Heimdallur - 01.03.1884, Qupperneq 3

Heimdallur - 01.03.1884, Qupperneq 3
35 ■ um fannst «ekki lengur lífvænt á þeim uppvelgda í graut, sem lýriskir ljóðsmiðir og alllítilfjörlegir blað- > snápar altaf báru á borð», og þótti því «tími til í kominn, að hefja á ný þær tvær miklu aðalhugsanir aldarinnar sem leið, sem voru: frjáls rannsókn í vísindunum og þarmeð trúarfræðinni, og í skáld- skapnum frjáls vnxtur og viðgangur hins mann- \ lega.» fegar er hann kom heim, hóf hann stríðið. Á örstuttum tíma bjó hann sjer til grindina í hið mikla og fræga verk, sem hann lauk fyrst í fyrir- lestrum sínum í fyrra, sem- enn eru óútkomnir. þJað heitir *Höfuðstraumar í bókmenntum nítjándu ; aldar,» og er í 6 deildum. Aðalhugsun þess er að sýna. hvernig apturkastsalda reis í byrjun aldar- í innar móti menntum 18. aldar, færðist yfir þýzka- land, Frakkland og England, brotnaði jtar á Byron, sneri aptur, og varð að nýjum frjálsari og frjálsari straum- um. Danir höfðu að eins tekið þátt í apturkastinu, ekki í undanfara þess, framkastinu, og sátu enn ísúp- ; unni, enda fengu þeir að heyra ýmsan beizkan sann- ■ leikahjá honum. Hann byrjaði fyrirlestra sína 3. nóv- ember 1871. Menn þustu svo að til að heyra þá, að í fádæmum sætti, en öll blöðin rjeðust á Brandes með | mestu ákefð, til þess að kúgahreifinguna í fæðingunni. Kitdeilan varð afarhörð. Hinir yngri fræðimenn og \ skáld gengu í lið Brandesar, og margir af eldri mönn- í um einnig. Nýtt skáldakyn reis upp, vakið af kenn- ingum hans. í Noregi breyttist stefna stórskáldanna í Björnsons og Ibsens. Björnson hefur opinberlega lýst ; yfir, hve mikið hann eigi Brandesi að þakka, og Ibsen < er vinur hans. far eð hann talaði móti öllu hinu «gamla og rotna» var auðvelt að finna orð og glógur til þess að slengja fram á móti honum. Hinir *national- líberölu» báru á hann allt illt. Fyrir utan allar persónulegar árásir báru menn honum á brýn, að hann vildi kæfa þjóðerni Dana, og gjöra þá útlenda, að hann smánaði bókmenntir þeirra, o. s. frv. Brandes ritaði 1872 dálitla bók, *Forklaring og i Forsvar» til varnar sjer, með því að öll blöð voru ! honum lokuð þá, nema eitt blað á Lálandi, og í ! henni segir hann meðal annars:» £>að sem menn í deilunni við mig altaf eru að kalla «bókmenntir ; voram, er í rauninni alls ekki vorar bókmenntir, »heldur bókmenntir feðra vorra. I>að eru orðin tóm, að eigna oss þessar menntir. |>ær bókmenntir, ; sem vjer erfum frá fortíðinni og lesum, eru ekki menntir sjálfra vor, heldur að eins þær, sem vjer sjálfir framleiðum. Menn leggja mjer sjálfsagt þessi orð líka út sem hroka, — mjer er sarna, jeg stend við, að sjeu monn svo hæverskir að gjöra alls ekkert, af einskærri virðingu fyrir því, sem for- feðurnir hafa. gjört, þá eru menn of hæverskir». (Vjer íslendingar hefðum 10m gott af að hugleiða þetta). Litlu seinna í sömu bók segir hann: »Jeg held jeg hafi ekki drýgt neina synd móti fortíðinni, heldur hitt það, sem mörgum hefur búið í brjósti, þegar jeg spyr: Hvað gjörum við svo? Jeg álít nokkra óþolinmæði vera dyggð, af því að hún er nauðsynleg til að halda fjöri í framförunum. Jeg segi og stend við, að hver sem dyngir lofi yfir sína eigin þjóð, og segir henni, að allt sje bezt njá henni, gjorir henni mikinn ógreiða, hve mjög sem hann rakar eldi að sinni eigin köku með því». pví verður heldur ekki neitað, að það er ekki gott fyrir almenn mannleg augu að sjá, hvað óþjóðlegt er í, að mennta þjóð sína, benda á það, sem betra er og rjettara, þótt hjá öðrum sje, og kenna löndum sín- u m að þekkja heimsins miklu anda. Ekki hvað minnst reyndu mótstöðumennirnir að slá sig til riddara á því, að hann vildi hafa hugsunarfrelsi í trúarefnum, til þess að hver ein- stakur í þeim sem öðru gæti reynt að «afla sjer per- sónulegrar, frumlegrar, upprunalegrar og eiginlegrar sannfæringar, af því það væri sú eina sannfœring, sem nokkuð væri í varið;» þeir nefndu hann trúar- níðing, og var hann skoðaður «úalandiog úferjandb af þeim sem valdið höfðu, og fylgifiskum þeirra. Aptur var hann í miklum metum hjá flestum hinum gömlu, góðu skáldum Dana, t. d. Chr. Winther, H. C. Andersen, Paludan Miiller og Hauch, sem var kennari í fagrufræði við háskólann, og hafði látið í Ijós þá ósk, að hann yrði sinn eptirmaður. Hauch dó 1871, og sótti Brandes þá um docentsem- bætti í stað hans, en fjekk ekki einusinni svar. Um haustið 1875 átti að fara að veita embættið, og bjóða til keppni um það, en þegar frjettist að Brandes ætlaði að taka þátt í henni, var hætt við það, og hefur embættið enn eigi verið veitt. Honum voru allir vegir til embætta lokaðir, og átti haun í efnalegu tilliti erfitt uppdráttar. Hann gat valla litið svo í neitt blað, að hann sæi ekki skammir um , sig, og það óþvegnar; öll verk hans voru nídd heirna en í útlöndum var hann orðinn frægur maður; rithans voru nokkur kominá önnur mál, ogbuðust honum ýmsar

x

Heimdallur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.