Heimskringla - 09.01.1890, Side 1
ALiEMAR FRJETTIR
FRÁ ÚTLÖNDUM.
ENGLAND. Nýtt mál gegn
Parnell er komið upp á Englandi,
og ætla flestir sem honum eru
hlynntir, að í pví sje Times einnig
pottur og panna. í pólitiskum
skilningi gat pað blað honum ekki
í hel komið með falsritum, ljúg-
vitnum og p. h., að pví er snerti
hans ýmsu opinberu stórf. Nú á
pess vegna að reyna ijnnur vopn á
liann, en pau í stuttu máli eru pau,
að hann sje orsök í hjónaskilnaði,
sem nú er beðið um að lögum. Sá
er um hjónaskilnaðinn biður er
írskur maður, búsettur á Englandi
og flokksforingi í herliði Breta;
heitir hann O’Shea, og er alkunnur
á Englandi, Skotlandi og Irlandi.
Xrið er leið kom hanu fram sem
einn votturinn fyrir rannsóknarrjett—
inum, og var í hvívetna andvígur
Parnell. Hann er kvæntur konu af
háum stigum og af sama ættbálki og
Parnell. Kynntist Parnell peim hjón-
um í húsi móður hennar I London,
pegar fyrst hann kom pangað sem
pingmaður, og á meðan hann var
hvergi húshæfur gestur hjá aðlinum,
nema tengdamóður O’Shea, er tók
honum tveim höndum undireins.
Jókst pannig kunningsskapur peirra
Parnells og síðan altaf öðru hvoru
hefur Parnell verið til heimilis hjá
peim hjónum á meðan á pingi hef-
ur staðið.—Meginhluti blaðanna sem
andvíg eru Salisbury-stjórninni láta
ótvíræðlega í ljósi að Parnell sje
saklaus, og að petta sje að eins eitt
annað ráð til að reyna að svipta
hann mannorði sínu. Fylgisblöð
Salisburys aptur á móti gefa í skyn,
að nóg muni æfinlega sannast til
pess, að Parnell fari köiiiu fösin.. og
Sir Charles Dilke um árið, megi
hverfa úr sögunni fyrirlitinn og for-
smáður og eigi ekki framar við-
reisnar von.
A nýársnótt kom upp eldur í
munaðarleysingja skóla í London,
par sem sváfu inni um 600 piltar.
f>ar ljetu lífið 26 drengir áður en
eldurinu varð slökktur. I afskekkt-
um parti byggingarinnar voru 250
stúlkubörn, en sá partur varð varinn,
svo að ekki kviknaði í honum. Marg-
ir af drengjunum voru meðvitundar-
lausir, er peim var bjargað.
Svo mikið er búið að vinna að
gangnagerðinni undir sundið milli
Englands og Frakklands, sem Sir
Edward Wathins berzt mest og bezt
fyrir, að niður við ströndina hjá
Dover er gerð hola mikil í jörðina,
er kostað hefur £80,000 (um $400,
000). En par viti situr enn, fyrir
mótstöðuaflið hvervetna á Englandi.
Sir Edward býzt nú við að mega
bíða til pess Gladstone nær völdum,
en pá er hann viss um að fá leyfið
til að bora pessi miklu járnbrautar-
göng, af pví Gladstone er eins áfram
um að pau verði gerð og Sir Ed-
ward sjálfur.
RUSSLAND. Þaðan hafa um und-
anfarinn tlma borist ósköpin öll af
sögnum um aðgerðir nihilista nú í
seinni tíð. Það hefur ekki borið
neitt á peim, að marki, nú langan
tíma, fyrri en í vetur. Þá alt í einu
eiga peir að vera komnir á stað
með endurnýjuðu preki til að vinna
að stjórnarbyltingu. ítrekaðar til-
raunir að fá keisarann ráðinn af
dögum hafa átt að vera gerðar, og
núna um jólin og nj'árið hefur hann
veiið mjög veikur annan sprettinn.
Á pað nú að vera sprottið af pví
að eitur hafi verið borið í fæðu hans.
Nihilistar segja pað líka satt vera,
síðan pað var opinberað af læknum
keisarans, og stæra sig af að einn af
peirra flokki hafi verið við og látið
eitrið I mat keisarans. Að eitthvað
sje hæft í pessu pykir mega ráða af
pví, að um nýárið voru margir nihil-
istar teknir fastir, par á meðal nokkr
ir á gamlársdag innan veggja vetr-
arhallarinnar sjálfrar. Voru peir ill-
ir viðureignar og lenti í barsmíð
milli peirra og lögreglupjónanna og
fjell par einn af nihilistum.
