Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1917, Qupperneq 8

Norðurljósið - 01.01.1917, Qupperneq 8
8 Norðurijósið Heimilislœkningar þessar haýa verið mjög vinsœlar, og reynst mörgum heimilum tilgagns. Vill „Norðurljósið" því halda ájram að jlytja greinar þeim viðvíkjandi í sama stil og áður. Þeim er ekki œtlað að koma að öllu leyti i staðinn jyrir lœknisráð, heldur eru þœr gefnar til þess, að menn viti betur, hvernig þeir eiga að fara með likama sinn, og til þess að þeir geti gripið til góðs ráðs, þegar á liggur, og á meðan lœknirinn er sóttur. Lungun. Lungun liggja sitt hvoru megin við hjartað, og eru eins og stórir svampar, sem sjúga í sig Ioftið. Hægri og vinstri lungnapípurnar liggja frá barkanum inn í lungun, og kvíslast í ótal smápípur. Brjóstholið er klætt að innan þunnri himnu, sem nefnist brjósthimnan. Þessi himna klæðir einnig lungun. Vegna þess að lungnapípurnar, lungun sjálf og brjóst- himnan eru í svo nánu sambandi hvort við annað, get- ur það komið fyrir, að þau veikist hvert af öðru, svo að lungnapípurnar og lungun eru bólgin á sama tíma, eða lungun og brjósthimnan. Orsakirnar að veikindum í þessum líffærum eru: (1) Ofkæling; (2) hitaveikiy einkum mislingar, »inflú- ensa« og kíghósti; (3) berklaveiki; (4) innöndun ryks eða vissrar óhollrar gufu; (5) brjósthimnan bólgnar stundum í »gigt-feber<', og eins eftir meiðsli. Bólga í lungnapípunum (bronchitis) er algengust hjá eldra fólki, en ekki ósjaldan samt hjá börnum. Meiri hætta sfafar af bólgu í smápípunum, sem Iiggja að lungunum, heldur en í þeim stóru, sem liggja nærri barkanum. Veikin byrjar með hita, höfuðverk, þreytu, hæsi, hósta og sárindum og þrengslum fyrir brjóstinu. And- ardrátturinn verður tíðari og erfiðari. Hóstinn er vana- lega þurr framan af, en bráðum verður uppgangur töluverður. Tungan verður ljót, og þvagið minna en áður og dekkra. Sjúklingurinn á auðvitað að vera í rúminu, og sjálf- sagt er að vitja Iæknis. í herberginu á að vera sjóð- andi vatn, svo að sjúklinguriun geti andað gufunni að sjer, og svo á að bæta við rúmfötin, svo að hann geti svitnað sem mest. Ef vel gengur, fer veikinni að linna eftir fjóra til átta daga, andardrátturinn verður rólegri, uppgangurinn þykkri, en ekki eins froðukendur eða seigur. í stað þess að veikin batni, kemur það fyrir, að hún tekur á sig vægri mynd, og helst við um langan tíma, svo að menn verða aldrei mjög veikir af henni, en geta þó ekki losnað við hana. Þetta kemur oftast fyrir hjá öldruðu fólki. Besta ráðið við þessu er, að leitast við með öllu möti að styrkja heilsu sjúklingsins yfir- leitt. Hann á að vera úti sem mest, þegar hlýtt og gott veður er. Það má gefa honum þorskalýsi, ef hann er magur eða hefir of litla næringu. Þegar menn hafa vondan hósta, eiga þeir aldrei að vanrækja hann, því það getur komið fyrir, að hann snúist upp í bronchitis. Sumir, sem hafa fengið bronchitis á hverjum vetri, hafa losnað við það fyrir fult og alt, með því að hafa opinn glugga þar sem þeir eru, nótt og dag, vetur og sumar. Menn hafa yfirleitt enga hugmynd um, hve mikinn skaða þeir gera sjer og sínum með því að leyfa ekki hreinu lofti aðgang að herbergjum sínum. (Framhald.) J'ÍORÐURLJÓSIÐ kemur út einu sinni á mánuði og verður 96 blaðsíður á ári. Árgangurinn kostar 60 aura og greiðist fyrirfram. Menn mega senda útgefandanum einstök gjöld í ónotuðum frímerkjum; fleiri en eitt sendast með póstávísun. Verð í Vesturheimi 30 cents. Ritstjóri og útgefandi: Arthur pook, Akureyri. (Afgreiðslumaður á ísafirði: Ástmar Benediktsson, Fjarðarstræti 32.) Prentsmiðja Odds Björnssonar, Akureyri.

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.