Heimskringla - 15.07.1893, Blaðsíða 3

Heimskringla - 15.07.1893, Blaðsíða 3
HEIMSK RINGLA. fjalla-jötunn, er sýnist standa þvert fyrir sporinu og í fárra faðma fjarlægð. En lítill sveigr á brautinni breytir útsýninu; áðr en varir er þessi hrika- hnjúkr kominn langt í burt. Þetta fjall er Foss fjall (Cascade Mountain) 9,875 feta hátt yfir sjávai mál, en 5,500 fet, eða rúmlega mílu, yfir sporið á þvísvæði, er það rirðist standa þvert í vegi fyrir lestinni. Hæsti fjalls- tindrinn sýnilegr frá vagnstöðinni Baníf (920 mílur frá Wpg ) er Pee- chee-gnípan, í noiðvestr, rúmlega 10.000 feta há. Beint norðr undan vagnstöðinnj er Cascade-fjallið ; suðr undan eru næstu fjöllin nefnd Eundle Peak, Tunnel-fjall ogBrenni- 8teinsfjall, og við rætr þess og tvær mílur frá vagnstöðinni eru brenni- steinslaugarnar nafnkunnu, kendar við Bantt’, er lækna öll hugsanleg mannamein, ef peningar endast nógu leugi, Eiá Bantt' Upp til Laggan (36 mílur) liggr brautin eftir Bow Eiver dalnum, en þar ylirgefr hún hanu fyrir fult og alt, en hringar sig þaðan upp eftir lækjardragi 7 míl- ur til Stephen vagnstöðvarinnar (sú stöð er nefnd eftir fyrsta forseta járnbr.félagsins). Þessi vagnstöð er á hæsta gurðinum á austasta fjalla- beltinu, inum eiginlegu Klettafjöll- um, og er sporið þar 5296 fet yfir sjávarmál, eða 16 fet rneira en mílu. TJm brattann á spoiiuu á austrblið fjallanna má dœma af því, að Calgaiy er 3,388 fet yfir sjávar- mál, en Stephen 5,296; mismunr því 1 ,908 fet. Vegalengdin milli þessara staða er 123 mílur og er því mc-ðalhalli á mílunni rúmlega 15 fet. Mestr halli á þessari leið er á rnilli Laggan og Stephen, 366 fet á 7 mílum. Á þessum fjalls- hrygg eru landamerki British Col- umbia og Korðvestr-ríkjanna, og á þeirri línu, eða rótt nálægt hsnni, falla tveir vatnsstraumar sinn í hvora átt, í austr lækrinn sá er brautin fer fram með frá Laggan, en í vestr kvísl úr Kicking Horse ánni (öðru nafni Wapta). Niðr eftir þessu gili liggr brautin alt til Golden- vagnstöðvar, 43 mílur frá Stephcn, og er meðalhallinn á sporinu á þeirri leið um 65 fet á hverri mílu. Á fyrstu 8 mílunuin frá Stepben er útsýnið ægilegt, og hugdeigum mönnum hættir þá við að hitna um hjaitarætrnar. Brautarstæðið er hér og þar höggvið í þverhnýptan ham- arinn ; á aðra hönd er því hamar- inn þótt upp að gluggunum, en á hina hyldýpið, svo að glórir að eins í hvítfyssandi ána í gljúfrinu 600 til 1000 fet fyrir neðan mann. En grunnrinn er traustr, traustari en víða þar sem sléttara er undjr fæti, enda fer lestin 25 til 30 mílur á tímanum eftir þessari ægilegu leið. Til vinstri handar við sporið á þessari leið er hæsta fjallið, Mount Stephen, hrikalegr, linjúkr er rís meira eu mílu yfir sporið. Til noiðrs blasir við all-breiðr fjalla-dalr — Kicking Horse dalrinn, og eru fjöll- in vestan við hanu kölluð Ottertail- fjöll, en þar að austan Van Horne fjöll. Skamt fyrir vestan Leancboil stöðina, 17 mílur fyrir vestan Stephen, er brautin komin niðr á gilbotninn og liggr eftir houum til Golden, samhliða Kicking Horse-ánni. Er þar sætið fyrir sporið sumstaðar höggvið í klettinu, sumstaðar er það bygt út í ána og víða eru þar hlaðn- ir blágrýtisbálkar ár megin við sporið til að verja það í leysing- 9 um. Gilið er svo mjótt, að steini má kasta frá hamri til hamars, hamrarnir svo háir að víða er ó- mögulegt að