Síðan hefur verið handtekinn í
Warchau á Póllandi einn alræmd-
ur leiðtogi nihilista, Pierre Gross að
nafni. í vösum hans fannst fjöldi
brjefa og ýmiskonar skjala, er sannai
að almenna tilraun á að gera til að
ráða af dögum ekki aðeins keisarann
sjálfan, heldur alla keisara ættina.
Skjöl pessi sanna og, að meðal sam-
særismannanna eru fjölda margir
háttstandandi ocr tio-naðir embættis-
n o
menn keisarans.— Þessa dagana eru
menn og handteknir í hrönnum, og
margir gripnir í pví peir eru að flýja
út úr ríkinu á laun. En nú bíður
peirra ýmist Síbería eða gálginn.
í nýársgjöf fengu 208 manns í
Moskva pá fregn, að degi síðar,
hinn 2. p. m., yrðu peir sendir af
stað til útlegðar og prælkunar í Si-
beríu-námunum. Og hinn 2. p. m.
lögðu peir af stað undir sterkumýier-
verði, allir í járnum á höndum og
fótum, allir í lörfum og margir veik-
ir, eptir margra mán. hald í hinum
viðurkendu banvænu fangelsum
Rússa. Austur að Ural-fjöllum fara
peir með járnbraut; eptir að par
kemur verða peir að ganga.
Fullyrt er að Rússar hafi samið
við Frakka um að fá par smíðaða
milj. rifla með nýjasta lagi, og svo
fljótt sem verður.
ÍTALÍA. Þar var gripinn mað-
ur að nafni Rita, frá Sikiley, hinn
2. p. m., pá er hann kastaði sprengi-
kúlu með áföstum logandi kveik,
inn í húsdyr par sem Humbert kon-
ungur var að nefnd pingmanna, er
sendir voru á fund hans.
Um nýárið hafði páfinn fund
með öllum kardínálum sínum og
helztu embættismönnum, og flutti
hann par mjög harðorða ræðu um
stjórn Ítalíu. Heimtaði hann par
aptur sitt verzlega vald; kvað kirkj-
una ekki komast af án pess. Með-
al annars kvartaði hann yfir sví-
virðingunni er kirkjunni hefði verið
gerð með pví að reisa Giordane
Bruno minnisvarða.
SPÁNN. Ef fregnum paðan er
að trúa, gengur par alt á trjefótum,
°g stjórnarbylting í vændum pegar
minnst varir. Stjórnarráðið sagði af
sjer um jólin, og enn hefur ekki
tekist að fá annað í skarðið. Innan
um petta er svo blandað fregnum
um tilraunir að ráða Kristínu ekkju-
drottningu af dögum. Konungsinn-
ar og prestarnir útbreiða pað og
kenna byltingamönnum, en byltinga-
menn aptur segja að fyrir pví standi
prestalýðurinn, og að ástæðan sje,
að kirkjan nái ekki pví haldi er
hún vill á strákhnokkanum 3 vetra,
Alphonsi konungi XIII., fyrir móðir
hans, sem fyrst og fremst er útlend-
ingur og að auki langt frá nógu
undirgefin prestalýðnum.
PORTUGAL. Þar bar tvennt
markvert til tíðinda hinn 28. f. m.
E>ann dag var krýndur hinn ungi
konungur, sonur Luis I., og heitir
nú Dom Carlos I. Var pá mikið
um dýrðir í höfuðstaðnum óg hver-
vetna, pví alpýða fagnar mjög hin-
um unga konungi. En rjett í pví
er gleðin stóð hæðst kom fregn frá
Oporto að látin væri keisarafrúin
frá Brasilíu. Hún liafði verið vesöl
mjög frá pví hún yfirgaf Brasiliu,
en pó var hún á ferli til föstudags,
deginum áður en hún dó, og var í
kynnisför í Oporto. Dom Pedro var
ekki viðstaddur er hún ljezt, en
kom stuttu sfðar. Fjellst honum
mjög um missirinn og par hanu er
mjög hrumur orðin, er óttast að
petta ríði honum að fullu. Keisar-
afrúin var grafin hinn 3. p. m. með
mikilli viðhöfn. Var pá Dom Pedro
svo veikur að hann gat ekki verið
viðstaddur.
