Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1952, Side 6

Norðurljósið - 01.01.1952, Side 6
6 N ORÐURLJ ÓSIÐ MOLAR FRÁ BORÐI MEISTARANS. UM LEIÐBEININGAR GUÐS. Eftir J. PENN-LE WIS. „Allir þeir, sem leiðast af Anda Guðs, þeir eru Guðs synir. Því að ekki hafið Jijer fengið þrældóms- anda aftur til hræðslu, heldur hafið þjer fengið Anda sonar-kosningar, sem vjer köllum í: Abba, faðir!“ (Róm. 8. 14.-15.) „Þar eð þjer eruð synir, þá hefir Guð sent Anda sonar síns í hjörtu vor, sem hrópar: Abba, faðir!“ Andi Guðs-barnsins er gefinn öllum trúuðum, þegar Heilagur Andi kemur inn í hjartað. Hann þroskast eða vex að því skapi, sem hið gamla líf vort er deytt með krossi Krists, er vjer verðum samgrónir dauða Krists. Það má því kveða svo að orði, að leið- beiningar Heilags Anda Guðs sjeu handa þeim, sem gerast lítil biirn. Sameinuð hinum upprisna Drotni getum vjer stöðugt tekið á móti Anda Jesú og oss getur farið sífelt fram í því að læra að ganga sem börn með föðurnum, er vjer reiðum oss á hinn trú- fasta Anda hans, að hann leiði oss sem lítil börn og varðveiti oss á vegi vilja hans. Heilagur Andi leiðir oss aldrei til að gera nokk- uð, sem er gagnstætt hinu ritaða orði Guðs. Andi Guðs í orðinu og Andi Guðs í barni hans er ávalt samkvæmur sjálfum sjer. Vitnisburður Andans er ávalt gefinn, þegar vjer breytum eftir Guðs vilja. Oss er þörf á skjótri dóm- greind til að þekkja vitnisburð hans, er vjer prófurn hvert spor vort í lífinu. Árvekni er oss þörf, til að greina fyrstu bendingu hans, ef vjer víkjum frá vilja Guðs. Andinn hefir ávalt ákveðinn tilgang með leið- beiningum sínum. Hann eyðir ekki til ónýtis tíma eða kröftum þeirra, sem hann leiðir. Það hæfir oss ekki að þykjast hafa óskeikula leið- beiningu í hverju smáatriði, sem vjer gerum. Oss er betra að ganga þögul með Guði og láta liann um það að sýna öðrum, hvernig hann leiðir oss. Þegar Guð hefir sýnt oss, livað hann ætlar að gera með oss, þá skulum vjer gæta þess, að tiltaka ekki tímann sjálf, þegar það verður framkvæmt, eða bú- ast við, að það verði framkvæmt þegar í stað. Vjer skulum minnast, að oss getur skjátlast í því, hvað áform Guðs með oss er í raun og veru, þannig, að vjer getum skilið það, sem er andlegt, á annan hátt en andlegan. Vjer skulum forðast samninga við Guð og að kalla þá sáttmála við hann, að segja: „Ef þú gerir fietta...þá skal jeg gera . . . .“ Sál vorri geta orð- ið slíkir ,,sáttmálar“ fjötur um fót síðar ineir, svo að vjer þekkjum ekki nýjar leiðbeiningar frá Guði. Hann hefir heitið að leiða oss spor fyrir spor. Ef oss skjátlast, eigum vjer aldrei að vera hrædd við að kannast við það. Þar sem er heiðarleg hrein- skilni, þar dvelur Andi Guðs. Vjer erum aðeins „leirker", og það er svo auðvelt að híndra hand- leiðslu Andans. Það er langt um betra að kannast við, að oss getur skjátlast, en vanheiðra Guð með því að eigna honum það, sem vjer gerum af mis- skilningi. Vjer getum ekki vænst „sjerstakrar" leiðbeining- ar, Jiegar alt, sem vjer þurfum, er að þekkja hið rit- aða orð Guðs........Vjer skulum rannsaka orðið kappsamlega og hlýða öllu því, sem vjer sjáum þar. Ef vjer viljum einungis gera vilja Guðs og ekkert annað, þá getum vjer vænst þess stund eftir stund, að hann verki stöðugt í oss að vilja sinn vilja, meðan vjer sinnum skyldum vorum af öllu hjarta. Vjer skulum reiða oss á það, að Guð heldur aftur af oss, jafnt eins og hann leiðir oss áfram. „Andi Jesú leyfði þeim það eigi.“ (Post. 16. 7.) „Hjer er vegurinn, farið hann,“ er kallað á eftir þeim, sem eru að víkja út af honum. ýjes. 30. 21.) Sjeum vjer að ganga beina götu vilja Guðs, hvílir bros föðurins yfir oss, og hjarta vort hefir frið. Gerið ekkert í fljótræði. Það er tími til alls, sem Guð vill, að vjer gerum.... Gangan með Guði virð- ist vera mjög hæg, en hún er örugg, og enginn timi fer til ónýtis. Þeim sálum, sem algerlega lúta stjórn Guðs, gefur Heilagur Andi djúpan frið í hverju atriði, sem er eftir hans vilja. Öruggast er að taka aldrei nokkra ákvörðun, nema fullkomin kyrð sje í huga og hjarta. Leiðbeiningar á erfiðleikatímum. 1. Fel Guði ákveðið erfiðleika þína. „Fel Drotni vegu þína og treyst.“ (Sálm. 37. 5.) 2. Ber ákveðið traust til trúfesti Guðs. Mundu, að sem faðir getur liann ekki látið bregðast að leiða barnið sitt. „Sá, sem gengur fram fyrir Guð, verður að trúa því, .... að hann lætur þeim umbunað' ýlaunað), er hans leita.“ ýHebr. 11. 6.) 3. Sjáðu um, að eigin vilji þinn sje lagður undir Guð og vertu fús til að láta Guð leiða þig á sinn hátt. „Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá.“ (Orðskv. 11. 3.) 4. Fylgdu því ljósi, sem þú hefir nú, yfir það, hvað er vilji Guðs. 5. Treystu Heilögum Anda til að gefa þjer heil- brigða skynsemi. Skoðáðu þína erfiðleika frá þrenns konar sjónarmiði: Fyrst, Guðs ríkis; næst, skyldu þinnar gagnvart öðrum; síðast, áhrifa þeirra, sem ákvörðun hefir á þig. „Hann lætur hina voluðu (auðmjúku) ganga eftir r jettlætinu og kennir hinum voluðu ('auðmjúku) veg sinn.“ (Sálm. 25. 9.) 6. Láttu málið livíla í hendi Guðs með þeirri rólegu fullvissu, að hann tekur það að sjer, en gerðu á meðan það, sem næst liggur fyrir að gera. „Jeg vil kenna þjer og fræða þig um veg þann, sem þú átt að ganga; jeg vil kenna þjer ráð, hafa augun á þjer.“ ('Sálm. 32. 8.) „Trúið þið, að jeg geti gert þetta? .... Já, herra.“ .... „Verði ykkur að trú ykkar!“ ('Matt. 9. 28.-29.)

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.