Heimskringla - 02.12.1893, Side 4
HEIMSKRINGLA 2. DESEMBER 1893.
IÐ BEZT TILBÚNA.
Óblðnduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára rejmzlu.
Winnipeg.
—Rafmagns-sporvagnarnir byrjuðu
í gær að renna eftir William Avenue.
— Mr. Þorsteinn Antoníusson kom
snemma í vikunni vestan ur Argyle-
nýlendu. Segir þar snjóhtið og góða
tíð. Elestir Imnir að draga hveiti sitt
til markaðar, mikið af því fyrir 45 cts.
og þar um bil. IJppskeran var mjög
rír, og með þessu lága verði mætti
gott teljast ef menn alment gætu borg-
að vexti af eldri skuldum þegar búið
er að borga bundinþráð, þresking,
vinnulaun og eitthvað 1 ijuðaskuldum.
Kaup var með rýrasta móti, einkum
áttu emígrantar hart með að fá vinnu,
því að þeir komu svo seint, að ílestir
vóru búnir að taka menn við hveiti
þó mun flestum hafa verið holað niðr
fyrir eitthvert kaup á endanum. En
hart verðr óefað fyrir eitthvað afþv'
fólki í vetr. Auðvitað geta lausir
menn komið sér niðr í vetr fyrir fæði
og ef til vifl einhverja þóknun fyrir
fatasliti.
— Vér leiðum athygli að auglýs-
ing “Isl. verzlunarfélagsins” hér i
blaðinu í dag.
— Mr. Stephan Sigurðsson kaup-
maðr úr Bræðrahöfn var hér á ferð
fyrri hlut vikunnar.
Munið eftir að bókbindara-verk-
stofa Arna Þorvarðssonar er 195 Ell-
en Str. — horn. á Ross Str.
— Mrs. J. E. Peterson flytr ræðu
á ensku í Únítara-samkomuhúsinu á
morgun kl. 7 síðd.
— Mrs. Cuthbert (Halldóra Ás
grímsdóttir, ættuð úr Skagafirði) and-
aðist í Fort William 14. f. m.
— Mr. S. G. Northfield, kennari
frá N. Dak., er kominn hér til bæjar-
ins og gengr hér á College í vetr.
— Innan við 20 eintök eru nú
óseld eftir af “Ljóðmælum Jóns Ólafs-
sonar” ($1,25 í bandi, $1 heft). Góð
jólagjöf. Kaupið í tíma.
— Vér mælum alvarlega með því,
að allir, sem geta, geri sér að skyldu
að sækja samkomu kvennfélagsins á
miðkudaginn. Engin samkoma landa
verðskuldar betr góða aðsókn.
— Þúsundir manna eiga árlega
Ayer’s Cherry Pectoral lif að launa.
Við barnaveiki (croup) og kíghósta
hefir Pectoral ágæta verkun. Það
dregr úr bólgu, hreinsar stíflaðar loft-
rásir og læknar hósta-tilhneigingu,
— í hamingju bænum, vertu ekki
að sífra og nöldra fyrir það, þó að
þig þjái meltingarleysi. Það hefir
enginn enn læknað sig með kvein-
stöfum og kvörtunum. Vertu karl-
maðr (nema þú sért kvennmaðr) og
taktu Ayer’s Sarsaparilla ; hún læknar
þig, hvort sem þú ert karl eða kona.
— Á Skrifstofu Hkr. liggja bréf
til þessara manna:
Joseph J. Johnson (frá Minneota).
Jón Valdimarsson.
Jón Sveinsson (frá Elliðavatni).
Jörundr Sigurðsson (kom frá íslandi í
sumar).
Tryggvi Jósefsson (bréf frá fsl.)
Jón Markússon.
Hlutaðeigendr vitji bréfanna eða gefi
ritstj. vísbending.
— í Nýja ísl. búast menn hart
undir nýjar kosningar, Gamli Benedict
í Kjalvík hefir verið fenginn þar af
Guðna Thorsteinssyni og Jónasi Ste-
phanssyni, til að reyna að steypa Ste-
phani O. Eiríkssyni úr sæti; en búizt
við lítilli framaför fyrir gamaldags-
manninn.
Gunnsteinn Eyjólfsson vill steypa
Gesti Oddleifssyni í Fljótsbygð.
Jóhannes Magnússon eru sumir að
burðast með fyrir oddvita a ný gegn
Stepháni Sigurðssyni, inum ötulasta odd-
vita, sem sveitin hefir lengi haft. Col-
cleugh þingmaðr hafði farið norðr í
N. ísl. og skipað þeim þar harðri
hendi að kjósa Jóhannes, ef þeir vildu
láta nokkurn mola hrjóta til sín af
Greenways-stjórnar borði. En sumir
muna enn eftir loforðum þeirra Col-
cleugh’s við síðustu kosningar, og
leggja ekki mikið upp úr þeim. Helzt
kvað mæla með kosning Jóhannesar
sú sparnaðarástæða, að það þurfi þá
síðr að leggja honum sveitarstyrk, ef
hann verði oddviti.
