Heimdallur - 01.03.1884, Page 6

Heimdallur - 01.03.1884, Page 6
38 ; ástfangin hvort af öðru og þá verður mjer ekki hörg- \ ullinn á handritunum». Og hann neri saman lóf- \ unum af ánægju. f>að var fátt líkt með þeim tveimur mannver- 5 um, sem þar settust við borð hvort við hliðina á öðru, naumast annað en það, að þau voru rithöf- \ undar bæði. Hún var að upplagi frjósöm og móðurleg. Sál f hennar var heilbrigð, jafnvel þá, er hún hrauzt út ' í byltingar, og í henni var nokkurskonar gnægðar- ; innar jafnvægi. Húnsvafvei, og þoldi vel að haga lífi sínu’eins og hún vildi, þoldi að vinna við ljós næstum liðlanga nóttina, og henni var nóg að fá sjer langan morgundúr, sem hún gat þó fullkomlega ráðið við, og sem veitti henni nvjan krapt. Engin mikilfengleg hugaræsing, engin frelsisbyltinga hug- mynd hafði hreyft svo hjörtu 19. aldarinnar, að þessi kvennmaður hefði eigi alið hana í sálu sinni, og þó hafði hún enn óskert æskufjör, hugarró og stillingu. Hún gat ritað með ró og athygli sex stundir í sífellu; hún var gædd sjerstakri gáfu til að halda saman hugsunum sínum, svo að hún gat setið með pennann og skrifað upp drauma sína innanum íjölda fólks, sem skrafaði og hló og skegg- ræddi allt í kringum hana, eins vel og hún væri langt frá öllum mönnum, og var svo rjett á eptir, þegar hún fór að taka þátt í því sem fram fór, brosandi og fátöluð, heyrði allt, henti allt, skildi allt, saug inn í'sig hvert orð sem talað var, rjett eins og njarðarvöttur sýgur upp vatnsdropa. Og hann þá! í honum var miklu ríkara lista- manna lundernið. |>egar hann var að vinna, var hannsjúkur; svefninn var órólegur, girndir hans og ástríður óstjórnlegar. þ>egar hann Ijekk hugmynd, sat hann ekki yfir henni þegjandi, alvarlega grufl- andi, eins og hún, nei, hanu varð frá sjer numinn af henni, hann skalf, «hann sundlaði meira enn svein, ástfanginn af álfkonu» eins og hann kemst að orði í kvæði sínu »Aprésune lecture •. Og tæki hann svo að skrifa upp, lá honum alltaf við að fleygja pennanum í irvæntingu. Honum þótti sjer ganga allt of seiut, hugmyndirnar flykktust að honum og leituðu sjer að orðum, hann fjekk ákafan hjartslátt, og þá þurfti ekki nema hina minnstu freistingu ut- anfrá, t. d. boð til kvöldverðar með kunningjum og fallegum stúlkum, uppástungu um að aka út úr bænum, eða eitthvað þess háttar, til þess að koma honum til að flýja erfiðið, eins og óvin. Hún «prjónaði» sínar skáldsögur, hann ritaði ; sínverkfrá sjer numinn af stuttum, brennheitum, sælum ofsa, sem næsta dag var horfinn, og jiá bauð honum við því er hann hafði ritað. þ>á fannst honum það ótækt, og nennti þó ekki að skrifa það ] upp aptur, því hann leit pennann samskonar horn- auga og hatri, eins og galeiðaþræll árina sína. þrátt \ fyrir allan æskuþóttann var eins og hann engdist í \ sífeldri kvöl, og ástæðan var sú, að í líkama hans, svo grannur og beygjanlegur sem hann var, bjó risavaxin listamanns sál, sem liafði miklu dýpri og ákafari tilfinningar, lifði og hrærðist miklu meir og skjótar, enn mannseðlið gat þolað, sem hún var gædd. og í henni urðu til mikilfengari myndir heldur enn heili sá, er var líffæri hennar, gat fætt í heiminn, án sárustu jóðsóttar. £>egar því skáldið fleygði sjer út í allskonar slark, kom það einkum til af því, að hann þurfti að deyfa þá sálarkvöl, sem snilldar- magnið olli honum. Nú sat hann þarna 22 ára gamall. Hann var aðalborinn og eptirlætisbarnið foreldrannna sinna; hann bjó í föðurhúsum, átti við að styðjast um- hyggjusemi ástríks bróður, og þó hafði þetta barn, sem ekkert hafði drifið á dagana fyrir nema nokkur ástaræfintýri, lífsreynzlu, tortryggni, beiskju og fyrir- litning fyrir mönnum, sem fertugur væri, og þar sem á skorti reynsluna, gjörði hann sjer upp kæru- leisi og spottandi tilfinningaleysi, til þess að fylla upp eyðurnar. Húnsatþar, konan með fursta og flækingsblóðið í æðum sínum, dóttursonardóttir Móritzar af Sachsen, 28 ára gömul. Alvarlegasta mótlæti hafði drifið á hennar daga; hún var skilin frá ætt sinni, eigum sínum, heimili sínu, og báðum börnunum sínum, sem höfðu orðið eptir hjá manninum. Hún átti engan kallmann í ætt sinni sjer til stoðar, og varð að hlýta þeim er henni sýndist; hún lifði nokkurskonar bóklegu flökkulífi, gekk út í kallmannsfötum, bar kallmannsnafn, og reykti eins og kallmaður í kallmannahóp, og þó var hún innst í sálu sinni barnaleg, ástríðulaus, eldfjörug og góð, og svo móttækileg fyrir allt nýtt, eins og ekkert að marki hefði fyrir hana borið, engar vonir hefðu brugðizt henni. Hann, sem var svo frumlegur í íþrótt sinni og reglulaus í lifðnaði sinum, var samt, þegar á hugsunarhátt hans er litið, oddborgaralegur í mörg- um greinum og einstrengingslegur. Okkur hættir við að verða það, kallmönnunum, einkun þeim, sem

x

Heimdallur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimdallur
https://timarit.is/publication/123

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.