Heimskringla - 25.02.1893, Side 1
á |y
! «3 m
m V
OGr
O L D I N.
AN ICELANDIC SEMI-WEEKLY NEWSPAPER PUBLISHED ON WEDNESDAYS AND SATURDA Y S
VII. ÁR. NR. 18.
WINNIPEG, MAN., 25. FEBll ÚAR, 1893.
TÖLXJBL. 372
FRETTIR.
UTLOND.
—Mr. og Mrs. Gludstone vóru í
heimboði hjíi Victoriu drotningu að
VVindsor 21. f>. m.
__.JJlster-menn á írlandi hafa allan
viðbúnað til að gera uppreisn ef ír-
land fái sjálfstjórn. I>eir eru f>eg-
ar farnir að semja utn vopnakaup
og sýna sig líklega til ófriðar. Auð-
vitað bætir petta heldr fyrir írum.
— Uppfdsn er enn einu sintd í
Brazilíu; eru pað uppreisnarrnenn í
Rio Grande do Sul, sem hafa vakið
bana undir forustu Tavarez hers-
höfðingja.
— I öllum lcyrkjum í Ulster á
írlandi eru nú fluttar bænir áhverj-
unt sunnudegi gegn sjálfstjórnar-
frumvarpi Gladstone’s írum til handa.
— Kaiulani prineessa, sem næst
átendr að lögerfðum til konungdóms
* Hawaii, hefir verið í Lönd-
ónum lengi til að mentast.
Hán lagði af stað frá Lóndúnum
^2. p. m. á eitnskipinu Teutonic á-
leiðis til New York. Hún gerir sér
litla von um að ná nokkru sinni
Lonungdómi stnum.
BANDARÍKIN.
—Cleveland hefir nú pegar mynd-
að ráðaneyti sitt að fullu.
Þessir verða ráðgjafa- lians:
Walter O. Gresham
I n,i I ..dUna aTrtldsráOgjafi ;
Joitn G. Carlisle
frá Kentucky fjármálaráðgj.
J)an. S. Lamont
frá New York hermáiaráðgj.
Hillary A. Herbert
frá Alabama flotaráðgjafi.
Hoke Smith
frá Georgia innanr.-ráðgj.
J. Herling Morton
frá Nebraska akryrkjuráðg.
Wilson S. Bissell
frá New York póstmálaráðg.
Richard Olney
frá Massachusetts lögstj.-ráðgj.
A laugardaginn kemr tekr Cleve-
iand við forsetadæminu.
— McKinley, ríkistjóri í Ohio,
inn alræmdí faðir McKinley-lag-
anna, er orðinn öreigi. Hann hafði
gengið í ábyrgð fyrir mann um [
$100,000, sem hrtin verðr nú að
borga; aleiga hans sögð $90,000, svo
hann verðr eignalaus maðr.
— t Nova Scotia kom fyrir
merkilegt ævintýri t Bænutn Brid
gewater 22. p. m.
Carll dómari sat þar í dómara-
sæti stnu og var að taka fyrir tnál
um ólöglega vínsölu. í miðju kafi
koma inn í réttarsalinn tveir li'g-
reglupjónar frá Luenburg; höfðu
peir með sér skriflegan dómsúrskurð
og samkvæmt honnm tóku peir
dómarann fastan, par sem hann sat,
og fóru með hann í varðhald til
Luenburg; lionum er gefið að sök
að hafa falsað skjöl fyrir 10 árutn
(1883). Það leið yfir dótnarann
pegar hann var tekinn fastr-
— Norðr Dakota gat loksins
kosið efrideildarpingtnann til oanda-
pings inn 20. p. m. Kosningu
hlaut W. N. Roach, sórveldismaðr;
var pað í 61. sinni, er gengið var
til kosninga í þinginu — Nú fá
sórvoldismenn pannig hreinan meiri
hluta í efri deild Jbandapings, auk
forsetans, og pað pótt satnveldis-
nienn skyldu verða kosnir í öllum
ríkjum, sem nú eiga *nn eftir að
kjósa efrideildar þingmenn; pau
munu vera prjú, og engar sórlegar
líkur til að samveldismenn sigri í
neinu þeirra.
— Nefndin, sem fjallar um út-
lend mál, í efri deild bandaþingsins,
hefir pann 17. þ. m. lagt pað til, að
sampyktr verði landránssamningr
Harrisons um Hawaii.
