Heimskringla - 12.05.1894, Side 4

Heimskringla - 12.05.1894, Side 4
4 HETMSKRINGLA 12. MAÍ 1894. Winnipeg. Mrs. J. E. Peterson talar I Únitara- húsinu annaðkveld kl. 7. Hr. Jón Ólafsson kom heim úr Dakota og Minnesota-ferð sinni fjTra föstudag. Miss G. Asgeirs leikur framvegis á orgel við guðsþjónustur á Unity Hall (corner McWilliam & Nena). Séra B. B. Johnson kom vestan úr Argyle á miðvikud. Segir að votviðrin hafi tafið fyrir með hveitisáning. Þrátt fyrir sárbitran ing á sunnudaginn var, sótt ræða hjá Mrs. Hall. kuldanæð- var allvel Peterson á Unity Við hádegis guðsþjónustuna í lút- ersku kyrkjunni á morgun tekur séra Jón Bjarnason fermingareið af nokkr um ungmennum. Einn af bæjarfulltrúunum, E. F. Hutchings, vill að bærinn kaupi 200 ekrur af landi út við Birds Hill og hafi þar sameiginlegan sorpbrenslugarð, grafreit. og skemtigarð ! Á skólastjórnarfundi á þriðjudags- kveldið var samþykkt að ljá íslenzka lúterska söfnuðinum ákveðinn sal gamla Mulvey-skólanum fjrrir guðs- þjónustur, fyrir $2 um vikuna. Á skólastjórnarfundi á þriðjudags kveldið var samþykt að byggja stór- an viðauka við Argyle-skólann á Henry Ave., í sumar. — Nemendafjöldi á al- þýðurkólum bæjarins í siðastl. Apríl var mestur 4,508. Skemtisamkoma íslenzku Odd Fel- lows stúkunnar “Geysir”, sem auglýst var í Hkr. fyrir 2 vikum, verður haldin á Northwest Hall á miðvikudagskveld- ið kemur. Byrjar kl. 8. Aðgangur 25 cents. (Sjá auglýsinguna í þessu blaði í dag). Þeir mörgu landar vorir, sem skilja enska tungu, en ekki hafa enn veitt sér þá ánægju að hlusta á Mrs. Peterson ættu að gera það nú, ef þeir eru ekki fyrirfram fast “lofaðir” f aðrar kyrkjur. Good Templar-stúkan Hekla hélt ársfjórðungsfund sinn fyrra föstudags- kvöld og setti i embættin sína nýju embættismenn. Meðlimir stúkunnar eru um 200 og mun hún vera mann- fiest Good Templar-deild í Manitoba. Derby plötu-reyktóbak er hið geðfeldasta og þægi- legasta tóbak fáanlegt. Þeir sem ekki hafa fengið “Dags brún,” síðasta nr., geri svo vel að vitja þess að 601 Ross Str. Ekkert var afráðið með strætaum bætur á verkanefndarfuodinum i mánudagskveldið var. Á mánudags kveldið kemur verður almennur bæjar- ráðsfundur, Og þá verður það mál að likum rætt til hlítar. Huttakendur i hinu nýja blaðfyr- irtæki Mr. Jóns Ólafssonar : Halldór Jónsson, LongPine, Nebr. $2.00 Ólafr Hallgrímsson “ “ “ Miss G. Jónsdóttir “ “ “ Miss F. Halldórson “ “ " Mrs. S. Halldórsson “ " “ Mrs. T. Thorarinson" “ “ Svb. Friðbjörnsson. Victoria Ónefndur “ E. Gíslason. 601 Ross Ave. Winnipeg. $1.00 $2.00 $1.00 $1.00 $2.00 $2.00 $2.00 í aprílmán útgáfu Sunnanfara eru myndir og æfiágrip af H. A. Clausen etazráði, Erlendi Pálmasyni í Tungu- nesi í Húnavatnssýslu, og Helga Magnússjmi i Birðingaholti í Árnes- sýslu. Tvö kvæði eru í blaðinu “Skútahraun,” eftir Einar Benedikts- son og “Tekur að kvölda”, eftir Bjarna Jónsson. Það var ekki rétt sem sagt var 1 blaðinu nýlega að Jón Jónsson á Garðar, Dak., væri í bænum til að leita sér lækninga. Hann