Heimskringla - 05.05.1894, Side 1

Heimskringla - 05.05.1894, Side 1
VIII. AR. NR. 18. Heimskringla. WINNIPEG, MAN., 5. MAÍ 1894. THE BBEAT WEST LÍFSÁBYRGÐARFÉLAG. Aðalból - - Winnipeg - - Manitoba. J. H. BROCK forstöðumaður. ___________________i TJppborgaður höfuðstóll.... 8 140.014.22 Varasjóður........... 8 54.720.00 Lífsábyrgð í gildi við lok fyr»ta ársins...... $2.268.000 Lífsábyrgð veitt með hvaða helzt nýmóðins fyrirkomulagi sem vill. Kaupið ábyrgð í The Great West og tryggið yður á þann veg þann hagnað, er háir vextir af peningum fé- lagsins veita. Þetta fjelag dregur ekki ýje burl úr fylkinu. K. S. Thordarson - - agent. 457 Main Str., Winnipeg. FRÉTTIR. DAGBÓK. LAUGARDAG 28. APR. Ekki gekk saman með Great North- ern forstöðumönnunum og fyrverandi ■þjónum þess. í dag á hádegi skyldu allir vinnumenn félagsins hvervetna ganga frá verki sínu. Eldur kom upp í borðviðarhlöðum í Rat Portage, Ont., í nótt sem leið, og brann þar upp 10 milj. fet af sög- uðum borðvið og timbri áður en eld- urinn varð slöktur. Eignatjónið nem- ur 8125,000. Vátrygging alls 880,000,— Til allrar hamingju var vindstaða hag- stœð, svo myllurnar sakaði ekki, né nokkra húseign, er sumar hverjar voru þó hættulega nærri. Ontario-fylkísþingið samþykkir að veita járnnámafélögum 825,000 styrk á ári hverju í 5 ár, svo þau geti auk- ið málmtekjuna. Wilfred Laurier, leiðtogi “liberals” í sambandsþinginu, hefir hafnað boði flokksmanna sinna í Saskatchewan- héraðinu vestra, er vildu fá hann til að sækja um þingmensku fyrir það kjördæmi. — En vestur hingað ætlar hann að koma einhvern tíma í sumar. Jarðhristingur mikill í Grikklandi enn ; var átakanlega mikill í Athenu- fiorg og urðu menn felmtfullir mjög. I Þessum kipp eyðilagðist þorpið Ata- lanti (íbúar 3000) til hálfs, Og þó mörg hús standi þorir fólkið ekki að vera í þeim, því jörð er öll sprungin í grendinni. Eitt þorp er nú gersam- lega kollvarpað eftir alla kippina, svo að þar stendur ekki eitt hús eftir. Sögur líkar þessari berast úr öllum áttum. Fólkið er bjargþrota og vænt- ir eftir lijálp frá útlöndum, því lieima- stjórnin hefir ekki ráð á að hjálpa eins og þarf. 'V eður er þar kalt og rigningasamt," og bætir það á neyð Þeirra. er ekkert skýli lmfa. rrumvarp til lága um heimastjórn á Skotlandi var lagt fyrir þing Breta í Kær, og fékk furðu góðar viðtökur. Balfour auk heldur hafði ekkert stór- vægilegt út á það að setja. Belgíu-stjórn bannar allar sam- göngur við Portúgal, vegna kóleru. Stjórnin í Montana heimtar að dóm stolarnir knýi Great Northern félagið til að halda uppi lestagangi eftir brautinni innan Þess ríkis uppihaldslaust árið um kring. X Bandankjunum eru nú i smíðum 42 gufuskip gerð af stáli, er til samans bera 137 000 tons. Dar af eru 13 her- skip, en 29 verzlunarskip. Af þessum hóp eru 15 í smíöum í T’hiladel (ilúa. MÁNUDAG, 30. APRÍL- Aðfaranótt sunnudagsins brann til rústa í New Orleaus eitt merkasta hót- elið í Bandarikjunum—St. Charies-hó- telið. Það var í því húsi, að þeir Jeffer son Davis, Judia P. Benjamín, auk ann ax-a fleiri sunnanmanna, komu saman og lögðu grundvöll til að stofna nýtt lýðveldi—Suðurríkin. Eldurinn kom upp í matreiðslvxsalnum rótt eftir að fólkið var gengið til svefns, Auk heimafólks voru yfir 100 gestir á hótel- inu, er allir komust af, en 5 af heimil- isfólkinu fóruzt í eldinum. Eignatjón- ið