Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1912, Síða 2

Norðurljósið - 01.01.1912, Síða 2
2 Norðurljósið Tvenskonar grundvöllur. Um leið og þetta nýja blað kemur jyrir almenn- ings sjónir, œtlum vjer að gera giögga grein fyrir útkomu þess og tilgangi. Ætl- un þess er að vera heimilisblað til að frœða, göfga og | blessa hvernein- stakan á heim- ilinu. Vjer vitum vel að þessu há- leita takmarki verð- ur aldrei náð, nema blaðið standi á kristi- legum grundvelli. Myndin á fyrstu blað- síðu sýnir oss afdrif þeirra tvaggja húsa, sem Kristur talar um i fjallræðunni. Steypiregn og vatnsflóð koma og stormar biása, og húsið, sem á sandi er bygt, hrynur til grunna, en hitt húsið, sem á bjargi er bygt, stendur stöðugt. Mönnum veitir sjálfsagt hægra að byggja á sand- inum, þvi þá þurfa þeir ekki að flytja bygging- arefnið upp háu brekkuna. Ef tii vill er húsið á sandinum enn þá fallegra en hitt, og það er fyrir- hafnarminna að komast þangað. En þetta er að eins á meðan sólin skín. Pegar til reynslunnar kemur, sjest hvar best er að byggja. Pess vegna viljum vjer byggja á bjarginu: Krisii, fullvissir um, að hvorki vjer nje lesendur vorir muni iðrast þess. „Alt sem er satt, alt sem er sömasamlegt, alt sem er rjett, alt sem er hreint, alt sem er elskuvert, alt sem er gott afspurnar, hvað sem er dygð, og hvað sem er lofsvert“ — er byggingarefni vort, svo vjer höfum nóg úr að veija. í hverju blaði er œtlast til að verði frœðigrein um eitthvert skemtilegt efni, sem miðar til sannrar mentunar; ein blaðsíða i hverju blaði verður not- uð til að flytja greinar um heimilislækningar og nauðsynlegar leiðbeiningar um, hvernig á að fara rjetl með heilsuna; tvær eða fleiri úrvalsmyndir verða hafðar í hverju blaði; í einum dálki verða vanalega svör upp á fyrirspurnir frá lesendum, um alt sem litur að andiegum eða siðferðisieg- um málum og getur orðið til uppbyggingar. Öll- um er velkomið að gera fyrirspurnir, og þeim verður svarað, svo framarlega sem rúm leyfir. Annars gerum vjer ráð fyrir að flytja greinar, við og við, um heimsfrœga menn og viðburði, til að svala þeim, sem þyrstir eftir sögulegum fröð- leik. Einnig verður bent á atburði, sem eiga sjer stað í þessu landi og i hinum mikla heimi, ef það getur orðið til gagns. Blað vort verður ekki fyrir áhrifum neins flokks, hvorki i þjóðmálum nje trúmátum, og gerir sjer far um að skilja alla og ræða um alt með still- ingu. Pað er oss kappsmál að gera blaðið, að þvi er snertir ytri frágang, jafnt sem hinn innri, að hinu vandaðasta og eigulegasta blaði i landinu. * Ht * Hið lága verð blaðsins (50 aurar fyrir árgang- inn, — 12 iölublöð), er miðað við það, að kaup- endur borgi fyrir fram. Annars hefði verðið hlot- ið að vera 1 kr. Vonum vjer þess vegna, að menn taki þvi vel að borga þessa litlu upphæð um leið og þeir taka á móti þessu fyrsta tölublaði, ef þeir annars vilja gerast kaupendur. Riistjórinn ábyrgist útkomu hinna tólf tölublaða ár hvert, ella endurborgar hann áskrifendagjaldið. í nœsta tölublaði er ætlast til að verði grein eftir Vilhjálm II., Þýskalandskeisara, ásamt mynd af hans hátign, og í þriðja tölublaðinu grein um þráðlausa firðritur) með mynd af firðritunarstöð (innan) og skipinu sem hún er á.

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.