Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1912, Blaðsíða 6

Norðurljósið - 01.01.1912, Blaðsíða 6
6 Norðurljósið Molar frá borði meistarans. (Á þessari blaðsíðu verða jafnan fluttar uppbyggilegar greinar fyrir trúaða.) Persónuleiki Heilags Anda. Eftir Dr. Torrey. Persónuleiki og guðdómleiki Heilags Anda er ein- hver hinn helsti lærdómur kristinnar trúar. Þessi lærdómur hefur afarmikla þýðingu fyrir guðs- dýrkun vora af þessari ástæðu. Ef Heilagur Andi er guðdómleg vera, og honum ber þess vegna til- beiðsla vor, trúnaðartraust og kærleikur, en vjer könn- umst ekki við þetta, þá rænum vjer guðdómlega vertt þeirri tilbeiðslu, kærleika og trúnaðartrausti, sem hún á skilið frá vorri hálfu. En lærdómurinn um persónuleika Heilags Anda hef- ur hina mestu þýðingu, einnig af verklegum ástæðum. Ef vjer gerum aðeins grein fyrir Heilögum Anda sem ópersónulegu afli eða áhrifum, þá hlýtur hugsun vor ávalt að vera sú: Hvernig get jeg öðlast þenna heilaga anda, og notað hann? En ef vjer gerum grein fyrir honum, eins og ritningin gerir, sem guðdómlegri veru, óendanlega viturri, heilagri og blíðri veru, þá hlýtur umhugsunarefni vort sífeldlega að vera: »Hvern- ig getur Heilagur Andi náð hjarta mínu á sitt vald og notað mig?^ Er ekki mikill munur á því, að yrm- lingurinn noti Guð til þess að »sundur þreskja fjöllin<?, eða að Guð noti yrmlinginn til þess að gera það? (Sbr. Esa. 41. 14—15.) Fyrra hugtakið er lágt og heiðinlegt, og ekki verulega frábrugðið hugtaki villumannsins i suðurálfu, sem þykist ætla að nota goð sitt til að fram- kvæma sinn vilja. En seinna hugtakið er háleitt og kristilegt. Ef vjer hugsum oss Heilagan Anda aðeins sem einskonar kraft eða áhrif, verður hugsun vor: »Hvernig get jeg fengið meira af Heilögum Anda?« En ef vjer hugsum um hann sem guðdómlega veru, verður hugsun vor þessi: »Hvernig getur Heilagur Andi fengið meira af mínu hjarta?« Fyrri hugniyndin miðar að því, að upphefja sjálfan sig; hin síðari miðar að auðmýkt og sjálfsafneitun. Ef vjer hugsum oss Heilagan Anda aðeins sem guðdómlegan kraft eða á- hrif, og þykjumst svo hafa meðtekið Heilagan Anda, þá er oss hætt við að álíta, að vjer sjeum meiri eða betri en aðrir kristnir menn. En ef vjer hugsum oss Heilagan Anda, eins og ritningin gerir grein fyrir honum, sem guðdómlega veru eilífrar hátignar, sem lítillækkar sig þó til að dvelja í hjörtum vorum og að taka á sig stjórn lífs vors, þá mun þessi hugmynd leggja oss í duft auðmýktarinnar og leiða oss til að »framganga í lítillæti fyrir vorum Guði« (Mikka 6. 8.) Það er afaráríðandi, frá verklegu sjónarmiði, að vjer þekkjum Heilagan Anda sem verulega persónu. Fjölda margir geta vitnað um þá miklu blessun, sem hefur streymt í hjarta þeirra, þegar þeir öðluðust þekkingu á Heilögum Anda sem lifandi, guðdómlegum, ætíð ná- lægum einkavin og leiðtoga. Það eru aðallega fjórar sannanir fyrir því, að Heil- agur Andi sje persóna. I. Heilögum Anda eru tileinkuð í ritningunni öll þau einkenni, sem bera vott um persónuleika. Hver eru þau einkenni, er bera vott um persónu- Ieika? Þekking, tilfinning og vilji. Vera sú, er þekkir, finnur til og hefur vilja, er persóna. Þegar sagt er, að Heilagur Andi sje persóna, skilja sumir það þannig, að hann hafi hendur, fætur og augu, og því um Iíkt, en þetta eru merki, sem bera vott um líkamlega til- veru en ekki um persónuleika. Þegar sagt er, að Heil- agur Andi sje persóna, er átt við, að hann sje ekki einungis áhrif eða kraftur, sem Guð veitir oss, heldur að hann sje véra, er hefur vit, tilfinningu og vilja. Þessi þrjú einkenni, — þekkingin, tilfinningin og viljinn, — eru tileinkuð Heilögum Anda á mörgum stöðum í heilagri ritningu. Þekking hans. Það stendur í 1. Kor. brjefi 2. kap. 10,—11. versi: »En oss hefur Guð opinberað hana fyrir andann; því að andinn rannsakar alt, jafnvel djúp Guðs. Því að hver meðal manna veit hvað mannsins er, nema andi mannsins, sem í honum er? Þannig hefur heldur eng- inn komist að raun um hvað Guðs er, nema Guðs andi«. Á þessum stað er þekking tileinkuð Heilögum Anda. Hann er ekki aðeins ljósgeisli, sem rennur upp fyrir oss, heldur vera, sem rannsakar »djúp Guðs« og sem kennir oss það, sem hann veit sjálfur. (Frh.). Það er einn mikill atburður, sem dregur að sjer meiri athygli hvern dag en sólin, tunglið og stjörnurnar gera á himinbraut sinni. Þessi atburður er — dauði Drott- ins vors Jesú Krists. Allir heilagir, sem lifðu fyrir Krists burð, horfðu fram til þessa atburðar, og trúaðir menn hafa ávalt síðan horft á krossdauða Krists. Englarnir á himni hafa hugann sífeldlega fastan við hann, því post- ulinn segir, að »inn í þetta (»um píslir Krists og dýrð- ina þar á eftir«) fýsir jafnvel englana að skygnast.« (I Pjetur 1. 12). Ótal endurleystir menn festa augu sín á. Kristi, og hinar mörgu þúsundir pílagríma, sem fara í gegn um þenna táranna heim, finna ekkert hærra tak- mark trúar sinnar, ekkert sem þeir þrá jafnheitt og að sjá Krist eins og hann er, og hafa samfjelag við hann augliti til auglitis. Já, vissulega erum vjer margir sam- huga, þegar vjer snúum augum vorum að Golgata. (C. H. Spurgeon.)

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.