nemur 8J millíón eða meir. Á laugardaginn fékk Bandarikja- stjórn til innlausnar 106 000 hálfcents eirpeninga, er gefnir voru út árið 1857. Gamall bóndi í Connecticut hafði safn- að þessum peningum og grafið þá i jörð, og nú nýlega fundu erfingar hans sjóð- inn. Rigningar losuðu svo svörðinn í brekku við St. Albans-ána í Quebec að4 ferhyrningsmilur af yfirborðinu hlupu fram í ána og bwr með sér hús og 4 eða 5 menn, sem drukknuðu. Roseberry lávarður, stjórnarformað- ur Breta, gefur í skyn að stefna sín verði alt önnur en Gladstones að mörgu leyti. Meðal annars gefur hann í skyn, að utanrikisdeildin muni verða eftir- litssamari en að undanförnu; enn frem- ur. að hann hefði hugsað sér nýtt fyrir- komulag á írlands málum. En sá part ur ræðunnar er óvinsæll mjög, meðal íra að sjálfsögðu og líka meðal Eng- lendinga sjálfra, þeirra er fylgt hafa Gladstone. Braziliustjórn er nvi búin að ná und ir sig aftur flestum bæjunum í suður- iiluta landsins, sem uppreistarmenn- irnir voru búnir að hertaka. Nýlega skipaði stjórn Breta Courtenay lávarð til að rannsaka meðferð manna á fátækra húsi einu. Rannsókn þeirri er nú lokið og sann- ar hún hve voðalega að þar hefir verið farið með auðnuleysingja þá, er þangað hafa verið sendir. Sumt af því er hann sá þar og frétti er sagt svo ljótt, að viðbjóðslegt þætti meðal barbara, hvað þá meðal siðaðra þjóða. Beiningamaður réðist "á forstöðu- mann Rothchilds-bankans 1 Vinarborg úti á götunni, og veitti honum all- mikla áverka með hníf. Seint og fast gengur að tosa Wil- sons tolliagafrumvarpinu gegn um efri- deild bandaþingsins. Republikar lofa því, að láta frumv. ekki koma til atkv. fyr en þeir eru búnir að athuga ná- kvæmlega hverja eina linu i því. Vilhjálmur Þýzkalandskeisari mæl- ir með, að minnispeningar fyrir her- mennina sé slegnir úr fallbyssunum, er Þjóðverjar náðu frá Frökkum í stríðinu þeirra síðasta. Fellibylur molaði skólahús í grend við Kansas City, Missouri. Biðu þar bana 19 börn og mörg meiddust. Göngumenn Coxey’s náðu til út- jaðranna I Washington seint f dag, en mannmargur var herinn ekki, eftir all- ar tilraunirnar að auka hann, að eins 350 manns í flokknum, allir rifnir og tættir og lúalegir á svipinn. ÞRIÐJUDAG 1. MAÍ. Canada-stjórn er óánægð með eitt atriöi í selaveiðireglunum nýju, en það atriði er, að selveiðaskip megi taka föst, þegar þörf þýkir, þó þau séu ekki á forboðnum veiðistöðvum og þó þau hafi engin selaskinn inrianborðs. Umboðsmenn Bandaríkjastjórnar og ráðherra Breta i Washington höfðu samþykt þessa grein, eins og hinar. Það er róstusamt í Nýfundnalandi. Þar voru í gær hafin mútugjafa mál- in gegn meðlimum fyrverandi ráða- neytis. Samdægurs voru og hafin meiðyrðamál gegn aðal-blöðum beggja pólitisku flokkanna. Selaveiða vertíð Nýfundnalands- manna endaði í gær og þótti léleg. Selatekjan öll um 200.000. í gær var samþykt í Ontario-þingi, að veita 8262 500 til járnbrautafélaga, er fyrir þann styrk eru skuldbundin að hyggja í ár 86J mílur af járnbrautum. Eitt félagið, sem fær styrkinn, er On- tario & Xtainy River félagið, sem ætlar að byggja 50 mílur af járnbraut út frá þeirri, er a að samtengja Port Arthur og Duluth, vestur um öræfin til Skóga- vatns. Er fyrirhugað að hún þar sam- einist Manitoba Suðaustur-brautinni, sem nu er í valdi Greenway’s hvert bygð verður eða ekki. Fred. C. Denison, þingmaðui’ fyrir l'oronto West, gerði uppástungu um það á sambandsþingi, að stjórnin haldi áfram að bæta skipaleiðina um Law- rence-fljótið og stórvötnin þangað til minnst 20 feta dýpi er fcngið í öllum skipaskurðum og ám á þeirj-i lo;ð. Út, af þessari uppástungu spunnust langar umræður og kom þá í ljós, að til þess að fá þetta dýpi þyrfti stiórnin að verja til þess 812—14 milHónúm, en að hagur stjórnarinnar væri nú sem stend- ur þanníg, að til einskis væri að tala -um slík fjárframlög. Martin frá Wín- nipeg var hlyntur fyi-irtækinu, en Daly iunanríkisstjóri, frá Brandon, áloit eina lífsspursmál norðvesturlandsins væri að fá Hudson Bay brautina bygða. Bændaflokkurinn Patrons of In- dustry hafa kjörið mann að nafni Forsythe til að sækja um kosningu i Beautiful Plains kjördæminu í Mani- toba þegar þar verður kosið upp aftur. Drenghnokki í Calgary slórði á leiðinni til skólans og varð of seinn. Sendi þá kennarinn hann heim til að úttaka hegningu, en í stað þess að hlýða fór strákur um borð á Kyrra- hafshraðlestina er þá var stödd í bænum og komst með henni vestur til Vancouver, því lestamennirnir aumkuðust yfir hann og ráku hann ekki úr vögnunum. Hann segist hafa óttast híðing og þessvegna flúið. Eftir 24 kl. stunda dvöl í Wash- ington voru þeir J. S. Coxey og Carl Brown, foringjar Coxey hersins, teknir fastir og hnepptir í fangelsi. — Það er von á 7—8000 þessum hermönnum til Washington, en ekki eru þeir orðnir full 400 enn, og dauflegar horfur á að sumir flokkarnir komi bráðlega. Lesta- þjófarnir í Montana að minnsta kosti eru langt frá ferðalegir enn, því i gær voru þeir fluttir til Helena og eru þar umkringðir af hermönnum Bandaríkja. MIÐVIKUDAG, 2. MAÍ. Bæjarstjórnin í Chicago hefir veitt 8100 000 til þess að varna útbreiðslu bóluveikinnar meira en orðið er, ef kostur er á. Englandsstjórn hefir ákveðið að læknarnir, er settir hafa verið til að rannsaka lungun úr nautgripum frá Canada, skuli taka til starfa 16. þ. m. Á nú að haga rangsókninni svo, að ekki verði ástæða til að kvarta undan vil- höllum úrskurði eins og í fyrra. Járnbrautarfélögin stóru í Canada, C. P. R. og Grand Trunk, eru nú í óða- önn að fækka verkamönnum á verk- stofum sínum ; reka burt menn svo hundruðum skiftir og lækka laun þeirra sem eftir eru. Verzlunardeyfðinni er kennt um. Samningar komust á í gærkveldi milli Great Nortliern formanna og þjón- anna. Verzlunarstjórnirnar í St. Paul og Minneapolis tóku sig til og skárust í leikinn, og varð árangurinn sá, að sam- an gekk kl. 11 í gærkveldi. Endalokin urðu þau, að forstöðumennirnír færðu upp launin aftur, þar til niðurfærslan nemur ekki meir en \ þess er í fyrstu var ákveðið. Það gerðu verkmennirn- ir flestir sér að góðu ; er sagt að 99 af hverjum 100 séu ánægðir með þessa úr- lausn. Á sambandsþingi í gær gaf fjár- málastjórinn til kynna, að tollurinn á steinolíu yrði færður niður í 6 cents á gallónu (4 pottum). Tollurinn er nú 7 og fimtungur cents á gallónu. Betra þykir það en ekki, en ónóg þykir samt niðurfærslan enn. En að likum verður ekki meira en þetta aðgert á þessu þingi. Eignatjón af völdum flóðsins í St. Albans-ánni í Quebec-fylki nemur að minsta kosti 1 milj. dollara. Málmtekja öll í Canada á siðastl. ári nam 819J milj., en það or :) milj. minna en árið 1892; eru lcol þar með talin, 881 milj. virði. Jarðhristingar