CANADA.
— Enn á ný hefir verið reynt að
bera Ilon. Mercier sviksemi á brýn;
er honum getíð að sök, að hann
hafi Ittgt inti í sjáirs síns nafni á
bnnaa $28,000, er ganga skyldu til
Baiede Chaleurs járnbrautarfóíags-
ius. Fyrir rannsóknarnefndinni játti
Mercier petta satt- vera; kvað það
altítt, og sama hafði t. d. núv-erandi
fylkisstjóri Chaplea^ og fleiri gert;
hann kvaðst hafa haft rótt til að
geyma fóð þannig; hatinhefði staðið
skil á pvl öllu. Næsta dag mætti
hann á ný og sýndi skilríki fyrir, að
allt fóð hefði verið á sínurn tíma
skilvfslega greittbrautinni. Er hann
pví sýkn.
— Toll-afnátn. I>að er eins og
flóðalda gangi nú yfir alla Canada,
svo streyma fram hvervetna kröf-
urnar um endrbætr á tolla-löggjöf-
inni. Það er nú bersj'nilega komið
upphaf æfilokanna fyrir tollverndar-
stefnunni. Bændrnir ganga, setn von
er til, fremstir í flokki hór, því að
eins og oft hefir verið á bent, verða
engir jafn-hart úti sem þeir nú.
20. p. m. lagði Dalton McCarthy
fram tvær bænarskrár til þingsins,
og vóru á þeim samtals nær 30,000
nöfn undirskrifuð. önnur (með ntn
14 000 undirskriftum) fer fram á
að pað verði löglýstr hegningar-
verðr glæpr að hafa saintök, er
miði til að hækka verð á nokkurri
tilbúinni vörutegund.—Hin bæna-
skráin fer fram á að afnumin verði
tollr af steitiolíu, bundin præði, ma-
is korni og girðinga-járnpræði. Það
eru bændafólögin í Canada (Patrons
of Industry), sem hafa sett bæna-
skrá pessa af stað.
—Mr. McDonald þingmaðr frá
Assiniboia býst við að fá 1 ár fjár-
veiting hjá stjórninni handa Man.
í& N. W. félaginu, pað pykist ætla
’ að lengja braut sína um 50 mílur í
sumar.
—Hnekkir fyrir innflutninga fólks
hingað komandi sumar verðr það
að líkindum, að eimskipa-llnur þær,
er hingað flytja vestrfara frá Eng-
landi og Skotlandi hafa hækkað far-
gjald fyrir vestrfara um fimtung.
Það er þó hugnan fyrir landa að
þessi hoekkun nœr ekki til vestrfara,
er taka farbaéf á Islandi.
—Kúabólu hefir orðið vart á ný;
eitt tilfelli komið fyrir nýlega 18
míluf frá Vancotiver, B. C.
—Abbott, fyrverandi stjórnarfor-
seti,er i Florenz á Ítalíu og viðgóða
heilsu.
—I 7'oronto var fundr haldinn
21. p. m. af írska félaginu (Irish
National League) og fóllust fund-*
armenn í einu hljóði á samþykkis-
tillögu út af sjálfstjórnar-frumvarpi
i Gladstoue’s.
Pain Killer. Vitnisburðr sá sem
petta ágæta meðal fær, ætti að
nægjatil pess að hvertheimili keypti
pað. Það er okkar meining að ekk-
ert heimili ætti að vera án hans
nokkurn tíma. Við sárum, gikt og
verkjum er hann ið bezta sem vér
þekkjum. 25c. öaska endist lengi
og allir geta keypt hana sökum þess
hvað hún er ódýr.
Kaupið
,,Ljóðmæli“
Jóns,
(Hafssonar
(með mynd).
Verð, heft: 75cts.
Winnipeg.
—Séra Mattlasar samskotin. S(ð-
an blað vort kom út síðast hefir
komið inn á skrifstofu Hkr.:.
Elizabet Jónsdóttir, Wpg. $0,25
Jóhann B. Þorleifsson „ $1,00
Stefanía Stefánsdóttir „ $1,00
Gísli Ólafsson „ $1,00
Guðm. Guðmundsson „ $1,00
Halldór Hjaltasoh „ $0,50
Björn Björnsson. Duluth $1,50
C. N. Gíslason, Minneapolis $0,50
J. B. Goodrich, Duluth $2,00
Ólafr ísleifsson, Wpg., $1,00
Jóhann G. Davíðsson, Milton, $1,00
ísl. I Heiena, Mont. (P.O.
