maður.
Landsíminn hefir verið slitinn
nokkura undanfarna daga á Heljar-
dalsheiði.Nú er komið samband aftur.
Slðkkviliðsmálin hafa verið á
dagskrá nýlega í bæjarstjórninni. Eru
ýmsar umbætur á slökkvitækjum og
liði í undirbúningi. Á síðasta bæjar-
stjórnarfundi voru komir þrír bunu-
stjórar, þeir Guðmundur Stefánsson,
Hallgrímur Benediktsson og Sigurjón
Pétursson. Brunamálastjórinn, KTist-
ján Þorgrímsson konsúll, hefir sagt
af sér sýslaninni.
Alþýðufræðsla Stúdentafélags-
ins. Fyrra sunnudag hélt Guðbrand-
ur Jónsson fyrirlestur um stjórnar-
byltinguna miklu á Frakklandi. Síð-
aitliðinn sunnud. talaði Sighvatur
Grímsson Borgfirðingur um verzlun-
arsögu íslands.
„Snorri Sturluson“ kom hingað
innáhöfn í vikunni sem leið með 18000
af fiski eftir tveggja vikna útiveru.
Maður varð úti fimtudagsnóttina
3. þ. m., Hjörleifur bóndi frá Sel-
•karði á Álftanesi. Hann var á
heimleið úr Reykjavík með tveim
mönnum öðrum. Fældist hestur eins
þeirra, er þeir komu suður í Garða-
hraun og fór Hjörleifur að elta hes-t-
inn og hvarf félögum sínum. Þeir kom-
ust til bæja, en hann kom ekki. Dag-
inn eftir kom hesturinn til bæja; var
þá farið að leita Hjörleifs og fanst
hann frosinn í hel í svonefndu Gálga-
hrauni. „fSkuggsjá]“.
„Sterling“ fór til útlanda 16 þ. m.
Meðal farþega vóru Axel Ström
prentari, Halldór Gunnlaugsson verzl-
unarm., Finnur Ólafsson umboðssali,
Árni Tborlacius búfræðingur (til Vest-
urheims), Kai Christensen með sifjalið
sitt og Bjarni Sighvatss. bankaritari.
kona fanst druknuð í kveld við
Völundarbryggju hór i bænum. Rósa
Jónsdóttir. Hún var um fimtugt. Bor-
ið hafði á því að undanförnu, að hún
væri biluð á geðsmununum.
3 eða 4 herbergi
með eldhúsi óskast til leigu á góð-
um stað i bænnm.
Ritstj. vísar á.
Alþingiskjörskrá
Reykjavíkur íyrir átið 1910—1911 liggur frammi á bæj-
arþingstofunni almenningi til sýnis dagana frá 17. febr.
til 8. marz næstk. frá dagmálum til miðaftans hvern
dag. Kærur yfir kjörskránni verða að vera komnar
til borgarstjóra ekki síðar en laugardaginn 12. marz
þ. á.
Borgarstjóri Reykjavíkur, 17. febr. 1910.
Páll Einarsson.
r
Utsalan
á allri vefnaöarvöru meö
10-30°« afslætti,
heldur áfram til 28. þ. m.
Notið tækifærið meðan það gefst,
Verzlunin Björn Kristjánsson,
Kjörfundur.
Kosniug prests í annað prestsembættið við dómkirkj-
una í Reykjavik fer fram laugardaginn 26. þ. m. í Barna-
skólabyggingu Reykjavikurbæjar og byrjar kl. 11 f. h.
Prófasturinn í Kjalarnesprófastsdæmi.
Görðum 9. febr. 1910.
Jens Pálsson.
SCHWEIZER SILKI Z2ZL
Biðjið um sýnishorn af okkar prýðisfögru nýjungum, sem vér ábyrgj-
umst haldgæði á.
Sérstakt fyrirtak: Silki-damask fyrir isl. búning, svart, hvítt og
með fleiri litum frá 2,15 fyrir meterinn.
Vér aeljum beÍDt til einstakra manna og seudum þau silkiefni, sem
menn hafa valið, tollfrítt og burðargjaldsfrítt til heimilauna.
Vörur vorar eru til sýnis hverjum sem vill hjá frú Iugibjörgu Johnson,
Lækjargötu 4 í Reykjavík.
Schweizer & Co. Luzeru Y 4 (Sehweiz).
Silkivarnings-útflytjendur. Kgl. liirðsalar.
MM Reykiayitnr:
linnaskifti
efiir
Stepniak
verður leikið í Iðnaðarmannahúsinu
föstudaginn 25. febr. 1910 .Kl. 8 síð-
degis.
Tekið á móti pöntunum í afgreiðslu
Isafoldar.
£kkl leikið laugardaginn 26. fbr.
Skrifstofa
Samábyrgðar Islands
á fiskiskipum
er í Landsbankanum uppi á loft-
inu, og verður fyrst um sinn opin
hvern virkan dag eftir 15. þ. m.
frá kl. 10 f. m. til kl. 12 á hádegi
og frá kl. 4 til 6 e. m.
Símnefni: Samábyrgðin.
Talsími nr. 198.
Reykjavík, 10. febrúar 1910
Jón Gunnarsson.
Ritstjóri: Benedikt Sveinsson. — Félagsprentsmiðjan.