á Grikklandi aftur í gær. Er nú ætlað að um 500 manns liafi týnt lífi í jörðskjálftunum, en að um 20,000 sóu húsviltir. Höfnin í Port Arthur er íslaus orðin. Þingmaður á Frakklandi segir prestana og auðmennina valda út- breiðslu anarkista skoðana í landinu. samfara afskiftaleysi stjórnarinnar. Hveitisáning er um það afstaðín í vesturhluta Manitoba-fylkis. Forseti og forstöðumaður Great Northern-fél. fóru í rifrildi i St. Paul í gærlcveldi, er lauk með því, að for- setinn fékk löðrung, en forstöðumað- urinn sagði af sór. Sambandsstjórnin er nýbúin að full- gera brú mikla yfir skipaskurð i Mon- treal, er kostað hefir 8-130,000, en sem ekki átti að kosta meira en 8195,000. Þannig skýrir nefnd frá máiinu, er sambandsstjórnin sltipaði til að rann- saka það. Rafmagnsgerðahús eit.t í Montreal skemdist af eldi í gærkveldi. Eigna- tjón 8100.000. FIMTUDAG, 3. MAÍ. Winnipeg & Great Northerx er nú nafnið á Hudson Bay brautarfélag- inu. Nafnbreytingin var æskilog vegna þess, að sífeldur misslcilningur reis út af því að nafnið var liið sama og á verzlunarfélaginu stóra—Hudson Bay Co. Demokratar höfðu 3-firhöndina í bæjarstjórnarkosningunum í St. Paul, er fóru fram 1. þ. m. Kapp var mikið á báðar siður. 7—800 námamenn í járnnámum í Minnesota hafa gert verkstöðvun; heimta hærra kaup. í járnnáma-þorpi í héraðinu eru og aðkomnir námamenn svo hundruðum skiftir austan úr Ohio, er vilja knýja alla til að hætta vinnu og láta ófriðlega. Knutr Nelson, ríkis- stjóri hefir verið beðinn um herverndun og hefir hann leyft hana, ef á þarf að halda. Verkmanna-upphlaup átti sér stað í gær í Cleveland. Ohio. Um 4000 manns æddu um borgina og lokuðu verkstæðum öllum. í ræðu, er Roseberry lávarður flutti í Manchester á Englandi, kvaðst hann álíta að skynsemi manna ætti að sýna þeim, hve nanðsynlegt væri að gefa Ir- um heimastjórn. Með því og slikum umbótum annarsstaðar væri auðið að halda hinu brezka veldi saman, en án þeirra ekki. Sambandsstjórnin ákveður að við- hafa varúðarreglur til að varna bólu- veikinni, er gengur í Bandaríkjunum, yfir landamærin. Hún hefir skýrslur er sýna, að bóluveikin gengur í 16 rikjum Bankaríkjanna, þó mest í Chicago, New York og Brooklyn. Alþjóðafundur var settur í Mansion House í Lundúnaborg í gær til að tala um útgáfu gulls og silfurpeninga. Mættu þar um 400 ýmsra þjóða menn, sem allir vilja auka silfurpeninga út- gáfuna. Uppihaldið á kolatekju í Banda- rikjunum er farið að hafa þáu eðli- legu áhrif, að verkstæðum víðsvegar um landið hefir mátt loka í bráð, vegna kolaþurðar. FÖSTUDAG 4. MAÍ, Jarðskjálfti gerir vart við sig í Wales á Englandi. Ófriðarhorfur miklar meðal náma- manna í Minnesota. — Samskonar frétt- ir frá Cleveland, Ohio. Populistar í Kansas segja að af handtöku Coxey’s leiði stjórnarbylting í Bandaríkjunum. Bæjarstjórnin í Winnipeg ráðgerir að verja 8159 000 til strætabóta. Auka- fundur um það næsta mánudagskveld. C. P. R. er um það að stofna vagn- hjólaverkstæði í Fort William, Ont. FRÁ LöNDUM. Hr bréfi úr Nýja íslandi, dags. 24. April:—“Fáar eru fréttir, nema bærileg líðan, heilbrigði manna og höld fjár góð Nú hugsa ég að sumarið sé gengið i gárð ; í clag er 40 stiga hiti i skugga. En fyrsti sumardagurinn—19. þ. m.