Money Order) $7,00
Alls: $17,75
ásamt áðr auglj'stum $16,75
Samtals alls: $34,50
— Mr. Ólafr Isleifsson kom í
gær aftr heim vestan úr Argyle eft-
ir viku burtuvist.
— Mr. G. A. Dulmann hefir lof-
að að veita viðtöku satnskotum í
Minneota til séra Matthíasar.
— Mr. Sigf. Benedictsson og
kona hans fluttu sig I vikunni al-
farið niðr til Nýja Islands; sömul.
faðir lians Mr. Bened. Sigurðsson.
'—Samkoma Unítara verðr hald-
in í kveld í samkunduhúsi peirra.
Samkon a peirra I fyrra vetr fékk
pað orð á sig, að hún liefði verið
sú bezta, sem landar héldu hér
pann vetr. Það er vonandi að
sem flestir sæki satnkomuna í kveld.
— Ummœli „Lögb.“ um séra
Mattíasar samskotin liafa borið sýni
legan árangr; pá þrjá daga, sem
liðnir eru síðan, hefir koinið vel
helmingi meira inn á dag að jafn-
aði, en áðr.
— „Dagsbrún“ heitir ið nj'ja
kyrkjublað, sem fríkyrkjumenn I
Nýja ísl. gefa út. Ritstjóri þess
er séra Magn Skaftason; stærðin
er sem á „Satnoiningunni“. Vér
höfum varla haft tíma til að yfir-
fara 1. blaðið; á ritstjórnar-frágang-
inn lízt oss vel; en prentunin er
hörmuleg, og frágangr bókbindar-
ans því aumlegri. Það parf að
ráða bráða bót á þeirri ómynd.
„Clear Havana Cigars”
(lLa Cadena” og l(La Flora” Biddu
ætíö um þessar tegundir. [1J]
—Business Manager „Lögbergs“
hr. Magnús Pálsson, hefir sagt blað-
inu upp pjónustu sinni og fer frá
pví nú um mánaðamótin.
—Er ekki til gamalt máltæki
eitthvað í þá átt, að pá sé skip
illa fúið, er rotturnar flýja pað.
—Mr. Jón Blöndal Ijósmyndari
verðr Busin. Manager „I,ögbergs“
frá 1. næsta tnán.
A TVINNU-TÆKIFÆRI.
Hver sá, er kynni að vilja takast
á hendr verzlunarforstöðu fyrir „Ið
íslenzka verzlunarfélag í Manitoba41
frá 1 Maí næstkomandi, geri svo
vel að senda um pað greinilegt skrif-
legt tilboð, til forseta félagsins,
Mr. St. B. Johnsons, að 576 Alex-
ander Str., Winnipeg, Jyrir 15.
Marz næstk.
Stjórnin sernr sérstaklega um á-
byrgð fyrir sjóði verzlunarinnar við
hlutaðeiganda. En hún skuldbindr
sig ekki til að taka lægsta tilboð
né nokkurt annað.
1 umboði félagsstjórnarinnar.
St. B. Johnson
(forseti).
Þegar pið þurfið meðala við,
pá gætið pess að fara til Centrai,
Drug Hall, á horninu á Main St.
Mraket Street.
18D2. Rjoininn at llavann
ui>liskeruiiiii.
„La Cadena” og „La Flora“ vindlar
eru án efn bctrl nö ethi og tölu.-ort ó-
dýrari heldr en nokkrir aðrir vindlar.
Fordómsfullir tóbaksreykjendr vilja
ekki kannast við það, en þeir, sem
vita hvernig þeir eru tilbúnir, kannast
við það. 8. Davis & Sons.Montreal [15J
SPURNINGAR OG S VÖR.
—Herra ritst.
Hefir nr. 6 verið sent til yðar?
„3“.
—Svar: Já, nr. 6 a og b, en
ekkert meira.
Athugið.