“Glear Havana Cigars”.
„La Cadena“ og „La Flora“. Biddu
ætíð um þessar tegundir.
Kvelrlverðar-samkoma
-Miðkudag 6. Decbr.-
heldr ísl. Kvennfélagið i Winnipeg
samkomu til inntektar fyrir spítalann.
Til skemtunar verða ræðuhöld, söngr,
hljóðfærasláttr.
Allir, sem inn|koma, fá
ókeypis kveldverð.
Samkoman verðr haldin á Únítara-
samkomuhúsinu ; byrjar kl. 8. — Opið
kl. 7i.
— Aðgangr 25 cent. —■
GÁIÐ AÐ ÞESSU
PILTAB. OG STULKUR!
Mr. Guðm. Nordal, 605 Ross Str.
(í húsi Mr. Skaftason’s), ætlar að flytja
fólk og farangr milli Winnipeg og Nýja
íslands í vetr. Hann mun hafa allan
útbúnað svo góðan og þægilegan sem
framast er unt, og ætlar að flytja
fyrir lægra verð en póstrinn. í fjær-
veru Mr. Nordal geta menn snúið sér
til Mr. B. Skaftasonar, og samið við
hann um flutning.
KOSTABOÐ
býðr ið Islenzka verzlunarfélag um
þessar mundir; lágt verð, góðar vör-
ur, og 2 pr. cent afslátt á öllu, sem
keypt er fyrir peninga og mánaðar-
borgunum.
Allir velkomnir ; ríkismaðrinn með
$100.00 og og fátæklingrinn með $1.00.
1892, lijominn af Havana uppskerunni.
„La Cadena:1 og „La Flora“ vindlar eru
án efa betri að efni og töluvert ódýrari
heldr en nokkrir aðrir vindlar. Fordóms-
fullir tóbaksreykjendr vilja ekki kannast
við pað en þeir, sem vita hvernig þeir eru
tilbúnir, kannast við það. S. Davis &
Sons, Montreal.
Innlent Raudavín. .
Canadiskt Portvín,
California Portvín. .
Ég er nýbúin að fá mikið af ofan-
nefndum víntegundum, og einnig áfeng
vín og vindla sem ég sel með mjög lágu
verði. Mér þætti vænt um að fá tæki-
færi til að segja yðr verðið á þeim.
Bréflegar pantanir fljótt og greiðlega
afgreiddar.
II. C.;:Chabot
Telephone 241. ~~ 513 MAIN STR.
Gegnt City Hall.
Norway Pine
Syrup.
Pich in the lungr-healing: virtnes ofthe Pine
combined with the soothin^ and expectorant
properties of other pectoral herbs and barks.
A PERFECT CURE FOR
OOUGHG AND COLDS
Hoarseness, Asthma, Bronchitis, Sore Throat,
Croupandall THROAT, BRONCHIAL and
LUNG DíSEASES. Obstinate cougfhs which
resist other remedies yield promptly to this
pleasant piny syriíp.
“RICE Í75C. AND BOC. PER BOTTLE•
SOLD IV LL f)*OOCI«TS.
STEINOLÍA,^«
til heflr kostað 40 cts. gallonan, fæst
mi, frítt flutt á heimilið til hvers bæj-
armanns, fyrir að eins ti5 cts.
gallónan.
C. GERRIE,
174 Princess Str. (2. dyr frá Jemima Str.
Oft la thr ««riy al(W,
‘When Cholera Mortrna fMOft 04?
«P»ln Killer" fiaed me ri*hl,
tior wakened thÐM arooad qm.
Most OLD PEOPLE «w frícodð ðf '
Pzrry Davisf
PAIN
KILLER
and often its very best frienda, beeause
for many years they have found it a friend
in need. It Í9 the best Family Remedy
for Burns, Bruises, Sprains, Rheumatism,
Neuralgia and Toothache. To get rid of
any such pains before they become achea,
use PAIN KILLER.
Buy it right now. Keep lt near yoo,
Use it promptly.
For sale everywhere. 1T KILLS PftlK
Ripans Tabules.
Sjúkdómar byrja vanalega með aðdraganda og ef ekki er hirt um þá
versna þeir og verða um síðir hættulegir.
EF ÞER ERILT AF HÖFUÐVERK, T!1,TjK A ÐTT
MELTINGARLEYSI, MAGAVEIKI, u
EF ÞÚ ERT LIFRARVEIKR.HEFIR T!T?Tj k ADTT
OREGLULEGAR HÆGÐIR, MUMUU
EFÞÚ ERT FÖLR, ÞREYTULEGR tikttkADTT
OG VERÐR OGLATT AF MAT, mtulv u
BRÚKAÐU
VIÐ ANDREMMU OG
MAGAVEIKLUN
RIPANS TABULES.