BRASILÍA. Hin nýja stjórn hef-
I ur nú gert upptækar allar prívat-
eignir fyrrverandi keisarahjóna. Eru
pær eignir mestar í gullstázi og de-
möntum og eru alls rúmlega $11
milj. virði. Þar af var silfur og
gull borðbúnaður f höllinni $300,
000, gullstáz er tilheyrði krónunni
milj., gullstáz keisarafrúarinnar
600,000, og gullstáz Dom Pedros
sjálfs $200,000 virði. Alt petta og
allan húsbúnaðinn í höllinni tilheyr-
andi hjónunum, hefur nú stjórnin
tekið og flutt í fjárhyrzlu sína, til að
selja við uppboð.
Ekkjufrúin Augusta, amma
Þýzkalandskeisara, ljezt í Berlín 7.
p. m.
frÁ ameriku.
BANDARÍKIN.
Að boði eigendanna var allri
kolatekju í 10 harðkolanámum i
Pennsylvania hætt núna rjett fyrir
áramótin. Hvenær tekið verður til
vinnu aptur veit enginn, en ógrynni
af harðkolum bífiur óselt. Þar missa
atvinnu 7,000 manns. Sömu dag-
ana útgekk og pað boð frá eigend-
um allra námanna á pessu sviði, að
eptir árslokin skyldi enginn
kolatekjumaður fá vinnu lengur en
kl. stund á dag, par til öðruvfsi
yrði ákveðið. Með pví að vinna 10
kl. stundir á dag ná verkamennirnir
upp í mesta lagi $20 á mánuði, eða
$5 á viku. Jólagjöf peirra er pess-
vegna sú, að framvegis geti peir inn-
unnið sjer í mesta lagi $15 á mán—
uði.—Ástæðurnar fyrir pessari vinnu-
stöðvun og niðurfærzlu er hin al-
menna milda tíð pað sem af er vetr-
inum. Er sagt að hin síðastl. 20 ár
hafi aldrei verið selt jafnlítið af kol-
um á pessu tímabili árs, eins og nú.
Þessarar góðu tfðar gjalda kolatekju-
mennirnir.
Eptir skýrzlum frá fjármála-
stjóra hvers einasta ríkis og Terri-
tories f Bandaríkjum að dæma, er
blaðið New York Worlcl hefur ný-
lega útvegað og gefið út, hefur auð-
legð Bandaríkjanna aukiztum rúmar
18,000 millj. doll. síðan árið 1880.
Hafnkönnunarmennirnir, er Band-
aríkjastjórn í fyrra vetur setti til að
rannsaka Mexico-flóann norðyestan-
verðann og segja hvar par væri
bezt höfn, hafa nú lokið verki sínu.
í Galveston, Texas, segja peir lang-
bezt skipalagi.
Samskotin til minnisvarðans mikla
sem á að verða yfir Grant sál. hers-
höfðingja eru nú orðin $140,000.
Er pað blaðið Mail ancl JiJxpress í
New York, sem par á stærstan hlut
í. Blaðstjórnin afhenti nefndinni
núna fyrir fáum dögum 100,000, er
hún hafði safnað. Og blaðstjórnjn
hefur nú auglýst að andvirði blaðsins
á nýbyrjuðu ári skuli alt falla í
pann sjóð.— Minnisvarðinn verður i
Riverside Park f New York, osr á að
vera kominn upp 1892.
Allir helztu leiðandi menn með-
al svertingja í norðurríkjunum komu
saman á fundi í Richmond í vikunni
er leið, til að ræða um ástand sitt,
að pví er pegnrjettindi snertir. Var
par ákveðið að biðja pjóðpingið
um verndandi löggjöf.
Einkennilegt inál mátti Windom
fjármálastjóri útkljá um daginn.
Meðal innflytjenda til New York
kom ein kona frá írlandi, sem átti
enga að og enga penir.ga. Daginn
eptir að hún koin á Castle Garden
Ól hún barn, og var pá ekki mögu-
legt að endursenda hana til írlands
með sama skipi er flutti hana. Svo
var Windom spurður ráða og sögð
sagan. Úrskurðaði hann pá, að
barnið væri Bandaríkja pegn, að
konan-—móðir pess—vær'i pess nátt-
úrlegi gæzlumaður, og að stjórnin
gæti pess vegna ekki rekið hana af
landi burt.