sja brunina út um vagu- gluggana, og svo krókótt er gilið, að oftast nær má sjá sporvoginn bæði fram og aftrundan, og er ein- att óskiljanlegt, hvar smuga er á milli klettasnasanna framundau. Korðvestr eftir þessum gjáarbotni snarast lestin með 30 mílua hraða á klst., ýmist að austau eða vest- an við ána, ýmist í niðdimmum göuguin og á næ8tu augnabliki mitt yfir beljandi fossi f miðri ánni. Það er minnisdaufr maðr, sem gleym- ir iluginu niðr um þessi glæfra- göng, undir þessum „bjargstuddu jökulrótum". Alt tekr enda x>g svo gera þessi gljúfr. Alt í einu birt framundan, lestin snarast fram á nokkurnveginn sléttan bala, — Kicking Horse canyon er yfirstigin. Breiðr og sléttr dalr blasir við til beggja lianda, norðr og suðr; stói' og vatnsmikil á er framund- an og allmikið þorp á bakkanum. Þorpið er Golden-vagnstöðin og áin er Columbia-fljótið, skipgeng svo hundruðum mílna skiftir mitt á meðal jöklanna, og frá Golden gengr gufu- bátr eftir heuni suðaustr að ujiptökum hennar, um 100 mílur, til náma- stöðva þar. Þessi dalr er svo djúpr, að Golden er að eins 2,550 fet yfir sjávarmál, 838 fetum lœyra en Cal- gary. Til hægri handar sjást að eins hæstu tindar Klettafjallanna uppyfir hæðaklasann og skóginn í vestrhlíðum þeirra. Til vinstri handar, fyrir vestan Columbia-íljótið rísa snæþakt- ir tinda-klasar, tindr við tind það sem augað eygir, bæði norðr og suðr, og eru inir hæstu þeirra sveipaðir hríðarkólgu, þó hitiséniðrií dalnum, og máenda greina skafrennjnginn hór og þar á jöklínum. Þessi fjöll eru Selkirk-fjöllin svo kölluðu, og fyrjr járnbrautar fólagið in viðreignarverstu á allri brautinni. Frá Golden til Donald, 17 mílur, liggr brautin niðr eftir eystriár bakkanum, og erhallinn áþeirri leið aðeins 1 fet á mílunni. Á milli þessara stöðva er vagr.stöðin Moberly House, og þar elzti húskofinn á fjölluuum austan Selkirk-fjalla. Þanh kofa byggði Walter Moberly landmælingamaðr og bjó í honum vetrinn 1881—2; var þá að leita að vegstæði gegu um fjöll- in. Hjá Donald liggr brautin vestr yfir úna, og niðr mcð henni, norðr dalinn 12 mílur, til Beaver Mouth. Þar er nyrzti blettrinn á allri braut- inni; er það um 150 mílur fyrir norð- an Winnipeg, en þar beygist hún alt í einu til suðvestrs og blasir þá við þröngr en beinn dalr framundan, og eftir honum upp með Beaver Eiver og Bear Creek að vestan liggr brautin þar til hæsti hryggrinn á Selkirk- fjöllunum er yfirstiginn. I þessari djúpu dalskoru er og brautin bröttust austan Selkirk-fjalla. Á fyrstu 6 mílunum frá Beavermouth er .meðal halli brautarinnar um 80 fet á míl- unni, á næstu 9 mílunum um 67, og á næstu sex um 129 fet á mílunni, á milli vsgnstöðvanna Bear Creek og Eogers Pass. Tvær mílur fyrir vest- an síðartalda stöð nær vegsporið í þessum fjallgaiði mestri hæð við Selkirk summit, og liggr þar 4,300 fet ytír sjávarmál. Beaver-dalshl>ðin vestri, er brautin liggr eftir, er mik- ið til slétt, nema hvað gil og lækir skera sig niðr eftir henni hér og þar, en vaxin liáum og þéttum furu- skógi. Dalrinn allr er þakinn þess- um stórskógj, og efst upp á dalsbrún hinum megin, er blasir svo vel við frá brautinni, að eitt tró má grema frá öðru ; en svo er fjarlægðin, (hæð- in) mikil, að þau virðast á stæið við krækjuberjalyng í móbnrði á „fróni“. Áin nidri í dalbotninum er oftast sýnileg á milli trjánna, en lítr út