RIPANS TABULES.
RIPANS TABULES.
RIPANS TABULES
Ripans Tabules verka fljótt og þægilega á lifrina, magann og innyflin,
hreinsa líkamann vel, lækna meltingarleysi, langvinnandi óhægðir, andremmu
og höfuðverk. Ein inntaka tekin undir eins og vart verðr við meltingarleysi,
lifrarveiki, svima, ógleði eftir máltíð og þreytu,—er óbrigðul.
Ripans Tabules eru tilbúnar eftir sams konar forskrift(og margir merkir
læknar brúka í svona tilfellum.
Ef þú reynir Ripans Tabules muntu sannfærrst um, að þær eru óbrigð-
ult meðal. Það er bæði ósaknæmt og ódýrt.
Ein inntaka bætir.
Þriggja tylfta askja fæst hjá hverjum sem er af umboðsmönnum vorum
í Canada fyrir 75 cts.
BOLE WYNNE & Co.,
Wholesale Druggists, Winnipeg.
Fást í COLCLEUGHVS lyfjabúd,
á horninu á Ross og Isabel Str.
Allir lyfsalar útvega Ripans Tabules ef þeir eru beðnir þess.
Það er bragðgott, læknar fljótt og sparar peninga.
Sýnishorn send fljótt ef skrifað er til
THE RIPANS CHEMICAL C0„ New York City.
KJÖRKAUP I
Blue Store.
(Blau taiclinni.)
MERKI: BLA-STJARNA.
No. 434
Main Str.
Slík kosta-boð liafa aldrei fyrr heyrzt síðan Manitoba bygðist..
U|y
KOM OG SJÁ
vorar tweed buxur.
KOM OG SJÁ
vorar svörtu buxur.
KOM OG SJÁ
vorn karlmanna alfatnad.
KOM OO SJÁ
vorn svarta alfatnad.
KOM OG SJÁ
vorn unglinga-alfatnad.
KOM OO SJÁ
vorn drengja alfatnad.
KOM OG SJÁ
vorar Pea Jackets (vetrar-treyjur).
KOM OO SJÁ
vora yfírfrakka.
Þér þurfið ekki annað en að sjá og skoða þessar tegundir af
FATIVADI,
að samfærast þegar um, að hann er sá bezti og ódýrasti,
sem nokkru sinni befir boðinn verið í þessu landi.
Alt, sem vér mælumst til, er að þér komið og skoðið sjálfir
vöruruar.
Munid: „BLÁA BÚDIN“. . . .
.... Merki: BLÁ-STJARNA.
4-34 MAIN 8TREET,
A. Chevrier.
UPPBODS=SALA.
ÞROTABÚS-YÖRUR
M' CROSSAM (&:
eru seldar á uppboði á bverju kveldi fyrst um sinn.
DÚKVARA, FATNADR, SKINNVARA,
Alt, sem vant er að vera til í DRY GOODS búð. — Allan daginn eru
vörurnar líka seldar uppboðslaust fyrir uppboðs-verð.
M. CONWAY, uppboðshaldari.
GEO. H. R0DGER8 & C0„
& % EIGENDR.
398 Jafet 1 föður-leit.
að koma fram fyrir mína hönd í fullu um-
boði mínu í hverju sem væri þar til er ég
kæmi aftr.
Ég fékk þjóninum bréfið í hendr, kallaði
á leiguvagn og keyrði á póststöðina, og innan
fárra mínútna sat ég í póstvagninum akandi
áleiðis til Holybead, og var hróðugr með
sjálfum mér yfir snarræði minu og ötulleik.
Eg hafði lítið hugboð um þá, til hvers þetta
ferðalag átti að leiða fyrir mig.
Það var niðdimm Nóvember-nótt er ég
lagði af stað í þennan leiðangr. Það vóru
þrír aðrir farþegjar í vagninum og hafði eng-
inn þeirra enn þá mælt orð frá munni, og
böfðum við þó ekið nokkrar mílur. Ég sveip-
aði að mér yfirhöfninni og skemti mér að
vanda við að byggia lofl-kastala, sem bröpuðu
svo hver um annan; en ég bygði þá jafnóð-
um aðra upp afir. Loks tók einn farþeginn
að snýta sér nokkuð skilmerkilega, eins og
hann væri að gefa fyrirboða þess, að bann
ætlaði að fara að segja eitthvað. Svo spurði
hann sessunaut sinn, hvort hann liefði séd
kveldblöðin. Hann neitti því.
“Það lítr út eins og alt sé ekki sem frið-
legast á írlandi nií,” sagði sá er fyrstr hafði
til máls tekið.