hafði skrif að hingað að hann væri að hugsa um að koma og útaf þvi spannst misskilningurinn. En í stað þess að koma hingað fór hann til Dr. Hall- dórson’s i Park River, og er nú að sögn á góðum batavegi. Vatnsleiðslu og Ijósa-nefnd bæjar- stjórnarinnar fékk á þriðjudagskvöld- ið tfiboð frá 2 félögum um að hagnýta vatnskraft Assiniboine-árinnar. Bæði félögin þykjast tilbúin að taka tfi vinnu undir eins og bæjarstjórnin hefir samþykt fjT-irhugaða samninga. Reykháfur brotnaði og hrundi nið- ur af hárri byggingu við Aðalstrætið á miðvikudaginn og varð einum dreng að bana; annar lemstraðist og liggur nú nær dauða en lífi á sjúkrahúsinu. ís- lendingur, sem ásamt fleirum var að vinnu í grendinni, skaðaðist einnig á höfðinu, en ekki hættulega. Drengirn- ir sjálfir voru orsök í því að reykháfur- inn hrundi, voru að flangsa í kaðla, er festir voru við tré uppi á þakinu og notaðir til að draga upp ýms efni til að- gerðar þakinu. Með sífeldum hristingi kaðlanna losuðu þeir umbúðirnar uppi og þær sópuðu rej'kháfnum með sér. Undirskrifaður lætur hér með gamla skiptavini sina vita, að hann er seztur að í stóru og rúmgóðu húsi 530 Ross Ave., og vonast þvi eftir, að hans góðu og gðmlu vinir komi og sjái hann. B. J. Skaptason. Lif sábjrgðarf élagi ð MASSACI1USETT8 BENEFIT LIFE ASSOCIATION er að festa sér bústað hér í bænum. Mn. Jón Kjærnestbd gefur upplýs- ingar um félagið, bæði á skrifstofu fó- lagsins 544J Main Str. og að heimili sinu 527 Portage Ave. Enskur “hnatthlaupari,” George Griffith að nafni, kom til bæjarins fyrra föstudagskvöld á hraðri heim- leið. Hann ásetti sér að fara kring- um hnöttinn á 65 dögum og fór af stað frá Lundúnum 12. marz síðastl. yfir sundið til Frakklands og þaðan með vagnlest til Neapel á ítaliu. Þaðan tók hann sér far með þýzku gufuskipi til Hong Kong, um Suez og Indlandshaf. Á þeirri leið græddi hann 2 sólarhringa, en tapaði 24 kl. stundum á leiðinni þaðan til Yoko- hama. Þar mátti hann og bíða 76 kl. stundir áður en C. P. R. skipið fór af stað til Vancouver. Síðan hefir honum gengið svo vel ferðin að hann kom til Winnipeg 36 kl. stundum fyrr en hann i fyrstu gerði ráð fyrir. Til Montreal kom hann á mánudags- morgun og samdægurs fór hann á- fram til New York og náði þar í þýzka skipið “Trave” er þaðan fór áleiðis til Englands á þriðjudags- morgun. Nái “Trave” höfn við Eng- land eftir 6J dagsferð, eins og svo oft áður, verður Griffith auðgert að ljúka ferð sinni á 63 dögum. — Hröð- ust ferð, næst þessari, umhverfis jörð- ina, var sú er Nelly Bly gerði fjrir 2 eða 3 árum. Hún fór hringinn á 72 dögum. KVÖLDSKEMTUN. Sumar, vetur, haust og heiðskírt vor ef hamingjunnar viltu rekja spor, og helgar vit þitt húsi þínu’ og bæ, þá hafðu ætíð frægan “Diamond Dye.” Ef þessi vísa og þessi grein er send til Wells & Richardson Co. í Montreal, ásamt 25 cts. í peningum eða frímerkjum, þá fær sá sem sendir hið ágæta mánaðarlega familíu-blað “Our Home” sent til sín í heilt ár; sðmuleiðis bók með mjmdum sem heit- ir “How to