Norðurljósið - 01.01.1917, Síða 1
SJEÐ OO HEYRT.
(Ferðasaga frá ófriðarlöndum.)
Eftir ritstjórann.
Stríðið! Já, flestir vilja heyra eitthvað um það,
því að frjettirnar, sem ná hingað til þessa út-
kjálka álfunnar, eru oftast ógreinilegar, og stund-
um jafnvel ranghermdar. En getur nokkur gert
sjer grein fyrir, hve vfðtækur og stórfeldur þessi
tröllaukni ófriður er? Oss er sagt að svo og
svo margar miljónir manna sjeu að berjast, og
svo 'og svo mörg hundruð þúsunda sjeu drepnir
og særðir, en geta þessar tölur fært oss heim
sanninn um hinn ægilega hildarleik, sem fram fer
í heiminum um þessar mundir?
Hvað er ein miljón manna? Ef þeir væru
látnir ganga í gegn um Akureyrarbæ, fimm menn
í röð, og fyrsta fylkingin kæmi í bæinn kl. 8 á
mánudagsmorgun, og þeir hjeldu áfram allan dag-
inn og alla nóttina, viðstöðulaust, þá rnundi það
ekki verða fyr en seint á fimtudagskvöld, að síð-
asta röðin kæmi í bæinn! Pá myndi fremsta fylk-
ingin vera komin, ef haldið væri beint í suður
átt, alla leið suður í Vestur-Skaftafellssýslu!
F*ó er talið víst, að Pjóðverjar hafi mist hálfa
miljón manna, fallna og særða, einungis við
Verdun-vígin, sem þeir hafa reynt árangurslaust
að ná á sitt vald. Menn snúa með ofboði frá
þessum hryllilegu tölum, en geta menn þá frem-
ur gert sjer hugmynd um kostnað ófriðarins? í
blöðunum Iesum vjer um svo og svo margra
miljóna króna herlán, og að stríðið kostar Breta-
veldi um 90,000,000 krónur d dag. En það er
erfitt að skilja greinilega, hvað þessar háu tölur
þýða. Til dæmis, vjer lesum um herlán sem
nemur eitt þúsund miljón punda sterling (18,000,-
000,000 kr.), en fáir geta gert sjer hugmynd um,
hvað hægt yrði að gera með þessa feikna-upp- .
hæð, ef hún væri notuð í friðsamlegu augnamiði.
Fyrir þetta verð gætu menn gert 35 skurði
eins og hinn nýja Panamaskurð, sem tengir
Atlantshafið við Kyrrahafið, og er eitt hið stærsta
mannvirki nútíðarinnar. Verksmiðja Krupps er ein
af þeim stærstu í heiminum, og þar eru smíðað-
ar stórbyssur þjrska hersins. Fyrir þessa upphæð
mundi vera hægt að koma 100 verksmiðjum á
fót, eins stórum og Krupps. Ef henni væri skift
á meðal allra .íbúa jarðarinnar, þá myndi hvert
mannsbarn fá hjer um bil 12 kr. 50 au. Ef hún
væri borguð í gulli, þá yrði nauðsynlegt að taka
nærri þvf allan gullmyntaforða heimsins til þess.
En ef borgað væri í silfri, mundu menn þurfa að (
flytja það í 900 járnbrautarvögnum, sem tækju
hver um sig 21 smálest. Það mundi taka langan
tíma að telja alla þessa peninga; 70 bankaritarar,
sem ynnu 8 tíma á dag, mundu geta komist yfir
verkið í átta ár!
Menn geta því skilið, að stríðið hefir haft
geysimikil áhrif á ófriðarþjóðirnar, og að það
hlýtur að koma stórkostlegum breytingum til leið-
ar hjá þeim.
Par sem jeg hefi dvalið hálft annað ár í út-