Norðurljósið - 01.01.1940, Page 1
XXIII.Tárg.
J
anúar—Febrúar 1940.
1.—2.
Stærsta perla heimsins fundin!
Perlukafarar við Filippseyjar eru ekki nærri því
eins hræddir við hákarla og kolkrabba, eins og við
skeldýr eitt stórt, sem Ameríkumenn kalla
„Clam“, en kafarar kalla „mannagildruna“. Dýra-
fræðingar nefna það „tridacna gigantea“. Þessi
skepna vegur 100—170 kgr. og liggur á sjávar-
botni, með skeljarnar opnar, reiðubúin til að veiða
alt, sem kemur á milli þeirra.
Kafarinn gengur um á sjávarbotni og leitar að
perluskeljum. En þá kemst hann ekki hjá því, að
róta upp leðjunni, sem þar liggur, svo að hann
sjer ekki gildruna. Ef fótur eða hönd kemur við
þessa skepnu, skella skeljarnar saman eins og
byssuskot. Ef kafarinn er mjög heppinn, þá missir
hann aðeins handlegg eða fót og sleppur. En eí
handleggurinn eða fóturinn skerst ekki af milli
skeljanna, þá er maðurinn fastur, þangað til
hann deyr.
Amerískt tímarit segir frá einum kafara, sem
dó á þennan hátt fyrir nokkrum árum. Hann lenti
í þessari mannagildru, og fjelagar hans í bátnum
drógu hann upp og skeldýrið líka. Hjelt það um
handlegg hans, við olbogann. Maðurinn var
druknaður. Það tók nokkra klukkutíma að opna
skeljarnar, en þegar mönnum loksins tókst það,
komu þeir auga á eitthvað, sem mannleg augu
hafa aldrei litið fyr. Það var stóreflis perla, 24
sm. á lengd, 14 sm. á breidd og 15 sm. þykk. Hún
vó 6 kg. 356 gr. Skeldýrið sjálft vó 145 kg. Dýra-
fræðingar áætla aldur dýrsins um 600 ár, en aldur
perlunnar um 300 ár, frá því hún tók að myndasi.
Aldrei hefir fundist jafn stór perla, svo að menn
viti.
Ósj álfrátt kemur manni í hug dæmisagan um
kaupmanninn, sem leitaði að dýrum perlum, uns
hann fann eina dýra perlu. Hann fór og seldi alt,
sem hann átti, og keypti perluna. (Matt. 13. 45.
—46.).
Þessi dæmisaga á vafalaust við Krist og söfn-
uðinn. Kristur lagði alt í sölurnar til þess að afla
sjer safnaðar síns, sem var eins og dýrmæt perla í
augum hans. Sumir hafa lagt dæmisöguna þannig
út, að kaupmaðurinn tákni leitandi sál og að dýr-
mæta perlan tákni Krist. En sú skýring er ómögu-
leg vegna þess, að Kristur er ekki til kaups. Hann
er gjöf Guðs, náðargjöf til syndugs mannkyns, og
vjer öðlumst hana án nokkurrar verðskuldunar,
eins og alt nýja testamentið brýnir fyrir oss. Þar
að auki hefir engin leitandi sál nokkuð til þess að
kaupa með slíkt verðmæti. Allar dygðir vorar eru
sem saurgað klæði, (Jes. 64. 5.). Skýring, sem
brýtur alls staðar í bág við kenningar nýja testa-
mentisins, er auðvitað engin skýring.
Kristur er sá, sem „gerðist vor vegna fátækur,
þótt ríkur væri“ (II. Kor. 8. 9), sem kom „til þess
að gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.“
(Mark. 10. 45.) í orðum dæmisögunnar gaf hann
„alt, sem hann átti“, til þess að hefja frelsingja
sína úr sjávardjúpi syndarinnar upp til hástóls
Guðs.
Kafarinn yfirgefur það andrúmsloft, sem hon-
um er eðlilegt, og fer ofan í djúp sjávarins til þess
að finna perlur. Eins yfirgaf frelsarinn heimkynni
Föðurins á himni, þar sem hann hafði verið frá
upphafi (Jóh. 1. 1.), og kom hingað til jarðar til
að leita að hinum týndu og frelsa þá.
Kafarinn við Filippseyjar ljet líf sitt vegna
þessarar dýru perlu, en hann gerði það óviljandi
og hefði kosið heldur að bjarga því. En Kristur
lagði það sjálfviljuglega í sölurnar, af kærleika til
vor mannanna. Því er talað um „söfnuð Guðs, sem
hann hefir aflað sjer með sínu eigin blóði“, (Post.
20. 28.). Því er sagt, að trúaðir menn sjeu „verði
keyptir“ og eigi þess vegna að vegsama Guð í
líkama sínum. (I. Kor. 6. 20.) Vjer erum „leystir
með dýrmætu blóði Krists,“ (I. Pjet. 1. 18.—19.).
Kristur þráir það, að söfnuður hans hafi „ekki
blett nje hrukku eða neitt þess háttar, heldur sje
heilagur og lýtalaus“. (Efes. 5. 27.) Þeir, sem
elska hann, munu að sjálfsögðu hafa sömu þrá og
gera það, sem í þeirra valdi stendur, til að full-
nægja henni.
Ef hann, af kærleika til vor, lítur á oss synduga
menn eins og vjer værum eftirsóknarverð eign,
hvernig eigum vjer þá að líta á hann? Og ef vjer
könnumst við, að hann hafi lagt alt í sölurnar
vegna vor, eigum vjer ekki að vera fús til þess að
leggja alt í sölurnar fyrir hann?