make Mats and Rugs,” og einn pakka af blek-efni, sem nægir til að búa til 16 únsur af besta bleki. Segið í hvaða blaði þer táud þetta. VEITT HÆSTU VERÐLAUN a heimssýningunni ■jÐSSL* Ijr CREAM BAKINC POWDfH IÐ BEZT TILBÚNA. Oblönduð vínberja Cream of Tartar Powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára reynzlu. Kæru landar. Þar eð einn bágstaddur bróðir yðar, hefir beðið okkur undirritaða að gangast fyrir samskotum á meðal yðar, sér til hjálpar í langvarandi veikindum hans. Þá biðjum við yður, svo vel gera að rétta honum yðar örlátu hjálparhönd, þó að tímar séu nú alt annað en góðir, og margir eigi ekki stór efni af að miðla. En góður vilji megnar mikið. Og þér hafið oft sýnt í orði og verki yðar aðdáanlegu samtök í hjálp til nauð- liðandi landa yðar. Þó þeir hafi síður þurfi aðstoðar yðar við en þessi vesa- lingur, sem búin er að liggja í rúm- inu í meir en ár, í lungna tæringu, og hefir þar að auki að sjá fyrir gamalli móður. Þessi bágstaddi landi yðar er Mr. Gísli Konráðsson ætt- aður frá Búðum í Staðarsveit í Snæ- fellsnessýslu, á bezta aldri og gott mannsefni. Vér treystum á veglyndi yðar að þér látið eitthvað af hendi rakna, honum til hjálpar, og það sem þér gefið, hvort það er mikið eða lítið tökum vér þakklátlega á móti. Winnipeg, 5. Maí 1894. Jónas Danielson, Ketill Valgarðson, 120 Lydia Str. 236 McGee Str. Kæru herrar. — Eg hefi meðtekið myndirnar, sem gefnar eru með Hkr. og er mjög vel ánægður með þœr. Það er sannarlega góður kaupbætir að fá þær með blaðinu. — Vinsamlegast. Sveinbjörn Dalmann. Baldur, 2. Maí 1894. Stúkan LQYAL OEYSIB, I.O.OF. M. U., heldur samkomu á Northwest Hall (sal G. Johnsons) miðvikudags- kveldið 16. Maí. Skemtanir verða hinar allra beztu. Dr. Ó. Stephensen og Al- bert Jónsson syngja “Friðþjófur og Björn.” Sig. Helgasou syngur solo; Hinn nafnkunni spilagosi Mr. Wal- ley syngur gamansöngva, Tea Pot quar- tette, kemur fram á sviðið, ágæt string-hljóðfæra orkestra. Stutt leikrit verður einnig leikið auk annara skemtana. Við erum sannfærðir um, að það verður húsfyllir. Komið því í tima, svo þið náið í sæti innar- lega í salnum. Samkoman verður sett kl, 8 e. h. Inngangur 25 cts. Forstöðunefndin. Spámaðurinn próf. Hicks segir i sínum siðustu veðurspádómum að vorið komi fjrir alvöru 15, þessa mánaðar. Stendur vel heima við það að Mr. Elis Thorwaldsson, Mountain, N. D., er nýbúinn að fá búð sina hálffulla af alslags vor og sumar skó- fatnaði. Hefir aldrei verið annaðeins tækifæri og nú að kaupa ódýran skó- fatuað. Alt var keypt fjTÍr peninga og verður selt fyrir það sama. Til dæmis selur hann $2.00 skó fjrir $1.50, alt annað að sama skapi ódýrt. Komið og reynið sjálfir. borgaðir niður og $5.00 á hverjum mánuði framvegis kaupa bæjarlóðir á Mull-' igan og Maryland-strætum rétt fjrir sunnan Notre Dame Ave. Lóðirnar eru að stærð 32x112 fet, og bakstígur fyrir hverri. — Hver lóð kostar $200. Frekari upplýsingar á skrif- stofu EEIMSKRINOLU. Peninga /dn. t Þurfið þið að fá peninga ^ til