eins og bandprjónn á mosabing, enda er maðr 1000 fet íyrir ofan hana þegar komið er upp til Bear Creek- vagnstöðvarinnar. Suðvestamnegin dalsins til vinstri handar á vestrleið rísa mjallhvítir jökultindar hátt upp yfir skógivaxin fjöllin í óslitinni röð suð-vestreftir svo langt sem uugað eygir. í einu má telja 8 slíka linjuka og er sá íjærsti, norðvestasti, Mount Sir Donald. Til hægri handar er ekk- ert að sjá nema fjallshlíðina gnæfandi mörg hundruð fet yfir liöfuð nianni, og fossandi læki með fárra faðma millibili. í einum stað einungis á þ ssnri leið, nálægt Bear Creek, er dalr gegn um ljöllin nl norðvestrs, og blasir þar við einn jökull til, Mount Hermit. (Niðrl. nrost). XIL SOLU. Hús fyrir $500 til $1000; þægilegar afborganir. Lóðir á Nens og Boundary strætum á $50 til 250. Þ r getið gert samninga við oss um þregilegar, litlar mánaðar afborganir og einnngis 6 pc. teknir í vöxtu. Hamilton & Osler, 426 Main Str. ARIDANDI AUGLYSING. C. A. GAREAU, hefir nýfengið byrgðir úrvalstegunda af ensku, frönsku, skosku og Canadisku vuðmáli (Tweed), hentugti í karlmanna og drengjafatnaði, sem hann Snidr eftir* mali upp á menn fyrjr óheyrilega lágt verð, sem hór á eftir greinir, og er það svo lágt sem nokkurstaðar í austrfylkjunum. Alfatnaðir úr canadisku Tweed - - - - $14.oo ,, . ,, blu Serge á - - - - - - - I6.00 ,, ,, góðu eftirgerðu skozku Tweed - 17.00 ,, ,, ekta skozku Tweed $20} 22, 24oo frakki og vesti úr góðu, svörtu Serge með buxuin eftir vild - - 23.00 ,, bezta svörtu Serge með buxum eftir vild 30.00 Ljómandi ullar-alfatnaðir fyrir 23, 25, 27> og 28 dollara. Vér höfum afbragðs-buxnaefni, sem vér búum til úr buxur og seljum algorðar fyrir 5» 61 7, 8 og 9 dollará. höfum vér af nýjasta sniði, úr bezta efni, með beztu gerð og- fyrir lægsta verð, sem auðið er *að fá. Þetta eru afbragðs vörur og það borgar sig fyrir yðr að skoða þær. Vér höfum æfðasta sníðara. Vér höfum fullbyrgðir af Ií AIÍ Ió I'1ArFN Al )^V H \ () l tU, ólituð nærföt, náttskyrtiy armlín, kraga og hálsbindi. Vér höfum gott úrval af Hottum af beztu gerð og nýjasta sniði. Það er sjárfra yðar hagr að koma tU vor og sjá varning vorn og verð áðr en þér farið annað. TAKIÐ EFTIR NAFNI OG STAÐ: O. 324 Main Str. Merki: gullnn skærin, andspænis Manitoba Hotel, Winnipeg. SKOR~öG~STHaVg)Eh> Fyrir kvennmenn, konur og börn. Vér höfum byrgðir af öllum stærðum og gæðum. Eeimaðir skór. Hueptir skór. Lágir skór. Sterkir vinnuskór. Allar tegundir. Vér höfum allar inar nýjustu og algongustu tegundir af öllum stærðum, prísar vorir eru ætíð inir lægstu í borginni. RICHARD BOURBEAU. 360 Main Str. Næstu dyr við AVatson sætimlasala. Hardvara. . H. W. STEEP, 540 Main Str. Verzlav með eldavélar og tinvöru og alís konar harðvöru. Billegasta búðin í bænum. Komið og spyrjið um prísa. H. W. STEEP. O’CONNOR BROTHERS & CRANDY, CRYSTAL, N. DAK. Fullkomnustu byrgðir af þuttu timbri, veggjarimlum og þakspón, einnig allar tegundir af harðvöru einnip til. Nér ábyrgjumst Jað prísar voair eru jafnlágir þeim lægstu og vörur vorar eru þær beztu í borginni. Gjörið svo vel að heimsækja oss. Radiger & Co. Vínfanga og vindla-salar 513 llnin Str. Allskonar tegundir af \ indlum með innkaupsverði. TtRkY^AviS’ wiii quiclcy Cure. ])i|) htAeúd ,í|uíiu/, CoGí, Corl'iííroat 25Wtls. I

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.