Viðskipti Bandaríkjanna við út-
lönd árið sem leið til 1. desember
voru meiri svo miklu munaði, en
pau hafa verið um síðastl. 6 ár. Verð
peirra sfðastl. ár var að samlögðu
$1,618,309,207. Þar af var útflutt-
ur varningur nærri pví 816 milj.,
og innfluttur varningur rúmlega 802
milj. doll. virði. Öll eru viðskiptin
$160 milj. meiri en í hitteð fyrra.
Um hærri aðflutningstoll en nú
er biðja menn Bandaríkjastjórn, úr
öllum áttum. Er pað sjerstaklega
glervarningur, járn í ýmsum mynd-
um, gull stáz o. p. h., sem beðið er
fyrir. Eitt atriði sem fram er dreg-
ið eru steðjar. Er sýnt fram á að
fyrir 40 árum hafi f Bandaríkjum
verið 25 verkstæði par sem steðjar
voru gerðir, en að pann dag í dag
sje pau aðeins 3, alt _fyrir ónógan
toll. Samskonar ástæður eru til
færðar í öllum öðrum greinum.
í New York er í undirbúningi
stórmikil vinnustöðvun. Fyrirhenni
standa sjómenn, er nýlega hafa
myndað fjelagsskap, svo að í fjelag-
inu eru nú pegar um 6,000 sjómenn.
Ætla peir að biðja um hærri laun,
fyrir allar hinar styttri sjóferðir að
minnsta kosti. Og til pess að gera
sjer sigurinn vísari hafa peir samið
við fjelagsstjórn uppskipunarmanna
í New York og Jersey City um alls-
herjar vinnustöðvun svo fljótt sem
verði við komið. Uppskipunarmenn
eru fúsir til pessa, par peir hafa
von um að vinna sitt mál, og par
ákveðið er að biðja um 35 cents á
kl. stund fyrir hlaupavinnu við upp-
skipun og framskipun. Uppskipun-
armenn í New York eru um 30,000
talsins.
Ríkisbúskapurinn f Suður-Dak-
ota gengur ekki neitt vel, ef dæmt
er eptir áliti ríkisstjórans. í ræðu
er hann ílutti um daginn gerði hann,
samkvæmt áætlun fjármálastjórans,
ráð fyrirtekjuhalla ernemi að minnsta
kosti $150,000, eptir hið fyrsta fjíir-
hagsárið. Skoraði hann pví fastlega
á pingmenn að við hafa alla mögu-
lega sparsemi. Meðal annars sagði
hann að í ríkinu væri fjölda margir
alpýðuskólar, er enga pýðingu hefðu
en sem ennpá væri viðhaldið á
kostnað hins opinbera; pað væri pví
nauðsynlegt að loka peim nú undir-
eins.
í vikunni er leið höfðu byltinga-
menn meðal verkamanna af gyðinga-
ættum aðal-fund f New York, og
voru par saman komnir fulltrúar sam-
vinnandi fjelaga úr öllum áttum
Bandaríkja. Meðal máltækja sinna
er aðal-fjelagiðhafði útbúiðmeðstóru
letri á dúkum um pveran og endi-
langann fundar salinn voru: ”Yjer
viðurkennum engan guð, og engin
yfirvöld” og uHjá oss hefur orðið
jafnrjetti aðeins eina pýðingu—pjóð-
fjelagsbylting“”. Á tundinum varð
hörð rimma út af pví, hvort fundur
inn ætti að taka gilda sendimenn
samvinnufjelags f Cincinnati, af pvi
pað fjelag nefndi sig uLeitendur
sannleikans”. Fundurinn var á pví
að á pessari öld, ((á pessum síðustu
og verstu dögum” væri enginn sann-
leikur til. Þó varð pað ofan á að
sendimennirnir voru teknir gildir.
Ákveðið var á fundinum að gefa út
blað er hjeldi fram anarchista-skoð-
unurn, og að hafa á pvf tungumáli
er flestir gyðingar gætu lesið.
Verkstæða eigendurnir nærri
allir f Ný-Englands-ríkjunum hafa
æskt eptir að innflutningstollur sje
tekinn af kolum frá Nýja Skotlandi
eða öðruni stöðum í Canada. Toll-
málanefnd pjóðpingsins hefur verið
beðin pessa.
í Carolina-ríkjunum er harðæri
engu minna í vetur, en í Dakota,
sem svo mikið hefur verið látið af.
Bómullar uppskeran brázt að heita
mátti algerlega og neyðin er svo
mikil, að talað er um auka-ríkisping
til að ráða eitthvað fram úr og af-
stýra hungri. Er pað vfða, að bænd-
ur eru búnir að selja alt er selt
verður, og eiga nú ekkert eptir.