láns gegn veði í fast- \ eignum ? Ef svo, spyrjið \ \ um upplýsingar á skrif- \ f stofu ÍIEIMSKRINQLU. f í rakarabúð M. A. Nicastros fáið þið ykkur betr rakaða fjrir lOc. en annarstaðar í bænum. Hárskurð- ur 15c. Tóbak og vindlar til sölu. 337 Main Str. Næstu dyr við O’Connors Hotel. ÍSLENZKR LÆKNIR DR. M. IIALLDORSSON, Park River — N. Dak. X ÍO U 8. (ROMANSON & MUMBERG.) Gleymið þeim ekki, þeir eru ætíð reiðubúnir að taka á móti yður. Þeir reykja ekkert annað, svo lengi sem þeir geta fengið Olp Chum, þó aldrei nema þeir séu neyddir til að snýkja það eða lána, því það er ekkert tóbak sem framleiðir jafn kaldan og smekk- góðan reyk. — D. Ritchie & Co., Manufacturers, Montreal. VORIÐ 1894. Blue Store Merki: Bla stjarna. 434 Main Str. Winnipeg. Nýkomið inn, síðan í vikunni sem leið, hið stærsta upplag af tilbúnum fatnaði fyrir karlmenn, unglinga og drengi, sem nokkum tima hefir sést í Winnipeg. Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu billeg þau eru. Þið getið ekki trúað því nema því að eins að þið sjáið það sjálfir. Komið og skoðið okkar : Karlmanna alfatnað, Karlmanna buxur Unglinga alfatnað, Drengja alfatnað og Drengja stuttbuxur. Látið ekki hjá líða að heimsækja okkur og sannfærast. Munið eftir staðnum The Blue Store MERKI: BLÁ STJARNA. 434 MAIN STREET. A. Chevrier. KAUPIÐ ÆFINLEGA ÞAR SEM ÞIÐ FÁIÐ BEZTAR OG .... ÓDÝRASTAR VÖRUR........ Hveiti. Bran. Fóðr-hveiti. Oil Cake. FJax Seed. Shorts. Hafrar. Hey. Linseed Meal. . . . Allskonar malað fóðr. . . . njá w. blaomlaðar, IRON WAREHOUSE. ísi Higgin Str.- 558 Jafet í föður-lelt. huga til Tímóteusar. Ætti ég að skrifa hon- um linu 7 Nei, nei ! Því ætti ég að vera að baka honum hugraun og sorg ? Ef það skyldi fyrir mér liggja að láta lífið, þá ásetti ég mér að leyna nafui mínu. En hvaða nafn átti ég þá að taka mér ? Meðan ég var að hugsa um þetta, lauk fangavörðrinn upp dyrunum og sagði mér að taka upp rúmlöt mín og vefja þau saman, svo að þau yrðu borin út um dagtímaun, eins og siðr var til í fingelsinu. Mér varð fyrst fyrir að spyrja hann, hvort að maðrinn, sem var svo sár og meiddr, væri hér í fangeisinu. “Þú átt við hann félaga þinn,” svaraði vörðurinn; “já hann er hér og er koinirm til ráds og rænu; læknirinn segir hann komi tiL” “Hefir hann gert nokkra játning í” spurði ée- Fangavörðr svaraði engu. “Ég spyr að því,” mælti ég, “fyrir þá sök að ef hann játar, hver var félagi hans að verki með honum, þá verð ég látinn laus.” “Það er mjög trúlegt,” svaraði fangavörðr háðslega. Það vill nú svo vel til aðhérþarf ekki á konungsvitni* að halda í þessu máli‘. *) 1 Englandi er það nefnt konugsvitni, er einn af tleirum samsekum mönnum gerir játn- ing yg ber vitni gegufélögum sínum. Þurfi rett- vísin á slíku vitni að halda til að sanna hina að sök, er konungsvitni ^efin upp sök, og hann sendr til annara landa a eftir. þýð. Jafet í föður-leit. 563 LX. KAPÍTULI. [Ég er dæmdr til að hengjastágálga, og yfirgefa þannig heiminn án þess að komast fyrir. hver sé faðir minn.