— var með verstu dögum nafna sinna, kafdimm bleytustórhríð með norðaust- an ofsastormi. Hr. Guttormur Jónsson, er hingað kom síðastl. sumar frá Seyðisfirði, hefir nú ke.ypt jörðina Búastaði f Arnesbygð og er fluttur þangað. íbúðarhús Guðvarðar Hannessonar bjrgt í stað þess er brann í vetur, er nú um það fullgert. Árnesingar flestir hafa gefið vinna sína að meira eða minna leyti við að koma því upp og hafa sýnt það þar sem oftar, að þeir eru góðir drengir. Jakob Mormóna sendill er nú að labba hér um nýlenduna á ný. Hér er og á ferð Jóhann dyravörður frá Lár- usar-kyrkju í TVinnipeg. Báðir þessir postular eru nú úti í Mikley. Viðvar- andi flæking þeirra hér kenni ég bænd- um. Þeir gefa þeim mest allan greiða og þar af leiðir að hinum þykir gott að halda sér uppi á þennan hátt. Væri þeim seldur greiði, mundu þeir hipja sig burtu, og þeirra gesta mundu fáir sakna”. GEYSIR, MAN., 25. APRÍL 1894. Herra ritstj.—Það er heldur en ekki blautt um hérna hjá okkur Geysir- búum um þessar mundir, ogf aöi-ar eins bleytur munu varla hafa komið hér síð- an vorið 1882. Fljótið beljar hér fram í algleymingi og flæðir langt upp á bakka sína. Margar fjölskj-ldur hafa orðið að flýja heimili sín sökum þess að vatnið hefir gengið upp á gólf í húsunum. Sömuleiðis hafa margir verið í dag að koma gripum sinum(að heita má á sundi) til þeirra húsa, sem enn eru frí við flóð- ið. Þar, sem fréttaritari j-ðar skrifar þessar Knur, er vatnið í ökla á gólfinu— hefir hækkað í dag um 3 þuml. á 7 kl,- stundum. Auðvitað búast menn við að þessi óslcöp standi ekki lengi j-fir. Að kveldi hins 21. þ. m. hélt herra Stefán Sigurðsson, oddviti Gimlisveitar, “prívat” skemtisamkomu að heimili sínu í Breiðuvík. Þar voru j-fir tuttugu manns saman komnir (margir, sem boðnir voru, gátu ekki komið, vegna þess að svo vont var yfirferðar). Heim- boð þetfa er vafalaust það mesta og rausnarlegasta, sem nokkurn tíma hefir verið hahlið í nýlendu þessari. Veit- ingar voru svo margbreyttar og ágæt- ar, að slíkar muna óvíða eiga sér stað meðal Vestur-ísleudings. Skemtanir voru hinar beztu : ræðuhöld, söngur og hljóðfærasláttur. En hið merkilegasta við þessa samkomu var það, að Mr. Sigurðsson hélt hana (samkomuna) að eins í þeim tilgangi að gleðja vini sina, og gefa þeim tækifæri til að ræða um það, sem miðaöi til framfara og efldi félagsskap i þessari bygð. Allir, sem í samsætinu voru, fóru glaðir og ánægð- heim til sín um morguninn þann 22. Mr. Sigurðsson sýndi við þetta tæki- færi, eins og oftar, að hann er höfðing- lyndur maður og búinn prýðilegum hæfileikum og góðum tilfinningum. Hr. Gestur Oddleifsson er þessa dagana að koma sögunarvið sínum eftir Islendingafljóti til mylnu sinnar, og mun hann allareiðu láta bj-rja að saga. Hann hefir veitt fjölda mörgum mönn- um atvinnu í vetur. Lestrarfélag hefir nýlega verið stofn- að hér i bygðinni, og er vonandi að það eigi bjarta framtíö fj-rir höndum. Hr. Guðmundur Nordal, sonur Sig- urðar Nordals póstmeistara að Geysir, er fluttur hingað með konu sína, Önnu Björnsdóttir (Skaptason). Það er sann- arlega ánægjulegt að fá í b.ygðina svo vel mentaða og gáfaða konu. Hr. Sveinn Jónsson (sonur Jóns Sveinssonar, bróður Benedikts Sveins- sonar assesors) er seztur hér að hjá föð- ur sínum ; hefir verið um nokkur und- anfarin ár suður í N. Dak., nærri Grand Forks. Fregnriti Hkr. Derby plötu-reyktóbak er hið geðfeldasta og þægi- legasta tóbak fáanlegt.' Orða-belgrinn. [Öllum, sem sómasamlega rita, er