“Hafið þér nokkurn tíma lesið írlands
sögu 7” spurði hinn.
“Ónei, ekki svo ég geti sagt.”
“Ef þér vilduð gera yðr það ómak, þá
Jafet í föður-leit. 403
uppálialdslag sitt. Þriðji maðrinn, sá sem
hafði kallað sig umboðsmann, var þrekbygðr,
þykkleitr, stórskorinn maðr; hann hafði hatt-
inn niðr í augum og höíuðið hékk niðr á
brjóstið. Ég tók eftir að hann hélt á sam-
vöfðum skjalastranga í hendinni; var band
hnýtt utan um strangann og hafði hann brugð-
ið endanum utan um vísifingr sér. Ég hefði
ekki veitt þessu neina frekari atbygli, ef það
hefði ekki verið fyrir það, að ég rak augun
i nafnið T. Tving, eem var ritað yzt á hornið
þeim megin sem utanáskriftin var. En þetta
var nafnið á umboðsmanni Melchiors í Lund-
únum, þeim inum sama sem reyndi að múta
Timóteusi.
Þetta kom mér til að gæta betr að; laut
ég því fram til að lesa utanátkriftina sjálfa,
en hún var: “Til Sir Henry de Clare, Bart.,
Mount Cnstle, Connemara.” Ég tók upp minn-
isbók mína og ritaði upp þessa utanáskrift.
Að vísu var engin sérleg ástæða til þess, en
ég vildi ekkert vanrækja; það var aldrei gott
aftr vasabók minni þegar maðrinn vaknaði.
og varð honum ósjálfrátt að grípa til skjalar-
strangans meðan liann var :ð rift sundr aug-
un, rétt eins og hann myndi fyrst eítir hon-
nm og vildi þreifa fyrir sér, hvort hann væri
enn vls; hann leit á hann, tók ofan hattinn,.
lét vagngluggann síga niðr og opnast og litað-
402 Jafet í föður-leit.
XL. KAPÍTULI.
[Ég afneita húsbónda mínum eins
og Pétr].
Þó að Mr. Cophagus væri málhreyfr ad
geta um sína hagi, þá bólaði ekki neitt á að
hann forvitnaði neitt um aðra, og féll því
niðr talið. Hinir tveir náungarnir höfðu líka
spurt hvor annan alls, sem þá forvitnaði að
vita, og tókum við nú allir i einu, rétt eins
og eftir undir lögðu ráði, að halla okkr aítr
í sætunum, létum aftr augun og reyndum að
sofna. Ég var sá eini, sem það tókst ekki;
ég vakti. Það tók að daga; samferðamenn
mínir sváfu allir, og ég fór að hætta um hríð
við loftkastala mína og veita athygli útliti
félaga minna. Mr. Cophagus var sá fyrsti sem
mér varð litið á; hann var litt breyttr í and-
liti frá því sem hann hafði verið, er við
höfðum sézt siðast, en talsvertgrennri á skrokk-
inn. Hann hafði sett upp hvíta nátthúfu og
b.raut í ákafa, Söngfræðingrinn varsmármaðr
vexti með efrivarar-kamp; hann svaf með1
opinn munninn, og gapti svo, að maðr hefði
mátt halda, að hann væri að syngja eitthvert
Jafet í föður-leit. 399
munduð þl>r fræðast um það, að frá því ír-
land fyrst bygðist, hefir þar aldrei friðlegt
verið, og lítil líkindi til að það verði nokk-
urn tíma. Þjóðin er eins konar mannkyns-
eldgígr, annað hvort rjúkandi, vellandi eða
gjósandi eldi og eimyrju.”
“Það er sannmæli,” svaraði hinn aftr;.
mér er sagt að ‘hvítu piltarnir4*’ sé fjölmenn-
ir um þessar mundir, og að það sé alls ó-
fœrt um sum héruð þar.”
“Ef þér hefðuð nokkru sinni ferðast um
Irland, þá hefðuð þér orðið þess var, að það
er alis ófært þar um mýinörg héruð, þótt
engir ‘hvítir piltax’ geri þar neitt af sér.”
“Hafið þér verið mikið á írlandi ?”
“Ilm, já!” svaraði hinn nú æði-drýginda-
lega; “ég lieid mér sé óhætt að segja það,
að ég hafi umráð yfir nokkrum stærstu land-
eignum í írlandi.”
“Lögfræðingr — umboðsmaðr — fimm af
hundraði — og svo framvegis,” tók nú þriðji
maðrinn undir, sá er hjá mér sat og þagað
haíði til þessa.
Það var nú ekkert hægt um að villast
með liann ; það var auðhcyrt að það var gamli
húsbóndi minn Mr. Cophagus. Ég get ekki
sagt það gleddi mig að rekast: á hann liér,
*) Einn af inum mörgu írsku óáldar-flokk-
um. Þýð.