Hvirfilbyljir voru tfðir um Ný-
Englandsríkin og suður um New
Jersey og vestur undir Missisippi-
fljót í vikunni milli jóla og nýárs.
Ollu peir miklu eigna tjóni, eink-
um í New York-ríkinu.
Á síðastl. ári urðu 11,719 verzl-
anir gjaldprota f Bandarfkjum (í fyrra
voru pær 10, 587). Skuldir peirra
voru samlngðar $140,359,490 (f fyrra
voru pær $120^ milj.). Eignir til
að mæta peim metnar á $70,099,769
(í fyrra $62 milj.).
Á síðastl. ári var ríkisskuld
Bandarfkja minnkuð svo nam $81,
109,347. Upphæð hennar er nú, að
frádregnum peningunum í fjárhirzl-
unni, 1,052,952,911.—í sfðastl. des.
mán. nam afborgunin 3 milj. rúm-
lega- ____________________
Á gamalársdag fór hnatthlaup-
arinn, Miss. Bisland -frá New York,
af stað frá Colombo á Ceylon áleiðis
til Aden og Suez. Hinn -3. p. m.
var Miss Bly, sem einnig er á ferð-
inni, en í öfuga átt, væntanleg til
Jokohama á Japan.
Eptir veðurfræðisskýrzlu útkom-
inni 3. p. m. í Washington hefur
vetrartíðin til ársloka verið mildari
í öllum Bandaríkjum, yfir höfuð að
tala, heldur en dæmi eru til síðan
farið var að safna almennum veður-
fræðisskýrslum. í suðurríkjunum
öllum og eins á Kyrrahafsströnd-
inni hefur veturinn verið óvanalega
purviðrasamur.
Suður-Dakota pingið kom sam-
an hinn 7. p. m. Lengsti tfmi
er pað má sitja eru 60 dagar, sam-
kvæmt stjórnarskránni, en á pví
tímabili verður pingið pó að hafa af-
greitt 31 lög, ella eru allar pess
gerðir ómerkar.
Nýlega ljet Bandaríkjastjórn
vfsa burt úr einu verkstæði sínu í
New York gömlum manni, Thomas A.
Jones að nafni. Ástæðurnar voru, að
pað er nýlega uppvíst, að hann var
einn peirra er hjálpuðu John Wilkes
Booth til að flýja, eptir að hann drap
Lincoln forseta forðum.
Snjóflóð varð 8—10 manns að
bana hinn 4. p. m. í California-rík-
inu austanverðu, uppi í fjöllunum.—
Snjófallið er alveg dæmalaust á pvf
svæði; sutnstaðar er snjórinn orðin
16 feta djúpur á jafnsljettu. Kuld-
inn erog óvanalega mikill.
C a n a, d a .
Fyrir rjetti skipuðum óviðkom-
andi mönnum, en undir umsjón hæzta-
rjettar, í Ottawa, stendur nú yfir
stórmál mikið, er Canada Kyrrahafs-
br. fjel. hefur hafið gegn Canada-
stjórn út af peim köflum Can. Kli.
brautarinnar öllum,erstjórnin byggði
á sinn kostnað bæði áður og eptir
að fjelagið myndaðist. Fjelagið seg-
ir að stjórnin hafi ekki byggt sina
kafla eins vel og upphaflega var
ákveðið, og eins og af fjelaginu var
heimtaðf pess samningum viðstjórn-
ina. Málafærzlumaður fjelagsins er
Edward Blake, fvrrum formaður re-
formflokksins. Hann byrjaði ræðu
sfna fyrir rjettinum hinn 3. p. m.
og í dag (8. p. m.) er hann enn að
flytja sömu ræðuna. Er búizt við
að flutningur hennar standi yfir7-10
daga uppihaldslaust.
Það er ekki stríðlaust fyrir sam-
bandsstjórnina að liafa prentara sína
ánægða. Jafnótt og hún hefurórð-
ið við bón peirra að hækka kaupið,
rísa peir upp og heimta enn meiri
viðbót, eða einhverjar breytingar
frá núverandi reglum.
