Norðurljósið


Norðurljósið - 01.02.1963, Blaðsíða 6

Norðurljósið - 01.02.1963, Blaðsíða 6
14 NORÐURLJÓSIÐ Molar frá borði Meistarans. (Greinir fyrir lœrisveina Krists.) Vakið. Yfir lækinn Kedron, upp í lága hlíð Olíufjallsins, stefnir lítill hópur manna. Það er nótt. Þegar komið er að garð- vegg, skilur foringinn eftir átta menn. Með þremur öðrum gengur hann inn í garðinn. Þá segir hann við þá: „Sál mín er sárhrygg allt til dauða; bíðið hér og vakiff með mér.“ Hann gengur svo sem steinsnar frá þeim, fellur fram á ásjónu sína og tók að biðjast fyrir. Mennirnir þrír sitja eftir. Þreytan eftir langan dag fer að segja til sín, augun lokast, þeir falla í fastan svefn. Meistari þeirra kemur til þeirra, ávarpar þá og segir við Pétur: „Þér gátuð þá eigi vakað með mér eina stund? Vakið og biffjið, til þess að þér fallið eigi í freistni." Pétur vissi eigi, að freistingin var á næstu grösum, reynslustundin ógurlega. Hann hlýddi eigi boði Drottins, svaf áfram og féll. Hvernig hefðu þessir þrír menn getað haldið sér vak- andi? f^yrst af öllu með því að tala við Guð, leita hj álpar hans til að vaka og biðja eins og þeim hafði verið sagt. Guð er fús að hjálpa þeim, sem halda vilja fyrirmæli sonar hans og gera eins og hann segir. I öðru lagi hefðu þeir getað talað saman. Þeir hefðu getað farið að tala saman um stórmerki Guðs, hvernig hann frelsaði ísrael úr ánauð Egipta. Páskamáltíðin var nýlega afstaðin, og páskaundrið í Egiptalandi ferskt í minni. Þeir hefðu getað rætt um kraftaverkin og dásemdar- verkin, sem Drottinn hafði gert í augsýn þeirra. Þeir hefðu jafnvel getað rifjað upp allt það, sem hann hafði látið þá framkvæma, þegar hann sendi þá út til að prédika, lækna sjúka og reka út illa anda. Þeir hefðu getað rætt um kom- andi ríki Krists, hvort hann mundi láta dragast lengi að stofna það. í þriðja lagi hefðu þeir getað ýtt hver við öðrum, áminnt hver annan, þegar þeir fóru að dotta og draga ýsur. Stafaði ekki svefn þeirra, undanlátssemi þeirra við hann, mest af því, að þeir höfðu ekki tekið orð Meistara síns, skipun hans, eins alvarlega og þeim bar að gera? Hefði það verið hjartans ásetningur þeirra, að þeir skyldu gera alveg eins og þeim var boðið, hvað sem það kostaði, mundu þeir þá ekki hafa staðið sig betur? Oss hefir Drottinn einnig boðið að vaka. Hann er farinn úr þessum heimi, er eins og steinsnar í burtu. En hann kemur aftur. Hann talaði aftur og aftur um endurkomu sína. Það er talað meira í nýja testamentinu um endur- komu hans en nokkurt annað efni. Kristur hefir með mörgu móti reynt að hamra það inn í huga vorn og hjörtu, að vér eigum að vera vakandi, þegar hann kemur. Vér eigum að vaka eins og húsráðandi mundi gera, sem ætti von á innbrotsþjófi á vissri stundu. (Matt. 24. 43.) Vér eigum að vaka eins og dyravörður, sem fær skipun frá húsbónda sínum, sem er að leggja af stað í ferðalag, að vera vakandi, þegar hann kemur. Húsbóndinn hefir falið þjónum sínum hverjum sitt verk, sem þeir eiga að stunda í fjarveru hans. Dyraverðinum gefur hann aðeins eina skipun: „Vertu vakandi og ljúktu upp fyrir mér, þegar ég kem.“ Öðru verki þarf hann ekki að sinna. Þannig eigum vér að vaka, sem trúum á Drottin Jesúm. „Vakið og biðjið.“ Þetta sagði Drottinn við postulana þrjá. Hann hefir einnig boðið oss: „Verið ávallt vakandi og biðjandi.“ Hvers vegna eigum vér að vaka og biðja? Fyrst og fremst til þess, að vér megnum að umflýja allt það, sem fram mun koma.“ (Lúk. 21. 36.) Ógurlegir atburðir boða endurkomu Krists til jarðar. Astand heimsins verður svo skelfilegt, áður en hann birtist að vér hvorki skiljum það né getum heldur lýst því. Frá hrylliiegustu hörmungum allrar sögu mannkynsins vill Drottinn frelsa oss. „Vakið, biðjið,“ segir hann. í öðru lagi eigum vér að vaka og biðja, til þess að vér fáum staðizt frammi fyrir Drottni, þegar hann kemur. Endurkoma hans er tíminn, þegar hann gerir upp reikninga sína við þjóna sína. En þjónar hans eru allir þeir, sem trúa á hann sér til hjálpræðis. „Sælir eru þeir þjónar, sem hús- bóndinn finnur vakandi, þegar hann kemur.“ (Lúk. 21. 36., 12. 37.) Drottinn lítur á fólk sitt hér á jörðu. Það er í alls konar andlegu ástandi. Hjá sumum er kærleikurinn til hans farinn að kólna. Aðrir eru hálfvolgir, ánægðir með sjálfa sig, og sjá ekki hættuna, sem yfir þeim vofir. Og sumir eru sofandi eins og söfnuðurinn í Sardes. (Opinb. 3.) Drott- inn segir við slíkan mann eða söfnuð: „Vakna þú!“ „Ef þú nú vakir ekki, mun ég koma yfir þig eins og þjófur, og þú munt alls ekki vita, á hverri stundu ég kem yfir þig.“ Sofandi fólk er óviðbúið fólk. Það tekur ekki fagnandi á móti Drottni sínum, þegar hann kemur aftur. Það notar ekki tækifærin, sem það hefir til að þjóna honum, meðan nóttin kemur ekki, nóttin, þegar enginn maður getur unnið. Bróðir og systir! Ertu vakandi, ertu biðjandi? Ertu bíðandi hinnar sælu vonar og dýrðar-opinberunar hins mikla Guðs og frelsara vors Jesú Krists? (Tít. 2. 13.) Ertu að nota tækifærin nú, sem Guð gefur þér til að vitna um frelsara þinn, útbreiða þekking á hjálpræði hans? Sé þetta ekki svo, þá ertu sofandi. Sofðu ekki lengur. Vaknaðu, meðan enn heitir: í dag. Og viltu biðja Drottin að gefa mér það, að ég verði vakandi, biðjandi og starfandi, þegar hann kemur? „Kom þú, Drottinn Jesús.“ Það verði bæn vor. „Vakið, standið stöðugir í trúnni. Verið karlmannlegir. Verið styrkir.“ (I. Kor. 16. 13.) Trúin á Drottin Jesúm er dýrmætt hnoss. Vér eigum óvini, sem vilja ræna oss þessu hnossi, með því að beina sjónum vorum frá Kristi, en ekki að honum eða til hans. Vér eigum að sýna af oss karlmennsku, styrkleik, ekki svefn og óstöðuglyndi. „Verið algáðir, vakið; óvinur yðar djöfullinn gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt; standið gegn honum stöðugir í trúnni.“ (I. Pét. 5. 8., 9.) Hér er ennþá ein áminning til vor að vaka: Vér eigum

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.