velkomið að “leggja orð í belg;” en nafn- greina verðr hver höf. sig við ritstj., þótt ekki vilji nafngreina sig í blaðinu. Engin áfellis-ummæli um einstaka menn verða tekin nema með fullu nafni undir. Ritstj. afsalar sér alh i ábyrgð á skoðun- um þeim, sem koma fram í þessum bálki]. X Og $85 til $90. í Hkr. nr. 14 fer X eim á ný að hreyfa sig til oð svara grein minni sem stendur í Hkr. nr. 12. Það mun ekki þurfa að segja að X litli komi þar með dálítið sem kallað er sleggju- dómur, þar sem hann fullyrðir, að 93 af 121 hafi verið á móti Guðna Thor- steinssyni ? Hann og allir sjá, að 28 menn í nýlendunni hafa þó viljað nafa Guðna fyrir sveitarskrifnrn, en altur á móti, eftir þessum dómi, hafa allir verið á móti Gísla og Jóhanni og ekki viljað hafa þá, og var þó fullkunnugt, að þeir ætluðu að sækja. Að ég hnfi beinlínis og óbeinlín- is viðurkent, að þeir Gísli og Jóhann væru jafnhæfir G. Th. til skrifara og féhiröisstarfa, er alveg ósatt, og ástæð- an, sem X tilfærir í fyrri grein sinni, er hringlandi vitlaus, og enginn rétt- sýnn maður getur beldur dregið það út úr grein minni, miklu fremur það gagnstæða. Um útnefning yfirskoðunarmann- anna er það í fám orðum að segja, að ég stakk upx> á því, að Gísli væri tekinn til reikningsyfirskoðara; það var samþykt; þá útnefndi oddviti annan, og svo búið, Þá kom nú þetta atriði, sem virðist bafa orðið að svo fjarska stórum bita í liálsinum á X, að ég sagði bara í spaugi, að liefði ég mátt ráða, þá befði ég viljað að Jóliann væri kosinn til sama starfa og Gísli. Að mér datt þetta í bug, kom til af því, að mér fanst þeir bera sig svo sultarlega eftir skrif- araembættinu. Það getur hver maður séð, að meiri vandi er að færa rétt og skipulega sveitarreikning heldur en að vfirskoða bann; finnist yfirskoðara eittbvað skakt, þá er skrifari strax við lieodina að koma kouurn i skiln- ing um það rétta. Svo er og fleira atkugandi í þessu máli, en það bíð- ur síns tima. X beldur að hægt só að sanna, að G. Tb. liefði verið fús á að takast á bendur skrifarastörfm fyrir $180. Hann má rembast svo mikið sem hann vill við að sanna það, en ég keld að það verði torvelt, því það eru tilhæfulaus ósannindi, eftir því sem ég veit bezt, og skritið væri að sjá hann sanna, að ég hafi heyrt það fyr en í Hkr. greininni hans, eins og ég hefi áður sagt. Ég só ekki ástæðu til að svara fleira sem stendur i grein X, það er svo mikill úLir8núningur að liann geng- ur út í heimsku, kemur enda pessu máli ekkert við. Benedikt Arason. Tala flutt 21. Apríl í vinasamkvæminu í Bræðrahöfn af G. Gíslasyni. “Varðar mestu allra efna, að und- irstaðan rétt sé fundin”. "Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi”. Þetta er dagleg reynsla í mannlífinu, að hvoru- tveggja þessara spakmæla eru sannindi, því ef undirstaðan er traust og gund- -völluð á bjargi reycslunuar, þá má byggja þar ofan á, hvað helzt sem lífs- staðan og hinn góði borgaralegi félags- skapur útheimtir og þarfnast. Ég hefi vanist sveitarhfinu frá byrjun minnar vegferðar gegn um lífið, eg ég hefi séð það koma fram nálega í öhum myndum. Sumir hafa tamið sér forsjálni og sparsemi, iðni og fyrirhj’ggju; aðrir hafa unnið mikið og aldrei gefið sér né öðrum hvíld. og með því móti komist yfir nokkuð. En þeir lærðu aldrei að gæta fengins fjár og þess vegna eyddist alt jafnóðum og þeir öfluðu