Norðurljósið


Norðurljósið - 01.02.1963, Blaðsíða 2

Norðurljósið - 01.02.1963, Blaðsíða 2
10 NORÐURLJÓSIÐ óvina Krists og andstæðinga hafði hann engan kjark til að taka afstöðu sína með Kristi. Brestur þig kjark til að kannast við trú þína á Krist? Er ekki andlegur svefn, bænarleysi, orsök þess? „Rís upp frá dauðum,“ segir Drottinn. Andlega sofandi maður, þú ert meðal hinna dauðu. Þú ert meðal manna, sem dauðir eru í syndum og yfirtroðslum. Þú kannt vel við þig þar. Þótt blótsyrðin dynji sem haglskúr og alls konar ósiðlegt orðbragð. Þú lætur þetta afskiptalaust, áminnir engan, bendir ekki nokkrum á orð Krists: „Ég segi yður: Sérhvert ónytjuorð, það er mennirnir mæla, fyrir það skulu þeir á dómsdegi reikning lúka.“ Siðferðis- leg rotnun andlegra dauðra manna, hún kemur í ljós í orðum þeirra, „því af gnægð hjartans mælir munnur hans.“ „Vakna þú, sem sefur, og rís upp frá dauðum," segir Drottinn. „Hvernig get ég það?“ segir þú. Við skulum athuga svar við þessari spurningu. Andlegur svefn er synd. Hann er óhlýðni við boð Krists að vaka og starfa, ávaxta pundið, sem þér er selt í hendur, trúað fyrir. Fyrsta sporið er því að játa synd sína fyrir Guði, því að ritað er: „Ef vér játum syndir vorar, er hann trúr og rétt- látur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti“ (I. Jóh. 1, 9.) Þitt er að játa, kannast við ástand þitt, Guðs er að fyrirgefa og hreinsa. Hann fyrirgefur þér vegna dauða Krists fyrir þig, því að „blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.“ Á þessum grundvelli, að þér sé fyrirgefið og að þú sért hreinn vegna blóðs Jesú, sonar Guðs, biður þú Guð að fylla þig heilögum Anda, íklæða þig kraftinum frá hæð- um. Þú reiðir þig á fyrirheit Guðs, sem hann gefur þeim, er vakna og rísa upp frá dauðum: „Þá mun Kristur lýsa þér.“ Hann mun uppljóma skilning þinn og sýna þér sjálfan sig. Þú munt sjá, að hann sjálfur er líf þitt, kraftur þinn, og að þú megnar allt fyrir kraft hans, sem styrkir þig. (Fil. 4. 19.) Hann mun sýna þér, að hann klæddi sína fyrstu votta kraftinum frá hæðum, fyllti þá heilögum Anda, og gerbreytti þar með ævi þeirra og starfi. Hann mun einnig gerbreyta ævi þinni og láta þig bera einhverja þá ávexti, sem verða Guði til dýrðar og mönnum til bless- unar. Þetta hefir hann gert fyrir þúsundir manna. Hann er enn að gera það. Vertu með í hópi þeirra, sem vakna og rísa upp frá dauðum, því að þá mun Kristur lýsa þér, birtast þér. S. G. J. ---------x —■— JOLABLAÐ O G JÓLALESBÓK ÓLAFSFIRÐINGS Ritstj. Nlj. bárust í hendur þessi blöð á sínum tíma. Sóknarpresturinn, sr. Kristján Búason, átti þar mjög svo fróðlega grein fyrir marga um „tímatal og fæðing Krists.“ Ekki verður þetta gert að urnræðuefni hér, en því bætt við grein sr. K. B., að bæði Rómverjar og Egyptar höfðu jólatré til forna, þótt sá siður væri ekki tekinn upp í kristninni fyrri en í byrjun 17. aldar. Það voru greinar eftir ungmenni í Ólafsfirði, sern vöktu mest athygli mína. Erla Magnúsdóttir skrifar „Fullorðna fólkið og ég.“ Tjáir hún sömu söguna, að alltaf er sett út á unglingana af fullorðna fólkinu. Rifjast nú upp fyrir mér, hvað móðir mín var vön að segja, er hún heyrði eldra fólkið álasa hin- um yngri. Hún sagði: „Kýrin man ekki, að hún hafi kálfur verið.“ Þarfnast þau orð ekki frekari skýringa. Erla drepur á útivist unglinga á kvöldin, sem meðal annars stafi af skorti á verkefnum, svo sem basti og tág- um til heimavinnu. Þetta minnti mig á forna daga, er ég kenndi drengjum handavinnu. Þeir fengu að fara heim með verkefni sín. Einhver hafði orð á því við mig, að drengir undu sér inni við þetta á kvöldin í stað þess að ólmast úti. Erla bendir því áreiðanlega á eina góða leið til úrbóta, sem skólastjórar og kennarar ættu að taka til athugunar. „Laun heimsins“ hét þar bernskuminning eftir Mikael Mikaelsson. Hann og leikbróðir fundu dauða liænu, er þeir voru sex ára gamlir, og fengu þá hugmynd að koma henni til Guðs. Var farið með hana í kirkjugarðinn þeirra erinda. En þá kom amma gamla og sótti þá, og þeir voru hirtir fyrir tiltækið, er heim kom. Fullorðna fólkið skildi þá ekki betur en þetta. Hér er aftur sama sagan og hjá Erlu, skilningsleysi fullorðna fólksins á börnum og ung- lingum. Munum við sem fullorðin erum, seint vaxa svo, að við getum ekki haft gagn af því að heyra, hvað hinir yngri finna að okkur. „Komið til mín,“ eftir Gest, lýsir því, er höf. vill gefa jólagjöf. Það verður dýrmætur kristalsvasi, sem lagt er af stað með. En vinurinn, sem á að fá hann, opnar aðeins dyrnar og býður Gesti ekki inn, sem hann þó hafði áður heitið vináttu sinni. Gestur snýr því vonsvikinn heim. Sér til fróunar brýtur hann vasann. En síðan tekur hann biblí- una og les þar orð frelsarans „Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.“ Hann les áfram, og smám saman kemur friður í sálu hans. Kristalsvasinn dýrmæti, er hann ekki líf okkar, framtíð, sem við viljum svo fúslega gefa einhverjum eða einhverri með okkur, sem ekki tekur á móti okkur? Vonbrigðin nísta hjartað. Þá fleygja sumir lífinu frá sér með sjálfsmorði, eða þeir steypa sér í óreglu, drykkjuskap eða lausung. Sælt er það hjarta, er á slíkum stundum gerir hið sama og Gestur í sögu sinni, finnur frið með því að koma íil orða Drottins Jesú. Bezt af öllu er að gefa honum vasann sinn, áður en hann er brotinn, líf sitt, áður en því er glatað. En undarlega vel getur almættishönd Frelsarans gert upp aftur brotna vasa, sem honum eru gefnir, endur- skapað mannsævi, sem komin er í rústir, sé hún alveg helguð og gefin honum. Höfundunum ungu í Ólafsfirði og öðrum í þeirra spor- um vil ég benda á Drottin Jesúm. Þegar skilningsleysi okkar hinna fullorðnu særir eða nístir hjörtu þeirra, Þá er það í raun og veru kall frelsarans: „Komið til mín, allir þér, sem .... þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.“ Enginn þarf að kvarta yfir skilningsleysi hans eða kulda. Hann veitir því viðtöku, sem honum er gefið. Gefi

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.