Pósturinn milli West Selkirk
og lcelandic River fer frá Selkirk
kl. 7 á hverjum þriðjudagsmorgni og
kemr til Icelandic River á miðviku-
dagskveld. Fer frá Icel. River á leið
til Selkirk kl. 7 hvern fimtudags
morgun, og kemr til Selkirk á föstu-
dags kveld.
Fargjald verðr ið sama og áðr
hefir verið. Upplýsingar viðvíkjandi
flutningi með póstvagninum frá og til
Selkirk fást hjá
Geo. Dickinson og
Ciir. Watekson
sem flytr póstinn.
U nítara
verðr haldin í inu nýja liúsi þeirra
(corner McWilliam & Nena St.)
í KVELD.
Til skemtana verðr :
1. Tombóla. (Óvanalega góðir
munir, engin núll).
2. Ræða (.Tón Ólafsson).
3. Upplestr (Einar Iljörleifsson).
4. Sjónleikr, (Biðilsför Hesekíasar)
skemtileikr, sem ekki hefir ver-
ið leikinn áðr.
5. Söngr : Solos, Duets, Quartettes.
Alla pessa óvanalega miklu
skemtun og einn drátt á tombólunni
fáið þið fyrir
að eins 25 cts.
Samkoman byrjar kh. 7 síðd.
BÆKll
TIL SÖLU HJÁ HEIMSKRINGLU.
Talan sein sett er í sviga fyrir'
aftan bókanöfnin sýnir burðagjald
fyrir pá ina söinu bók innan Canada
og Bandaríkjanna; pað verðr að
sendast auk bókarverðsins. Þær
bækr, sem engin tala er við, sendast
frítt. Engin bók send fyr en borg-
un ermeðtekin.
*Húspostilla dr. P. Pétrssonar(8) $1.75
*Kveld hugvekj ur eftir sama (2) $0.75
*Föstuhugvekjur eftir sama (2) $0.50
*Vorhugvekjur eftir sama (2) $0.50
*Leiðarvísir til að spyrja börn (2) $0.40
Dr. Jónassen Lækningahók (5) $1.00
*Hjálp í viðlögum (2) $0.35
*Sj álfefræðarinn (Jarðfræði).. $0.40
Smásögur dr. P Pétrsson........ $0.30
Ilellismanna saga ..........-. $0.15
Nikulásar saga................... $0.10
*Saga Páls Skálaholtsbiskups .... $0.25
Um Þrenningarlærdóminn eftir
B. Pétrsson................. $0.15
*Agrip af landafrœði........... $0.30
Um harðindi eftir S. Eyjólfsson $0.10
Huld....................... (2) $0.25
Sveitalífið á íslandi.......(2) $0.10
Lítið rit um Svívirðing eyðilegg-
ingar-innar................... $0.25
*Nótnabók Guðjóhnsans (þrírödd.) $0.75
Ræða eftir M. J. Skaftason..... $0.15
Saga af Fastusi og Erminu.... . $0.10
Bækr þær sem stjarna *) r við
eru í bandi.
ISLENZKR LÆKNIR:
Dr. M. Halldorsson.
Park River,---N. Dak.
Minnisblöð Heimskringlu.
LÖGVRÆÐILEG
RÁÐ qg bendingar.
Log þau, sem gilda um þegnleg viðskifti
manna Jivil law) eru tvenns konar: rituð lög
(statute law) og órituð (eommon law). .In rituðu
lög cru lagaboð þau, sem löggjafarvaldið (lög-
gjafarþing ríkis eða fylkis) hefir samþykt og
konungsvaldið staðfest. In órituðu lög eru
bygð a almennri réttarvenju Englands, og heyra
þar undir guðs-lög svo nefnd og náttúru-lög,
svo og frumreglur, sem af rituðum lögum
verða leiddar, eftir því sem æðsti dómstóllinn
liefir afog til skýrt þær í úrskurðum sínum.
Þar sem in rituðu lög koma í bága éða bera
mótsögn við in órituðu lög, verða in rituðu lög að
víkja.
Bezta ráðið fyrir þann, sem í þrætumáli
þarf að lenda, er það, að fara til bezta lögfræð-
ings, sem hann getr fengið, dg fá hann til að
leiðbeina sér og. a þarf að halda, taka að
sér málið fyrir sig. En keitt lóð af lögþekkingu,
sem getr íirrt mann því, að lenda í lagaþrætu,
er meira vert en heil vætt af lögvísi til að hjálpa
manni fram úr lienni, þegar út í liana er kom-
ið.