þess. Þriðju lögðu árar í bát og unnu aldrei, hvorki sér né öðrum gagn, og því varð þeirra hlutskifti í lífinu, að þeir fengu hreinar tennur og sult—eins og Salomon segir, því að margir—ég vil ekki segja allir— eru sinnar lukku smiðir. Þetta hefir reynslan sannað þráfaldlega, en hverg; hefi ég fengið eins áþreiíanleg rök fjn-ir því, hvað iðni og atorka, hyggindi og sparsemi geta komið til leiðar. eins og hér i Nýja íslandi. Hingað hafa flutt flest-ahir, sem að heiman komu bláfá- tækir með meiri og minni ómegð, og sezt hér að á óbj'gðum og þéttsettum skóglöndum; peir höfðu aldrei séð felda eik, aldrei séð plægða akurrein og aldrei sáð nokkru fræi í jörðina. En nú eftir fáein ár eru hér komin fa.Il- eg hús, rudd stór stykki af skógum og mikil akur- og engjalönd, þar sem áður var svo þéttur skógur, að laus maður komzt valla gegn um. En hverju er þetta að þakka? Er ekki þetta að þakka dugnaði og framsýni landnema þessa eyðilands ? Kemur ekki þarna fram ávöxturinn af iðni og atorku bóud ans? Það er óefanlegt. Nú eru flestir orðnir sjálfbjarga, sem fyrir fáum árum áttu ekki eyrisviröi, og meira að segja, þeir eru nú glaðir og ánægðir og sjá daglega fram á, að þeir hafa ekki eín- asta búið í haginn f j’rir sig, heldur og niðja sína hvern fram af öðrum. Eru ótal dæmi hér meðal vor. sem sanna þetta með mér. En hvergi í Nýja íslandi sjáum vér meiri og víðtækari frainfarir en hjá bræðrunum Stefáni og Jóhannesi Sig- urðssonum í Bræðrahöfn. og lýsir alt það, sem ber þar fjTÍr augu vor, atorku þrifnað og reglusemi. Það er sönn á- nægja að koma á það heimfli, þar sem þessir kostir blasa við manni. Eins eru þessir bræður og húsfreyjur þeirra sam- taka í því að fagna öllum, sem koma á heimili þeirra, svo að þessi heiðurshjón hvorttveggju eruekki aðeins fyriimynd bændastéttarinnar í dugnaði, ráðdeild, sparsemi, gestrisni og hjálpsemi við landa sína hér i nýlenduuni, holdur hafa þessir nafnkunnu bræður stofnsett hér þá stærstu og beztu verzlun, sem til þessa hetí verið sett, á fót hér í Nýja Islandi. I stuttu máli, þeir bræður eru fj-rirmynd nýlendubúa í framkvæmd og dugnaði og eiga því að veröugu almenn- ar þakkir og vjrðingu skilið af innbú- um þessarar nýlendu. Góðir bræður og sj'stur, sem hér hej-ra mál mitt; ég veit að þér eruð mér samtaka í að við- urkenna það, að þessi gleðisamkoma, sem haldin hefir verið í kveld, er að þakka oddvita okkar og verzlunarmanni herra Stéfúni Sigurðssyni og konu lians. Hann stofnaði þennan fund og hefir með glaðværð, gestrisni og veitingum leitast við að gera oss samkomuna svo ánægjulega, sem veglyndi, mannúð og mannkærleiki útheimtir og liefir ekki haft annan tilgang en þann, að gera mönnum dagamun, eður sem menn kalla, glatt í sinni, og er þetta mér vit- anlega sú fvrsta samkoma í Nýja ís- landi, sem gjörð er í þessum tilgangi. Vér finnum skyldu okkar að þakka þessum hoiðurshjónum fj-rir alla þá skemtun og veitingar. sem vér höfum notið við þetta gleðisamkvæmi, fjrrir þeirra alúð og eðalljndi, og óskum af hjarta, að guð gefi þeim gott og gleði- legt sumar, og aö hvert spor, sem þau og niðjar þeirra stíga á skeiðfleti lífsins framvegis, verði þeim til heiöurs og liamingju og náunganum til gagns og góða. Derby plötu-reyktóbak selst ákaflesra vel ou o n sala pess fer sívaxandi.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.