Sambandspingsmenn eru nú peg-
ar farnir að flykkjast til Ottawa, og
er alt útlit fyrir að pingið verði vel
fjölmennt undireins og pað verður
sett, næstk. fimtudag (16. p. m.).—
í næstk. febrúar er útrunninn hinn
ákvarðaði tími, er sambandsstjórn
ákvað að veita Bandaríkjamönnum
til umhugsunar um nýja fiskiveiða-
samninga. En par Bandaríkjastjórn
hefur enn ekki gert neitt í pá átt,
eru nú margvíslegar tilgátur manna
um pað, hvernig sambandsping fari
með málið. Er að heyra á stjórn-
inni að nýr frestur sje líklegur.
Verzlun Canadamanna við út-
lönd í síðastl. nóv. mán. $19J milj.
paraf útfluttur varningur rúmar $10
milj., en aðfluttur rúmar 9. Af
aðflutta varningnum var greitt í toll
f rfkissjóð $1,821,290—Á peim 5
mán. er í nóv. lokin voru liðnir af
yfirstandandi fjárhagsári, nam verzl-
un Canadamanna við útlönd $107|
milj. Er pað 13J milj. meir en á
sama tíma í fyrra.
í stjórnarráði Canada Kyrrah.-
járnbrautarfjel. var hafður fundur f
Montreal ágamlársdag og auglýst
par, að tekjur fjelagsins á árinu
væru um $15 milj., og að par af
væru rúmlega \ (rúmar $6 milj.)
um fram allan kostnað. Eptir að
öll ákveðin útgjöld fjelagsins, árs-
vextir af hlutabrjefum o. p. h. eru
borguð, verða í afgangi $2J milj.
rúmlega, og að viðlögðum afgang-
inum í fyrra, sem enn er óskertur í
fjehirzlu fjelagsins, er hann alls $2|
milj. Aukreitisfá pá hluthafendur
1% aJ pessari eign sinni f ár.
Fylkispingið í Nýju Brúnsvík
hefur verið uppleyst og stofnað til
almennra kosninga. Eiga pær að
fara fram 20. p. m.
Heiðurstitilinn Sir fengu 2 ca-
nadiskir menn að nyársgjöf frá Vic-
toriu drottningu og hafa pví ástæðu
til að vera upp með sjer fremur en
áður. En pessir menn eru: Juseph
Hickson formaður Grand Trunk
járnbrautarfjelagsins, og dr. Bouri-
not, yfir-pingritari í neðri deild á
sambandspingi.
Erkibiskup kapólika f Ontario
og Meredith formaður conservatíva á
Ontario-fylkispingi eru komnir í hár
saman í blöðunum út af trúarflokka-
deilunum, sem allt af halda áfram f
pví fylki.
Um fyrstu milj. af fyrirhuguð-
um 7 milj. til hafnabóta voru Mont
real-búar beðnir 3. p. m. Luku peir
við atkv.greiðsluna að kvöldi hins 4.
p. m., og var fjárveitir.gin sampykkt
með míklum a;kvæðamun.
Hungursneyð vofir yfir 130 famil-
íum, búandi við fjörð einn á Labra-
dor.
Toll tek j ur sa mban dss tj órn arin n -
arfrá Montreal tollheimtuumdæm-
inu (bænum sjálfum aðeins) voru á
sfðastl. ári $1‘1J milj.
Ofsaveður með fellibyljum hjer
og par gekk yfir Ontario og Quebec
fylki um áramótin. Fvlgdi pví
steypiregn og hiti.
Mælt er að stjórnarformemi-
irnir í 3fvlkjunum Ontario, Que-
bec, og Nýja Skotlandi, hafi
skuldbundið sig til að uppleysa
fylkispingin næstk. vor undireins
og pingstörfum er lokið, og láta
kosningar í peim öllum fara fram á
einum og sama degi. Á pannig
að reyna hvernig gefst uppástunga
Merciers, áður en hin önnur fyíki
verða beðin um samvinnu.
í Montreal er verið að mynda
fjelag til pess að koma par upp
sýningu, er haldin skuli á hverju
hausti. Fyrirkomulagið á að vera
líkt og samskonar sýningarfjelacra í
Torouto, Chicago og Minneapolis.
Ilöfuðstóll fjelagsins er ákveðinn
$200,000. Forvígismaður er ‘Col.
Rhodes, ak ury rk j u rn álast j p ri Que
becst j órn arinnar.
Bæjarstjórnin í Toronto hefur
ákveðið að á hinu nýbyrjuða ári
skuli hún eng.un daglaunamanni
sínum gjalda mimia en 15 ets. á
kl.stund.
Quebec fylkispingið var -i ;f
hinn 7. p. m.