Minnisblöð Heimskringlu. 9
Það er tilgangr þessara smá-bendinga að
hjálpa lesaranum um þetta litla lóð af fyrir-
byggju.
SMÁ-BENDINGAR í VIÐSKIFTUM.
Það er engum manni gild afsökun þótt
hann hafi ekki þekt lögin.
Samningr án nokkurrar borgunar eða ið-
gjalda er ógildr.
Undirskrift með blýjanti er gild að lögum.
Þegar menn eiga eitthvað í sameining eða
reka eitthvert fyrirtæki í sameining, án þess
að mynda sér löggilt (incorporated) hlutafélag,
þá er það kallaðr einka-félagsskapr (private
partnership).
Sérhver meðeigandi (eða félagi) í einka-
félagsskap ber með aleigu sinni fulla ábyrgð
á öllum skuldbindingum félagsins.
Sérhver gerð eins meðeiganda eða félaga
í oinka-félagsskap er bindandi fyrir alia sam-
félaga hans.
í löggiltu (incorporated) félagi í Canada ber
liver liluthafi að eins ábyrgð á hlutar-uppliæð
sinni, en engu meiru (nema hvað forstöðumenn-
irnir bera takmarkaða ábvrgð á verkalaunum
starfsmanna félagsins).
Það er ekki auðið að þvinga að lögum ó
fulltíða mann til að uppfylla skuldbinding sína.
Skuldabréf ófulltíða manns má gera ónýtt
Samningr viö vitfirring er ógildr.
12 Minnisblöð Heimskringlu.
og, ef á þarf að halda, láta lögleg mótmæli
fram fara; vanræki bankinn það, ber hann á-
byrgð á fullri upphæð þess gagnvart þeim er
seldi honum það að veði.
FUNDNIR MUNIR.
Það er reglan, að finnandi hefir gott og gilt
tilkall til fundins hlutar gagnvart hverjum
manni nema eigandanum. Finni ég hlut í
gestgjafa-húsi eða í sölubúð, getr eigandi húss-
ins (eða húsbóndinn) ekki heimtað að ég skili
sér honum. Ef liann setr reglur um það í
liúsi sínu, að sér skuli afhendast alt, sem þar
finst, skuldbinda þær reglur enga nema þjóna
lians.
Finnandi gengr í eiganda stað, þar til eig-
andi finst. Týni finnandi hlutnum aftr, og ann-
ar finni hann síðar, getr fyrri finnandi heimtað
hlutinn. Sá sem tekr fundinn hlut til geymslu af
finnanda, getr ekki haldið honum fyrir finnand-
anutn. Lögreglumenn liafa engan rétt til fund-
inna liluta, nema þeim liafi verið veittr liann
með sérstöku lagaboði.
Skyldr er finnándi að gefa fundinn hlut upp
við eigauda, og á hann engan rétt á neinni borg-
un fyrir að skila lionum. En rétt á hann á sann-
gjarnri borgun fyrir kostnað (t. d. auglýsing), er
hann liefir liaft af fundinum eða liirðing lians.
Minnisblöð Heimskringlu. 5
ISLANDS-PÓSTR 1893.
I. Til íslands.
Frá Granton: Til Rvíkr:
21. Jan. 28. Jan.
5. Marz 13. Marz
25. Apríl 1. Maí
11. Maí * 28. Maí
7. Júní 13. Júní
6. Júlí * 24. Júlí
18. Júlí 25. Júlí
26. Ágúst 2. Sept.
10. Sept. * 26. Sept.
7. Okt. 13. Okt.
12. Nóv. 21. Nóv.
* Strandferðkring um laud.
II. Frá íslandi.
Frá Rvík : Frá Granton :
5. Febr. 11. Febr.
19. Marz 26. Marz
14. Maí 20. Maí
4. Júní* 20. Júní
25. Júní 1. Júlí
29. Júlí* 13. Ágúst
3. Ágúst 10. Ágúst
14. Sept. 20. Sept.
1. Okt* 16. *Okt.
20. Okt. 26. Okt.
28. Nóv. 5. Decbr.
* Strandferð kring um land.
ÖT 10 til 16 dögum eftir að skipið kemr frá ísb
til Granton, má vænta bréfa í vinnipeg.