— Síðar verðr saklej-si mitt uppvíst, og mér er fleygt vitstola út á víðavang]. Morguninn eftir sagði fangavörðr mér, að stórkviðrinn hefði úrskurðað, að múl skyldi gegn mér höfða; og á laugardaginn næsta átti að heyja dómþing. llann færði mér og skrá yfir mál þau, sem koma skyldu fyrir þetta dómþing; sá ég af lienni, að mitt mál var eitt af inum síð- ustu og var ekki líklegt að það kæmi fyrir fyrri en á mánudag eða þriðjudag. Ég bað fnngavörð að senda fyrir mig eftir góðum skraddara, því að ég vildi vera vel búinn er ég mætti í réttinum. Og með því að þaðer lieimiit fanga að mæta í réttinum í sínum búningi í stað fanga-fatanna, þá var mér leyft þetta. Þegar skraddarinn kom, var ég mjög nákvæmr um fyrirsögn á öllu sniði, og það svo, að hann varð alveg hissa. Hann útvegaði mér og alt annað, sem mig vant- aði, til þess ég gæti verið að öllu vel búinn, og bafði hann alt til á laugardagskveld ; því að ég 562 Jafet í föður-leit. fanga hingað til, en aldrr.i fyrri svona glingr. En sama er mér; þú skalt fá þetta, sem þú biðr um, þó skratta korninu ég hafi hugmynd um, hvað hó-du-kolum er, og rrefillinn liafi sem ég lield ég geti munað það. Það er þó aldrei eitr — því að það er bsnnað her í fang- elsinu ?” “Nei, nei,” svaraði ég, og gat ekki að mér gert að brosa snöggvast; “ef þú spyizt fyrir, þá mvn þér verða sagt, að það er helzt um hönd lraft af konum, sem ékki eru eterkar fyrir hjartanu.” “Nú, ég liefði heldr hugsað að þú mundir l eyða skildingunum þínum fyrir eitthvað gott að borða ; það er svo miklu náttúrlegra. En hvað um það; við höfum allir okkar grillur.” Að svo mæltu íór hann út frá mér og læsti dyrunum. Jafet í föður-leit. 559 annars kynnir pú nð sleppa með að verða sendr utan. En hér eru nœgar aðrar sannanir fyrir höndum, svo að þú verðr að treysta hamingj- unni einni. Stórkviðrinn * kemr saman í dag, og ég skal láta þig vita, hvort málshöfðun verðr úrskurðuð gegn þér. eða ekki.” “Hv»ð lieitir hinn maðrinn ?” spurði ég. “Nú, það er synd að segja að þú getir ekki gert þé;r «PP ólíkindalæti. Þú setr upp þann sakleysissvip, að ég mætti halda þér væri alls ó- kunnugt um glæpinn.” “Það er mér líka,” svaraði ég. “Eg kalla þig heppinn, ef þér tekst að sanna það—ég segi það eitt.” þú hefir ekki svarað spurning minni: hvaö lieitir hinn maðrinn ?” “Jæja,” svaraði fangavörðrinn hlæjandi: ur Því þú lætr þér svo ant um að ég segi þér það, þá skal ég líka gera það. Það verðr *) Þegar glæpr er drýgðr og lögregluvaldið liefir tekið fasta þá sem grunaðir eru og sóknari ríkisins safnað sönnunum gegn þeim, þá er þetta lagt fyrir stór-kviðinn (23 menn), sem líta á máliðmg skera úr, livort kæran virðist á rök- um bygð (“true bill”) eða eigi (“no bill”). Líti stórkviðrinn svo á, að útlit sé fyrir að kæran sé áröknm bygð, er mál höfðaö fyrir kviðdómi (“petit jury”) ; það eru 12 menn. Þeir heyra vitnaleiðslur og skera úr, livort kærði sé sýkn eða sekr. Dómari ákveðr svo hegninguna. fiýð.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.